Dagur - 20.08.1992, Page 7

Dagur - 20.08.1992, Page 7
Fimmtudagur 20. ágúst 1992 - DAGUR - 7 Fimmti hver karl í þéttbýli á aldrinum frá tvítugu til sjötugs borðar heita máltíð í mötuneyti að staðaldri. Mynd: Golli heimahúsum og veitingastöðum er meðtalin. Um helmingur ungs fólks nefnir pitsu. Piltar segjast borða þrjár og hálfa sneið á viku að jafnaði og stúlkur tvær. Fáar fæðutegundir verða þannig til að skáka pitsunni að vinsældum í þessum aldurshópi.“ Kaldur hádegisverður eða kvöldverður Fram kemur að kaldar aðalmál- tíðir eru að jafnaði færri en heitar og veita minna af flestum nær- ingarefnum að kalki undan- skildu. „Köldu máltíðirnar eru kalkríkustu máltíðir dagsins en munur er á fituhlutfalli þeirra meðal karla og kvenna. Ástæðan er fyrst og fremst sú að karlar smyrja brauð sitt að jafnaði meira en konur auk þess sem þeir nota meira af fullfeitum mjólkur- vörum en konur,“ segir Laufey og fjallar í lokin um millibita, síðdegis- og kvöldhressingu. Millibitar, síðdegishressing og kvöldhressing „Aukabitar og smábitar eru drjúgur hluti heildarneyslunnar og veita samanlagt 29% orkunn- ar. Meðal ungs fólks á aldrinum 15 til 29 ára er hlutfall aukabita og smámáltíða jafnvel meiri eða 39% en minnst er hlutdeildin meðal aldraðra. Pað sem öðru fremur einkennir aukabita og hressingu af þessu tagi er tiltölu- lega mikill viðbættur sykur, lítil fita en töluvert kalk. Meira en helmingur alls viðbætts sykurs kemur í fæðið á þennan hátt og eru millibitar karla greinilega sykraðri en millibitar kvenna. Síðdegis- og kvöldhressing beggja kynja eru hins vegar svip- uð að samsetningu. ój Ólympíuleikarnir að baki: „Frábær upplifun“ - segir Freyr Gauti Sigmundsson júdókappi Freyr Gauti Sigmundsson, ólympíufari. Nýafstaðnir Ólympíuleikar í Barcelona á Spáni hafa vart farið framhjá mörgum enda hafa fjölmiðlar gert þeim góð skil að undanförnu. Akureyr- ingurinn og júdókappinn Freyr Gauti Sigmundsson var einn af íslensku ólympíuförunum en er nú kominn heim. Við ákváðum að forvitnast um hina hliðina á leikunum, þá sem ekki sást í sjónvarpinu, þ.e. líf- ið í ólympíuþorpinu og fleira. „Frábært," var það sem fyrst kom fram á varir hans þegar við spurðum hvernig hefði verið. „Alveg svakalega gaman og mik- ið ævintýri." Hann sagði leikana hafa verið vel skipulagða hjá Spánverjunum, nema flutning á milli svæða sem á stundum hafi verið klúðurslegur. Aðspurður um ólympíuþorpið sjálft, sagði hann það 20 þúsund manna þorp, sem saman stóð af þéttbyggðum fjölbýlishúsum. „Þetta var allt dálítið grátt og ég saknaði þess að sjá engan gróður þarna. Mötuneytið á staðnum tók 3.500 manns og maturinn var alveg frábær. Ég þyngdist um 5 kíló í ferðinni enda kokkarnir franskir." Freyr Gauti segir að í þorpinu hafi líka verið verslanir af ýmsu tagi, afþreyingarsalur með tölvu- spilum, keilusölum, billiard og pílukasti svo eitthvað sé nefnt sem og snyrti- og hárgreiðslu- stofa. Parna var líka miðstöð þar sem hægt var að horfa á sjónvarp og nota þvottavélar og fleira. Þá voru þarna veitingastaðir frá stórum, þekktum erlendum keðj- um sem selja pítsur, hamborgara og fleira en þangað gátu þátttak- endur í leikunum komið þegar þeim sýndist og borðað frítt. Sömu sögu var að segja um gos- drykki en slíkar vélar voru um allt þorpið sem íþróttamennirnir gátu gengið í að vild. - Hvernig var andinn í íslenska hópnum? „Mjög góður. Við reyndum að styðja hvert annað og fylgjast með keppnum hjá hinum. Ég fór á þrjá handboltaleiki, sá spjót- kastið en komst ekki á sundið því þá var ég á æfingum." - Kynntust þið keppendum frá öðrum þjóðum? „Allt of lítið. Það er svo mikið að gera og svo eru hóparnir mjög lokaðir. Margir halda að maður kynnist þarna fullt af fólki en svo er ekki. Það var ekki fyrr en alveg í lokin að fólk fór aðeins að spjalla saman.“ Mörg þekkt andlit mátti sjá meðal keppenda á leikunum og spurðum við Gauta hvort hann hefði hitt einhverjar „stjörnurn- ar“ í návígi. „Ég sá m.a. Magic Johnson og einu sinni rakst ég á Carl Lewis. Bjarni Friðriksson hins vegar rakst í bókstaflegri merkingu á Arnold Schwarzen- egger því hann gekk á hann þeg- ar hann var að koma út af hóteli fyrir utan ólympíuþorpið.“ Þegar kom að stóru stundinni hjá Gauta sjálfum, segist hann hafa verið mjög stressaður. „Mig vantar töluverða reynslu ennþá til að ná upp réttu stemmningunni í svona stórmóti; er ekki orðinn nógu sjóaður ennþá. Á næstu ólympíuleikum spái ég því hins vegar að fjórir júdómenn frá Akureyri taki þátt. Ef menn eru tilbúnir til að leggja fram þá pen- inga sem þarf í þetta er ég alveg viss um að ég verð sannspár." Þótt Gauti sé rétt nýkominn heim, er hann þegar farinn að huga að næsta móti sem er heims- meistaramót karla 21 árs og yngri í Buenos Aires í október. Þar á eftir verður það evrópumeistara- mót karla 21 árs og yngri sem haldið verður í Jerúsalem í lok nóvember. En er þetta ekki dýrt fyrirtæki að fara á öll þessi stórmót? „Svo sannarlega. Eg er búinn að fara tíu keppnisferðir á árinu. Fjórar þeirra hafa verið borgaðar fyrir mig, hinar hef ég þurft að greiða sjálfur. Ég geri ekki mikið rneira en að vinna fyr- ir þessu en þess má geta að Hita- veita Akureyrar hefur hjálpað mér mjög mikið.“ Sjónvarpsáhorfendur fengu m.a. að fylgjast með beinum útsendingum frá setningar- og lokaathöfnum sem báðar voru mjög tilkomumiklar heima í stofu, en hvernig var að vera á staðnum? „Stórkostlegt, sérstak- lega fannst mér gaman á setning- arathöfninni.“ Eftir lokaathöfn- ina tók íslenski hópurinn snemma á sig náðir enda tók við ellefu klukkustunda ferð heim til íslands daginn eftir. „Ég hvet íslenska íþróttamenn til að leggja hart að sér svo þeir geti komist á ólympíuleika. Þetta er frábær upplifun," sagði Gauti að lokum. VG ÓSKAR EINARSSON í KIALLARANUM 06 Á SJALLAKRÁNNI SJ/ÍlÍNN

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.