Dagur - 13.08.1992, Síða 10
10 - DAGUR - Fimmtudagur 13. ágúst 1992
ÍÞRÓTTIR
Samskipadeildin - Þór-ÍBV 4:2:
Þórsvélin hikstar ekki í toppslagnum
- Eyjamenn máttu sín lítils gegn frískum heimamönnum
„Þetta ver mjög gott en við
fengum á okkur tvö óþarfa
mörk,“ sagði Sveinbjörn
Hákonarson, leikmaður Þórs
eftir að lið hans hafði lagt ÍBV
að velli með fjórum mörkum
gegn tveimur. „Við spiiuðum
sérstaklega vel í fyrri hálfleik
en gerðum tæknileg mistök og
hleyptum þeim inn í leikinn.
Við vorum mun betra liðið og
sigurinn var aldrei í hættu,“
sagði Sveinbjörn.
„Þetta er ekki nógu gott hjá
okkur. Þetta verður erfitt það
sem eftir er en við höfum ekki
gefið upp alla von þar eð það eru
15 stig eftir í pottinum. Við kom-
um hingað í dag til þess að vinna,
erum á undan að skora en gleym-
um okkur og fyrir það er okkur
refsað," sagði Jón Bragi Arnars-
son, fyrirliði ÍBV.
Þórsarar byrjuðu leikinn af
talsverðum krafti og á fyrstu mín-
útunum voru þeir aðgangsharðir
upp við markið og náðu í tvígang
að vinna boltann af Friðriki
Friðriksson, markverði ÍBV, sem
virkaði óöruggur í markinu.
Gestirnir skoruðu fyrsta mark
leiksins á 32. mínútu og kom
það mark eins og köld vatnsgusa
framan í Þórsara sem höfðu verið
mun frískari í leiknum. Eyja-
menn tóku innkast og nikkuðu
boltanum inn í markteig þar sem
boltinn datt niður fyrir fætur
Friðriks Sæbjörnssonar sem skor-
aði. Misskilningur varð í vörn
Þórs þar sem þeir voru margir
gegn einum Eyjamanni.
Fjórum mínútum síðar jafnaði
Sveinbjörn Hákonarson með
glæsilegu skoti utan úr teig eftir
að Bjarni Sveinbjörnsson hafði
skallað boltann út til hans eftir
fyrirgjöf frá Ásmundi Arnarsyni.
Rétt undir lok hálfleiksins gerðu
Eyjamenn hræðilegt sjálfsmark.
Sveinbjörn sendi háa sendingu
inn í teiginn þar sem Elías
Friðriksson, Eyjamaður, skallaði
boltann aftur fyrir sig og í netið
hjá Friðriki sem stóð of framar-
leg í markinu. Staðan því 2:1 í
leikhléi.
Áhorfendur voru rétt búnir að
koma sér fyrir í stúkunni þegar
Ásmundur Arnarson skoraði
þriðja mark heimamanna með
föstu skoti frá vítateig eftir fal-
lega sendingu frá Halldóri Áskels-
syni. Eftir markið fóru Þórsarar
sér full rólega og hleyptu Eyja-
mönnum inn í leikinn og þeir
náðu að minnka muninn með
marki Friðriks Sæbjörnssonar
sem skoraði sitt annað mark í
leiknum.
Á 38. mínútu síðari hálfleiks
kom Kristján Kristjánsson inn á
fyrir Bjarna Sveinbjörnsson í
Þórsliðinu og hann þakkaði fyrir
traustið með því að skora úr sinni
fyrstu snertingu nokkrum mín-
útum síðar. Sveinbjörn Hákonar-
son sendi þá laglega inn á Kristján
sem var kominn einn í gegn og
skoraði af öryggi framhjá Friðriki
í tnarkinu. Sannfærandi sigur í
opnum og fjörugum leik í höfn
hjá Þór og þeir gefa ekkert eftir í
toppbaráttunni. Bestir í liði Þórs
voru Sveinbjörn Hákonarson,
sem lék mjög vel á miðjunni í
gærkvöld, og Ásmundur Arnar-
son. Hjá Eyjamönnum bar mest
á Friðriki Sæbjörnssyni.
Lið Þórs: Lárus Sigurðsson, Júlíus
Tryggvason, Hlynur Birgisson, Birgir
Þór Karlsson, Árni Þór Arnason, Hall-
dór Áskelsson, Ásmundur Amarson,
Sveinn Pálsson, Lárus Orri Sigurðsson,
Sveinbjörn Hákonarson, Bjarni Svein-
björnsson (Kristján Kristjánsson á 83.
mínútu)
Lið ÍBV: Friðrik Friðriksson, Friðrik
Sæbjömsson, Bojan Bevc, Elías Friðriks-
son, Jón Bragi Arnarsson, Tryggvi
Guðmundsson, Rútur Snorrason, Ingi
Sigurðsson, Leifur Geir Hafsteinsson,
Tómas I. Tómasson, Nökkvi Sveinsson
(Martin Eyjólfsson).
