Dagur - 20.08.1992, Síða 9
Fimmtudagur 20. ágúst 1992 - DAGUR - 9
Myndlistaskólinn á Akureyri:
Sýning á úrvali banda-
rískra einþrykkimynda
-22. ágúst til 5. september
Sú grein grafíklistar sem nefnd er
„einþrykk“ hefur notið vaxandi
hylli listamanna á síðari árum.
Tækni þessi, sem er fremur ein-
föld, byggir á því að listamaður-
inn málar á glerplötu og þrykkir
síðan yfir með pressu áður en
liturinn nær að þorna. Árangur-
inn er einstakt verk sem ekki er
unnt að fjölfalda. Hægt er að
endurvinna hverja mynd, en
útkoman verður mismunandi
hverju sinni. Tækni þessi þykir
gefa mikla möguleika, enda veitir
hún listamönnum mikið svigrúm
til tilrauna og tjáningar. Ein-
þrykk hvílir á gömlum merg og
var þekkt þegar á 17. öld. Það
var þó ekki fyrr en um síðustu
aldamót sem listamenn tóku að
sýna ferli þessu fullan sóma og
ber þar hæst franska listmálarann
Edgar Degas og Bandaríkja-
manninn Maurice Prendergast.
Á tuttugustu öldinni hófu þau
Stanley William Hayter (Atelier
17 í París/New York), Tatyana
Grosman (Universal Limited Art
Editions) og June Wayne (Tam-
arind Lithography Workshop)
einþrykk til vegs á ný, urn og eftir
rniðja öldina. Nú kom ný prent-
tækni til skjala og listamenn tóku
að þreifa sig áfram með nýjar
gerðir pappírs.
Bandaríski grafíklistamaður-
inn Garner Tullis var þegar gamal-
reyndur í hettunni þegar hann
opnaði vinnustofu sína í Santa
Barbara í Kaliforníu árið 1984 og
veitti hópi listamanna aðstöðu til
listsköpunar á sviði einþrykki-
mynda. Tullis bryddaði upp á
ýmsum nýjungum við gerð mynd-
anna; notaði t.a.m. eigin pappír
og varð sér úti um vökvaknúna
pressu, hannaða að forskrift hans
sjálfs, sem veitti meiri möguleika
í myndgerð og stærð.
Eftir að Tullis opnaði vinnu-
stofur sínar í Santa Barbara - og
síðar einnig í New York - hefur
mikill fjöldi grafíklistamanna lagt
hönd á plóg með honum í marg-
víslegri tilraunastarfsemi á sviði
grafíklistar. Árangur þessa starfs
hefur m.a. lýst sér í ört vaxandi
vinsældum einþrykks meðal lista-
manna síðastliðinn áratug. Liðnir
eru nú þeir tímar er listamenn
litu niður á slíka vinnslu sem
hverja aðra prentiðn. Þess í stað
nýtur hún hylli sem sveigjanlegt
og auðugt listform sem gagnast
getur ólíkum skólum sköpunar
og myndlistar.
Geta má þess að allmargir
íslenskir myndlistarmenn hafa
spreytt sig á einþrykki. Má þar
nefna þá Magnús Kjartansson og
Gunnar Örn Gunnarsson.
Phyllis Plous, safnvörður við
Háskólalistasafnið í Santa
Barbara, valdi - í samvinnu við
Tullis sjálfan - þau 26 verk sem
mynda Collaborations in mono-
type II, yfirlitssýningu lista-
Helgina 21.-23. ágúst nk. verð-
ur haldinn 22. aðalfundur
Náttúruverndarsamtaka Aust-
urlands.
Fundurinn fer að þessu sinni
fram í Arnardal á Brúaröræfum
og er fundarstaðurinn valinn með
það í huga að vekja athygli
manna á þeim náttúruperlum
sem fara munu undir vatn ef af
virkjtmarframkvæmdum verður á
þessu svæði. Fundurinn fer fram í
stóru samkomutjaldi og geta
fundarmenn tjaldað inni í því ef
illa viðrar.
