Dagur - 02.10.1992, Page 7

Dagur - 02.10.1992, Page 7
Föstudagur 2. október 1992 - DAGUR - 7 Tónlist JJÍtt uið HRRFNRGIL Kanótríó í Saf'naðarhoimilinu Fyrstu tónleikar á vegum Tónlist- arfélags Akureyrar á þessu starfs- ári voru haldnir í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju laugardaginn 26. september. Listamennirnir, sem fram komu, voru Laufey Sig- urðardóttir, fiðluleikari, Richard Talkowsky, sellóleikari, og Krist- inn Örn Kristinsson, píanóleik- ari. Fyrsta verkið á efnisskrá tón- leikanna var Dúó í D-dúr fyrir fiðlu og selló eftir Joseph Haydn. Þetta er skemmtilegt verk og býður upp á ýmis tilþrif hljóðfær- anna tveggja. Laufey Sigurðar- dóttir og Richard Talkowsky skil- uðu verkinu vel, sérstaklega síð- asta hluta þess, þar sem þau náðu sérlega vel saman. Annað verk tónleikanna var Tríó í E-dúr k. 542 eftir W. A. Mozart fyrir fiðlu, selló og píanó. Jafnt Laufey Sigurðardóttir sem Richard Talkowsky skiluðu hlut sínum vel í þessu verki. Píanó- leikarinn, Kristinn Örn Kristins- son, virtist ekki að fullu finna sig í verkinu framan af. Leikur hans var nokkuð kanataður og ekki svo tjáningarríkur og syngjandi, sem hefði mátt vera. Er leið á verkið, færðist Kristinn Örn í aukana og gerði ýmsa hluti stór- vel í síðasta hluta tríósins, Allegro. Þar má til dæmis nefna afar natnislega unninn meðleik með sólóköflum fiðlunnar, sem naut sín fagurlega í höndum Laufeyjar Sigurðardóttur. Síðasta verkið á tónleikum tríós- ins í Safnaðarheimili Akureyr- arkirkju og ugglaust hápunktur þeirra var Tríó í H-dúr op. 8 eftir Johannes Brahms. í þessu tilfinn- ingaríka verki, sem gerir veruleg- ar kröfur til píanóleikarans jafnt hvað tækni sem túlkun snertir, virtist Kristinn Örn Kristinsson komast í essið sitt. Hann sýndi verulega vídd tjáningarlegrar getu og nýtti möguleika píanós- ins á margan veg skemmtilega. Þó brá fyrir á nokkrum stöðum einkennilega fyllingarsnauðum atriðum en það var sjaldan. Laufey Sigurðardóttir lék af umtalsverðum hita og náði iðu- lega hrífandi áhrifum með fiðlu- leik sínum. Hið sama er um leik sellóistans að segja. Richard Talkowsky dró skemmtilega hluti og vel unna fram úr hljóðfæri sínu, en fyrir kom, að tóntak hans var heldur hart. Sérlega skemmtilega unninn var flutningur annars þáttar tríós- ins, Scherzo, allegro molto, og lokaþáttarins, Allegro. í öðrum þættinum tókst afar vel að byggja upp spennu, sem steig sífellt allt til loka. í lokaþættinum var leik- ur tónlistarmannanna víða bein- línis glæsilegur ekki síst í hrífandi niðurstöðutöktum þáttarins og kadensu. Upphafstónleikar þessa starfs- árs Tónlistarfélags Akureyrar lofa góðu um skemmtilegt og gjöfult tónleikastarf félagsins á þessum vetri. Hið sama gerir starfsáætlun vetrarins. Þar er margt forvitnilegt og spennandi að finna og því full ástæða fyrir tónlistarunnendur á Akureyri og í nágrenni að hlakka til. Haukur Ágústsson. Glæsilegur haustmarkaður Fullt hús af blómum og pottum Kaffihlaðborð sunnudag Nýtt í Vír»! Lukkudagarfullorðna fólksins, 67 ára og eldri. Seinnipartskaffi, pönnukökur, soðiðbrauð og fleira á aðeins 300 kr. alla virka daga. Akureyrarkirkja: Suimudagaskóliim athugar möguleika á kirkjubíL Bamastarfið í Akureyrarkirkju hefst næstkomandi sunnudag kl. 11. fyrir hádegi og eru öll börn velkomin auk þess sem æskilegt er að foreldrar eða eldri systkini fylgi yngri börnum. Sunnudagaskólinn verður að jafnaði í kirkjunni en auk þess verður safnaðar- heimilið notað ef ástæða þykir til. Þá er fyrirhugað að hafa rútu eða sérstakan „kirkjubíl“ til að flytja þau börn sem fjærst búa að og frá kirkjunni á sunnudagsmorgnum. Nýtt námsefni verður nú tekið í notkun í sunnudagaskólanum, sem vonast er til að höfði til barn- anna en þau munu safna vinnu- blöðum í sérstaka möppu sem seld verður á 200 krónur. Lesin verður sérstök sögubók eða framhaldssaga þar sem lögð verð- ur áhersla á að tengja boðskap kirkjunnar við daglegt líf barn- anna. Auk þess verður sungið og farið í leiki og afmæla barnanna verður minnst með sérstakri bænabók er þau fá að gjöf. í fréttatilkynningu frá Akur- eyrarkirkju segir meðal annars að fyrirhugað sé að hafa fjöl- skylduguðsþjónustur af og til með því formi að allir verði sam- an í kirkjunni til að byrja með en síðan fari börnin í safnaðar- heimilið þar sem þau fá fræðslu og viðfangsefni við sitt hæfi. Þær athafnir verða auglýstar sérstak- lega og þar mun barnakórinn, sem er að hefja starf við Akur- eyrarkirkju gegna sérstöku hlut- verki. Fram til þess tíma að akst- ur með sunnudagaskólabörn verður að veruleika vænta prest- ar Akureyrarkirkju þess að for- eldrar aki börnum sem lengst eiga að fara í sunnudagaskólann. ÞI Námskeið í svæðameðferð Námskeið í svæðameðferð verð- ur haldið á Akureyri dagana 10.- 15. október. Námskeiðið er 52 kennslustundir og er fyrsti hluti heildarnáms sem alls er 208 kennslustundir ásamt líffæra- og lífeðlisfræði 103 í fjölbrauta- skóla. Svæðameðferð er talin um 5 þúsund ára gömul kínversk alþýðulækningaaðferð og byggir á þeirri kenningu að í fótunum séu viðbragðssvæði og í gegnum þau sé hægt að hafa áhrif á allan líkamann. Svæðameðferð veldur djúpri slökun og beinir líkamanum ávallt í átt að jafnvægi. Kristján Jóhannesson er kenn- ari á námskeiðinu og gefur hann nánari upplýsingar í s. 24517 e. kl. 18. Hann hefur kennt og not- að svæðameðferð síðastliðin 12 ár. (Fréttatilkynning) STORSYNWG O* Á HEIMILISTÆKJUM OG SAUMAVÉLUM TLO pvotta\/é\a( pottKata'f F^sWstópaf 0\aat VAeWuboíö o.W- brHur Kaffikönnur Straujárn Hrærivélar Rakvélar Hárblásarar Krullujárn Tannburstar Brauöristar Klukkur o.fl. OPIÐ: Föstudag kl. 9-18 Laugardag kl. 10-16 ^kun,. KAUPLAND Kaupangi v/Mýrarveg, sími 23565

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.