Dagur - 13.08.1992, Qupperneq 7
Fimmtudagur 13. ágúst 1992 - DAGUR - 7
Hólameim ekki reknir heim!
Vegna fréttar í DV þriðjudaginn
4. ágúst, þar sem höfð eru eftir
ummæli forráðamanna Hóla-
skóla, þeirra Sveinbjörns
Eyjólfssonar og Magnúsar Lárus-
sonar, vill stjórn Vindheimamela
sf. taka eftirfarandi fram:
Vindheimamelar sf. halda
hestamannamót um verslunar-
mannahelgi ár hvert.
Á þessu móti fara fram gæð-
ingakeppni A og B flokkur, eldri
og yngri flokkur unglinga og
kappreiðar. Einnig fer fram á
sama stað og tíma opið íþrótta-
mót á vegum H.Í.D.S.
í reglugerð L.H. um rétt til
þátttöku í gæðingakeppni 1.
kafla 1. grein segir: „Rétt til þátt-
töku í gæðingakeppni hafa öll
tamin hross 5 vetra og eldri í eigu
félagsmanna innan L.H. ef þau
fullnægja skilyrðum þeim, sem
sett eru í reglum þessurn."
Um síðustu helgi kom í ljós að
skráð voru til þátttöku í gæð-
ingakeppni fjögur hross sem hafa
verið í eigu Bændaskólans á
Hólum. Pessi hross voru nú skráð
á nafn Sveinbjörns Eyjólfssonar
skólastjóra á Hólum. Stjórn
Vindheimamela sf. gerði fyrir-
spurn til landbúnaðarráðuneytis
föstudaginn 31. júlí, þar sem
spurt var hver væri eigandi um-
ræddra hrossa. Eftirfarandi svar
barst:
„í framhaldi af samtali við
yður v/fyrirspurnar til ráðuneytis-
Landlæknis-
embættið varar
við fíkni-
eftiinu alsælu
Landlæknir sendi nýlega frá
sér upplýsingar um fíkniefnið
alsælu (Ecstasy) þar sem fólk
er alvarlega varað við neyslu
þess.
Alsæla er verksmiðjuframleidd
amfetamíntegund og var lyfið
upphaflega skráð 1914 og gefið til
þess að draga úr matarlyst. Það
hefur nú verið afskráð í flestum
vestrænum löndum vegna mis-
notkunar þess og aukaverkana.
Alsæla er hins vegar seld á svört-
um markaði og gjarnan með
þeirri umsögn að lyfið sé hættu-
laust.
í British Medical Journal 4.
júlí 1992 er getið um aukaverk-
anir alsælu og sagt frá sjö dauðs-
föllum sem rakin eru til notkunar
efnisins. Aukaverkanirnar geta
verið mjög alvarlegar og er m.a.
minnst á lífshættuleg hitaköst,
vökvatap, krampaflog, blóð-
storknunarhneigð og nýrnabilun.
„Pessara fylgikvilla verður
helst vart eftir mikla áreynslu,
t.d. meðal unglinga, sem nota
lyfið og dansa lengi nætur. Nú
færist í vöxt í Bandaríkjunum að
auglýstir séu unglingadansleikir,
jafnvel í vöruskemmum án alls
annars viðbúnaðar. Þar hefur
þessu lyfi verið dreift og dansa
unglingar gjarnan til dagur rís.
Breska læknablaðið ræðir um
„dauðadansinn“. Svipaðar upp-
lýsingar hafa birst í bandarískum
lyfjatímaritum. Þó að menn þurfi
litla skammta til að byrja með til
þess að komast í vímu eykst þolið
skjótt. Á nokkrum vikum þarf
allt að tífaldan skammt. Fólk er
því alvarlega varað við þessu
vímuefni," segir í tilkynningu frá
landlækni. SS
ins um skráningu tiltekinna
hrossa til þátttöku í móti að
Vindheimamelum, er yður sent
ljósrit af bréfi til skólastjóra
Bændaskólans á Hólum þar sem
honum er heimilað að skrá hross
til keppni í eigin nafni. Þess er
vænst að með því sé svarað fyrir-
spurn yðar í símbréfi sem sent
var ráðuneytinu í dag. f.h.r.