Gul spjöld: Elías Friðriksson, Rútur
Snorrason, Friðrik Sæbjörnsson, ÍBV,
Sveinn Pálsson og Árni Þór Árnason,
Þór.
Dómari: Egill Már Markússon.
Línuverðir: Kristinn Guðmundsson og
Valdimar Freysson.
Samskipadeildin:
Enn eitt tap KA í deildinni
- urðu
KA-menn máttu þola enn eitt
tapið í Samskipadeildinni í
gærkvöld þegar þeir töpuðu
fyrir KR-ingum með engu
marki gegn þremur. Staðan í
neðstu sætum deildarinnar
breyttist ekki þar sem ÍBV og
UBK töpuðu líka.
„Þeir nýttu færin en við ekki,“
sagði Gunnar Gíslason, þjálfari
KA og bætti því við að hann
myndi verða tilbúinn í næsta leik.
Fyrri hálfleikurinn var nokkuð
jafn en þó sóttu KA-menn að
öllu meiri skynsemi en KR-ingar,
án þess þó að ná að skapa sér
hættulegt færi.
Fyrsta færi leiksins var í eigu
heimamanna en þá potaði
Sigurður Ómarsson boltanum í
átt að marki KA eftir þvögu í
teignum en þeir síðarnefndu
björguðu á línu. Mínútu síðar, á
þeirri 35. átti Pavel Vandas skot
eftir undirbúning Gunnars Más
Mássonar en Ólafur Gottskálks-
son varði. Ormarr Örlygsson var
nokkru síðar á ferðinni eftir
hornspyrnu, lék eftir endamörk-
um og gaf á Halldór Kristinsson
en Ólafur var aftur fyrir í mark-
inu. Staðan í leikhléi var jöfn 0:0.
í síðari hálfleik gerðu KR-ing-
ar breytingu á liði sínu sem átti
að lúta í lægra fyrir KR, 3:0
eftir að hafa afgerandi áhrif á
gang leiksins. Þá kom Ómar
Bendsen, tvítugur leikmaður,
inná og Atli Eðvaldsson fór fram
í sóknina. Sá síðarnefndi skoraði
síðan fyrsta mark KR-inga með
fallegum skalla eftir sendingu frá
fyrrnefndum Ómari. KA-menn
lifnuðu örlítið við eftir markið en
þó þurfti Haukur Bragason tví-
vegis að taka á honum stóra sín-
um eftir skæðar sóknir heima-
manna.
Ómar Bendson skoraði annað
mark leiksins eftir fallegt spil
KR-inga á 87. mínútu og mínútu
síðar var hann aftur á ferðinni
þegar hann lagði upp mark fyrir
Sigurð Ómarsson.
KA-menn hefðu hæglega getað
skorað í leiknum og fengu nokk-
ur ágæt færi. Þeirra besti maður
var Gunnar Már Másson og
Haukur Bragason var einnig
góður. ívar Bjarklind og Ormarr
Órlygsson áttu góða spretti. SV
Lið KA: Haukur Bragason, Steingrímur
Birgisson, Halldór Kristinsson, Örn Við-
ar Arnarson, Bjarni Jónsson, fvar
Bjarklind, Páll Gíslason (Gauti Laxdal á
66. mín), Pavel Vandas, Birgir Arnarson
(Árni Hermansson á 78. mín), Ormarr
Örlygsson, Gunnar Már Másson.
Lið KR: Ólafur Gottskálksson, Óskar
Þorvaldsson, Þormóður Egilsson, Atli
Eðvaldsson, Þorvarður Egilsson, Hilmar
Björnsson (Ómar Bendsson í hléi), Rún-
ar Kristinsson, Gunnar Oddsson, Sigurð-
ur Ómarsson, Ragnar Margeirsson, Ein-
ar Þ. Daníelsson, Steinar Ingimundar-
son.
Gul spjöld: Sigurður Ómarsson, KR,
Gunnar Már Másson og Halldór Kristins-
son, KA.
Dómari: Gísli Guðmundsson.
Línuverðir: Eyjólfur Ólafsson og Einar
Sigurðsson.
1. deild
13. umferð:
Þór-ÍBV 4:2
KR-KA 3:0
FH-Víkingur 2:2
ÍA-UBK Fram-Valur 4:2
Staðan:
IA 13 9-3- 1 25:13 30
Þór 13 7-4- 2 17:8 25
KR 13 7-3- 3 22:13 24
Fram 12 6-1- 5 20:16 19
Valur 12 5-4- 3 21:14 19
FH 13 4-5- 4 19:21 17
Víkingur 13 4-4- 5 19:20 16
KA 13 2-4- 7 14:25 10
UBK 13 2-3- 8 8:19 9
ÍBV 13 2-1-10 13:30 7
Kristján Kristjánsson kom inná sem varamaður og skoraði.
