Dagur - 25.06.1992, Page 1

Dagur - 25.06.1992, Page 1
Fyrstu loðnuskipin til leitar í byrjun ágúst - segir Bjarni Bjarnason, skipstjóri Pað sem af er sumri hefur umferð ferðamanna um Mývatnssveit verið á sömu nót- um og í fyrra. Undir kvöld á þriðjudag var jörð alhvít og hvasst var af norðri. Nokkrir tjaldbúar leituðu í svefnpoka- pláss innan dyra, en flestir gistu tjöld sín enda vel útbúnir. Erla Birkisdóttir, tjaldvörður á tjald- stæðinu við Reynihlíð, sagði að útlendingarnir hefðu tekið vos- búðinni vel og þótt þessi óveðurs- nótt spennandi. Tjaldverðir í Mývatnssveit eru sjö og land- verðir fjórir. Um klukkan 22.00 á þriðjudag var jörð alhvít í Ásbyrgi. Eitt tjald var á svæðinu, en ekkert í Bjarni Bjarnason, skipstjóri á loðnuskipinu Súlunni EA, seg- ir að hluti loðnuflotans muni halda til loðnuieitar úti fyrir Norðurlandi eftir verslunar- mannahelgina. Væntanlega fari fyrst þau skip á miðin sem hafi tvo kvóta til að veiða upp í, enda þurfí þau Iengstan tíma til að ná sínu. Bjarni segir að loðnu verði ekki vart á grunnslóðinni úti fyrir Noröurlandi nú og það viti á gott fyrir vertíðina. „Við höfum oft tekið þátt í leitinni en við erum bara með einn kvóta og teljum okkur hafa nógan tíma til að ná honum. Pess vegna gerum við ekki ráð fyrir að fara fyrr en í september," sagði Bjarni. „Við sjáum enga loðnu á grunnslóð núna og það veit á gott. Þá er loðnan þar sem hún á að vera, þ.e.a.s. langt norður í hafi og ekkert að þvælast þar sem hún á ekki að vera. Hér áður fyrr var ástandið svona, loðnan norð- ur í hafi á sumrin og fór svo að síga nær landinu á haustin." Hafrannsóknastofnun lagði til við sjávarútvegsráðherra fyrir skömmu að byrjunarkvóti á loðnu skuli vera 500 þúsund tonn. Bjarni fagnar þessu sem byrjunarkvóta. „Þetta er allt ann- að handbragð en í fyrra. í fyrra var óþolandi að hafa ekki byrjun- arkvóta enda held ég að menn hafi rekið sig á að það var tóm vitleysa.“ Bjarni segir á allan hátt mikil- vægt að ná loðnu sem fyrst á haustvertíðinni. Þá sé besta ástand á loðnunni og hæsta fitu- hlutfall. „Það væri æskilegast fyr- ir alla aðila að um helmingur af veiðikvótanum væri kominn á land um áramót. Þá er loðnan besta hráefnið," sagði Bjarni Bjarnason. JÓH Venjulegir og demantsskornir trúlofunarhringar Afgreiddir samdægurs GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI 75. árgangur Akureyri, flmmtudagur 25. júní 1992 117. tölublað Vetrarveðrið: Útlendingarnir hissa - segir Þórný Snædal á Hótel KEA „Utlendingarnir eru eiginlega í rusli yflr þessu. Svona veðri var ekki lofað í bæklingunum hjá þeim en fyrir suinum er þetta kannski rúsínan í pylsu- endanum,“ sagöi starfsmaður á Hótel Norðurlandi á Akur- eyri í samtali við blaðið þegar grennslast var fyrir um við- brögð erlendra ferðamanna við vetrarveðrinu í fyrradag. Vegagerðin: Ruðningstæki á fjallvegum „Við sendum bæði ruðnings- tæki og sandbíla upp á Víkur- skarð í morgun. Þetta var óvænt og óvanalegt fyrir þenn- an árstíma,“ sagði Oskar Gunnarsson í vegaeftirlitinu hjá Vegagerð ríkisins á Akur- eyri í gær. Vegagerðarmanna biðu sér- kennileg sumarverkefni í gær- morgun. Ryðja þurfti Víkur- skarð og hreinsa af Ólafsfjarðar- vegi, norðan Dalvíkur. Hálka var á Öxnadalsheiði og Lágheiði ekki fær nema jeppum. Ekki verður sinnt mokstri þar fyrr en veður batnar. Á Vatnsskarði og Holtavörðu- heiði var hálka í gær og austan Akureyrar þurfti að ryðja Kísil- veg í gær, veginn um Möðru- dalsöræfi. Öxarfjarðarheiði var ófær, einnig leiðin um Hólssand, Vesturdal og að Dettifossi. Vopnafjarðarheiði var hins vegar fær. JOH Fáir tjaldferðalangar voru á ferð á Akureyri í fyrrakvöld og því urðu hótelin lítið vör við að ferðamenn þyrftu að tlýja í hús undan veðrinu. Hins vegar eru margir erlendir gestir í bænum í tengslum við vinabæjavikuna og einnig margir miðevrópubúar sem komu í beinu flugi frá Sviss til Akureyrar. „Utlendingarnir eru svolítið hissa. Einn sagði við mig að síð- ast þegar hann kom þá' hefði ver- ið sumar á Akureyri en ég svar- aði honum þá að það hefði verið hér síðast á sunnudaginn,“ sagði Þórný Snædal, starfsmaður á Hótel KEA. „Manni finnst svo- lítið leiðinlegt ef útlendingarnir halda að þetta sé alvanalegt hér. En mörgum finnst þetta greini- lega mjög fyndið og taka þessu vel.