Dagur - 14.05.1992, Page 13

Dagur - 14.05.1992, Page 13
Fimmtudagur 14. maí 1992 - DAGUR - 13 Kartöfluútsæði. Höfum til sölu úrvals kartöfluútsæöi frá viðurkenndum framleiðendum. Kartöflusalan Svalbarðseyri hf., Óseyri 2, símar 25800 og 25801. Tökum að okkur daglegar ræst- ingar fyrir fyrirtæki og stofnanir. Ennfremur allar hreingerningar, teppahreinsun og gluggaþvott. Ný og fullkomin tæki. Securitas, ræstingadeild, símar 26261 og 25603. Hreinsið sjálf. Leigjum teppahreinsivélar. Hjá okkur færðu vinsælu Buzil hreinsiefnin. Teppahúsið. Tryggvabraut 22, sími 25055. Gluggaþvottur - Hreingerningar - Teppahreinsun - Rimlagardínur. Tek að mér hreingerningar á íbúð- um, stigagöngum og stofnunum. Teppahreinun með nýlegri djúp- hreinsivél sem skilar góðum ár- angri. Vanur maður - Vönduð vinna. Aron Þ. Sigurðsson. Sími 25650. Vinsamlegast leggið inn nafn og símanúmer í símsvara. Tökum að okkur fataviðgerðir. Fatnaði veitt móttaka milli kl. 1-4 e.h. Fatagerðin Burkni hf., Gránufélagsgötu 4, 3. hæð, sími 27630. Geymið auglýsinguna! Akureyrarkirkja: Opið hús fyrir aldraða í Safnaðarheimili Akur- eyrarkirkju á fimmtudag kl. 15-17. Verið velkomin. Hjálpræðisherinn: Leið til lausnar. Þjónusta Hjálpræðishers- i ins við aldraða og öryrkja í heimahúsum. Hefur þú þörf á að tala við einhvern? Viltu láta lesa fyrir þig? Viltu láta laga eitthvað smávegis fyrir þig? Hringdu þá í síma 11299. Opin símalína á fimmtudögum kl. 18-20. Á öðrum tímum tekur símsvari við skilaboðum. Hjálpræðisherinn: Flóamarkaður verður >föstudag 15. maí, kl. 10- 12 og 14-17. Komið og gerið góð kaup. Kvenfélag Akureyrarkirkju. Aðalfundur verður haldinn í Safn- aðarheimilinu í dag, fimmtudag 14. maí kl. 20.30. Mætum allar. Nýjar félagskonur boðnar hjartan- lega velkomnar. Stjórnin. Hjálparlínan, símar: 12122 -12122. Stígamót, samtök kvenna gegn kyn- ferðislegu ofbeldi. Símatími á Ak- ureyri á fimmtudagskvöldum frá kl. 21.00-23.00. Síminn er 27611. Náttúrugripasafnið opið sunnudaga kl. 13-16.________________________ Minjasafnið á Akureyri. Lokað vegna breytinga til 1. júní.. Tónlist Nemendatónleikar áÁrskógsströnd Vaxtarbroddur tónlistarlífs hverrar byggðar er í tónlistar- skóla hennar. Þar er ungu fólki, hinni upprennandi kynslóð, kynntur hinn dásamlegi heimur tónlistarinnar. Vissulega staldra sumir stutt við, en fara þó fróðari um þenn- an þátt neyslu okkar, sem er sífellt ásæknari á athygli okkar með hverju árinu sem líður. Aðr- ir fyllast áhuga og hafa ef til vill getu til afreka á þessu laðandi sviði mannlegra athafna. Þeir eiga innan veggja skólanna kost á því að stíga frumsporin og halda síðan áfram til frekara náms og hugsanlegra afreka. í öllum til- fellum, hvort heldur sem skamm- an tíma eða langan er verið við tónlistarnám, getur það af sér frekari víðsýni, dýpri skilning og möguleika meiri lífsfyllingar en ella. Það er ekki allt af setningi sleg- ið á nemendatónleikum tónlistar- skólanna. Þó er ætíð skemmtilegt að hlýða á þá. Þar koma saman börn og unglingar, sem eru ef til vill í annan tíma upptekin af ærsl- um og jafnvel stráksskap, og setj- ast við það af einbeitni og ákveðni að flytja tónlist af allri þeirri nákvæmni og ögun, sem þeim er framast unnt að ná. Ein- ungis þannig verður tónlist flutt. Einbeitingar er þörf og einmitt í henni er ef til vill höfuð uppeldis- gildi tónlistarnámsins fólgið á frumstigum þess. Þessi uppeldis- þáttur tónlistarnámsins afmark- ast ekki við það eitt, heldur hefur áhrif út fyrir það. Það eru því engin undur, að hugsandi fólki í byggðum og bæjum landsins þyki starfsemi þessara menntastofn- ana mikils virði. Nauðungaruppboð annað og síðara, á eftirtöldum eignum fer fram í skrifstofu embættisins á neðangreindum tíma: Ásgötu 3, Raufarhöfn, þingl. eigandi Björn Hallgrímsson, talinn eigandi dánarbú Björns Hallgrímssonar, mánud. 18. maí 1992, kl. 13.40. Uppboðsbeiðandi er: Húsnæðissstofnun rikisins, lögfr.- deild. Fiskhúsi og verbúð á hafnarl. Húsav. ásamt vélum og tækjum, þingl. eigandi þ.bú Húsvískra Mat- væla hf., mánud. 