Dagur - 02.10.1992, Qupperneq 11
Föstudagur 2. október 1992 - DAGUR - 11
Íþróttir
Halldór Arinbjarnarson
Blak, 1. deild:
Mótið hefst í kvöld
- KA tekur á móti Þrótti Reykjavík kl. 20.00
í kvöld hefst íslandsmótið í
blaki með tveimur leikjum í 1.
deild karla. Þá eigast við HK
og Þróttur frá Neskaupstað og
bikarmeistarar KA fá Þrótt
Reykjavík í heimsókn í KA-
húsið. Eins og þegar hefur
komið fram í blaðinu er leik-
fyrirkomulag nú nokkuð breytt
frá fyrra ári og m.a. verður
komið á úrslitakeppni með
svipuðu sniði og var í hand-
boltanum í fyrra og reyndar
hefur þetta fyrirkomulag verið
prófað í blakinu áður.
KA er sem fyrr með tvö lið í 1.
deild. Það verða karlarnir sem
ríða á vaðið sem fyrr segir er
gamla blakstórveldið Þróttur
Reykjavík kemur í heimsókn.
Nokkrar mannabreytingar hafa
orðið hjá KA en auk Xou Xiao
Fei þjálfara hefur liðið misst
Þröst Friðfinnsson landsliðsmann
og þá verður Haukur Valtýsson
ekki með í fyrstu leikjunum.
Breidd liðsins ætti þó að vera
nægjanleg til að vega upp á móti
þessu og má t.d. nefna Pétur
Ólafsson sem mætir sterkur til
leiks. En hvað segja forsvars-
menn liðanna sem keppa í kvöld?
Tekst KA-mönnum að skclla Þrótturum? Úr því fæst skorið í kvöld þegar 1.
deildin í blaki fer af stað.
Líkamsrækt:
Starfsemi „Hara“ komin
í Man gang
Líkamsræktin Hara í Kjarna-
lundi húsi Náttúrulækninga-
félagsins, hefur nú hafið starf-
semi af fullum krafti. Þar er
boðið uppá hefðbundna líkams-
rækt og trimm í sérstökum sal,
auk þess sem annar salur er
fyrir þá sem nota útivistar-
svæðið í Kjarna. Þar getur
almenningur komið og hitað
upp, tekið styrkjandi ælingar
og teygt á.
A jarðhæð er salur fyrir líkams-
ræktina þar sem stundaðar eru
almennar, hefðbundnar líkams-
ræktaræfingar, fyrir fólk á öllum
aldri, undir leiðsögn. í kjallara er
búningsaðstaða, móttaka og salur
sem þeir er nota útivistarsvæðið,
hvort sem er gangandi, hlaupandi
eða á skíðum, hafa afnot af gegn
vægu gjaldi. Gönguskíðafólk get-
ur látið geyma fyrir sig skíði á
staðnum ef það óskar. Þessi starf-
semi er sú fyrsta sem fer af stað í
húsinu og er stefnt á að byggja
hana upp smátt og smátt. Enn er
tækifæri til að skrá sig og fá
ókeypis kynningartíma. Rétt
símanúmer er 11014. HA
Mikið var tekið á í líkamsræktarstöðinni „Hara“ þegar blaðamaður Dags
leit þar við í vikunni.
Handbolti:
s
Ami Stefáns
liðsstjóri hjá KA
Nú hefur verið ákveðið að
Árni Stefánsson verði liðsstjóri
hjá KA í handboltanum og
íþróttir
helgarimiar
BLAK:
Föstudagur:
1. dcild karla:
KA-Þróttur R kl. 20.00
KÖRFUBOLTI:
Sunnudagur:
Úrvalsdeild:
Tindastóll-Haukar kl. 20.00
GOLF:
Laugardagur:
Akureyri:
Sveitakeppni 18 h.
Blönduós:
Bændaglíma:
Sauðárkrókur:
Bændaglíman, 18 h.
stjórni liðinu frá bekknum
ásamt Friðjóni Jónssyni.
