Dagur - 23.07.1992, Blaðsíða 1
Akureyri, fimmtudagur 23. júlí 1992
137. tölublað
argangur
Venjulegir og
demantsskornir
trúlofunarhringar
Afgreiddir samdægurs
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
Stoðum skotið undir útgerðina. M>'nd; Golli
Héraðsráð Eyjafjarðar:
Gerð verði heildarúttekt á
flutningakerfi í Fyjafirði
- starfsmaður verður ráðinn til þess að gera úttektina
Vestur-Húnavatnssýsla:
Stoftiað félag
um ræktun
vatna á Amar-
vatnsheiði
Nokkrir aðilar í Vestur-Húna-
vatnssýslu hafa á undanförnum
tveimur árum unnið að grisjun
fiskjar í Arnarvatni með það
fyrir augum að gefa fiski aukna
vaxtarmöguleika. Nú er unnið
að stofnun félags á vegum
þessara aðila til að halda þessu
verki áfram og hugsanlega
verður einnig tekið til við að
rækta fleiri vötn á Arnarvatns-
heiði upp á þennan hátt. Fest
hafa verið kaup á lítilli vinnslu-
stöð sem hægt er að fara með á
milli vatna til þess að vinna
fiskinn sem er í flestum tilfell-
um fyrsta flokks markaðsvara.
Verkefnið hefur verið unnið
undir stjórn Bjarna Jónssonar frá
Bændaskólanum á Hólum en
hann hefur einnig starfað á veg-
um Veiðifangs - félags vatna-
bænda - við að mæla magn fiskjar í
vötnum og veita leiðbeiningar
um á hvern hátt beri að grisja
þau. Karl Sigurgeirsson, verkefn-
isstjóri á Hvammstanga, sagði að
Húnvetningar ætluðu að vinna
að þessu verkefni í góðri sam-
vinnu við landeigendur og einnig
stangveiðimenn, en sum vatn-
anna á Arnarvatnsheiði eru vin-
sæl stangveiðivötn. Markmiðið
með verkefninu sé fyrst og fremst
að rækta vötnin með skynsam-
legri veiði og gefa fiski þannig
aukna vaxtarmöguleika, en víða
sé of mikið af fiski í vötnum og
hann búi því við léleg vaxtarskil-
yrði. Karl sagði að gengið hafi
verið frá kaupum á skráðu sam-
eignarfélagi er verða muni grund-
völlur félagsstarfsins og ætlunin
sé að veiðar á vegum þessara
aðila hefjist snemma í ágúst eða
þegar stangveiðitímabilinu Ijúki.
f>I
Héraösráð Eyjafjarðar hefur
samþykkt að gera heildarút-
tekt á flutningakerfi í Eyja-
fírði, þ.m.t. póst-, vöru- og
fólksflutningum. Byggðastofn-
un var falið að vinna að málinu
og mun ráða starfsmann til að
gera þessa úttekt. Auk hennar
kemur samgönguráðuneytið
að málinu.
Héraðsráð vill gera allt flutn-
ingakerfið á Eyjafjarðarsvæðinu
skilvirkara en það er nú, með það
í huga að minnka kostnað og
bæta þjónustuna. Á það hefur
t.d. verið bent að á sumum leið-
um í Eyjafirði séu margir aðilar í
svipuðum flutningum. Bæði er
um að ræða sérleyfishafa, einka-
aðila og fleiri sem flytja vörur
fyrir fyrirtæki. Á þessu sviði telja
héraðsráðsmenn að væri með
heildarendurskipulagningu unnt
að ná fram töluverðum sparnaði
og um leið að bæta þjónustu. Pað
mun koma í hlut sérstaks
starfsmanns, sem ekki er búið að
ráða, að skoða þau mál.
Samgönguráðuneytið kemur
að þessu máli vegna póstflutn-
inga á vegum Pósts og síma og
sérleyfa í fólksflutningum. óþh
Mjólkurbikarinn:
„Vinnum
Skagann“
- segir Gunnar Gíslason
í gær var dregiö í undanúr-
slitum Mjólkurbikarkeppn-
innar í knattspyrnu og fengu
KA-nienn heimaleik gegn
efsta liði Samskipadeildar-
innar, ÍA.
„Við erum mjög ánægðir
með að fá Skagann í heimsókn
og ætlum okkur að vinna þá.
Það besta við þetta er að fá
heimaleik, hitt skiptir minna
máli því við ætlum okkur alla
leið og þá skiptir ekki máli í
hvaða röð liðin koma,“ sagði
Gunnar Gíslason, þjálfari og
leikmaöur KA, eftir að ljóst
var hvaða lið KA fengi. Sjá
nánari umfjöllun á íþrótta-
síðu.
Ólafsfjörður:
Greiddi
matinn með
falsaðri ávísun
Á föstudaginn kom kona í
matvörudeild KEA í Ólafs-
fírði, verslaöi og greiddi síð-
an með ávísun sem reyndist
fölsuð. Síðar kom í Ijós að
ávísanaheftinu hafði verið
stolið á Akureyri.
