Dagur - 06.06.1992, Page 19
Laugardagur 6. júní 1992 - DAGUR - 19
Popp
Magnús Geir Guðmundsson
Skin og skúrir hjá The Cure
Gagnrýnendur hinna ýmsu tón-
listartímarita hata að undanförnu
lokið miklu lofsorði á nýjasta
sköpunarverk bresku popphljóm-
sveitarinnar The Cure, sem ber
nafnið Wish eins og kunnugt er.
Eru margir þeirra á því að hér sé
komin ein besta plata Cure á
þrettán ára ferli hennar. Það var
heldur ekki að spyrja að góðum
viðtökum plötukaupenda, því
Wish fór beint á toppinn í fyrstu
viku og fyrsta smáskífan með
laginu High náði fimmta sæti
breska listans.
Þremur vikum eftir útgáfuna á
Wish kom þó nokkuð bakslag í
sölu hennar og datt hún út af
topp 10, en nú í kjölfar nýja
smáskífulagsins Friday l’m in
love, sem fór beint í tíunda sæti,
er salan á plötunni aftur að auk-
ast og situr hún nú í ellefta sæti.
Það er ekki gott að segja hvað
veldur þesslags sveiflum í plötu-
sölu, en í tilfelli Cure kunna
vandamál sem komu upp varð-
andi tónleikahald -að hafa spilað
eitthvað inn í. Var þar annars
vegar um að ræða veikindi sem
komu upp hjá Robert Smith
söngvara sem urðu þess vald-
andi að hljómsveitin varð m.a. að
fresta því aö koma fram í þættin-
um margfræga Top of the pops,
The Cure sjaldan eða aldrei verið eins vinsæl og nú.
en þátttaka í þeim þætti er ávallt
mikilvæg fyrir viðgang laga. Hins
vegar kom svo upp fölsunarmál á
miðum á eina tónleika hljóm-
sveitarinnar. Hafði einn aðdáandi
hennar keypt 2 miða á upp-
sprengdu verði í gegnum auglýs-
ingu, sem hann svo tortryggði
eftir á. Kom það líka í Ijós við
eftirgrennslan hans að miðarnir
voru falsaðir.
En þrátt fyrir þessi skakkaföll er
Cure eins og áður segir aftur
á uppleiö í Bretlandi og þá er
uppgangur hennar í Bandaríkj-
unum ekki síðri, en þar er hún
stödd þessa dagana. Hefur
henni verið tekið með kostum og
kynjum þar og var jafnvel farið að
fjalla ítarlega um komu hennar
þangað löngu áður. Þá hefur
Wish selst eins og heitar lummur
og er hún nú ein af best seldu
plötunum í Bandaríkjunum. Það
eru því engin þreytumerki að sjá
á The Cure ennþá.
Ur ýmsum áttum
Félögum sinum og öllum öðr-
um til undrunar, sagði gítar-
leikari fönkrokkhljómsveitarinnar
Red Hot Chili Peppers, John
Frusciante, skilið við hana nú fyr-
ir skömmu. Var það nánar tiltekið
nokkrum klukkutímum fyrir
hljómleika Peppers í Japan 7.
maí, sem Frusciante tilkynnti
þessa óvæntu ákvörðun sína.
Spilaði hann með hljómsveitinni
um kvöldið en flaug svo heim til
Bandaríkjanna daginn eftir. Sem
skýringu á brotthvarfi sínu sagði
Frusciante aðeins við umboðs-
mann Peppers. „Segðu öllum að
ég hafi brjálast."
Er það slæmt fyrir Red Hot
Chili Peppers að missa Frusci-
ante nú, loksins þegar hljóm-
sveitin hefur slegið endanlega í
gegn með plötunni Blood, sugar,
sex, magic og hún hugðist halda
í tónleikaferðalag um Astralíu og
víðar til að fylgja velgengninni
eftir. Er nú leitað að eftirmanni
Frusciante með logandi Ijósi til
að bjarga því sem bjargað verð-
ur. Hafði Frusciante verið með
Peppers í um fjögur ár.
ungarokkshljómsveitin forn-
fræga Black Sabbath, sem til
hefur verið í margvíslegum
myndum í yfir tvo áratugi og sem
kemur hingað til lands í sept-
ember til að halda tónleika með
Jethro Tull á Akranesi, hefur nú
lokið vinnu á sinni nýjustu plötu.
Mun hún bera nafnið Dehuman-
iser og koma út þann 22. júní.
Verður þetta þegar allt er taliö
átjánda plata hljómsveitarinnar á
tuttugu og tveggja ára ferli. Er
Black Sabbath nú skipuð sömu
mönnum og á árunum 1980-81,
er plöturnar Heaven and Hell og
Mob Rules komu út. Þeir eru:
Ronnie James Dio söngur,
Geezer Butler bassi, Vinnie
Appice trommur og Tony lommi
Black Sabbath með nýja plötu á
leiðinni og verða á íslandi í sept-
ember.
gítar, sem hefur verið í sveitinni
frá upphafi.
Ein af þeim rokksveitum í
kraftlegri kantinum sem
sífellt vekja meiri athygli er hin
írskættaða Fatima Mansions.