Alfreð Gíslason sagði þetta
hafa verið ákveðið í ljósi þess að
Friðjón hafi spilað meira með en
e.t.v. ráð hafi verið fyrir gert og
hafi komið vel út í leikjum
liðsins. Ekki mun þó meiningin
að hann spili alfarið með heldur
komi inn í leiki svipað og verið
hefur. Þegar sú staða kemur upp
þarf einhvern til að stjórna af
bekknum. Einnig sagði Alfreð
ekki veita af tveim liðsstjórum
þar sem nú væri heimilt að vera
með 14 manna hóp og því mikið
sem þarf að halda utanum.
Sem kunnugt er lék Árni á
árum áður með Þór en síðan með
KA, meðal annars á síðasta vetri.
Fyrsti leikur hans sem liðsstjóri
verður einmitt næstkomandi mið-
vikudag þegar KA og Þór eigast
við í KA húsinu. Enginn þarf að
efast um að reynsla Árna í hand-
boltanum á eftir að koma liði
hans til góða. HA
Stefán Jóhannesson, KA.
„Vertíðin leggst bara sæmilega
vel í mig og einnig leikurinn í
kvöld,“ sagði Stefán Jóhannes-
son sem nú hefur tekið við þjálf-
un liðsins af Kínverjanum Xou
Xiao Fei sem verið hefur með lið-
ið undan farin ár og náð góðum
árangri. KA er spáð 3. sæti deild-
arinnar og taldi Sefán það ekki
fjarri lagi. Liðið hefur bikar-
meistaratitil að verja og taldi
Stefán vera komna hefð á að liðið
fengi a.m.k einn titil á hverju ári.
Fyrsta takmark liðsins sagði hann
. vera að komast í úrslitakeppniná.
Hann taldi úrslitakeppnina tví-
rnælalaust breytingu til batnaðar
en ekki væri alveg ljóst hvaða
áhrif það mundi hafa að gefa stig
fyrir hverja hrinu. „Það eru
skiptar skoðanir um þetta en það
var samt ákveðið að prófa og sjá
hvernig menn taka á þessu,“
sagði Stefán að lokum.
Leifur Harðarson, Þrótti Reykja-
vík.
„Markmið hvers liðs hlýtur að
vera að komast í úrslitakeppn-
ina,“ sagði Leifur Harðarson,
einn af burðarásum Þróttara til
margra ára. Hann kvað litlar
mannabreytingar hafa orðið hjá
þeim og styrkur liðsins væri af
þeim sökum svipaður og í fyrra.
Leifur hafði mjög ákveðnar
skoðanir á hinu breytta fyrir-
komulagi í deildinni. „Úrslita-
keppni er eina vitið þó slíkt form
sé ekki gallalaust og þá hefði
einnig mátt hafa fyrirkomulagið
öðruvísi. T.d. hafa leikina fleiri,"
sagði Leifur. Að gefa stig fyrir
hverja hrinu sagði hann mundi
koma niður á þeim liðum sem
hafa minnsta breidd. „Nú verður
alltaf keyrt á sterkasta liðinu og
ef einhver meiðist, sem hlýtur að
gerast, þá eru þau lið í vondum
málum.“ HA
Körfubolti, úrvalsdeild:
Haukamír mæta í „Síkið“
- Tindastóll með nokkuð breytt lið
Næstkomandi sunnudag byrj-
ar úrvalsdeildin í körfubolta,
sem eins og í fyrra er styrkt af
Japis. Tindastóll frá Sauðár-
króki tekur þá á móti
nýbökuðum Reykjanesmeist-
urum Hauka í „Síkinu“, eins
og heimavöllur Stólanna er
gjarnan kallaður. Leikurinn
hefst kl. 20.00 og er ekki að efa
að áhugafólk um körfubolta í
Skagafirði mun fjölmenna á
leikinn. Forsvarsmenn beggja
liða voru bjartsýnir fyrir leik-
inn.
Þórarinn Thorlacius, Tindastól:
„Það gera sér allir grein fyrir því
að leikurinn verður erfiður.
