Dagur - 14.05.1992, Síða 15

Dagur - 14.05.1992, Síða 15
Fimmtudagur 14. maí 1992 - DAGUR - 15 ÍÞRÓTTIR Jón Haukur Brynjólfsson Rut. Elvar. Stefán. íþróttir fatlaðra: Rut, Elvar og Stefán á OL íþróttasamband fatlaðra hef- ur tilnefnt þrjá Akureyringa sem keppendur á Olympíu- leikum fatlaðra sem fram fara á Spáni í haust. Elvar Thorar- ensen, Akri, og Rut Sverris- dóttir, Óðni, taka þátt í ÓL hreyfihamlaðra í Barcelona og Stefán Thorarensen, Akri í ÓL þroskaheftra í Madrid. 12 íþróttamenn hafa verið til- nefndir á leikana í Barcelona sem standa yfir dagana 3.-14. september. Flestir keppa í sundi, eða þau Rut Sverrisdótt- ir, Óðni, Ólafur Eiríksson, Kristín Rós Hákonardóttir, Birkir Rúnar Gunnarsson og Sóley Axelsdóttir, öll úr ÍFR, Lilja M. Snorradóttir, SH, Geir Sverrisson, UMFN, og Svanur Ingvarsson, Suðra Selfossi. Haukur Gunnarsson, ÍFR, og Geir Sverrisson, Ármanni, keppa í frjálsum íþróttum og Elvar Thorarensen, Akri, og Jón H. Jónsson, ÍFR, í borð- tennis. Sérstök Ólympíunefnd stað- festir val á þátttakendum og verður það gert 31. maí. Sett voru ákveðin lágmörk f sundi sem miðuð voru við 3. sæti á heimsleikum eða betri árangur en í öðrunt greinum var miðað við ákveðna kvóta. Rut Sverris- dóttir tryggði sér sæti með heimsmeti á síðasta ári. Þátttakendalisti fyrir Ólymíu- leika þroskaheftra, sem fram fara 13.-20. septembcr í Madrid, liggur ekki fyrir en starfsmaður IF staðfesti í gær að öruggt væri að Stefán Thorar- ensen yrði í þeim hópi. Blak: Júgóslavneskur þjálfari til KA? - hugsanlegt að Jasna þjálfi kvennaliðið Hugsanlegt er að Júgóslavi þjálfí karlalið KA í blaki næsta vetur. Blakdeildin hefur verið í sambandi við tvo þarlenda þjálfara að undanförnu og ætti að skýrast fljótlega hvort ann- ar þeirra þjálfar hjá félaginu á næsta tímabili. Alls óvíst er að sá myndi einnig þjálfa kvenna- liðið og er hugsanlegt að Jasna Popovic, sem lék með liðinu í vetur, komi aftur til Akureyrar í haust og taki við þjálfuninni. Bjarni Þórhallsson, formaður blakdeildar KA, sagði að Júgóslavarnir tveir væru báðir háskólamenntaðir í íþróttafræð- um með blak sem sérgrein. „Okkur vantar enn upplýsingar um peningahliðina en vonum að þetta verði ódýrara en að fá kínverskan þjálfara þar sem lítið er að gerast í blakinu í Júgóslavíu vegna ástandsins þar. Þar er eng- in deildakeppni í gangi, eitthvað hefur verið rætt um að þeir tækju þátt í ungversku deildakeppninni en mér skilst að litlar líkur séu á því,“ sagði Bjarni. Hann sagði útlit fyrir að litlar breytingar yrðu á mannskap hjá KA-liðunum. Reyndar væri óvíst að Þröstur Friðfinnsson, sem bú- settur er á Kópaskeri, léki áfrarn með karlaliðinu en aðrar breyt- ingar væru ekki fyrirséðar. „Ég á ekki von á að við bætum við ein- hverjum utanaðkomandi. Það eru að koma upp strákar úr 2. flokki sem eru mjög sterkir og gætu allt eins ýtt einhverjum út úr liðinu. Við erum mjög vel sett- ir að því leyti.