Dagur - 15.05.1992, Side 9

Dagur - 15.05.1992, Side 9
Föstudagur 15. maí 1992 - DAGUR - 9 Sigríður Jóhannsdóttir forseti, Sigríður Birna Ólafsdóttir ræðumaður dags- ins og Hólmfríður Pétursdóttir ITC Flugu í Mývatnssveit. Alexía Gísladóttir viðtakandi forseti, Edna Chapmann útbreiðslustjóri ITC í Evrópu og Sigríður Jóhannsdóttir forseti ITC. félagsskapur, eins og í flest öllum félögum," sagði Sigríður, aðspurð um hvaða tilgangi ITC félögin þjónuðu. Á íslandi eru starfandi 18 deildir ITC félaga, þar af fjórar á Norðurlandi, á Akureyri, Sauð- árkróki, í Mývatnssveit og Vopnafirði. Deildir starfa líka í Grundarfirði og í Rangárþingi, en flestar deildanna eru á Stór- reykjavíkursvæðinu. ITC er öllum opið „ITC er öllum opið og það er kannski kostur samtakanna að þar kynnist fólk á öllum aldurs- skeiðum og ýmis sjónarmið koma fram. Körlum er heimil innganga í samtökin og svo hefur verið síð- ustu árin en áður var um kvenna- samtök að ræða. I fyrstu var karl- mönnunum tekið með svolítilli varúð, enda erfitt að brjóta ísinn. Fjórir karlmenn eru félagar í samtökunum í dag og ég get ekki annað séð en þeir starfi líkt og aðrir félagar. Pað er meira tekið eftir þeim af því þeir eru svo fáir í stórum hópi kvenna en þetta reynist ekki illa. Ég lít á ITC sem þjálfunar- samtök og starfa í annars konar samtökum einnig. Ef maður vill beita sér þá er ITC virkilega góð- ur skóii. Oft langaði mig að segja eitthvað varðandi kjarabaráttu í mínu stéttarfélagi, ég hef verið þar í stjórn og ITC hjálpar mér mjög til að beita mér þar og koma mínum málum á framfæri. Ég held að við þurfum öll á slíku að halda,“ sagði Sigríður. Með kreppappírsblóm í barminum í fundarsalnum var uppsettur forkunnarfagur fáni íslensku samtakanna, handunninn af nunnunum í Hafnarfirði. Fáni þessi var á sínum tíma gefinn af ITC Hafrót sem starfaði í Vest- mannaeyjum og var gjöfin til minningar um Ingibjörgu Ástu Blomsterberg. Að þinghaldi loknu skoðuðu ITC félagar Safnahúsið á Húsa- vík undir leiðsögn Finns Krist- jánssonar, forstöðumanns. Gest- irnir voru ákaflega hrifnir af safn- inu og fannst mikið til um það sem þar var að sjá. Létu þeir í ljós það álit sitt að ánægjulegt og einstakt væri fyrir héraðið að eiga slíkt menningarsetur. Einnig var litið við í Húsavíkurkirkju en á bakaleiðinni að hótelinu mætti hópurinn blómasölubörnum Kvenfélags Húsavíkur. f>að er áratuga gamall siður félagisns að selja heimatilbúin kreppappírs- blóm á mæðradaginn og ganga börn um bæinn með þau í skreyttum körfum. Sigríður Birna hafði í erindi sínu fyrr um daginn sagt frá þessum sið og félagslegum þætti hans. Og kven- félagsblómin runnu út sem aldrei fyrr og ráðstefnugestir yfirgáfu Húsavík með sól í sinni og krep- pappírsblóm í barminum. IM Kristján frá Djúpalæk: Merkt byggðarit Súlur, norðlenskt tímarit, 19. árg., 32. hefti. Eig. og útgef- andi Sögufélag Eyfirðimga. Ritstjórar Arni J. Haraldsson og Angantýr H. Hjálmarsson. Þetta rit hefur á undanförnum árum flutt margan fróðleik og skemmtiþætti hér úr byggðum norðanlands. Er hið síðasta með þeim betri. Ritið hefst á þætti um Jónas Jónsson, lækni og smið, f. 1830, d. 1895. Þáttinn hefur Jón R. Hjálmarsson gert eftir handriti Jónasar Rafnar, fv. yfirlæknis í Kristnesi. Jónas sonur hans, fv. þingmaður og bankastjóri, hefur varðveitt þessi skrif ásamt fleiru góðu úr smiðju föður síns. Þetta