Þess er vænst að sem flestir
mæti á svæðið strax á föstudags-
kvöld. Á laugardaginn verður
farið um Brúardali undir leiðsögn
manna úr smiðju Garners Tullis í
Santa Barbara. Undanfarin þrjú
ár hefur sýningin farið víða um
lönd á vegum Upplýsingaþjón-
ustu Bandaríkjanna og hvarvetna
hlotið góðar viðtökur listunn-
enda.
Sýningin kernur til fslands frá
Þýskalandi en héðan fer hún m.a.
til Grikklands og Austurríkis.
Hérlendis verður Collaborations
in monotype II færð upp á tveim-
ur stöðum. Fyrst gefst Norðlend-
ingum kostur á að sjá hana í
húsakynnum Myndlistaskólans á
Akureyri, Kaupvangsstræti 16,
frá 22. ágúst frarn til 5. septem-
ber. Sýningin verður opin dag-
lega frá kl. 14.00-18.00.
Síðan verður sýningin flutt
suður heiðar þar sem hún inun
verða opin íbúum höfuðborgar-
svæðisins í húsakynnum Menn-
ingarstofnunar Bandaríkjanna að
Laugavegi 26 í Reykjavík.
kunnugra og nt.a. skoðuð þau
svæði sem í hættu eru vegna fyrir-
hugaðra framkvæmda.
Á laugardagskvöldið verður
kvöldvaka. Þar mun Hjörleifur
Guttormsson segja frá Umhverf-
isráðstefnunni í Río og Kári
Kristjánsson landvörður í
Mývatnssveit flytja erindi og sýna
litskyggnur.
Aðalfundurinn verður haldinn
á sunnudag og er stefnt að því að
honum verði lokið kl. 14.00. Á
fundinn eru allir velkomnir og
áhugafólk um náttúruvernd er
hvatt til að mæta. Rútuferð
verður frá Söluskála KHB á
Egilsstöðum kl. 18.30 á föstu-
dagskvöld.
Aðalftmdur Náttúru-
vemdarsamtaka Austurlands
- haldinn um næstu helgi
Minning
tBragi Ingjaldsson
Fæddur 4. febrúar 1902 - Dáinn 11. ágúst 1992
Ber mig fram hjá Birkihlíð,
blikar Ijós í glugga
skógarbreiða fjallsins fríð
felst í mjúkum skugga.
Fjalls í hléi grói grund,
gæfu vermist bríma.
Bjartan ávöxt beri þitt pund
bóndi hins nýja tíma.
(Sigurður Jónsson, 1938)
Elsku afi okkar, Bragi Ingjalds-
son, lést á Dvalarheimilinu Hlíð
11. ágúst sl.
Hann fæddist á Öxará í Ljósa-
vatnshreppi 4. febrúar 1902 og
var því nýlega orðinn níræður. Sá
dagur er okkur fólkinu hans ljúf-
ur í minningunni, afi svo hress og
ákveðinn í að hafa kaffi og kökur
af sinni kunnu gestrisni, og brosið
hans þegar rætt var um afmælis-
greín sem við lofuðum að skrifa
þegar hann yrði hundrað ára. En
hálfu ári seinna sitjum við og
minnumst afa okkar í minningar-
grein.
Árið 1933 giftist hann ömmu
okkar, Láru Bjarnadóttur frá
Kambsstöðum, sem lést fyrir
tæpu ári, 16. ágúst 1991. Þau
eignuðust fjögur börn: Baldur,
Karl, Þórhöllu og Élínu, sem
voru hans stoð og stytta eftir að
amma lést, en afi sýndi okkur öll-
um að hann gat tekið að sér hlut-
verk ömmu, líka í ástúð og
fræðslu þó missir hans hafi verið
mikill.
Dugnaður afa hélst alla tíð.