Guðmundur Sigþórsson (sign).“
„Með vísan í fyrirspurn yðar
skal upplýst og tekið fram af
landbúnaðarráðuneytinu að
skólastjóra Bændaskólans á Hól-
um er heimilt, hvenær sem hon-
um þykir henta, að sýna hross
Bændaskólans, hvort sem er í
kynbótasýningum, gæðinga-
keppnum eða hestaíþróttakeppn-
um. Jafnframt skal upplýst að
með hliðsjón af því að skólastjóri
er fjárhaldsmaður og prókúru-
hafi fyrir Bændaskólann er hon-
um heimilt að skrá hrossin til
keppni undir eigin nafni, þ.e.
Sveinbjörn Eyjólfsson, skóla-
stjóri á Hólum. f.h.r. Guðmund-
ur Sigþórsson (sign)/Jóhann
Guðmundsson (sign).“
Stjórn Vindheimamela sf. mat
þetta svar þannig að greinilegt er
að umrædd hross eru eign Bænda-
skólans á Hólum. í grein DV seg-
ir Sveinbjörn Eyjólfsson að
Hólahross hafi verið skráð hálf-
um mánuði fyrir mót en þeir ver-
ið reknir heim er á staðinn kom.
Hið rétta er að skráning til þátt-
töku á umræddu móti fór fram
mánudaginn 27. og þriðjudaginn
28. júlí hjá Magnúsi Lárussyni á
Hólum. Stjórn Vindheimamela
sf. sá ekki skráningu fyrr en
fimmtudagskvöldið 30. júlí þegar
mótsskrá kom úr prentun.
Fimmtudagskvöldið 30. júlí
var haldinn fundur í stjórn Vind-
heimamela sf. þar sem ákveðið
var að gera þá fyrirspurn til land-
búnaðarráðuneytisins sem getið
er hér að framan. Föstudags-
kvöldið 31. júlí kom stjórn Vind-
heimamela sf. aftur saman þar
sem fjallað var um málið í ljósi
framkominna gagna. Tveir stjórn-
armenn höfðu verið í símasam-
bandi við Sveinbjörn skólastjóra
þann sama dag og kynnt honum
stöðu málsins. Niðurstaða stjórn-
ar Vindheimamela sf. varð sú að
leyfa fyrrnefndum hrossum að
taka þátt í A og B keppni gæð-
inga sem gestum, þannig að þeir
kepptu algerlega á jafnréttis-
grundvelli, en tækju þó ekki við
verðlaunum ef þannig færu leik-
ar. Sveinbjörn hafnaði þessari
hugmynd alveg og tók þá ákvörð-
un að fara heim með öll hross á
vegum Hólamanna.
Rétt er að taka fram að þau
hross sem stjórn Vindheimamela
sf. fjallaði um eru einungis
fjögur. Hólamenn fóru heim með
19 hross að eigin sögn, þeir fóru
jafnvel heim með kynbótahross
sem eru sýnd, að vísu á Vind-
heimamelum en á vegum Búnað-
arsambands og Hrossaræktar-
sambands Skagafjarðar. Ummæl-
um Magnúsar Lárussonar um
hug Skagfirðinga til Hólabúsins
er alfarið vísað til föðurhúsanna.
Stjórn Vindheimamela sf.:
Agnar H. Gunnarsson (sign.),
Sigurður Ingimarsson (sign.)
Símon I. Gestsson (sign.)
Sveinn Guðmundsson (sign.)
Jón Geirmundsson (sign.)
Gísli Sv. Halldórsson (sign.)
SJALLINN
FÖSTUDACSKVÖLD
SJALLAKRAIN
K7ALLARINM
GUÐMUNDUR RÚNAR LÚÐVÍKSSON
FIMMTUDAG - FÖSTUDAG - LAUGARDAG
AKUREYRARB/CR
Kennara vantar
Vegna forfalla vantar kennara í 1. bekk i Síðu-
skóla og Glerárskóla á Akureyri.
Upplýsingar gefa skólastjórar í símum 96-22253
í Glerárskóla og 96-22588 í Síðuskóla. Einnig
eru veittar upplýsingar á skrifstofu skólafulltrúa í
síma 96-27245.
Skólafulltrúi.
Maðurinn minn,
MAGNÚS FRANKLIN TRYGGVASON,
Lækjargötu 2 a, Akureyri,
lést að heimili sínu þann 11. ágúst.
Jarðarförin auglýst síðar.
F.h. aðstandenda
Valborg Jónsdóttir.