Dagur


Dagur - 06.06.1992, Qupperneq 18

Dagur - 06.06.1992, Qupperneq 18
18 - DAGUR - Laugardagur 6. júní 1992 Fjórtán reyklausir dagar Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis hefur farið þess á leit við Dag að blaðið birti leiðbeiningar til þeirra sem hættu að reykja á „Reyklausa daginn" svonefnda 1. júní sl. Leiðbeiningar þessar taka til fyrstu 14 daganna. Hér á eftir fara ráðleggingar sem gilda fyrir 6., 7., 8. og 9. daginn, þ.e. laugardaginn 6., sunnudag- inn 7., mánudaginn 8. og þriðjudaginn 9. júní. Sjötti dagur Gættu að þér. Það er enn ástæðulaust að vera alltof rogg- inn með sig. Þrátt fyrir allt hefurðu um árabil verið að tileinka þér venjur sem þú hefur nú sagt skilið við - og „dæla“ reglulega inn í blóðið í þér efna- samböndum, þar á meðal' öflugu ávanaefni, sem líkaminn verður nú að vera án. Það er ekki nema sanngjarnt að þessi umbreyting taki meira en viku- tíma og það jafnvel þótt þú finn- ir smátt og smátt að þú sért að ná tökum á óvininum og getir nokkuð auðveldlega sigrast á nikótínhungrinu þegar það gríp- ur þig. En þú getur samt slakað ofur- lítið á klónni. Það er ekki lengur ástæða til að forðast gamla kunningja þó að þeir reyki, að því tilskyldu að þeir geri sér grein fyrir því að þú ert ekki lengur háður sama lesti og þeir. Ef reykingafólk heimsækir þig og vill reykja þá geturðu tekið fram öskubakka og leyft því að menga loftið að vild. En fyrir alla muni gáðu að því að tæma öskubakkana og losa þig við innihaldið áður en gestirnir hverfa á braut. Þó að hálfreykt- ar sígarettur þefji illa - geta þær freistað þín meira en góðu hófi gegnir á erfiðum augnablikum ef þú lætur þær liggja í ösku- bakkanum. Nú muntu fara að finna veru- lega til vellíðunar þegar tóbakið hefur losað um tökin á lungun- um og þessi vellíðan kemur fram í aukinni vinnugleði, jafn- betra skapi og meiri alhliða lífs- nautn. En það getur samt verið að þú finnir að mótstaða þín gegn tóbakslönguninni sé að linast. Þó að óvinurinn - tóbakshungr- ið - sé orðinn máttlausari þá kann ákvörðun þín líka að hafa misst eitthvað af styrk sínum. Þess vegna skaltu enn einu sinni lesa listann þar sem er að finna ástæðurnar fyrir því að þú hættir að reykja. Reyndu að rifja upp fyrir þér hóstaköstin, slapp- leikann og raunar eirðarleysið sem þú áttir við að stríða með- an þú reykir. Gerðu dæmið upp við sjálfan þig hvort allt sem þú hefur nú á þig lagt eigi að vera til einskis og án árangurs. Sjöundi dagur Heil vika án reyks - hve langt er síðan þú hefur upplifað annað eins? Að minnsta kosti hefurðu nú sannfært sjálfan þig um að tóbakið er ekkert allsherjar yfir- vald yfir tilveru þinni, þú getur verið án þess ef þú vilt. Erfið- asta tímabilið er að baki. Frá þessum degi verður hver dag- urinn ofurlítið auðveldari en sá næsti á undan. Þó máttu gera ráð fyrir að verða fyrir óskýran- legri löngun í tóbak. Til þess að þér takist að stíga skrefið til fulls frá því að vera reykingamaður og til þess að vera fyrrverandi reykingamaður þá er mikilvægt að þú gleymir ekki að endurtaka Krakkarnir á Krógabóli héldu sýningu á verkum sínum á uppstigningardag. Meðal verka á sýningunni var þetta forláta íslandskort sem börn á aldrinum 2-6 ára unnu í sameiningu. Myndir: gt með sjálfum þér hvers vegna þú ákvaðst að vera fyrrverandi reykingamaður. Það er ekki eingöngu vegna þess að tennurnar verða hvít- ari, litarhátturinn frískari, skapið betra og bjartara yfir tilverunni að þú lætur sígarettuna eiga sig. En þetta er hluti launanna sem þú hefur fengið greidd fyrir að ganga í hóp þeirra sem reykja ekki. Ef til vill hefurðu aldrei hug- leitt á kerfisbundinn hátt hvaða tjón sígarettan hefur unnið á líkama þínum. Nú skaltu gefa þér tíma til þess einmitt þegar þú ert laus við skaðvaldinn. Áttundi dagur Ef þú ert í hópi þeirra heppnu þá muntu eiga í dag fyrsta heila daginn án þess svo mikið sem finna til löngunar í reyk. Samt sem áður verða flestir að sætta sig við smávegis vott af tóbaks- hungri þó að slíkt sé í sjálfu sér orðið að eins konar vana sem tiltölulega auðvelt er að hamla gegn. Að minnsta kosti líða margir klukkutímar án þess þér komi tóbak í hug. Og þegar þér dettur sígaretta í hug veldur það líkast til aðeins lítilfjörleg- um óróleika