Dagur - 03.06.1992, Qupperneq 7
Miðvikudagur 3. júní 1992 - DAGUR - 7
afkoma flakafrystiskipa hefur
verið mun betri en annarra greina
sjávarútvegsins. Samkvæmt
nýlegri athugun Þjóðhagsstofn-
unar á afkomu botnfiskveiða og
vinnslu kemur fram að frystiskip
voru rekin með um 11,5% hagn-
aði af tekjum miðað við rekstrar-
skilyrði í janúar sl. en á sama
tíma var útgerðin í heild rekin
með um 2% hagnaði. Innlend
fiskvinnsla var á sama tíma rekin
með um 8% halla. Þessi afkomu-
munur getur því leitt til þess að
fleiri aðilar muni hugleiða að láta
breyta skipum sínum þannig að
þau geti unnið afla úti á sjó. Með
lögunum er stefnt að því að koma
í veg fyrir að tiltölulega litlum
skipum verði breytt í vinnsluskip,
skipum sem telja verður að
smæðar sinnar vegna séu varla
fallin til slíkrar vinnslu,“ segir
m.a. í skýrslu sjávarútvegsráðu-
neytisins um lögin um fullvinnslu
afla í fiskiskipum.
Ráðstöfun eigna
Yerðjöfnunarsjóðs
Eins og áður segir var á síðustu
dögum þingsins afgreitt frumvarp
um Verðjöfnunarsjóð sjávar-
útvegsins. Alls verður 2,7 millj-
örðum króna ráðstafað til lækk-
unar á skuldum þeirra framleið-
enda sem eiga innistæður í sjóðn-
um en auk þess verður 278 millj-
ónum króna ráðstafað til lífeyris-
sjóða sjómanna. Greiðsluni til
sjóðanna verður ráðstafað í hlut-
falli við árleg iðgjöld þeirra á
árinu 1991.
„Tilgangur þessara tímabundnu
breytinga á lögum sjóðsins er að
stuðla að því að þau fyrirtæki
sem myndað hafa þessar inneign-
ir geti ráðstafað þeim til greiðslu
vanskilaskulda og þannig lækkað
þann mikla vaxtakostnað sem
þeim fylgir. Hér er einungis um
tímabundna ráðstöfun að ræða
og ekki gerð tillaga um neinar
varanlegar breytingar á starfsemi
sjóðsins að öðru leyti. Hins vegar
er tillagna að vænta um framtíð-
arskipan sjóðsins nú í sumar frá
nefnd sem skipuð var sl. haust.
Engar ákvarðanir verða því tekn-
ar fyrr en þær tillögur liggja fyrir.
Leiði tillögur nefndarinnar til
þess að ákvarðanir verði teknar
um varanlegar breytingar á
skipulagi verðjöfnunar verður
frumvarp lagt fram á Alþingi um
það efni í haust.“
Sjávarútvegurinn og EES
Samningur EFTA og EB um
Evrópskt efnahagssvæði mun
hafa mikil áhrif á íslenskan sjáv-
arútveg. Samningurinn mun
tryggja mikilvægustu sjávar-
afurðum íslendinga nánast hindr-
unarlausan aðgang að mikilvæg-
asta markaðinum og losa sjávar-
útveginn úr tollafjötrum Evrópu-
bandalagsins. Þá heimilar samn-
ingurinn íslendingum að tak-
marka fjárfestingar útlendinga í
sjávarútveginum og gagnkvæmar
veiðiheimildir verða mjög tak-
markaðar. Um sjávarútveginn og
EES segir m.a. í skýrslu sjávar-
útvegsráðuneytisins.
„íslendingar hafa notið toll-
fríðinda við innflutning á sjávar-
afurðum til Evrópubandalagsins
á grundvelli bókunar 6 í fríversl-
unarsamningi milli íslands og EB
frá 1972. Á grundvelli bókunar 6
hafa nálægt 60% af sjávarvöru-
útflutningi okkar til bandalagsins
notið tollfrelsis. Á undanförnum
árum hefur mikilvægi Evrópu-
bandalagsmarkaðarins farið vax-
andi en jafnframt hefur gildi
bókunar 6 rýrnað vegna breyttra
aðstæðna við stækkun bandalags-
ins og framfara í flutningstækni.
Á árinu 1990 voru greiddar um
2.100 m.kr. í tolla vegna inn-
flutnings fslenskra sjávarafurða
til Evrópubandalagsins. Sam-
kvæmt samningunum um evrópskt
efnahagssvæði verður veruleg
breyting á þessu. Lang stærstur
hluti tolla af sjávarafurðum fellur
niður, tæp 76% núverandi toll-
greiðslna falla niður strax við
gildistöku samningsins hinn
1.1.1993 en þegar tollalækkanir
verða komnar að lullu til fram-
kvæmda hinn 1.1.1997 verða tæp-
lega 90% af núverandi toll-
greiðslum niður fallnar(hvort
tveggja miðað við samsetningu
útflutnings 1990). Samkvæmt því
lækka árlegar tollgreiðslur um
tæpar 1.900 m.kr. eftir að samn-
ingurinn hefur komið að fullu til
framkvæmda. Ekki varðar minna
að niðurfelling tolla ætti að geta
skapað nýja möguleika til vöru-
þróunar og markaðssóknar á
ýmsum sviðum þar sem tollmúrar
hafa hingað til verið þrándur í
götu þróunar.