18. maí 1992, kl. 13.30. Uppboðsbeiðandi er: Árni Pálsson hdl. Bæjarfógeti Húsavíkur, Sýslumaður Þingeyjarsýslu. Þetta viðhorf mátti glögglega kenna á nemendatónleikum Tón- listarskólans á Árskógsströnd, sem haldnir voru föstudaginn 1. maí. Tónleikarnir voru fjölsóttir og undirtektir góðar. Það var að verðleikum og ljóst, að áheyr- endur vissu greinilega, að hvert atriði verður að taka með tilliti til þess, hver fremur það. Þarna komu fram nemendur, sem voru stutt komnir í námi sínu. I flest- um tilfellum bar frammistaða þeirra þess vitni, að unnið hafði verið af kostgæfni og áhuga. Það er einmitt andinn, sem svífur yfir samkomum sem þessari og sem lyftir huganum og gleður þrátt fyrir óhreina hljóma á stundum, einstaka hik flytjenda og aðra skiljanlega örðugleika. Rúsínan í pylsuendanum á nemendatónleikunum var leikur blásarasveitar, sem er samstarfs- verkefni tónlistarskólanna á Árskógssandi, í Svarfaðardal, á Dalvík og Ólafsfirði. Stjórnandi þessarar sveitar er Michael Jacques og hann hefur einnig útsett talsvert af efnisskrá sveit- arinnar. Sveitin er ekki gömul. Ekki nema tveggja ára. Frammi- staða hennar var ánægjuleg og sýndi, hvað unnt er að gera, þeg- ar tekst að skapa hinn glaðlega og starfsfúsa anda, sem verður að vera fyrir hendi í hverju sam- starfi, en tónlistarflutningur er framar mörgu öðru í menningu og listum einmitt af þeim toga. Vissulega eru nemendatónleik- ar oftast framar öðru fjölskyldu- samkomur. Þeir ættu ekki að vera það. Starf tónlistarskólanna og uppskeruhátíðir koma öllum tónlistarunnendum við og ættu að vekja áhuga þeirra. Þannig sýna þeir í verki stuðning sinn við starfsemi skólanna jafnframt því, sem þeir eiga glaðlega stund í félagsskap hinnar upprennandi kynslóðar. Haukur Ágústsson. Nauðungaruppboð þriðja og síðasta, á eftirtaldri fasteign: Vélaverkstæði í landi Neðri-Sand- víkur, Grimsey, þingl. eigandi Sigurður Bjarnason, fer fram á eign- inni sjálfri mánud. 18. maí 1992, kl. 16.30. Uppboðsbeiðendur eru: Byggðastofnun, Gjaldskil sf., inn- heimtumaður ríkissjóðs, Jón Ingólfsson hdl. og Sveinn Skúlason hdl. Bæjarfógetinn á Akureyri og Dalvík, Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu. DALVIKURBÆR Garðyrkjumaður Dalvíkurbær auglýsir laust til umsóknar starf garðyrkjumanns. Starfið er við Tæknideild bæjarins og felst einkum í skipulagningu og umsjón með framkvæmd um- hverfismála á Dalvík. Nánari upplýsingar gefa bæjarstjóri og bæjartækni- fræðingur í síma 96-61370 og 96-61376. Umsóknir skulu berast til undirritaðs fyrir 1. júní 1992. Bæjarstjórinn á Dalvík. Bændur - Bændur 6 strengja girðingarnet, 100 m í rúllu, kr. 4.980 m. sk. Silva rafgirðingarefni fyrirliggjandi. Ferðastyrkur til rithöfundar Ráðgert er að af fjárveitingu til norræns sam- starfs í fjárlögum 1992 verði varið 90 þús. kr. til að styrkja rithöfund til dvalar á Norðurlöndum. Umsókn um styrk þennan skal hafa borist menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir 1. júlí n.k. Umsóknum skal fylgja greinargerð um hvernig umsækjandi hyggst verja styrknum. Menntamálaráðuneytið, 12. maí 1992. Nýkomið! Nýkomið Pattonsgarn Knit N Save 100 g Dk og Brushed Chunky 100 g. Fairytale 50 g og Beeheve 50 g. *☆* Cebelia heklugarn, hvítt, bleikt og svart. Pantanir óskast sóttar. *☆* Áteiknuð vöggusett. Árstíðamyndir Thorvaldsen. *☆* Rýmingarsala á flestum vörum verslunarinnar, 30-40% afsláttur. Árórugarn í heilum kössum, ullar-útsaumsgarn í búntum, ullaruppfyllingargarn í hespum, DMC heklugarn nr. 20, mislitt. Lopapeysutölur í heilum pokum. Þetta allt á hálfvirði. Bútar, tölur. Eldri prjóna- og heklublöð á kr. 50 stk. ■vV.a Hafnarstræti 103, sími 24364. Bróðir okkar, FRIÐJÓN KARLSSON, andaðist 3. maí að heimili sínu, Smárahlíð 24 g. Útförin verður gerð frá Akureyrarkirkju, föstudaginn 15. maí, kl. 13.30. Dagmar Karlsdóttir, Ingibjörg Karlsdóttir. Elskuleg dóttir okkar og systir, MARGRÉT VALA EMILSDÓTTIR, tölvunarfræðingur, Rekagranda 7, Reykjavík, sem lést 9. maí verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykja- vík, föstudaginn 15. maí, kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á heimahlynningu Krabbameinsfélagsins. Jóna Vestmann, Emil Guðmundsson, Ellen Emilsdóttir, Emil Emilsson.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.