Dagur - 02.10.1992, Page 2
2 - DAGUR - Föstudagur 2. október 1992
HOTEL KEA
Fréttir
Skautafélag Akureyrar:
Björgunaraðgerðir ræddar
hjá yfirvöldum íþróttamála
Hljómsveitin
NAMM
ásamt Júlíusí Guðmundssyni
verða í hörkustuði laugardagskvöld
MATSEÐILL
Hvítlauksristaöir sniglar í brauðkænu
Farsfyllt laxarós
Léttsteikt hörpuskel „Provencale"
•
Koníaksbætt humarsúpa
Frönsk villisveppasúpa
Pönnusteikt rauðspretta með
ristuðum banönum
•
Rauðvínslegið lambalæri
Gæsabringa með rifsberjasósu
Innbakaðar nautalundir „Wellington"
- tillögur komnar fram en þær miðast við 1. janúar
Aðalfundur Skautafélags
Akureyrar var haldinn sl. mið-
vikudagskvöld í skugga bágrar
fjárhagsstöðu félagsins. Að
sögn Jóns Hjaltasonar var
fundurinn sjálfur hins vegar
hefðbundinn en fyrr um dag-
inn hefðu fulltrúar bæjaryfir-
valda rætt við stjórn Skautafé-
lagsins um leiðir út úr vandan-
um.
Skautafélagið skuldar Rafveitu
Akureyrar ríflega 1 milljón
króna fyrir rafmagnsnotkun á
svæði félagsins á Krókeyri.
Félagið fær ekkert rafmagn nema
greiddar verði 300 þúsund krónur
inn á reikninginn og þá verður
rafmagni hleypt á tæki og hús en
ekki frystibúnað skautasvellsins.
Til að félagið geti fengið rafmagn
á frystibúnaðinn þarf það að
leggja fram tryggingu um að
skuldin verði að fullu greidd í
janúar.
Hermann Sigtryggsson, íþrótta-
og tómstundafulltrúi Akureyrar-
bæjar, og Gunnar Jónsson, for-
maður íþrótta- og tómstunda-
ráðs, ræddu við forsvarsmenn
Skautafélagsins fyrir aðalfundinn
á miðvikudaginn. Peim hefur
verið falið af hálfu bæjaryfirvalda
að leita lausna í samráði við
skautafélagsmenn.
Jón Hjaltason sagði að þeir
Hermann og Gunnar hefðu kom-
ið með tillögur sem væru mjög
ásættanlegar, ef þær yrðu sam-
þykktar. Fyrirhugað var að
kynna þær á fundi íþrótta- og
tómstundaráðs í gær og síðan á
bæjarráð eftir að fjalla um þær.
Á hinn bóginn sagði Jón að í
þessum tillögum fælust aðgerðir
frá 1. janúar 1993, þ.e. á næsta
fjárhagsári bæjarins, og Skauta-
félagið yrði að þrauka þangað til.
„Við verðum að geta opnað
svellið nú í haust því ef við gerum
það ekki þá verður það ekkert
opnað eftir áramót. Mánuðirnir
fram að jólum hafa verið helsta
tekjulind félagsins því aðsókn að
svellinu hefur verið mun meiri frá
október fram í lok desember
heldur en eftir áramót,“ sagði
Jón.
Skautafélagsmenn hafa nú alla
anga úti í fjáröflun. Krakkar úr
íshokkídeildinni hafa til að
mynda borið út bæklinga fyrir
Akureyrarbæ og farið til Dalvík-
ur á línuskautum í fjáröflunar-
skyni. SS
Iris Mist ísterta
Þriggja laga ostaterta
Reslaurant
staðunim á toppnum
Helgartilboð
Tónar fiarðarins;
sj ávarréttasúpa
Hreindýrasteik með waldorfs-
salati og hindbeijasósu
Irish coíFee ostakaka
Verð aðeins 2.990,- kr.
Athugið:
Fiðlarinn 4. hæð.
Fyrirtæki, félagasamtök og
einstaklingar.
Höíum sah fyrir 10-250 manns
undir fundinn, árshátíðina,
einkasamkvæmi o.s.frv.
Borðapantanir í síma 27100
Fólk í gjafahugleiðingum.
Munið gjafakort FIÐLARAJVS,
skemmtileg gjöf vlð öll tilefhi.
Atvinnumálin:
„Húsavík hefur sloppið sæmilega
- jákvæð þróun í Öxarfirði,“ segir Kári Arnór Kárason
Saumastofan Prýði hf. á Húsa-
vík sagði upp 11 af 13 starfs-
mönnum sínum nú um mánaða-
mótin vegna verkefnaskorts.
