Dagur


Dagur - 15.05.1992, Qupperneq 8

Dagur - 15.05.1992, Qupperneq 8
8 - DAGUR - Föstudagur 15. maí 1992 Ír ........................ FJALLALAMB HF. SÍMAR 96-52140 OG 96-52163 • KÓPASKERI KYNNING í HAGKAUP FÖSTUDAG: Hólsfjallahangikjöt LAUGARDAG: Krydduð lærissteik Lambakiöt í lúxusflokki! HOTEL KEA Laugardagskvöldið 16. maí Hljómsveit INGIMARS EYDAL í hörkustuði fram eftir nóttu ★ Glœsilegur matseðill. Borðapantanir fyrir matargesti í síma 22200. Skrifstofa Framsóknarfélags Húsavíkur er opin á hverjum laugardagsmorgni kl. 11-12 til og með 13. júní nk. Bæjarmál og landsmál rædd yfir kaffibolla. Tilvalið tækifæri til að koma skoðunum sínum á framfæri og fá svör við spurningum. Lítum við í Garðari. Framsóknarfélag Húsavíkur. Garðari, Garðarsbraut 5, 2. hæð. Sími 41225. Landsþing ITC á Húsavík: „Ég held að við þurfum öll á slíku að halda“ - segir Sigríður Jóhannsdóttir, forseti ITC, varðandi þjálfunarþátt samtakanna Landsþing ITC er haldið árlega og oft aðra helgina í maí. í ár fór þinghaldið fram á Hótel Húsavík og 80-90 manns mættu til þingsins. Þinghaldið hefst yfirleitt með úrslitalotu í ræðukeppni vetrarins. Þrir keppendur mæta tii leiks á þinginu eftir að hafa sigrað keppinauta sína í tveimur umferðum. Gyða Steingríms- dóttir ITC-Björkin í Reykjavík var sigurvegari í ræðukeppn- inni að þessu sinni og talaði hún um syndir feðranna í ræðu sinni. Á landsþingum ITC er fjallað um félagsmál, eins og í öðrum félögum, fluttar eru skýrslur nefnda og stjórna og almennar umræður fara fram um málefni samtakanna. Fræðslufundir eru haldnir á þingunum, bæði eru fengnir fyrirlesarar utan samtak- anna og einnig eru ITC félagar þjálfaðir í fundarsköpum, ræðu- mennsku, dómgæslu, stjórnunar- tækni, nefndarstörfum og leið- beinendastörfum. Valgerður Bjarnadóttir, félagsráðgjafi flutti erindi er nefndist „Leitin að jafn- vægi - um hina ytri og innri bar- áttu kvenna.“ Þrír Húsvíkingar fluttu erindi á þinginu: Jóhannes Sigurjónsson, ritstjóri, Einar Njálsson, bæjarstjóri og Sigríður Birna Ólafsdóttir, heilsugæslu- hjúkrunarfræðingur. Edna Chapman, útbreiðslustjóri ITC í Sigríður Jóhannsdóttir forseti ITC. Evrópu annaðist fræðslu á þing- inu. Sjálfstraustið eflt „Það er yndislegt umhverfi hérna og mjög þægilegt viðmót, en það má kannski segja að hótelið sé heldur lítið því hluti þátttakenda þurfti að gista í Gistiheimilinu Árbóli. Það hefði verið betra ef allar hefðu getað gist á sama stað,“ sagði Sigríður Jóhanns- dóttir, forseti ITC á íslandi, aðspurð um aðstöðu til þing- haldsins á Húsavík. „Þetta eru þjálfunarsamtök, Sigríður Birna Ólafsdóttir heil.su- gæsluhjúkrunarfræðingur flytur erindi. Hluti ITC félaganna á þinginu. fyrst og fremst ætluð til að auka sjálfstraust fólks. Það er gert með því að þjálfa fólk í að koma fram og koma skoðunum sínum á framfæri. Ég held að það sé mikil þörf á því að fólk fái tækifæri til að koma sér og sínum skoðunum á framfæri. Félagar fá þjálfun í ræðumennsku, stjórnun og því að vinna með öðru fólki. Þjálfun- in auðveldar fólki aðgang að betri störfum í atvinnulífinu og að takast á við nýja hluti. Fólk þarf að fá tækifæri til að spreyta sig og finnur oft í þessum sam- tökum hvað það getur tekist á við. Svo er þetta virkilega góður Gyða Steingrímsdóttir sem sigraði í ræðukeppni einstaklinga á þinginu. Myndir: IM

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.