Guðni Aðalsteinsson, lög-
reglumaður í Ólafsfirði, segir
ekki vitað hver þarna hafi ver-
ið á ferðinni en málið sé í
rannsókn. Hann segir aðeins
eina ávísun úr heftinu hafa
verið gefna út í Ólafsfirði svo
vitað sé og hafi hún verið upp
á 15 þúsund kr. Ávísanaheftið
var í veski sem stolið var á
Akureyri. JHB
Viðkomur skemmtiferðaskipa á Akureyri:
Tekjur áætlaðar um 25 milljónir
Nauðgunarmálið á Akureyri:
Árásaraiaðnrmn
ófundinn
- lögreglan óskar upplýsinga
um mannaferðir
Áætlað er að 18 skemmtiferða-
skip hafí viðkomu á Akureyri í
sumar. Ef gert er ráð fyrir að
hvert skip skili á bilinu einni til
einni og hálfri milljón króna í
tekjur má gera ráð fyrir að
komur skemmtiferðaskipa til
Akureyrar skilji eftir sig allt að
25 milljónum króna í tekjur á
þessu sumri. Flest skipin koma
hingað á vegum þýskra ferða-
skrifstofa en einnig er nokkuð
um að Bretar, Frakkar og Sví-
ar komi hingað með skemmti-
ferðaskipum. Áætlun skipanna
er mjög ströng og takmarkar
það möguleika til að bjóða
farþegum þeirra ferðir og aðra
afþreyingu á meðan viðdvöl
þeirra stendur. Algengast er
að þeir fari til Mývatns, í ferðir
að Goðafossi og Laufási auk
þess sem boðnar eru skoðunar-
ferðir um Akureyri.
Gunnar M. Guðmundsson,
framkvæmdastjóri Sérleyfisbíla
Akureyrar, sagði að áætla mætti
að hvert skip skilaði á bilinu einni
til einni og hálfri milljón króna í
tekjur. Þá væri átt við hafnar-
gjöld og tekjur af ferðum með
farþega auk þess sem gera mætti
ráð fyrir að einhver verslun eigi
sér stað þótt erfitt sé að meta það
að fullu. Gunnar sagði algengast
að farþegar færu til Mývatns en
einnig nokkuð um að þeir færu
Goðafoss - Laufáshringinn. Þá
færu alltaf einhverjir í skoðunar-
ferð um Akureyri en ferðirnar
austur væru vinsælli. Áhugi far-
þega markaðist nokkuð af því
hvað hinar erlendu ferðaskrif-
stofur leggðu áherslu á þegar þær
seldu ferðir með skipunum.
Flest skemmtiferðaskipin hafa
viðkomu á tveimur stöðum á ís-
landi - í Reykjavík og á Akur-
eyri. Gunnar sagði nokkuð um
að farþegar færu frá borði í
Reykjavík og héldu síðan land-
leiðina til Akureyrar á meðan
skipin sigldu á milli staða -
keyptu svonefndar þriggja daga
ferðir um landið.
Komum skemmtiferðaskipa
hingað til lands hefur fjölgað á
undanförnum árum og alls komu
23 skemmtiferðaskip til Akureyr-
ar í fyrrasumar. í sumar verða
þau heldur færri eins og að fram-
an greinir eða 18. Gunnar M.
Guðmundsson sagði að ferðir
skipanna væri vissulega góð við-
bót við aðra ferðaþjónustu, sem
menn vildu reyna að efla, en stíf
áætlun þeirra kæmi í veg fyrir
verulega aukna möguleika á því
sviði. Tekjur af skipunum mörk-
uðust að mestu af fjölda þeirra á
hverjum tíma. ÞI
Enginn hefur verið handtekinn
vegna alvarlegs nauðgunar-
máls sem upp kom á Akureyri
í síðustu viku. Rannsóknarlög-
reglan á Akureyri vinnur að
rannsókn málsins en vill sem
minnst tjá sig um gang hennar.
Aðfaranótt fimmtudagsins 16.
júlí braust grímuklæddur maður
inn í hús á Brekkunni þar sem
kona býr ein með tveimur börn-
um sínum. Maðurinn kom fram
vilja sínum með því að ógna kon-
unni með hnífi og hóta að börn-
um hennar yrði unnið mein.
Konan skarst m.a. á hendi í átök-
um við árásarmanninn sem enn
er ófundinn.
Daníel Snorrason, lögreglu-
fulltrúi, segir að lögreglan hafi
áhuga á að ná tali af sem flestum
sem voru á ferli í bænum milli kl.
4 og 6 þessa nótt og biður við-
komandi að gefa sig fram við
rannsóknarlögregluna á Akur-
eyri. Þeir sem geta gefið upplýs-
ingar um mannaferðir á þessum
tíma eru beðnir um slíkt hið
sama. JHB