“ JÓH Þessi bíll þýskra ferðamanna fór úfaf veginum við Reykjaréff í Ólafsfirði í gær og urðu þeir frá að hverfa á leið sinni til Siglufjarðar vegna ófærðar. Mynd: gt Vetrarveður hrellir Norðlendinga: Kuldaloft frá Norðurpólnum yfir landinu - „hluti af því ruglaða ástandi sem verið hefur á loftstraumum í vor,“ segir Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur „Það sem veldur þessu ástandi í veðurfarinu er að við erum að fá yflr okkur loft sem á heima á svæðinu langt fyrir norðan okkur, á svæðinu við Norður- Grænland og Norðurpólinn. Þetta er hluti af því ruglaða ástandi sem verið hefur á loft- straumunum í allt vor, ekki endilega í grennd við ísland lieldur á stóru svæði á norður- Mývatnssveit og Jökulsárgljúfur: „Tjaldbúar létu óveðrið lítt á sig fá“ - sagði Erla Birkisdóttir, tjaldvörður Norðanáhlaupið sem gerði um Norðurland á þriðjudaginn klóraði lítt tjaldbúum í Mývatnssveit og í þjóðgarðin- um við Jökulsárgljúfur. Tutt- ugu og sex tjöld voru á tjald- stæðum við Reynihlíð og eitt í Ásbyrgi. Vesturdal. Fyrr um daginn höfðu ferðamenn snúið frá þjóðgarðin- um þar sem tekið var að slydda. í gærmorgun var ófært smærri bíl- um í Vesturdal, töluverður snjór var á veginum. Landverðir í Vesturdal eru þrír og í Ásbyrgi fjórir. ój hveli jarðar,“ sagði Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðing- ur hjá Veðurstofu íslands, í gær. Norðlendingar kunna að sjá eilítið hærri hitatölur í dag en síðustu daga en það verður skammgóður vermir því kólna á verulega á nýjan leik með norðanátt og úrkomu og er í kortum veðurfræðinga ekki sjáanleg breyting fyrr en eftir næstu helgi. „Þetta ástand á loftstraumun- um sést best á því að ekki hefur fallið dropi úr lofti í Danmörku og Suður-Skandinavíu í fimm vikur, ekki hefur náð að vora enn á Vestur-Grænlandi en á sama tíma hefur verið leiðindaveður á Mallorka og í Sahara hefur rignt. Síðustu afleiðingar af þessum afbrigðilegu lofstraumum eru að við fáum yfir okkur allra kaldasta loftið sem fyrirfinnst á öllu norðurhvelinu. Þetta kuldakast er afmarkað við ísland og þá hluta Grænlands sem eru næst okkur. Á santa tíma er hins vegar 8 stiga hiti á Svalbarða. Þetta seg- ir talsvert um ástandið,“ sagði Einar. Hjá Veðurstofu fslands liafa fræðingar rýnt í gögn og segir Einar að þetta kuldakast sé ekki venjulegt fyrir Norðurland. Oft snjói í fjöll á sumrin í norðanátt en aðstæður séu aðrar nú, eins og fólk jafnvel á láglendi hefur feng- ið að kynnast. „Við höfum flett aftur í tímann og mér sýnist þetta sambærilegt við tvö ártöl. Annars vegar er það 17. júní 1959 og hins vegar um sumarsólstöður 1968. Þá gerði hret af þessu tagi. Loft- straumar voru líka afbrigðilegir 1959 en við höfuin ekki skoðað þann þátt árið 1968,“ sagði Ein- ar. Veðurútlitið fyrir komandi daga er ekki gæfulegt. Einar segir að lægðin sem kuldanum veldur verði yfir landinu í dag og um tíma kunni að snúast til suðvest- lægrar áttar á Norðurlandi. Næstu sólarhringa verður svo norðanátt, strekkingsvindur, kuldi, snjókoma á fjöllum og kalsarigning í byggð. JÓH Guðni Sveinsson, lögreglumaður á Siglufirði: Sjáum ekki á dökkan díl til fjalla „Hér er allt hvítt. Við sjáum ekki í gras á lóðinni hér við húsið og til fjalla sést hvergi á dökkan díl,“ sagði Guðni Sveinsson, lögreglumaður á Sigluflrði í gærkvöld. Veður var að ganga niður út með Eyjafirði síðdegis í gær og sást þá vel hve mikið hefur snjó- að til fjalla. Guðni sagði sjáanleg dæmi þess í fjöllum við Siglufjörð að snjór hafi runnið til. í mörgum tilfellum þurftu lög- reglumenn að aðstoða ökumenn á fjallvegum og í fyrrinótt var hjálparsveit kölluð út á Akureyri til hjálpar ökumanni á Víkur- skarði en hann var ósjálfbjarga sökum óveðurs og snjóa. JÓH

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.