Dagur - 13.08.1992, Blaðsíða 1
Venjulegir og
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
demantsskornir
trúlofunarhringar
Afgreiddir samdægurs
Vegagerð í Mývatnssveit:
Undirbíiiimgsvirma fyrir
bundið slitlag að heíjast 5
Vegaframkvæmdir standa nú
yfir í Mývatnssveit. Verið er að
undirbúa 2,5 km kalla frá Vog-
um að Geiteyjarströnd undir
bundið slitlag og einnig á að
byggja nýjan veg, um 1 km, frá
klæðingarendanum við Skútu-
staðakirkju um Skútustaða-
hlaðið. Framkvæmdum og þar
með lagningu bundins slitlags á
að vera lokið 1. september.
Sigurður Oddsson, tækni-
fræðingur hjá Vegagerðinni, vildi
taka það fram vegna útbreidds
misskilnings að leir hefði verið
settur í veginn frá Brún í Reykja-
dal að Skútustöðum sem er um
20 km kafli.
„Núna ætlum við að laga undir
bundið slitlag fyrst og fremst 2,5
km frá Vogum að Geiteyjar-
strönd og það er ekki kafli sem
leir var settur í, eins og haldið
hefur verið fram. Síðan ætlum
við að byggja nýjan veg, um 1
km, frá klæðingarendanum hjá
Skútustaðakirkju um Skútu-
staðahlaðið og enginn leir tekinn
af hinu. Ég vil taka það skýrt
fram, enda verður þetta senni-
lega besti vegur á íslandi næsta
vor,“ sagði Sigurður.
Fjórir aðilar voru kallaðir til í
lokuðu útboði til að fá fram
kostnaðartölur. Petta voru Jarð-
Húsavík:
Þjófar
enn
í haldi
Tveir pólskir menn voru enn í
haldi lögreglunnar á Húsavík í
gærkvöld eftir að þeir voru
handteknir fyrir þjófnað í
verslunum þar í bæ á mánudag.
Mennirnir voru hér á landi á
vegum Sirkus Arena sem rak
mennina úr starfi í gær. Kemur
málið þá einnig til kasta
útlendingaeftirlits.
Mennirnir voru yfirheyrðir í
viðurvist skipaðs verjanda og
dómtúlks sem komu til Húsavík-
ur síðdegis í gær.
Stjórnarskráin skipar svo fyrir
að grunaða menn skuli leiða fyrir
dómara „án undandráttar“ en
enn var óvíst hvort krafist yrði
gæsluvarðhaldsúrskurðar yfir
mönnunum.
í pokahorni mannanna fannst
þýfi að verðmæti hátt í 50 þúsund
krónur að sögn lögreglu sem
hafði gætur á mönnunum eftir að
grunsemdir vöknuðu hjá verslun-
areigendum á Húsavík. GT
verk sf. í Fnjóskadai, Marín hf. á
Grenivík, Arnarfell hf. í Skaga-
firði og Sniðlar hf. í Mývatns-
sveit.
„Það voru valdir verktakar
sem við treystum til að byggja
þetta á þetta skömmum tíma. Eg
fór með þessa fjóra verktaka upp
í Mývatnssveit fimmtudaginn 6.
þessa mánaðar. Þeir gáfu mér
tölu klukkan 11 morguninn eftir
og þeir eiga að byrja að vinna
verkið á hádegi á morgun og
verða búnir að því 1. septem-
ber,“ sagði Sigurður Oddsson í
gær. SS
Þungt hljóð var í útvegsmönnum á fundinum vegna 28% skerðingar í þorskveiðum Norðlendinga. Mynd: Golli
Útvegsmenn funduðu með þingmönnum á Akureyri í gær:
Mótmæla harðlega hugmyndum um
kvótasölu úr Hagræðingarsjóði
„Það var þungt hljóðið í
mönnum á þessum fundi enda
er staðan á þessu svæði gífur-
lega erfið. Við bendum á þá
miklu skerðingu þorskkvótans
sem verður á svæðinu og segj-
um að auðlindaskattur komi
ekki til greina. Það verður að
skapa greininni viðunandi
rekstrarskilyrði og við treyst-
um því að mál sjávarútvegsins
verði tekin upp strax og þing
kemur saman á mánudag,“
sagði Sverrir Leósson, formað-
ur Utvegsmannafélags Norð-
urlands eftir fjölmennan fund
útvegsmanna á Norðurlandi í
gær með 8 þingmönnum Norð-
urlandskjördæmanna tveggja.
Á fundinum var samþykkt
ályktun þar sem sölu á kvóta úr
Hagræðingarsjóði er harðlega
mótmælt. Jafnframt segir í álykt-
uninni að ef ekkert verði að gert
stefni ríkisstjórnin atvinnugrein-
inni í stóra erfiðleika með ófyrir-
sjáanlegum afleiðingum.
Sverrir Leósson segir að á
fundinum í gær hafi komið fram
að útvegsmenn ætli þingmönnum
kjördæmanna að standa saman
um að verja svæðið fyrir því áfalli
sem 28% skerðing á þorskveið-
um fjórðungsins leiði af sér.
Alþingi kemur saman á mánu-
dag og var boðað á fundinum í
gær að frumvarp um breytingu á
lögum um H^græðingarsjóð
verði lagt þá fram.