Uppsagnarfrestur starfsfólks-
ins er nokkuð mislangur. Kári
Arnór Kárason, formaður
Verkalýðsfélags Húsavíkur,
sagðist ekki vita um neinar
aðrar uppsagnir á Húsavík sem
hægt væri að kalla fjöldaupp-
sagnir, en fyrirtæki hefðu verið
að fækka við sig um einn og
einn starfsmann í september
og þá hefðu alls 10 manns
komið þannig inn á atvinnu-
leysisskrá.
„Húsavík hefur sloppið sæmi-
lega en þó er atvinnuleysi vax-
andi eins og á öllu Norðurlands-
svæðinu,“ sagði Kári. Um mán-
aðamótin voru 28 manns atvinnu-
lausir á Húsavík. Þegar sauð-
fjárslátrun hófst í september
fækkaði um 15 manns á skránni
en hún tæmdist ekki eins og
venjulega.
Kári sagði að mjög jákvæð
þróun væri í atvinnumálum í
Öxarfirði, það væri svæði sem
menn hefðu haft áhyggjur af, en
menn virtust ætla að spjara sig
þar og atvinna væri næg.
„Við förum mjög illa út úr
kvótamálum og sumir staðir
alveg skelfilega. Menn vita ekki
hvernig þessum málum með Hag-
ræðingarsjóð lyktar, það er orðinn
slík hringavitleysa að erfitt er að
átta sig á því. Við á Norðurlandi
höfum verið með kröfur um að fá
aukinn rækjukvóta, sem var á
sínum tíma úthlutað til loðnubát-
anna. Þessi kvóti hefur verið not-
aður til að selja og hann hefur
meira eða minna brunnið inni hjá
þeim. Við töldum eðlilegt að
þessi kvóti yrði notaður á þessu
norðursvæði, þar sem rækjan
er,“ sagði Kári Arnór, í samtali
við Dag. IM
„Bakarísmálið“ á Siglufirði:
Þrotabú Tréverks
áfrýjar tD Hæstaréttar
Þrotabú Tréverks hf. hefur
áfrýjað til Hæstaréttar
úrskurði Bæjarþings Reykja-
víkur í máli þess gegn Siglu-
fjarðarbæ vegna „Bakarís-
málsins“ svokallaða.
Á sínum tíma reis upp ágrein-
ingur milli bæjarsjóðs Siglufjarð-
ar og þrotabús Tréverks hf. um
skuldabréf, mat á verksstöðu
þegar þrotabúið tók ákvörðun
um að halda áfram framkvæmd-
um við Gamla bakaríið og óupp-
gerð ár í viðskiptareikningi. í það
heila taldi þrotabúið að skuld
bæjarsjóðs Siglufjarðar næmi um
18 milljónum króna.
Með úrskurði Bæjarþings
Reykjavíkur 15. júní sl. var
Siglufjarðarbær sýknaður af öll-
um kröfum stefnanda þrotabús
Tréverks hf. og var þrotabúið
dæmt til að greiða Siglufjarðarbæ
rúmlega 1,2 milljón króna í máls-
kostnað auk dráttarvaxta. Þess-
um úrskurði vildi þrotabúið ekki
una og hefur skotið málinu til
Hæstaréttar. óþh
Akureyri:
Ný líkams- og heilsuræktar-
stöð tekur til starfa í Hamri
í dag tekur til starfa ný líkams-
og heilsuræktarstöð í Hamri,
félagsheimili Þórs við
Skarðshlíð. Þar verður boðið
uppá fullkomna líkamsræktar-
stöð bæði úti og inni.
í vetur verður troðin skíða-
göngubraut á félagssvæði Þórs og
einnig er þar mjög góð aðstaða
fyrir aðra trimmara.
Einar Kristjánsson, íþrótta-
kennari, hefur verið ráðinn leið-
beinandi við stöðina og verður
hann á staðnum milli kl. 18.00-
20.00 alla virka daga. í boði eru
sérstakir opnir tímar, sem þýðir
að fólk getur komið á þeim tíma
sem því hentar en stöðin verður
opin frá kl. 10.00-23.00 alla virka
daga og frá kl. 10.00-18.00 um
helgar.
Pá stendur til að bjóða upp á
sérstaka konutíma og þá um leið
boðið upp á barnapössun í
Hamri. Á næstunni verða settir
upp nuddpottur, gufubað og
ljósabekkir í Hamri og þá verður
aðstaðan þar með því besta sem
gerist í bænum.
Seld verða mánaðarkort sem
kosta kr. 2.500 en fyrir náms-
menn er gjaldið aðeins kr. 2.000.
Nú um helgina verður hins vegar
frítt í líkamsræktina í kynningar-
skyni. Nánari upplýsingar eru
veittar í Hamri í síma 12080. -KK