er merkur þáttur því að maður- inn sem um er fjallað hefur verið óvenju fjölhæfur og notið sín vel, m.a. sem óskólagenginn læknir. Sá hæfileiki virðist hafa erfst vel. Þá má nefna ferðasögur, t.d. Jóns Sigurgeirssonar og Aðal- steins Sigurðssonar. Fróðlegur er og þáttur Kristins Haukssonar um jarðskjálftana á Dalvík 1934. Árni J. Haraldsson skrifar um Svein í Flögu og birtir bæjavísur hans úr Myrkársókn á sinni tíð: kenningaríkar bögur svo að ekki sé meira sagt! Þulur finnast hér gamlar og góðar; en það form er nú lítt notað af skáldum. Ingólfur Davíðsson birtir minningar frá Árskógsströnd í bundnu máli og óbundnu. Gagn og gaman hafði ég af ætt- fræði Bernharðs Haraldssonar skólameistara frá Steinþóri á Hömrum. Fögur er svo sagan um heiðasvaninn hennar Sigrúnar Hjálmarsdóttur; og merkur er þáttur Rannveigar Oddsdóttur um Kristínu Eggertsdóttur, f. 1877, er virðist fyrst útlærðra hjúkrunarkvenna og eins bæjar- stjórnarfulltrúi hér. En mest þykir mér vert um þátt Jóns Hjaltasonar sagnfræð- ings sem eru leiðréttingar á frá- sögnum Hjörleifs Stefánssonar í bókinni Akureyri: Fjaran og Inn- bærinn, Byggðasaga (1986). Hygg ég að þar komi natni Jóns við sögurannsóknir vel í ljós, andstætt vinnubrögðum Hjör- leifs, sem fremur virðist maður hins sjónræna en sagnfræðilega. Ekkert er skaðlegra en óvönduð frásögn af sögulegum staðreynd- um. Jón er maður á réttum stað í starfi sínu að sögu Akureyrar í heild. Hér vann hann nauðsynja- verk. Ritið Súlur er að þessu sinni 160 bls. og aðeins um fátt fjallað hér og stuttlega. Menn munu sjá það við lestur ritsins. Árni J. Haraldsson hefur starf- að dyggilega við ritið undanfarin ár en er nú að hætta ritstjórn og að mestu störfum fyrir Súlur. En góður tekur alfarið við, þ.e. Ang- antýr H. Hjálmarsson. Þeir Vill- ingadalsbræður hafa reynst verk- menn góðir á sviði ritaðs ináls sem öðru þörfu. Hér á t.d. Jón Hjálmarsson sérkennilega frá- sögn af „Kletta-Rauð“. Árna .1. má þakka vel unnin störf og óska Angantý góðs í framhaldi á útgáfu Súlna og ritstjórn. Akureyri, 9. maí. K.f.D. Hestamannafélagið Þráinn heldur almennan félagsfund í Safnaðarhúsinu á Svalbarðseyri, fimmtudaginn 21. maí 1992 kl. 20.30. Fundarefni: Áframhaldandi uppbygging á Melgerðismelum. Stjórnin. BOKHALDSÞjONUSTA TOK BÓKHALDSKERFI Bókhald fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Skattframtöl — VSK uppgjör. Ritvinnsla — vélritun. BIRGIR MARINÓSSON Norðurgötu 42 • Akureyri • Sími 96-21774. Bæjarmálafundur Bæjarmálafundur verður haldinn að Hafnarstræti 90 mánudaginn 18. maí kl. 20.30. Rætt um dagskrá næsta bæjarstjórnarfundar. Þeir sem sitja í nefndum hjá Akureyrarbæ á vegum Fram- sóknarflokksins eru eindregið hvattir til að mæta og einnig varamenn. Stjórn Framsóknarfélags Akureyrar. GRÓÐRARSTÖÐIN RÉTTARHÓLL Svalbarðseyri, sími 11660 Sumarblóm - Fjölær blóm Höfum til sölu sumarblóm, fjölær blóm, skógarplöntur í 35 gata bökkum, tré og runna. Opið verður virka daga frá kl. 20 til 22 og laugardaga og sunnudaga frá kl. 10 til 18. Nettó flytur Nettó verslun okkar að Höfðahlíð 1 verður lokað laugardaginn 16. maí og starfsemin flutt að Óseyri 1 b. Um leið og við þökkum viðskiptin að Höfðahlíð 1 bjóðum við ykkur velkomin í nýja Nettóverslun að Óseyri 1 b föstudaginn 22. maí ki. 12.00. Nettó allra hagur Kaupfélag Eyfirðinga.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.