Dagur


Dagur - 04.11.1992, Qupperneq 5

Dagur - 04.11.1992, Qupperneq 5
Miðvikudagur 4. nóvember 1992 - DAGUR - 5 Fréttir Útivistarsvæði í Hlíöarfjalli ívar Sigmundsson, forstöðu- maður í Hlíðarfjalli, telur æskilegt að byggja upp útivist- arsvæðið í Hlíðarfjalli, svo það nýtist allan ársins hring. „Hér miðast allt við að það sé snjór og nú erum við alveg úr leik,“ segir ívar. „Svæðið er venjulegast ekki tilbúið fyrir skíðaiðkanir fyrr en í desember og nú er hér mjög óyndislegt um að litast.“ ívar hefur trú á að hægt sé að byggja upp svæðið fyrir fjall- göngufólk og aðra unnendur úti- veru, en hann segir jafnframt að menn verði að vera tilbúnir til að tapa á rekstrinum fyrstu árin. „Það er jökull uppi á fjallinu en það er talsvert mál að komast þangað, því enginn vegur liggur að honum,“ segir ívar. Hann seg- ir því ekki eftir miklu að sækjast nema fyrir þá sem hafa þeim mun meira gaman af fjallgöngu. Gunnar Jónsson, formaður íþrótta- og tómstundaráðs Akur- eyrar, segir að hingað til hafi ver- ið einblínt á að byggja upp mann- virki tengd skíðaiðkuninni. Fleiri hugmyndir hafi vissulega komið fram en fjárskortur komi í veg fyrir enn meiri framkvæmdir. Útfararþjónusta: Ný starfsemi hefst á Akureyri í dag Ný atvinnustarfsemi tekur til starfa á Akureyri í dag. Er það útfararþjónusta en slík fyrir- tæki annast margvíslegar útréttingar fyrir fólk sem inna þarf af hendi þegar mannslát ber að garði og útför verður að eiga sér stað. Jón Arnþórsson, fyrrum starfsmaður Iðnaðar- deildar Sambandsins hér á Akureyri og nú síðast Samskipa hf., annast rekstur útfarar- þjónustunnar og er hún til húsa á heimili hans í Kamba- gerði 7 á Akureyri. Útfararþjónusta er nýjung á Akureyri en hún er vel þekkt í flestum borgum, meðal annars í Reykjavík. Útfararþjónustan á Akureyri sérhæfir sig í aðstoð á þessu sviði og er reiðubúin til að sjá um framkvæmd allra þeirra þátta, sem óskað er eftir. Á meðal þess sem útfararþjónustur taka að sér að annast fyrir aðstandendur er að hafa sam- band við prest, útbúa tilkynning- ar um andlát og útför til fjölmiðla og undirbúa og ákveða tímasetn- ingu kistulagningar. Þá annast útfararþjónustur tímasetningu útfara sé þess óskað. Útfarar- þjónustan tekur einnig að sér að útvega söngfólk og hljóðfæra- leikara og að koma dánarvottorði áleiðis til yfirvalda. Útfararþjón- ustan getur annast skreytingar á kistu og útvegun blóma og kransa Jón Amþórsson, forstöðumaður Utfararþjónustunnar. vegna jarðarfara. Þá annast hún prentun grafskriftar eða handrits að jarðarför þar sem sálmar eru meðal arinars prentaðir. Útfarar- þjónustan tekur einnig að sér að útvega krossa á leiði og síðast en ekki síst aðstoðar hún við að skipuleggja erfidrykkju - meðal annars með því að útvega hús- næði og annast öflun veitinga. Opnunartími útfararþjónust- unnar er frá kl. 13.00 til 17.00 alla virka daga. í húsnæði Útfar- arþjónustunnar eru sýnishorn af kistum, krossum og öðru því sem aðstandendur vildu kynna sér vegna útfara. ÞI Flskmiðlun Norðuriands á Dalvik - Fiskverð ð markaöi vlkuna 25.10-31.101992 Tegund Hámarks- verö Lágmarks- verö Meöalverö (kr/kg) Magn (kg) Verðmæti Grálúöa 97 62 83,07 2.848 236.578 Hlýri 51 42 50,02 83 4.152 Karfi 25 20 21,02 350 7.358 Keila 45 24 44,71 3.700 165.410 Lúöa 240 240 240,00 38 9.120 Skarkoli 60 60 60,00 26 1.560 Skötuselur 