Ályktun útvegsmanna á fund-
inum í gær er svohljóðandi:
„Nú hefur verið tekin ákvörð-
un af ríkisstjórn um að á fiskveiði-
árinu 1992-1993 megi veiða 205
þúsund tonn af þorski sem þýðir
samdrátt í þorskveiðum Norð-
lendinga um 28,5%.
Ekki er séð hvernig útgerð,
vinnsla og byggðir á svæðinu
mæta tekjutapi sem slíkri
Akureyri:
Sláturfé uni 40 þúsund
Bændur á Eyjafjarðarsvæðinu
hafa frest til 24. þessa mánaðar
að skila inn sláturfjárloforð-
um. Þá mun liggja fyrir hve
margt sláturfé verður á þessu
hausti.
Að sögn Óla Valdimarssonar,
sláturhússtjóra KEA á Akureyri,
má reikna með að slátrun hefjist
fimmtudaginn 10. september en
hann reiknar með að sláturfé
verði á bilinu 38-40.000 talsins.
Hugmyndir hafa verið uppi um
hvort ekki megi lengja slátrunar-
tímabilið þannig að fyrr að sumr-
inu sé fáanlegt ferskt kjöt á
markaðnum en Óli segist ekki sjá
að það geti orðið fyrr en menn
Unglingar staðnir að hnupli í Ásbyrgi
9 unglingar voru staðnir að
hnupli í versluninni í Ásbyrgi
um verslunarmannahelgina.
Um var að ræða tvo hópa,
annars vegar frá Raufahöfn og
hins vegar úr Reykjavík.
Að sögn lögreglunnar á Rauf-
arhöfn hafðist upp á öllum hópn-
um og einnig þýfinu og voru versl-
unareigandanum afhentar vör-
urnar en unglingarnir sluppu með
áminningu. GG
hafa unnið sig út úr birgðavanda-
málinu. Þannig sé erfitt að byrja
slátrun fyrr en frosnar birgðir séu
uppurnar. JÓH
ákvörðun fylgir.
Fundurin mótmælir harðlega
öllum hugmyndum um sölu kvóta
úr Hagræðingarsjóði og telur
eðlilegast að úthluta heimildum
hans án endurgjalds og taki út-
hlutun mið af þorskskerðingu
einstakra skipa.
Ljóst er að útgerð og vinnsla
munu ekki geta staðið undir sinni
greiðslubyrði og því verður að
grípa til frekari aðgerða.
Fundurinn telur nauðsynlegt
að stofnfjársjóðir og bankar lengi
lánstíma, vextir verði lækkaðir,
athugaðir verði möguleikar á
víkjandi lánum fyrir greinina.
Fundurinn ætlast til að rfkisvald-
ið geri nú þegar grein fyrir tillög-
um Byggðastofnunar.
Ef ekkert verður að gert stefnir
ríkisstjórnin þessari atvinnugrein
í stóra erfiðleika, svo og byggðar-
lögum er eiga allt sitt undir sjáv-
arfanginu á þessu svæði með
ófyrirsjáanlegum afleiðingum.“
JÓH
Árskógshreppur og Austur-Landeyjahreppur:
Hafa teláð upp vinahreppasamband
- grunnskólar sveitarfélaganna hafa samskipti strax í vetur
Árskógshreppur og Austur- Hér gengur Hríseyjarferjan frá
Landeyjahreppur tóku í gær Árskógssandi en hjá okkur er
upp vinahreppasamband, sem
forvígismenn sveitarfélaganna
vilja kalla svo. Hreppsnefnd
Austur-Landeyjahrepps var
boðið í formlega heimsókn til
Árskógshrepps og var hún þar
í fyrradag og framan af degi í
gær. Ákveðið var að fyrsta
skref í nánari tengslum hrepp-
anna yrði stigið í vetur með
tölvusambandi nemenda í
grunnskólum sveitarfélaganna.
„Við erum með ólík sveitai;-
félög á sitt hvorum enda landsins.
þjónusta við Vestmannaeyjar að
byggjast upp frá Austur-Land-
eyjum, þaðan sem styst er til
Eyja. Þessa þjónustu við eyjarn-
ar eiga hrepparnir tveir sameigin-
legt,“ sagði Magnús Finnboga-
son, oddviti Austur-Landeyja-
hrepps í samtali við blaðið við
lok heimsóknarinnar á Árskógs-
strönd.
Magnús sagðist vænta þess að
hreppsnefnd Árskógshrepps
komi í heimsókn næsta sumar
suður en vilji sé til þess af beggja
hálfu að þróa þetta samband.
„Það er ekki nokkur vafi að hægt
er að taka upp samskipti á ýms-
um sviðum og allt er þetta til að
víkka sjóndeildarhringinn. Vina-
bæjatengslin eru þekkt í þéttbýl-
inu og því skyldu menn ekki hafa
samskipti sveita á rnilli," sagði
Magnús.
í heimsókninni skoðaði hrepps-
nefnd Austur-Landeyjahrepps
fyrirtæki á Árskógsströnd, reyndi
fyrir sér í sjóstangveiði á Eyja-
firði og fór í ferðir til Hríseyjar,
Dalvíkur, Ólafsfjarðar og Svarf-
aðardals. Heimsókninni lauk
með hádegisverði í Árskógsskóla
um hádegi í gær. JÓH