Dagur - 04.11.1992, Page 2

Dagur - 04.11.1992, Page 2
2 - DAGUR - Miðvikudagur 4. nóvember 1992 Fréttir Suður-Þingeyjarsýsla: Búkolla setur upp Plóg og stjömur Leikfélagið Búkolla í Suður- Þingeyjarsýslu hélt aðalfund sinn nýlega og þar var sam- þykkt merki félagsins. Merkið er hannað af Ragnari Þor- steinssyni, formanni félagsins og Magnúsi Þorvaldssyni. Búkolla hefur valið sér verk- efni til sýninga í vetur. Það er Plógur og stjörnur eftir Sean O’Caesy. Ekta írsk verk þar sem brosað er gegn um tárin. Leik- stjóri verður Sigurður Hallmars- son og 16 leikendur taka þátt í sýningunni. Verkið er mjög flók- ið í uppsetningu, fjórar sviðs- myndir þarf að gera og mikinn ljósbúnað þarf til, að sögn Hall- dórs Skarphéðinssonar, gjald- kera félagsins. Þegar er samlestur á verkinu hafinn en stefnt er á frumsýningu í lok janúar. Um 40 félagar úr Aðaldal og Reykjahverfi eru í Búkollu. Félagið var stofnað í fyrra og strax ráðist í að setja upp fyrstu sýningu þess, Biðla og brjósta- höld, sem sýnt var við mjög góða aðsókn að Ýdölum. Samkvæmt upplýsingum frá Halldóri gjald- kera komu 657 gestir á sýning- una. „Það ríkir mjög mikill áhugi í félaginu, jákvætt hugarfar og margir nýir félagar hafa bæst í hópinn,“ sagði Vilhelmína Ingi- mundardóttir, meðstjórnandi í samtali við Dag. í stjórn eru einnig: Sigurður Þór Garðarsson, varaformaður og Ásdís Þórsdótt- ir, ritari. IM Giljahverfi III: Lóðir auglýstar til umsóknar Byggingafulltrúinn á Akureyri hefur auglýst lausar til umsóknar lóðir fyrir fjölbýlis- hús og raðhús í Giljahverfi 3, sem mun rísa á byggingarsvæð- inu fyrir ofan Giljahverfí 1, það hverfi sem er og hefur ver- ið að byggjast upp á undan- förnum árum. Umsóknarfrest- ur um lóðir eru til 13. nóvem- ber nk. Giljahverfi markast af Merki- gili í suðri, vestri og norðri (auk Borgarbrautar) og Kiðagili í austri. Þetta svæði er 14 hektarar að stærð og er gert ráð fyrir 290 Heitavatnsleit í Hólsgerði: Aukið lán frá sveitarsjóði Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveit- ar hefur aukið lánveitingu sína til borunar eftir heitu vatni í landi Hólsgerðis þannig að unnt megi verða að Ijúka bor- unum á rannsóknarholum í haust. Að þeim loknum munu liggja fyrir nægjanlegar upplýs- ingar til að staðsetja vinnslu- holu. Að heitavatnsleit í Hólsgerði stendur Ylur sf., félagsskapur nokkurra bænda en sveitarfélagið er einnig aðili að félaginu. Sveit- arsjóður lánaði samkvæmt fjár- hagsáætlun eina milljón króna til' borana á rannsóknarholum í ár og nýverið var svo samþykkt að lána tæpa milljón til viðbótar til að Ijúka þessum verkþætti. Pétur Þór Jónasson, sveitarstjóri, segir litlar umræður hafa farið fram um borun á vinnsluholu. „Aðilar í þessum hópi voru sammála um að ljúka borunum á rannsóknar- holunum og staðsetja vinnslu- holu og taki ekki ákvörðun um framhaldið fyrr en að þessu loknu. En ég held að gera megi sér vonir um að boruð verði vinnsluhola á næstu tveimur árum,“ sagði Pétur Þór. JÓH íbúðum í fjölbýlishúsum, 22 rað- húsíbúðum og 6 íbúðum á efri hæðum verslunarhúss. Skipulagstillögu að Giljahverfi 3 unnu arkitektarnir Ágúst Haf- steinsson og Aldís M. Norðfjörð á Teiknistofunni Formi hf. á Akureyri. í greinargerð með henni, sem Skipulagsdeild Akur- eyrarbæjar og Teiknistofan Form unnu, kemur fram að auk fjölbýl- ishúsa og raðhúsa sé gert ráð fyrir hverfisverslun, leikskóla og grunnskóla. Gert er ráð fyrir aðgreiningu milli gangandi og akandi umferðar þannig að unnt sé að komast frá hverri íbúð á svæðinu að útivistarsvæði, skóla, dagheimili eða verslun án þess að fara yfir akbraut. Eftir svæðinu miðju mun liggja göngustígur, sem miðað er við að verði meg- insamgönguleið á milli byggðar sunnan Glerár og Síðuhverfis. í skipulagstillögunni er Gilja- hverfi 3 skipt í fimm hluta sem rétt er að gera nánari grein fyrir. Fyrstan skal nefna „Orminn“ svokallaða, sem er tvöföld röð af húsalengjum, með fjölbýlis- og raðhúsum meðfram vestanverðu