Dagur - 25.06.1992, Síða 16
heimsendingarþjónusta
alladaga
Sunnudaga til f iirum.tud.aga WL. 18.00-28.30
Föstudaga og laugardaga kl. 12.00-04.30
Hádegistilboð alla daga
VEITINGAHUSIÐ
Glerárgötu 20 • ® 26690
Ferskar afurðir á Hvammstanga:
Hrossakjöt á Japansmarkað
er nær dregur hausti
Vegavinna í smáum stíl.
Aðalfundur Félags sauðprbænda við Eyjafjörð:
Stöðva þarf samdrátt í
sölu og neyslu kindakjöts
- flöt skerðing verður 14,2% í Eyjafirði
ef engin frjáls uppkaup eiga sér stað
Nægilegt framboð hefur verið
af sláturgripum hjá sláturhúsi
Fræðslufundur
um atvinnumál:
„Staðan í sveitum
alvarlegt mái“
„Fundurinn var mjög vel
heppnaður og hann sóttu 60-70
manns,“ sagði Hildur Trausta-
dóttir, fundarstjóri á fræðslu-
og upplýsingafundi sem hald-
inn var í Stórutjarnaskóla sl.
sunnudag. Atvinnumálanefnd-
ir Bárðdæla,- Háls,- og Ljósa-
vatnshrepps stóðu fyrir fund-
inum ásamt Búnaðarsambandi
Suður-Þingeyinga, Fram-
leiðnisjóði landbúnaðarins og
Samstarfsnefnd um atvinnu í
sveitum.
„Við fengum fyrirlesara sem
upplýstu okkur um stöðu mála.
Mér fannst fundurinn mjög góð-
ur og fundarmenn fengu tækifæri
til að ræða við fyrirlesarana um
það sem þeir höfðu mestan áhuga
á að kynna sér,“ sagði Hildur.
Fjallað var um stofnun eigin
atvinnureksturs, lán og styrki frá
sjóðum, list- og minjagripi,
hlunnindanýtingu og fiskeldi,
skógrækt og landbætingu. Einnig
var rædd atvinnuþróun í sveitum
og aðgerðir til atvinnusóknar, og
framtíðarsýn með ferðaþjónustu
í sveitum. Á fundinum var kynnt
Ferðamálafélag Suður-Þingey-
inga, sem nýlega var stofnað og
Handverkskonur milli heiða, sem
standa munu fyrir markaði við
Goðafoss, kynntu sína starfsemi.
„Ég held að þessi fundur sé
byrjun á stærra máli. Hann skilar
því að fólk fer að velta hlutunum
meira fyrir sér og finna út hvaða
möguleika það á, bærinn eða
sveitarfélagið, til að auka atvinnu
heima fyrir. Ég vona að framhald
verði á, að við höldum áfram að
vinna að þessum málum því stað-
an í sveitunum er að verða alvar-
legt mál. Það er að mörgu að
hyggja en ég er bjartsýn á að það
finnist vinna fyrir okkur í sveit-
unum ekkert síður en í kaup-
stöðunum," sagði Hildur í sam-
tali við Dag. IM
Sviptur öku-
leyfi á staðnum
Einn ökumaður missti ökuleyf-
ið á staðnum á leiðinni milli
Akureyrar og Dalvíkur í fyrra-
kvöld þegar hann ók á 101 km.
hraða á klst. þar sem leyfilegur
hraði var 50 km/klst.
Viðgerðir standa nú yfir á slit-
laginu milli Akureyrar og Dal-
víkur og hefur Vegagerð ríkisins
fært leyfilegan ökuhraða á löng-
um köflum þar niður í 50 km. á
klukkustund. Að sögn varðstjóra
hjá Akureyrarlögreglunni er afar
mikilvægt að ökumenn virði þessi
hraðamörk Vegagerðarinnar
hvar sem þau eru sett. JÓH
Ferskra afurða á Hvamms-
tanga nú í vor, en aðallega hef-
ur verið slátrað nautgripum og
koma þeir víða að af Norður-
landinu m.a. hafa eyfirskir
bændur sent mikið af gripunt
vestur til slátrunar.