en alls ekki brenn- andi löngun eins og fyrst. ÍÞRÓTTIR Með öðrum orðum: Sá tími nálgast óðfluga að þér hafi tek- ist að venja þig af reykingum. En þú skalt samt ekki hafa tóbak á heimili þínu því að þú mátt ekki undir neinum kring- umstæðum gefa sjálfum þér færi á að kveikja í þegar koma erfiðar stundir. Þegar reykingalöngunin minnkar er hún eins og bál sem er að deyja út: Skyndilega getur hún blossað upp, óvænt og merkilega öflug. Hún lognast fljótlega út af en þú verður að gefa þér tóm til að íhuga hvað getur hent. Sumir „springa" ein- mitt í þennan mund. Þeir upp- skera sárar samviskukvalir ásamt súrum og vondum reykn- um. Þeir hafa þá með einni sígarettu aukið erfiðleika sína en stökkvi þeir ekki undir eins upp á vagninn aftur geta þeir átt á hættu að vera komnir innan fárra daga á sama tóbaks- neyslustigið og áður. Takist þeim á hinn bóginn að yfirstíga viðbótarlöngunina í tóbak sem þessi fáu reyksog hafa valdið, þá eiga þeir enn kost á að komast í mark. Níundi dagur Nú ferðu fyrir alvöru að finna fyrir bata. Er ekki brauðið betra á bragði, kemur þér ekki aftur kunnuglega fyrir ilmurinn af votu grasi og af matnum og öllu umhverfinu? En þó koma enn upp erfiðar stundir. Og þá er ekki um annað að ræða en að endurtaka enn einu sinni allar ástæðurnar sem lágu til þess að þú hættir reyk- ingum. Smátt og smátt endur- heimtir þú vinnugetuna og hæfi- leikann til einbeitingar og hvort tveggja muntu framvegis eiga í ríkari mæli en áður. Það er ríkjandi skoðun á mörgum heilsustöðvum sem fást við það verkefni að aðstoða fólk við að hætta að reykja, að á þessum tímamörkum sé mesta hættan úr sögunni. Þeir sem hafa staðist raunina til þessa dags eiga alla möguleika á að losna ævilangt við reykingar. Það er öruggt að verstu vanda- málin eru að baki. Þau andartök verða færri að þér finnist þú standa á barmi örvæntingar og þú getur hiklaust sest við hliðina á fólki sem reykir og sagt að það komi ekki lengur við þig. Þú finnur betur óþverraþefinn af sígarettustubbum í öskubakka og nýtur þess jafnframt með ánægju og gleði að hinn hluti sígarettunnar hefur ekki orðið eftir í þínum eigin lungum. Stefán Gunnarsson, leikmaður Magna skoraði fallegt mark með skalla gegn Dalvík. Hér er hann að kljást við Valdi- mar Pálsson leikmann Dalvíkinga í leiknum á fimmtudagskvöld. Örvar Eiríksson stendur álengdar og fylgist með gangi mála. Mynd: KK íslandsmótið í knattspyrnu 3. deild: Magnamenn lögðu Dalvíkinga að velli í miklum rokleik - Nói Björnsson og Stefán Gunnarsson skoruðu í 2:0 sigri Á Krógabóli hefur í vetur verið unnið að rannsóknum á vatni sem aðal þema við verkefni handa börnunum. Á myndinni sést landslag frá heitu landi en börnin hafa athugað m.a. áhrif vatnsins á lifnaðarhætti fólks í heitum og köldum löndum. Á bak við eru nokkrir listamannanna að syngja. Magnamenn nældu sér í Nú fyrstu stigin í 3. deild Islands- mótsins í knattspyrnu á fimmtu- dagskvöld, er þeir lögöu Dal- víkinga að velli með tveimur mörkum gegn engu. Leikurinn fór fram á Grenivík og voru aðstæður til að leika knatt- spyrnu frekar slæmar, hífandi rok á annað markið og völlur- inn ekki kominn í sitt besta form. Magni lék undan vindi í fyrri hálfleik og skoraði þá bæði mörkin. Nói Björnsson, þjálfari liðsins skoraði það fyrra eftir rúmar 20 mín. af stuttu færi, eftir að markvörður Dalvíkinga hafði misst frá sér boltann. Nói var fyrstur að átta sig og spyrnti bolt- anum upp í þaknetið. Á síðustu mín. hálfleiksins bætti Stefán Gunnarsson við öðru marki með skalla. Þorsteinn Friðriksson sendi góða sendingu frá hægri yfir á fjærstöng og þar kom Stefán á fullri ferð og stangaði boltann í netið. Dalvíkingar voru ekki nógu ákveðnir í leiknum og náðu ekki að nýta sér vindinn í síóari hálf- leik. Þeir sóttu þó meira í hálf- leiknum en án þess að skapa sér umtalsverð marktækifæri. Magna- menn voru ákveðnari í leiknum og var sigur þeirra fyllilega sanngjarn. Bæði liðin hafa þá hlotið þrjú stig í deildinni að loknum tveim- ur umferðum. Á mánudag kl. 20.00 sækja Völsungar Dalvík- inga heim og Magnamenn bregða sér til Siglufjarðar á sama tíma. Tindastóll leikur hins vegar í Þorlákshöfn í dag kl. 14.00 gegn Ægi. -KK

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.