Mynd: Golli
Greifamótið í golfl
Þríþrautarkeppni íslandsbanka:
Fyrirböm7-12ára
íslandsbanki stendur fyrir þrí-
þrautarkeppni fyrir 7-12 ára
börn og mun Handknattleiks-
deild KA sjá um framkvæmd-
ina. Keppt verður í hlaupi,
Golfsambandið
50ára
Goifsamband íslands er 50 ára
um þessar mundir og mun Golf-
klúhbur Akureyrar hafa opið
fyrir bæjarbúa á golfvellinum
til þess að þeir geti kynnt sér
starfsemina.
Að sögn Gisla Braga Hjartar-
sonar ætla þeir hjá Golfklúbbn-
um að hafa opið á föstudaginn og
þeir sem vilja geta gripið í kylfu.
Boðið verður upp á kaffi og verð-
ur veitingasalan opin.
Fréttatilkynning
hjólreiðum og boltakasti.
Keppnin fer fram á sunnudag-
inn 16. ágúst og fer skráning
fram í íslandsbanka við Hrísa-
lund á sunnudagsmorgun frá
9.30-11.30 og einnig má
hringja þangað í síma 21200.
Keppnin hefst klukkan 13.00
við íslandsbankaútibú við
Hrísalund.
Hver aldursflokkur keppir sér
og verða vegalengdir miðaðar við
getu hvers aldurshóps. Hlaupið
verður á bilinu einn og hálfur til
tveir og hálfur kílómetri og hjól-
að verður svipaða vegalengd.
Boltakastið fer fram á planinu
við Hrísalund. Hver grein verður
tekin fyrir sér og verður hlé gert á
milli þeirra. Allir keppendur fá
verðlaunaskjal sent eftir mótið
og að auki húfu frá íslandsbanka.
Þrír efstu í hverri grein fá verð-
launapening. Fréttatilkynning
Grcifamótið í golfi er enn í
fullum gangi og eru alltaf ein-
hverjir nýir sem byrja á hverj-
um fimmtudegi. Oddur Jóns-
son vann bæði keppni með og
án forgjafar síðastliðinn
fimmtudag. Mótið heidur
áfram í dag en úrslitin frá því
fyrir viku eru eftirfarandi.
Tölurnar eru höggafjöidi og
stig:
Með forgjöf:
1. Oddur Jónsson 30/12
2. Gunnar Jakobsson 32/10
3. Guðmundur Lárusson 33/8
4. -7. Þorvaldur Snæbjörnsson 34/5,5
4.-7. Guðbjörn Garðarsson 34/5,5
4.-7. Haraldur Júlíusson 34/5,5
4. -7. Ólafur Hilmarsson 34/5,5
8.-9. Guðmundur Finnsson 35/2,5
8.-9. Þórhallur Pálsson 35/2,5
Án forgjafar:
1. Oddur Jónsson 37/12
2. Þórhallur Pálsson 38/10
3. -4. Haraldur Júlíusson 39/7,5
3.-4. Guðmundur Lárusson 39/7,5
5. -7. Guðbjörn Garðarsson 40/5
5.-7. Ólafur Gylfason 40/5
5.-7. Ólafur Hilmarsson 40/5
8.-10 Gunnar Jakobsson 41/2
8.-10. Guðmundur Finnsson 41/2
8.-10. Sverrir Þorvaldsson 41/2
Heildarskor með forgj:
1. Gunnar Jakobsson 35,9
2. Ólafur Hilmarsson 26,3
3.-4. Jón S. Árnason 24,0
3.-4. Oddur Jónsson 24,0
5. Guðmundur Finnsson 21,8
Norðurlandsmótið í golfi fer
fram um helgina 15.-16. ágúst.
Keppt verður í öilum flokkum
karla-, kvenna-, öldunga og
unglinga. Golfkiúbbur Ólafs-
fjarðar sér um mótið en það
verður haldið að Jaðri á Akur-
eyri. Styrktaraðilar eru m.a.
Olafsfjarðarbær, Útgerðarfé-
iagið Sæberg hf. Ólafsfirði og
Sparisjóður Ólafsfjarðar.
Leiknar veðra 36 holur og
verða ýmis aukaverðlaun veitt á
mótinu. T.d. verður verðlaunað
Heildarskor án forgj:
1. Ólafur Gylfason 61,2
2. Þórhallur Pálsson 52,0
3. Sverrir Þorvaldsson 33,0
4. Haraldur Júlíusson 28,5
5. Oddur Jónsson 23,5
fyrir upphafshögg næst holu á öll-
um par 3 holum vallarins fyrri
keppnisdaginn en þann seinni
veitt verðlaun fyrir fyrstu fjórar
par 3 holur vallarins. Sérstök
verðlaun verða fyrir 18. holu vall-
arins. Þessi verðlaun gefur
Golfbúð David’s.
Skráningu lýkur kl. 16.00
föstudaginn 14. ágúst og er
skráningarsími 96-22974 (hjá
GA). Keppnisgjald er 2500 fyrir
15 ára og eldri en 1500 fyrir 14
ára Og yngri. Fréttatilkynníng
Golf:
Norðurlandsmótið
haldið að Jaðri