Dagur - 15.05.1992, Blaðsíða 14
14 - DAGUR - Föstudagur 15. maí 1992
Fyrrverandi ncmendur skólans eru höfundar og flytjendur söngleiksins. Fremst á myndinni eru
höfundarnir: Borgar Þórarinsson sem samdi tónlistina og Oddur Bjarni Þorkelsson sem samdi
textann. Fyrir aftan þá standa þrír söngvaranna: Ragnar Þór Jónsson, Anna Gerður Guðmunds-
dóttir og Sigurbjörn Einarsson.
Barnakór Hafralækjarskóla og Anna Gerður Guðmundsdóttir æfa söngleikinn.
Hafralækjarskóli í Aðaldal 20 ára:
Aflnælishátíð með frumsýmngu söngleiks
- eftir fyrrverandi nemendur
ágúst sl. ræddum við við strák-
ana. Þeir fengu það eitt í hendur
að þeir ættu að velja sér gamla
sögu, helst ævintýri. Þeir völdu
söguna um Ragnar loðbrók og
borgarhjört. Um áramót var ljóst
að hægt var að stefna á þetta af
fullum krafti, þar sem samning
verksins var það langt komin.
Það var greinilegt að aðalhlut-
verkin mundu frekar hæfa rödd-
um fullorðinna og þá datt okkur í
hug að fá gamla nemendur til að
koma til liðs við okkur. Við
leituðum til nokkurra og þetta
gekk ekki upp í fyrstu atrennu,
en nú erum við búin að manna
þetta og það er afskaplega gaman
að vinna að uppsetningu
verksins. Það er mjög gaman að
geta gert eitthvað í tilefni afmæl-
isins í samstarfi við eldri nemend-
ur og það er afskaplega spenn-
andi að vinna að þessu.“
Vinnuvikan skilar líka
heilmiklu til kennaranna
Á laugardaginn verður opið hús í
skólanum kl. 13-16. Þar verður
sýning á vinnu nemenda í vetur
og því sem þeir hafa unnið að í
vinnuvikunni. Nokkur atriði frá
tónlistardeild skólans eru einnig
á dagskrá á þessum tíma.
Afmælishátíðin verður haldin á
laugardagskvöld. Þá verðursöng-
leikurinn fluttur og síðan fara
fram skólaslit. Að lokum verður
gestum boðið upp á kaffi og
tertusneið, þeim gefst kostur á að
ávarpa samkomuna og tónlist
verður flutt. Sigmar sagði að allir
væru velkomnir á hátíðina og
vonandi hefðu gestir biðlund þó
ekki kæmust allir að borðum í
einu.
„Það er okkar einlæg von að
staðurinn og svæði umhverfis
beri þess merki að við höfum ver-
ið að vinna þessa viku. Ég held
að þessi vinna skili nokkru til
nemendanna, ekki síður en
kennslubókin. Og mér sýnist að
þetta skili heilmiklu til okkar
kennaranna líka. Svona vinna
skapar svo gjörólíkt samband
milli kennara og nemenda frá því
sem er þegar setið er í kennslu-
stofunum á hefðbundinn hátt. Ég
er sannfærður um að þetta skilar
til okkar meira og betra samstarfi
og skilningi milli manna í fram-
tíðinni. Hér heyrist járnaglamur
og vélsagarhljóð, ýmislegt sem
við heyrum ekki dags daglega í
skólanum.
Við vonumst til þess að sem
flestir sjái sér fært að koma til
okkar á laugardaginn, ekki síst
gamlir nemendur og fólk úr sveit-
unum sem skólinn starfar fyrir,“
sagði Sigmar, skólastjóri. IM
Einar Þurbergsson leikstjóri söngleiksins og Sigmar Ólafsson, skólastjóri.
Hafralækjarskóli ■ Aðaldal
minnist 20 ára afmælis síns nk.
iaugardag. Þá um kvöldið
verður frumsýndur frumsam-
inn söngleikur, Þóra borgar-
hjörtur, og er tónlistin eftir
Borgar Þórarinsson og textinn
eftir Odd Bjarna Þorkelsson,
en báðir eru fyrrverandi
nemendur skólans. Verkið
flytja fimm fullorðnir söngvar-
ar, fyrrverandi nemendur og
foreldrar, auk barnakórs
Hafralækjarskóia en í kórnum
syngja 25 börn. Gífurleg vinna
hefur verið lögð í undirbúning
sýningarinnar og hafa foreldr-
ar aðstoðað við búningagerð
og Ijósahönnun. Höfundar
beita tækninni óspart við tón-
listarflutninginn og hafa marg-
ir verið liðlegir við lán á útbún-
aði. Robert Faulkner er tón-
listarstjóri og Einar Þorbergs-
son leikstjóri sýningarinnar.
Þessi vika er vinnuvika hjá
nemendum skólans. Unnið er
sleitulaust að undirbúningi
afmælishátíðarinnar, einnig að
tiltekt og fegrun umhverfis skóla-
setursins. Prófum var flýtt vegna
þessa verkefnis sem skólastjór-
inn, Sigmar Ólafsson, telur að
geti ekki síður reynst menntandi
og gagnlegt fyrir nemendur en
aðrir þættir skólastarfsins.
Uppsetning söngleiksins
afskaplega skemmtileg
Nemendum er skipt í átta hópa,
og höfðu þeir val um í hvaða hópi
þeir vildu starfa. Það var vissu-
lega allt í fullum gangi er Dagur
leit við í Hafralækjarskóla í byrj-
un vikunnar. Það var verið að
tína rusl af lóðinni, lagfæra utan-
dyra og setja upp leiktæki. Lista-
verk sem átti að setja upp bæði
utan dyra og innan voru í fram-
leiðsiu, og átti þar að vera um
endingargóð verk að ræða sem
dygðu til yndisauka lengur en rétt
á afmælisdaginn. Hópur var að
æfa söngleikinn, annar hópur að
gera skreytingar fyrir afmælis-
hátíðina, þriðji hópurinn að
smíða, fjórði að velja ljósmyndir
úr sögu skólans og koma þeim
fyrir á veggspjöldum og fimmti
hópurinn að gera vídeómynd um
skólastarfið úr safni af mynd-
böndum, sjötti hópurinn var við
skráningu á sögu skólans.
Sigmar var spurður um hug-
myndina að gerð söngleiksins:
„Það er líklega að verða tvö ár
síðan þessari hugmynd skaut upp
í kollinum á mér, gerð söngleiks í
tilefni afmælisins. Hún var gripin
á lofti af mínum ágæta söng-
kennara, Robert Faulkner. Við
meltum þetta með okkur og í
Verkfærin brýnd. Það þýðir ekkert
að nota bitlausa skóflu við útiverkin
og nemandi bætir bitið.
Hólmfríður Bjartmarsdóttir, myndmenntakennari, ásamt nemendum við
myndverk sem verið er að vinna að og ætlað er það hlutverk að lífga upp á
húsnæði skólans í framtíðinni.
Ormurinn ógurlegi sem koma á fram í sýningunni var í vinnslu og hér skoðar
Sigmar skólastjóri höfuð hans með nemendum sínum.
Hópur starfaöi við að setja upp Ijósmyndasýningu fyrir afmælishátíðina og
kallað var á konurnar í eldhúsinu til aðstoðar við að þekkja eldri nemendur
á gömlu myndunum.