“ Tveir KA-menn í landsliðinu Tveir KA-menn, Bjarni Þórhalls- son og Þröstur Friðfinnsson, eru í landsliðshópnum sem tekur þátt í verkefnum sumarsins. Tveir aðrir, þeir Haukur Valtýsson og Stefán Magnússon, gáfu ekki kost á sér. í lok maímánaðar fer landslið- ið í æfingabúðir í nokkra daga til Færeyja og 10.-12. júní leikur það tvo landsleiki gegn Lúxem- borg ytra. 13.-16. júní tekur liðið síðan þátt í smáþjóðamóti í blaki á San Marínó. Knattspyrna: íslandsmótið hefst 23. maí Keppni á íslandsmótinu í knattspyrnu hefst laugardag- inn 23. maí. Þá verður leikið í 1., 2. og 3. deild karla, keppni í 4. deild karla hefst 30. maí, 1. deild kvenna 27. maí og 2. deild kvenna 28. maí. Áður hefur verið greint frá fyrstu umferðunum í 1. og 2. deild karla. í 3. deild byrja öll norðlensku liðin á útivelli nema KS sem fær Þrótt N. í heimsókn á Siglufjörð. Aðrir leikir í 1. umferð eru Grótta-Magni, Hauk- ar-Tindastóll, Skallagrímur- Völsungur og Ægir-Dalvík. Allir leikirnir fara fram 23. maí kl. 14. í 2. umferð mætast Magni- Dalvík, Grótta-KS, Þróttur N.- Haukar, Tindastóll-Skallagrímur og Völsungur-Ægir. Leikirnir fara allir fram laugardaginn 20. maí kl. 14 nema Magni-Dalvík sem verður á föstudeginum kl. 20. Síðasta umferð 3. deildar fer fram laugardaginn 5. september og þá leika Magni-Ægir, Grótta- Þróttur N., KS-Tindastóll, Hauk- ar-Völsungur og Skallagrímur- Dalvík. Sex lið taka þátt í Norður- landsriðli 4. deildar sem kallast C-riðill í ár. í 1. umferð, sem fram fer laugardaginn 30. maí ki. 14, leika HSÞ b-Neisti, Kormák- ur-Þrymur og SM-Hvöt og í 2. umferð, Neisti-Hvöt (12. júní), HSÞ b-Kormákur (13. júní) og Þrymur-SM (13. júní). Síðasta umferðin í riðlinum fer fram laugardaginn 15. ágúst og þá leika HSÞ b-Þrymur, Neisti-SM og Kormákur-Hvöt. 1. og 2. deild kvenna Þór verður eitt norðlenskra liða í 1. deild kvenna í sumar. Liðið leikur fyrsta leikinn miðvikudag- inn 27. maí gegn Breiðablik á Akureyri. Aðrir leikir í fyrstu umferð eru KR-Stjarnan, Hött- ur-Þróttur N. og Valur-ÍA. í 2. umferð leika UBK-Þróttur N. (30. maí), Þór-KR (31. maí), Stjarnan-Valur (31. maí) og ÍÁ- Höttur (5. júní). Síðasta umferð fer fram sunnudaginn 6. sept- ember og þá leika Þór-Stjarnan, KR-ÍA, Valur-Þróttur N. og UBK-Höttur. Keppni í Norðurlandsriðli 2. deildar kvenna, B-riðli, hefst 28. maí með leik KS og Dalvíkur. 3. júní leika Tindastóll og KS og Dalvík og Leiftur og 10. júní Leiftur og KA. Dagur mun birta leikjatöflur íslandsmótsins í næstu viku. HM í knattspyrnu: Ósigur í fyrsta leik íslendingar töpuðu 0:1 fyrir Grikkjum í undankeppni heimsmeistaramótsins í knatt- spyrnu á Ólympíuleikvangin- um í Aþenu í gær. Þetta var fyrsti leikur liðanna í keppn- inni og jafnframt fyrsti A- landsleikur þjóðanna í knatt- spyrnu. Grikkir byrjuðu leikinn af gríðarlegum krafti og yfirspiluðu Islendinga algerlega. Þeir sóttu stíft og voru búnir að fá nokkur dauðafæri þegar þeir áttu skalla í stöng eftir aukaspyrnu og Sofi- anopolos