Af mörgum mikilvægum afurð-
um eru tollar felldir niður með
öllu strax frá gildistöku samn-
ingsins hinn 1.1. 1993. Ber þar
fyrst og fremst að nefna saltaðan
þorsk og öll söltuð flök en tollar
af þessum vörum voru tæp 50%
af heildartollgreiðslum vegna út-
flutnings okkar til EB 1990. Þá
falla niður tollar af ferskum
þorsk-, ýsu- og ufsaflökum en
tollgreiðslum af þessum afurðum
voru tæp 12% af heildartoll-
greiðslum okkar 1990. Hér er þó
meira um vert að með niðurfell-
ingu þess 18% tolls sem á þessar
vörur hefur verið lagður opnast
nýir og mikilvægir möguleikar til
verkunar og útflutnings á fersk-
um unnum sjávarafurðum sem
skila háu verði. Sömu áhrif hefur
niðurfelling tolls á söltuð síldar-
flök. Hár tollur hefur hingað til
að mestu komið í veg fyrir út-
flutning á þennan markað en
vegna sviptinga í Sovétríkjunum
og Austur-Evrópu er brýnt að
afla nýrra markaða fyrir saltsíld-
ariðnaðinn. Þá falla frá 1.1. 1993
niður tollar af skreið, ferskri og
frosinni lúðu og grálúðu og flök-
um af þessum tegundum. Þá fell-
ur niður tollur af ferskum og
heilfrystum þorski, ýsu og ufsa.
Af öllum öðrum sjávarafurð-
um en þeim, sem tollar verða
felldir niður af að fullu lækka
tollar í árlegum áföngum um
70% á fimm árum talið frá og
með 1.1.1993. Að aðlögunar-
tímabilinu loknu verða því
einungis eftir 30% af núverandi
tollum á þessum vöruflokkum.
Eins og áður segir leiðir þessi
lækkun til að núverandi tolla-
greiðslur lækka um 14% til viðbót-
ar þeirri 76% lækkun sem verður
hinn 1.1.1993. Frá ársbyrjun
1997 verða tollar af sjávarafurð-
um innfluttum til bandalagsins
því aðeins um 10% af núverandi
tollum.“
Ástand sjávar og aflahorfur
Hafrannsóknastofnun er nú að
leggja síðustu hönd á tillögur um
hámarksafla á komandi fiskveiði-
ári sem hefst 1. september. Ef
horft er til ástands sjávar við
landið þá er árferði í sjónum
metið eftir gögnum sem safnað
var í vorleiðangri Hafrannsókna-
stofnunar ár hvert. í heild sýna
niðurstöður þess leiðangurs á síð-
asta ári að gott árferði er í sjón-
um við landið. Útbreiðsla hlý-
sjávar var mun meiri á norður-
miðunum en á árunum 1988-1990
en þá ríkti þar kaldur pólsjór og
svalsjór. Hvort þetta gefur fyrir-
heit um aukna veiði er óljóst nú
en minna má á að góðæri ríkti á
miðunum árin 1984-1987 með
innstreymi hlýsjávar á norður-
miðin.
Þorskaflinn á síðasta ári var
313,5 þúsund tonn. Þar af veidd-
ust 242,8 þúsund tonn á tímabil-
inu janúar til ágúst og 70,7 þús-
und tonn í september til desem-
ber. Um helmingur aflans var
fjögurra ára fiskur af árgangi
1987 og sjö ára fiskur af árgangi
1984. Fimm og sex ára fiskur var
einnig verulegur hluti aflans.
Það sem af er ári nam þorskafli
fyrstu þrjá mánuði þessa árs 81,5
þúsund tonnum, samkvæmt
bráðabirgðatölum Fiskifélags
íslands. Þetta er samdráttur mið-
að við fyrra ár þegar þoskaflinn
var 86,3 þúsund tonn samkvæmt
bráðabirgðatölum. Niðurstöður
liggja ekki fyrir varðandi ástand
stofnsins í ársbyrjun 1992 og afla-
horfur á næsta ári. Fyrstu niður-
stöður stofnmælinga botnfiska í
mars sl. benda til þess að stofninn
hafi minnkað frá í mars í fyrra.
Aflaaukningar í þorski gæti því
verið nokkuð að bíða enn. JOH
Myndlist
Vorsýning Myndlistaskólans
Eins og aðrir skóla, hefur Mynd-
listaskólinn á Akureyri lokið
störfum á þessu vori. Að venju
gefur skólinn áhugamönnum um
myndlist kost á því að njóta
árangurs vetrarstarfsins með
hinni árlegu Vorsýningu, sem
opnuð var uppstigningadag, 28.
maí, og stendur til sunnudagsins
31. maí.