Merkigili (158 íbúðir í fjölbýlis- húsum og 22 íbúðir í raðhúsum). Milli húsaraðanna er aflangt garðrými eftir hverfinu endi- löngu. Húsaraðirnar hlykkjast eins og ormur meðfram Merkigili og skýla garðrýminu fyrir ríkj- andi vindáttum, norðan- og suð- vestanáttum. Orðrétt segir í Skákfélag Akureyrar: Jón Björgvinsson sýnir klæmar Þórleifur Karl Karlsson er haustmeistari Skákfélags Akureyrar 1992 eftir mikið japl, jaml og fuður. Hann tefldi tvö tveggja skáka einvígi við Sigurjón Sigurbjömsson um titilinn en þau nægðu ekki til að knýja fram úrslit. Það var loks í bráðabana sem Þór- leifur hafði betur og hann er með yngri mönnum sem hafa hampað þessum titli. Önnur skákúrslit eru þau að í 10 mínútna móti í síðustu viku sigraði gamla kempan Jón Björg- vinsson með 5Vi vinning. Annar refur, Þór Valtýsson, varð í 2. sæti með 5 vinninga og hinn þrautreyndi þjarkur Gylfi Þór- hallsson varð í 3. sæti einnig með 5 vinninga. Fyrsta 15 mínútna stigamótið fór fram um helgina. Jón Björg- vinsson sýndi enn klærnar og varð efstur með 5 vinninga. Rún- ar Sigurpálsson varð í 2. sæti með 4Vi vinning og Þór Valtýsson í 3. sæti með 4 vinninga. SS greinargerðinni: „Á milli húsa- lengjanna eru garðar íbúðanna. Lýsa má skipulagshugmyndinni að baki Orminum með því að segja að venjulegir garðar hefð- bundinna fjölbýlis- og raðhúsa- lóða séu lagðir saman þannig að þeir mynda samfellt garðrými. Hvert hús hefur eftir sem áður sinn garð en hlutar allra lóðanna mynda sameiginlegt miðsvæði með gangstíg og leiksvæðum. Gangstígurinn liggur eftir Orm- inum endilöngum. Hann víkkar út á fimm stöðum og myndar eins konar torg. Á fjórum slíkum torgum eru leiksvæði fyrir yngstu börnin. Fyrir miðju Órmsins er stærra svæði með grenndarvelli, þ.e. leiksvæði fyrir börn 2-11 ára.“ Skipulagstillagan gerir ráð fyrir þrem svokölluðum punkthúsum, með 20 tbúðum hvert, í norður- hluta svæðisins á milli Ormsins og útivistarsvæðisins. Þessi hús verða 6 eða 7 hæða. í suðausturhluta svæðisins er gert ráð fyrir þrem húsagörðum, en þar er átt við fjölbýlishús byggt í ferhyrning umhverfis garðrými. í hverjum húsagarði verða 24 íbúðir, samtals 72 íbúð- ir. Verslunarhús, leikskóli og skóli verður í suðausturhorni svæðisins. Sunnan hússins er opið svæði og er gert ráð fyrir að það verði e.k. torg með aðkomu að verslunum hússins. Síðast skal nefna útivistar- svæði, nyrst á skipulagssvæðinu. Þar er gert ráð fyrir sparkvelli og hverfisvelli, þ.e. leikvelli fyrir börn 10 til 14 ára. Um svæðið mun liggja megingöngustígur sem tengir byggð á Brekkunni við Síðuhverfi. óþh Skagaprður: Fleiri mái til lög- reglu en í fyrra - tíðni slysa í umferðinni þó ekki meiri Samkvæmt yfirliti lögreglunn- ar á Sauðárkróki hafa orðið 29 umferðaróhöpp í Skagafirði það sem af er árinu, þar af 15 slys. Er það nokkur fækkun á óhöppum miðað við árið í fyrra. 167 ökumenn hafa verið teknir fyrir of hraðan akstur og 20 fyrir ölvun við akstur. Yfirlit lögreglunnar nær yfir tímabilið jan.-sept., eða níu mánuði. Eins og áður segir hafa orðið 15 umferðarslys, þar af eitt banaslys í umdæmi lögreglunnar á Sauðárkróki það sem af er árinu. Á sama tíma í fyrra voru umferðaróhöppin orðin 41, en fjöldi slysa sá sami. Það sem af er árinu hafa 20 manns verið kærðir fyrir ölvun við akstur, en þeir voru 29 á sama tíma í fyrra. 167 ökumenn hafa verið teknir fyrir of hraðan akstur á móti 112 í fyrra. Skýrist það að hluta til af sameiginlegu eftirliti lögreglu í Húnavatns- og Skagafjarðarsýsl- um. Ýmislegt fleira kemur fram í yfirlitinu. T.d. er að finna 16 til- felli þar sem kærðar eru líkams- meiðingar og er það svipað milli ára, 22 skemmdarverk á bílum, voru 17 á sama tíma í fyrra og önnur skemmdarverk hafa einnig aukist. Sömuleiðis eru skráð 15 innbrot nú á móti 11 allt árið í fyrra. Að sögn lögreglu hafa fleiri mál komið inn á hennar borð fyrstu 9 mánuði þessa árs en allt árið í fyrra. sþ

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.