fylgdi á eftir og skoraði á 25. mínútu. Grikkir drógu sig heldur til baka eftir markið og Andri Marteinsson átti ágætt skot skömmu fyrir hlé en það var varið. íslendingar léku betur í seinni hálfleik en voru heppnir að fá Rúnar Kristinsson var besti maður íslcnska liðsins. ekki á sig annað mark þegar Grikkir skölluðu aftur í stöng eft- ir góða sókn. Besta færi íslend- inga fékk Arnar Grétarsson á 70. mínútu en skot hans fór framhjá gríska markinu. Rúnar Kristinsson lék mjög vel og var besti maður íslenska liðs- ins en eins og fram hefur komið urðu íslendingar fyrir áfalli þegar Arnór Guðjohnsen meiddist á æfingu í gær og gat því ekki leikið með. íslenska liðið var þannig skipað: Birkir Kristinsson, Guðni Bergsson, Kristján Jónsson, Sæv- ar Jónsson, Kristinn R. Jónsson, Valur Valsson, Arnar Grétars- son, Rúnar Kristinsson, Andri Marteinsson (Hörður Magnússon á 75. mín.), Baldur Bjarnason og Eyjólfur Sverrisson. U-18 landsliðið: Jafiit gegn Pólverjum U-18 ára landsliðið í knatt- spyrnu lék á þriðjudaginn fyrsta leik sinn á móti í Tékkó- slóvakíu. Liðið mætti þá Pólverjum og lauk leiknum með jafntefli, 2:2. Pálmi Haraldsson, ÍA, og Helgi Sigurðsson, Víkingi, skoruðu mörk íslands. í gær lék liðið við Tékka en úrslit höfðu ekki borist þegar blaðið fór í prentun. Á morgun verður síðan leikið gegn Ung- verjum. Hafsteinn að braggast - hefur verið meiddur í tæpt ár Hafsteinn Jakobsson, leik- maður KA í knattspyrnu og blaki, gerir sér vonir um að geta leikið eitthvað með KA- liðinu í sumar. Hann meiddist illa í leik gegn Stjörnunni á Akureyrarvelli í fyrrasumar, sleit krossband í hnéi, og hefur verið frá allri íþróttaiðkun síðan. „Þetta er að skríða sam- an en það vantar enn dálítið uppá og erfítt að segja hvenær þetta verður komið í lag. Ég vonast þó til að geta tekið ein- hvern þátt í fótboltanum í sumar,“ segir Hafsteinn. Hafsteinn meiddist 9. júní og var skorinn upp 18. júní þannig að hann hefur verið frá í tæpa 11 mánuði. Hann missti af meiri- hluta keppnistímabilsins í knatt- spyrnunni í fyrra, öllu blaktíma- bilinu í vetur og missir eitthvað af knattspyrnutímabilinu í sumar. „Það gerðist eiginlega ekki neitt. Ég hrundi bara niður und- an sjálfum mér, hef sjálfsagt snúið mig eða stigið eitthvað vitlaust niður. Það virðist ekki þurfa mikið til og sjálfsagt hefur þetta eitthvað verið farið að gefa sig. Þetta var auðvitað áfall en það þýðir ekkert annað en að sýna þolinmæði og æfa vel. Ég spilaði aðeins í JMJ-mótinu og það gerði mér gott en maður var dálítið smeykur og fann að enn er svolítið í land,“ sagði Hafsteinn. En hefur þetta ekki tekið alltof langan tíma? „Það eru skiptar skoðanir um það. Læknirinn sem skar mig sagði að þetta myndi taka eitt ár en úti eru menn sendir af stað eft- ir 6 mánuði. En þetta er að koma og ég á að ná mér fullkomlega," sagði Hafsteinn Jakobsson. Á sjúkrabörunum 9. júní 1991.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.