Heildarsvipur Vorsýningarinn-
ar að þessu sinni er mjög góður.
Nemendur hafa unnið vel og hafa
margir til brunns að bera hæfi-
leika til myndlistariðkunar. Þetta
má sjá jafnt af verkum þeirra,
sem eru að hefja feril sinn við
skólann, sem þeirra, sem lengra
eru komnir.
Sýning Myndlistaskólans skipt-
ist í tvo hluta. Á efri hæð eru
verkefni í rúmformfræði. Mörg
hver leiðast út í skúlptúr, sem í
ýmsum tilfellum er talsvert eftir-
tektarverður. í sama sýningar-
hluta eru æfingateikningar í
formteikningu og fjarvídd, sem
sýna góðan árangur í þessum
grunni myndlistarnámsins. Á
sömu hæð eru myndir eftir unga
nemendur í forskóla. Þar má sjá
sköpunargleðina í fullu veldi
sínu.
í sölum neðri hæðar eru verk
nemenda í málaradeild skólans.
Af verkum fyrsta árs nema vakti
mesta athygli undirritaðs loka-
verkefni eftir Erlu Franklinsdótt-
ur. Mynd hennar er mjög dökk,
en ber vitni talsvert næmu auga
fyrir meðferð fíngerðra blæ-
brigða Ijóssins til þess að draga
fram á alldulúðugan hátt form í
myndfletinum.
Annars árs nemendur eiga
ýmis skemmtileg verk á sýning-
unni. Þar má nefna smámynda-
seríu eftir Lilju Hauksdóttur. í
þessum myndum virðist hún hafa
hitt á skemmtilega og samfellda
stíliseringu, sem fellur vel að
tjáningarþrá hennar. Þá dró að
sér athygli sjálfsmynd eftir Aðal-
stein Þórsson, en í henni hefur
Aðalsteini tekist vel að ná fram
ísmeygilegri dulúð, sem laðar
augað. Fleiri myndir annars árs
nema hefði mátt til tína, en í
heild voru verk þeirra skemmti-
lega fjölbreytt og góð.
Freyja Önundardóttir er eini
nemandinn, sem lýkur prófi úr
málaradeild skólans á þessu ári.
Hún átti nokkuð margar myndir
á sýningunni og mynduðu þær
kjarna hennar. Freyja er ljóslega
þegar komin töluvert áleiðis í list
sinni. Hún hefur náð umtals-
verðu valdi á tæknilegum atrið-
um og hefur orðið veruleg tök á
að nýta þau til þess að leika
skemmtilega með lit og ljós.
Nokkrar mynda hennar eru sér-
lega eftirtektarverðar. Svo er um
sjálfsmynd, sem er reisnarlegt
verk. Þá er lokaverkefni hennar,
stór mannsmynd, sterkt í bygg-
ingu og myndferli. Einnig á
Freyja á sýningunni nokkrar
smámyndir, sem virðast vera svo
sem stúdíur fyrir hin stóru loka-
verkefnisverk hennar. Ýmsar
þessara mynda eru verulega
skemmtilega gerðar og sláandi.
Eitt skemmtilegasta atriðið á
Vorsýningu Myndlistaskólans er
hlutur myndgreiningarþáttar
náms málaradeildarnema. 1 þess-
ari grein eiga nemendur að taka
fyrir verk einhvers þekkts mál-
ara, greina það að öllu leyti jafnt
í myndgerð, efnismeðferð og
vinnubrögðum og gera síðan
kópíu af verkinu. 1 ýmsum tilfell-
um mátti rekja ferli greiningar-
innar, sem bæði var fróðlegt og
skemmtilegt.
í menntastofnunum á hvaða
sviði sem er verður að vinna af
kostgæfni og metnaði. Árangur
verður eftir því, eins og sjá má í
salarkynnum Myndlistaskólans
þessa dagana.
Haukur Ágústsson.
AKUREYRARB/tR
Aku rey rarbær
Umhverfisdeild
Jarðeignir og dýraeftirlit
Nú eru fjórar spildur (beitilönd) lausar til út-
hlutunar.
Umsóknir berist Umhverfisdeild fyrir þriöjudaginn
9. júní.
Gamlar umsóknir þarf aö endurnýja.
Umsjónarmaður jarðeigna.
Móðir okkar,
BALDÍNA ELÍN SIGURBJÖRNSDÓTTIR,
frá Fagrabæ,
lést á Dvalarheimilinu Hlíð, föstudaginn 22. maí.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Þökkum auðsýnda samúð.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á Dvalarheimilinu Hlíð
fyrir góða umönnun.
Steingerður Bjarney Ingólfsdóttir,
Hulda Ingólfsdóttir, Baldur Arngrímsson,
Adam Örn Ingólfsson, Lára Lárusdóttir,
Pálmi Ingólfsson, Ólafta Karlsdóttir,
Indíana Ingólfsdóttir, Stefán Gunnar Vilhjálmsson
og barnabörn.