Var hún stofnuð af Cathal
Coughlan undir lok síðasta ára-
tugar, en hann var áður í hljóm-
sveitinni Microdisney sem sumir
rokkunnendur þekkja. Er nú
nýkomin út þriðja plata Fatima
Mansions sem kallast Valhalla
avenue (Valhallarstræti) og þykir
þar vera hinn besti gæðagripur á
ferð. í sumar hefur svo hljóm-
sveitinni verið boðið að hita upp
fyrir U2 á tónleikaferð um Evr-
ópu, sem eflaust mun koma
henni til góða.
Líkt og Black Sabbath sendir
rokkhljómsveitin The Missi-
on frá sér sína nýjustu afurð 22.
júní næstkomandi. Heitir hún
Masque, en síðasta hljóðvers-
plata Mission, Carved in sand
kom út 1990. Smáskífa með lag-
inu Like a child again kom út með
hljómsveitinni í síðustu viku.
Hin fjölskrúðuga, bandaríska
hljómsveit Faith No More
sem garðinn gerði aldeilis fræg-
an árið 1989 með plötunni The
real thing, er nú með nýja afurð í
buröarliðnum sem nefnist Angel
Dust og er fyrsta smáskífan af
henni með laginu Middle Crisis
komin út. Verður Faith No More
á tónleikaferðalagi með Guns N’
Roses um Bretland og víðar í
sumar.
Neville bræðurnir þeldökku
með Aaron fremstan í flokki
hafa sent frá sér nýja plötu undir
nafninu Family Groove fyrir
nokkru. Meðal laga á henni er að
finna túlkun þeirra á Steve Miller
laginu Fly Like An Eagle og mun
það væntanlega vera komið út á
smáskífu nú.
Popparinn grískættaði George
Michael, sem eins og kunn-
ugt er kom fram á minningartón-
leikunum um Freddy Mercury
ásamt fleiri frægum tónlistar-
mönnum, hefur líkt og Metallica
og Guns N’ Roses gefið út sér-
staka smáskífu í þágu baráttunn-
ar gegn eyðni. Inniheldur hún
nýtt lag sem kallast Too Funky.
Þá hefur Michael einnig lagt til
tvö lög á styrktarplötuna Red, hot
and dance sem á að koma út inn-
an skamms.
að er í fleiri hljómsveitum en
Red Hot Chili Peppers sem
hræringar eiga sér stað þessa
dagana. Til að mynda hefur
trommuleikari þungarokkssveit-
arinnar þekktu Motorhead, Phil
Taylor, sagt skilið við hana og
það í annað sinn. (í fyrra skiptið
1983.) Þá mun annar trommu-
leikari e.t.v. einnig vera að hætta
í sinni sveit og það líka í annað
sinn. Er þar um að ræða Dave
Lombardo í thrash/speedsveit-
inni Slayer, en hann hætti í
hljómsveitinni um tíma árið 1986
af persónulegum ástæðum. Brott-
hvarf hans nú hefur þó ekki verið
staðfest, en líkt og í fyrra skiptið
þá mun tónlistarstarfið eitthvað
vera að rekast á við einkalífið.
SÁÁ-N
Aðalfundur samtaka áhugafólks um áfeng-
isvandamálið verður haldinn mánudaginn 15. júní
kl. 20.30 að Óseyri 6, 2. hæð.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Tillaga að lagabreytingum liggur frammi á skrifstofu
félagsins, Glerárgötu 28, Akureyri.
Stjórnin.
Nauðungaruppboð
Bifreiðin FV-853 skráð eign Húsvískra matvæla verður
boðin upp og seld á opinberu uppboði fimmtudaginn 11.
júní 1992 kl. 13.45.
Uppboðsstaður er Fiskhús og verbúð á Hafnarlóð Húsa-
víkur.
Bifreiðin FV-853 er Toyota Corolla STW1300, árg. 1980.
Uppboðsbeiðandi er skiptaráðandi.
Uppboð á fasteign þrotabús Húsvískra matvæla verður
haldið á sama staö kl. 13.30.
Sýslumaður Þingeyjarsýslu.
Endurvinnsla
Úrbótamenn hf. auglýsa eftir framkvæmdastjóra
fyrir endurvinnslufyrirtæki sem er að fara af stað
á Akureyri.
Leitað er eftir manni með góða þekkingu á rekstri og
markaðsmálum. Nauðsynlegt er að viðkomandi geti
hafið störf sem fyrst.
Umsóknir er tilgreini aldur, menntun og fyrri störf
sendist til Úrbótamanna hf., Bæjarsíðu 5, 603 Akur-
eyri, fyrir 15. júní næstkomandi.
Upplýsingar veittar í síma 96-26776.
Óskum eftir starfsmanni
til sölu og þjónustustarfa
fyrir einn af viðskiptavinum okkar.
Um er að ræða traust fyrirtæki, með góða starfsað-
stöðu, sem vill ráða starfsmann á aldrinum 25-40
ára til að annast sölu- og þjónustustörf á Akureyri og
nágrenni.
Vélstjóramenntun eða sambærileg menntun æski-
leg.
Starfið krefst frumkvæðis, árvekni og góðra sam-
skiptahæfileika.
Umsóknarfrestur er til 10. júní nk.
Upplýsingar og umsóknareyðublöð aðeins á skrif-
stofunni.
nnnRÁfiNiNGAR
Endurskoðun Akureyri hf., Glerárgötu 24, sími 26600 og 25455.
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
VALDIMAR JÓNSSON,
frá Hallgilsstöðum,
andaðist að Hjúkrunarheimilinu Seli 3. júní.
Guðbjörg Valdimarsdóttir
og aðrir vandamenn.