Afi og amma byggðu upp nýbýlið
Birkihlíð, byrjuðu búskap í torf-
kofa vorið 1934 en fluttu haustið
1934 inn í kjallara í nýbyggingu
sem byggð var um sumarið. Og
áfram var haldið við uppbygg-
ingu og uppskeran varð Birki-
hlíð, heimili afa og ömmu og
barnanna þeirra, en síðar okkar
annað heimili á uppvaxtarárum
okkar hjá afa og ömmu og sonum
þeirra. í dag er Birkihlíð í eigu
barnabarns þeirra, Láru Sólveig-
ar og fjölskyldu hennar.
Afi vann alla tíð ötullega að
öllu sem viðkom sveitinni sinni
sem hann unni svo mjög. Þau
fluttu til Akureyrar 1977 er þau
keyptu sér íbúð í Vanabyggðinni.
Þar bjuggu þau þar til þau fengu
íbúð á Dvalarheimilinu Hlíð árið
1988. Þar bjuggu afi og amma í
góðu yfirlæti síðustu árin og
sendum við starfsfólki Hlíðar
innilegar þakkir fyrir umhyggj-
una.
Að lokum langar okkur að
þakka afa og ömmu fyrir alla
þeirra ástúð við okkur og fjöl-
skyldur okkar.
Blessuð sé minning þeirra.
Bragi Hlíðar og Lára Björk.
Bikarkeppnin
í torfæru 1992
Keppni verður haldin á Glerárdal
norðan Glerár laugardaginn 22. ágúst nk.
Allir toppbílarnir skráðir til leiks s.s.
Greifinn, Heimasætan, Jaxlinn, Draumadísin,
Sterinn, Kjúklingurinn, Bleiki Pardusinn, Geitin,
Vandamálið, Jómfrúin, Skutlan, Hlébarðinn,
Fríða Grace, Pardus Killer o.fl.
Keppni hefst kl. 14.00 stundvíslega.
Miðaverð kr. 700 f. 12 ára og eldri,
frítt fyrir yngri börn.
Stál og stansar hf.
VAGNHÖFÐA 7 - 112 REYKJAVlK - SIMI 91-611412
FjALLABILAR
Greiðsluáskorun
Sýslumaðurinn á Akureyri skorar hér með á gjald-
endur sem ekki hafa staðið skil á gjöldum sem voru
álögð 1990, 1991 og 1992 og féllu í gjalddaga fyrir
15. ágúst 1992 og eru til innheimtu hjá ofangreind-
um innheimtumanni, að greiða þau nú þegar og ekki
síðar en innan 15 daga frá dagsetningu áskorunar
þessarar.
Gjöldin eru þessi: Tekjuskattur, útsvar, eignaskatt-
ur, sérstakur eignaskattur, slysatryggingagjald
vegna heimilisstarfa, tryggingagjald, iðnlánasjóðs-
og iðnaðarmálagjald, lífeyristryggingagjald skv. 20.
gr. I. nr. 67/1971, slysatryggingagjald atvinnurek-
enda skv. 38. gr., atvinnuleysistryggingagjald, kir-
kjugarðsgjald, gjald í framkvæmdasjóð aldraðra,
skattur af verslunar- og skrifstofuhúsnæði, launa-
skattur, bifreiðaskattur, slysatryggingagjald öku-
manna, þungaskattur skv. ökumælum, viðbótar- og
aukaálagning söluskatts vegna fyrri tímabila,
skemmtanaskatt og miðagjald, virðisaukaskatt af
skemmtunum, tryggingagjald af skipshöfnum ásamt
skráningargjöldum, vinnueftirlitsgjald, vörugjald af
innl. framleiðslu, aðflutningsgjöld og útflutningsgjöld,
verðbætur á ógreiddan tekjuskatt og verðbætur á
ógreitt útsvar.
Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara fyrir van-
goldnum eftirstöðvum gjaldanna að liðnum 15 dög-
um frá dagsetningu áskorunar þessarar.
Akureyri, 19. ágúst 1992.
Sýslumaðurinn á Akureyri.
Auglýsendur
takið eftir!
Skilafrestur auglýsinga í helgarblöðin
okkar er kl. 14.00 ó fimmtudögum.
auglýsingadeild, sími 24222
Opið fró kl. 8-17 virka daga, nema föstu-
daga frd kl. 8-16. Athi Opið í hddeginu.