Haukarnir eru með ungt en ákaf-
lega sprækt lið sem tekið hefur
miklum framförum,“ sagði Þór-
arinn Thorlacius formaður körfu-
knattleiksdeildar Tindastóls þeg-
ar hann var spurður út í leikinn á
sunnudaginn. Valur Ingimundar-
son verður í banni í tveim fyrstu
leikjum liðsins og munar um
minna í 5 manna liði. Þórarinn
kvaðst þó vera nokkuð bjartsýnn
á gott gengi en fyrst og síðast
sagði hann markmiðið vera að
halda sér í deildinni. Hinn sterki
heimavöllur Tindastóls mun án
efa hjálpa þeim í þeirri baráttu.
Það verður fróðlegt að sjá hvernig
Chris Moore fellur að leik Tinda-
stóls.
Ingvar Jónsson, Haukum:
„Reykjanesmeistaratitillinn er
gott veganesti, það er engin
spurning,“ sagði Ingvar Jónsson
þjálfari Hauka. Haukaliðið er
mjög ungt og sagði Ingvar meðal-
aldurinn vera rúmlega 20 ár. Elsti
maður liðsins er hinn 27 ára
gamli Bandaríkjamaður, John
Roads, sem margir telja einn
besta erlenda leikmanninn hér á
landi. „Hann er mikill liðsmaður,
ef svo má segja. Hann spilar fyrst
og fremst fyrir liðið,“ sagði
Ingvar. Reykjanesmeistaratitil-
inn sagði hann sýna að liðið væri
á réttri leið og starf undanfarinna
ára væri að skila sér. Liðið skorti
þó enn reynslu meðal þeirra
bestu. HA
Körfubolti:
Úrvalsdeildin kynnt
Körfuknattleikssamband ís-
lands hélt fréttamannafund í
gærkvöldi þar sem úrvalsdeild-
in í körfuknattleik var kynnt.
Eins og í fyrra er það Japis sem
styrkir mótið sem ber í staðinn
nafn fyrirtækisins.
Þá voru einnig kynntar niður-
stöður úr spá fréttamanna og
aðstandenda liðanna um hvernig
þeim kemur til með að ganga í
vetur. Gerður hefur verið samn-
ingur milli Japis, Ríkisútvarpsins
og KKÍ sem forráðamenn körfu-
boltans meta á um 7-8 milljónir
og þar af eru 4 milljónir í pening-
um. En þá kemur spáin.
Knattspyrna, 3. deild:
Þjálfaramál
Liðin í 3. deild í knattspyrnu á
Norðurlandi, Yölsungur og
Dalvík, hafa enn sem komið er
ekki gengið frá þjálfaramálum
sínum fyrir næsta ár. Líkur
benda þó til að sömu menn
muni halda áfram með liðin.
Ævar Ákason hjá Völsungi
sagði allt of snemmt að segja
nokkuð til um hver myndi þjálfa
liðið næsta sumar eða hvort hug-
að væri að breytingum í því efni.
Það var Björn Olgeirsson sem
þjálfaði Húsavíkurliðið nú í sum-
ar og munu menn almennt vera
ánægðir með störf hans. Ævar
sagði þó að menn væru ekki alls-
kostar ánægðir með gengið í
sumar en þar með væri ekki sagt
að þjálfaranum væri um að
kenna. Sama sagði Eiríkur
Helgason hjá Dalvík. Gengið
hefði vissulega mátt vera betra en
bjóst þó allt eins við að Guðjón
Guðmundsson mundi halda áfram
með liðið. Hann sagði að
óheppnin hefði í raun elt þá í
sumar og t.d. hefðu 8 leikir tap-
ast með 1 marki. Þjálfaramál og
önnur mál viðkomandi knatt-
spyrnunni væru nú í vinnslu. HA
Spá blaðamanna:
1. ÍBK 38
2.-3. Valur 30
2.-3. Njarðvík 30
4. Haukar 28
5. KR 24
6. Grindavík 21
7. Tindastóll 21
8. Snæfell 10
9.-10. UBK 9
9. -10. Skallagrímur 9
Spá forráðmanna liðanna:
1. Valur 205
2. IBK 181
3. KR 134
4. Njarðvík 130
5. Grindvík 130
6. Haukar 119
7. Tindastóll 76
8. Snæfell 66
9. Skallagrímur 46
10. UBK 27