150 150 150,00 35 5.250 Steinbítur 54 42 50,04 912 45.636 Ufsi 30 20 28,30 60 1.698 Undirmál þ. 63 40 51,05 485 24.759 Ýsa 103 72 102,22 7.453 761.856 Ýsa smá 63 63 63,00 79 4.977 Þorskur 94 84 90,44 7.077 640.042 Samtals 82,45 23.146 1.908.396 Dagur blrtlr vlkulega töflu yfir flskverð hjá Flskmlðlun Norðurlands á Dalvík og grelnlr þar frá verðlnu sem fékkst í vlkunnl á undan. Þetta er gert 1 Ijósl þess að hlutverk flskmarkaða 1 varð- myndun Islenskra sjávarafurða hefur vaxlð hröðum skrefum og þvf sjálfsagt að gera lesendum blaðslns klelft að fylgjast með þrðun markaðsverðs á fiskl hár á Norðurlandi. „Það þyrfti að breyta hótelinu í dagskála með svefnpokaplássi en hótelið þjónar ekki lengur til- gangi sínum. En við sjáum um sundlaugina líka og öll önnur íþróttamannvirki í bænum og höfum takmarkað fé til umráða,“ segir Gunnar. ívar Sigmundsson segir breyt- ingu á hótelinu kosta um 60 rnillj- ónir króna og því hafi þær raddir heyrst að ódýrara sé að rífa hótelið og byggja nýjan dagskála frá grunni. Gerður Kristný Höfundur er nemandi í hagnýtri fjölmiðl- un við Háskóla íslands. Steingrímur Þorsteinsson við ísbjörnin sem hann stoppaði upp og afhentur var Byggðasafni Dalvíkur. Mynd: HK-Daivík Byggðasafn Dalvíkur: ísbjöm aflientur safiiinu á laugardag Síðastliðið Iaugardagskvöld var Byggðasafni Dalvíkur afhentur uppstoppaður ísbjörn sem Steingrímur Þorsteinsson á Dalvík stoppaði upp. Björn- inn var felldur á austurströnd Grænlands en hingað til lands var skinnið keypt frá Noregi. Sparisjóður Svarfdæla keypti skinnið og Steingrímur og hans fjölskylda gáfu efni og sína vinnu við uppstoppunina á birninum en alls tók hún um tvo mánuði. Júlíus Kristjánsson, stjórnar- maður í Byggðasafni Dalvíkur, segir að Jóel Kristjánsson, nemi í sjávarútvegsháskólanum í Tromsö í Noregi, hafi verið inn- an handar með að útvega skinnið. Yfirdýralæknir gaf leyfi til þess að það væri flutt inn sútað og var það gert. Hingað til lands kom Jóel svo með skinnið sl. sumar og hófst Steingrímur Þor- steinsson, uppstoppari á Dalvík þá handa. Björninn er fullorðið karldýr, um 2,5 metrar að lengd. Steingrímur stoppaði einnig upp vöðuselskóp sem er í hrammi ísbjarnarins og á þessi kópur sér líka sögu því hann kom í net Brynjars Baldvinssonar, sjó- manns á Litla-Árskógssandi, en netin lágu við Gjögurtá. Kópur- inn hafði þá verið merktur vestur af Bjarnarey aðeins 45 dögum áður en hann kom í netið og hafði lagt að baki 541 sjómílu á þessum dögum. Við athöfnina á laugardag afhendu Friðrik Friðriksson, sparisjóðsstjóri og Steingrímur Þorsteinsson björninn og færði Kristján Þór Júlíusson, bæjar- stjóri þeim þakkir. Kristján Þór færði Steinunni, eiginkonu Steingríms, jafnframt blóma- körfu. Þá færði bæjarstjóri Byggðasafninu litmynd af Stein- grími Þorsteinssyni sem hengd var upp á náttúrugripadeild safnsins þar sem eru ísbjörninn og fjöldamörg dýr önnur sem Steingrímur hefur stoppað upp. Þess má að lokum geta að þetta er þriðja bjarndýrið sem Steingrímur Þorsteinsson stoppar upp og jafnframt það stærsta. JÓH Ætlar þá að mála (viir jótín? Aóvcnihci'l illioö í verslun okkar að Lónsbakka og í útibúum KEA 13% afsláttur af allri iiiáliiingu frá Sjöfn ■■ BYGGINGAVORUR LONSBAKKA • 601 AKOREYRI ~ 96-30321, 96-30326, 96-30323 FAX 96-27813

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.