Töluvert framboð er af naut-
gripum til slátrunar af Eyjafjarð-
arsvæðinu enda um að ræða mik-
ið mjólkurframleiðslusvæði en
verulega minna í Vestur-Húna-
vatnssýslu. Eyfirskir bændur sjá
yfirleitt sjálfir um flutning á grip-
unum til sláturhússins. Nokkuð
kemur af sláturgripum úr Bæjar-
hreppi í Strandasýslu og lítils
háttar úr Austur-Húnavatns-
sýslu.
Sláturhúsið sér sjálft um dreif-
ingu á kjötinu sem að mestu leyti
fer á Reykjavíkurmarkað, bæði
til verslana og kjötvinnslustöðva.
Nokkur svínaslátrun er einnig en
hrossaslátrun liggur alveg niðri
núna, en gert er ráð fyrir að
hrossaslátrun á Japansmarkað
hefjist er nær dregur hausti enda
eru hrossin ekki nógu feit nú fyrir
Japansmarkaðinn og jafnframt
þurfa þau að vera a.m.k. 6 vetra.
Aðalfundur Ferskra afurða
fyrir árið 1991 hefur ekki verið
haldinn enn, en reksturinn skil-
aði lítilsháttar hagnaði að sögn
Sigfúsar Jónssonar framkvæmda-
stjóra. 6 starfsmenn eru í fullu
starfi allt árið en eðlilega fjölgar
þeim á haustin í sláturtíðinni.
í sumar munu Rafmagnsveitur
ríkisins á Norðurlandi eystra
plægja niður háspennustrengi
víða, bæði í Eyjafirði og í
Þingeyjarsýslum og er gert ráð
fyrir að koma niður a.m.k. 30
km af háspennustrengjum í
sumar í stað loftlína sem er
hætt ísingu, en það getur verið
hættulegt og valdið truflunum
og kostnaði.
Stærstu framkvæmdirnar í
jarðlögn verða á Árskógsströnd,
í Aðaldal frá Laxamýri að
Skarðahálsi, á Grenivík og í
Svarfaðardal og Dalvík. Víða er
verið að breyta heimtaugum í
jarðlínuheimtaugar eftir því sem
beiðnir þar að lútandi berast.
Skipt verður um spenni í aðveitu-
stöð á Dalvík og hækkuð spenna
Samstarfsnefnd skólameistara
framhaldsskóla á Norðurlandi
og grunnskóla með framhalds-
deildir var haldinn á Húsavík
nú í vikunni.
Björgvin Leifsson, áfangastjóri
við Framhaldsskólann á Húsa-
Miklar umræður urðu um
stöðu sauðfjárræktarinnar á
aðalfundi Félags sauðfjár-
bænda við Eyjafjörð sem hald-
til Ólafsfjarðar og þar settur upp
nýr spennir og nýr 30 kw rofa-
búnaður en ný aðveitustöð var
tekin þar í notkun fyrir eigi all-
löngu. Verið er að byggja aðveitu-
stöð til þess að auka flutningsgetu
til Silfurstjömunnar í Öxarfirði og
settur upp nýr spennir við
fiskeldisstöðina og framkvæmd-
um er að mestu lokið við nýja
aðveitustöð á Raufarhöfn.
„Að lokum má geta þess að
verið er að rafvæða tvö stór
sumarhúsasvæði, annað er í landi
Veigastaða í Vaðlaheiði en hitt
er austur við Þverá í Öxarfirði en
þar er að rísa stórt sumarhúsa-
hverfi sem að mestu er í eign
Raufarhafnarbúa" sagði Arnar
Sigtýsson tæknifulltrúi hjá
RARIK á Akureyri. GG
vík, sat fundinn og aðspurður um
efni hans sagði hann að um
rabbfund hefði verið að ræða þar
sem engin stórmál hefðu verið
afgreidd. Engin ályktun var sam-
þykkt á fundinum.
„Nefndin heldur nokkra slíka
inn var í býrjun þessarar viku.
Frummælendur á fundinum
voru Ari Teitsson, ráðunautur
Þingeyinga og Þorsteinn Sigur-
jónsson, bóndi á Reykjum í
Hrútafirði og varaformaður
Landssambands sauðfjár-
bænda. A fundinum var sam-
þykkt ályktun þar sem lögð er
áhersla á að þeirri þróun er nú
á sér stað í sauðfjárræktinni
verði snúið við. Flöt fram-
leiðsluskerðing í Eyjafirði
verður 14,2% á komandi
hausti ef engin uppkaup verða
á fullvirðisrétti en Eyfirðingar
njóta nú mikilla uppkaupa á
síðasta ári.
Guðmundur Víkingsson, frá-
farandi formaður félagsins, sagði
í samtali við Dag að þungt hljóð
hefði verið í mönnum á fundin-
um án þess þó að um neinn upp-
gjafartón hafi verið að ræða.
Menn vildu trúa því að unnt
verði að snúa þeirri þróun, sem
nú á sér stað við og að sauðfjár-
bændur geti endurheimt eitthvað
af þeim markaði sem tapast hafi.
Grundvallaratriði þess sé þó að
verðlag verði á nýjan leik sam-
keppnisfært við aðrar kjötteg-
undir á markaðnum. í ályktun,
sem samþykkt var á fundinum
var því þeint til forráðamanna
bændasamtakanna og stjórnvalda
fundi á ári og ræðir stjórnunar-
mál sem upp koma,“ sagði
Björgvin. Tryggvi Gíslason,
skólameistari á Akureyri, sagði
frá ákvörðun sinni um að ráða
eingöngu réttindakennara til
starfa í haust, og tóku skóla-
meistarar jákvætt undir þá hug-
að reynt verði með öllum tiltæk-
um ráðum að stöðva hinn mikla
samdrátt í sölu og neyslu kinda-
kjöts. Ef ekki verði gert átak í
sölumálum sauðfjárafurða svo
sem með aukinni vöruþróun og
minni skattlagningu er leitt geti
til lægra verðs til neytenda blasi
við hrun í þessari grein landbún-
aðarins innan fárra ára. Þá beindi
fundurinn því einnig til sömu
aðila að allar klær verði hafðar
úti til að afla viðunandi markaða
á erlendri grundu.
Nokkrar umræður urðu einnig
um málefni sláturhússins á Akur-
eyri og að sögn Guðmundar Vík-
ingssonar kom fram veruleg
andstaða við að sauðfjárslátrun
verði lögð niður þar. Þó sé ljóst
að framundan séu verulegar
endurbætur á húsinu er kosta
munu mikið fjármagn og því tví-
sýnt um hvort leggja eigi í miklar
fjárfestingar í því efni ef ekki
tekst að snúa af braut stöðugs
samdráttar.
Guðmundur Víkingsson, í
Garðshorni, formaður félagsins,
og Davíð Guðmundsson í ölæsi-
bæ gáfu ekki kost á sér til endur-
kjörs í stjórn og voru Þorsteinn
Jónsson í Samkomugerði og Pét-
ur Þórarinsson í Laufási kjörnir í
þeirra stað. Stjórnin á eftir að
skipta rneð sér verkum og kjósa
formann. ÞI
mynd hans.
Fleiri nemendur en áður hafa
verið eru skráðir til náms við
Framhaldsskólann á Húsavík í
haust, eða 186, þar af 67 nýnem-
ar, fleiri en sótt hafa um skólavist
áður.
IM
GG
RARIK á Norðausturlandi:
30 km af háspennustrengjum
verða plægðir í jörð
Skólameistarar funduðu á Húsavík:
Tóku jákvætt í hugmyndir skólameistara MA