Dagur - 04.11.1992, Síða 4
4 - DAGUR - Miðvikudagur 4. nóvember 1992
ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF.
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 96-24222
ÁSKRIFT KR. 1200ÁMÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ KR. 110
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMNETRA 765 KR.
RITSTJÓRI: BRAGIV. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
BLAÐAMENN:
GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON (Iþróttir),
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 96-41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON,
ÓLI G. JÓHANNSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON,
SIGRÍÐUR ÞORGRÍMSDÓTTIR (Sauöárkróki vs. 95-35960, fax 95-36130),
STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON
UÓSMYNDARI: ROBYN ANNÉ REDMAN
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF.
SÍMFAX: 96-27639
„Grautargerðina“
þarf að vanda
Forsvarsmenn atvinnulífsins bíða enn milli
vonar og ótta eftir því að boðaðar neyðarað-
gerðir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum líti
dagsins ljós. Komið hefur fram að þessar
aðgerðir verða öðru fremur að snúast um að
létta kostnaði af fyrirtækjum í landinu. Hing-
að til hefur aðallega verið horft á þann mögu-
leika að fella niður aðstöðugjald fyrirtækja og
lækka skatta þeirra með ýmsum ráðum. Jafn-
framt hefur verið talað um að hækka þurfi
útsvar einstaklinga til að mæta tekjutapi ríkis
og sveitarfélaga. Eflaust verður hvort tveggja
gert þegar þar að kemur, enda naumast hjá
því komist.
En betur má ef duga skal og margt fleira er
til athugunar hjá þeim hópi manna, sem nú
leitar logandi ljósi að leiðum til að koma í veg
fyrir frekara hrun í íslensku atvinnulífi. Sá
hópur er nú að „elda ramman graut“, eins og
einn af „yfirkokkunum" orðaði það svo
skemmtilega á dögunum. Ekkert skal fullyrt
hér um grautargerðarhæfileika þessa hóps.
Hins vegar er rétt að minna á að ef nauðsyn-
leg hráefni gleymast er hætt við að grautar-
gerðin misheppnist. Svo gæti einnig farið að
grauturinn brynni við og ónýttist, standi
hann of lengi á eldavélinni. Síðast en ekki síst
má ekki gleyma því að þeir, sem eiga að
borða grautinn, eru góðu vanir og líta ekki við
hverju sem er. Allt þetta verða „kokkarnir“
að hafa í huga við hið vandasama verk sitt.
Á þetta er minnt hér af gefnu tilefni. Margt
bendir nefnilega til þess að eitt nauðsynleg-
asta efnið vanti enn í hinn ramma graut. Enn
hefur enginn minnst einu orði á vaxtalækkun,
þótt hún sé beinlínis nauðsynleg til þess að
atvinnulífið geti rétt úr kútnum. Vextir hér á
landi hafa um langt skeið verið mun hærri en
í öllum viðskiptalöndum okkar. Raunvextir
eru nú í kringum 13 af hundraði þótt verð-
bólgan sé vart mælanleg. Slíkir okurvextir eru
ofviða öllum atvinnurekstri og verða að
lækka. Núverandi ríkisstjórn hækkaði vextina
verulega í upphafi valdaferils síns og verður
nú að lækka þá að nýju, með „handafli“ ef
ekki vill betur til.
Vaxtalækkun verður að vera eitt megin-
hráefnið í þeim ramma graut, sem nú er verið
að elda. Að öðrum kosti er viðbúið að þjóðin
fúlsi við honum. BB.
Gjaldþrotaleið
ríkisstjórnarinnar
Ríkisstjórnin hefur valið gjald-
þrotaleiðina og vill sem minnst
afskipti hafa af atvinnulífinu.
Þetta er sorgleg staðreynd og
ógnvekjandi. Afleiðingin verður
enn aukið atvinnuleysi. Það er
erfitt að skilja hvað vakir fyrir
ráðamönnum Sjálfstæðis- og
Alþýðuflokks enda er nú svo
komið að þeirra eigin flokks-
systkin geta ekki lengur sætt sig
við ríkjandi ástand.
Samkvæmt forsendum fjárlaga-
frumvarpsins er gert ráð fyrir 3,5
til 4% atvinnuleysi á næsta ári.
Hins vegar spá atvinnurekendur
6 til 7% atvinnuleysi og sumir eru
farnir að nefna enn hærri tölur.
Þeir sem nefna hæstu tölurnar
byggja á því að ríkisstjórn Davís
Oddssonar fari gjaldþrotaleiðina
á enda og ekkert verði gert til
bjargar. Því verður enn ekki trú-
að að nokkur ríkisstjórn sé svo
með öllu firrt sambandinu við
þjóðfélagið, sem hún á þó að
stjórna, að slíkt geti gerst. Auk
þess eru spár um 4-7% atvinnu-
leysi hærri en nokkur maður get-
ur sætt sig við - með öðrum orð-
um er ekkert til sem heitir „hæfi-
legt atvinnuleysi".
Aðgerðarleysið er
áhyggjuefni
Aðgerðir til lausnar eru knýjandi
en aðgerðarleysi ríkisstjórnarinn-
ar er áhyggjuefni og kemur það
ekki síst fram í umfjöllun fulltrúa
atvinnulífsins, bæði vinnuveit-
enda og launþega. Stefnuræða
forsætisráðherra jók ekki á vonir
manna eða bjartsýni. Þar kom
lítið fram hvað ríkisstjórnin ætlar
Guðmundur Bjamason.
Stefnuræða forsætisráð-
herra jók ekki á vonir
manna eða bjartsýni. Þar
kom lítið fram hvað ríkis-
stjórnin ætlar að gera.
Reyndar mátti skilja orð
Davíðs Oddssonar á þann
veg að áfram yrði fyigt
gjaldþrotastefnunni - til
að hreinsa til í atvinnu-
lífínu og skapa
einhverjum nýjum öflum
starfsvettvang!
að gera. Reyndar mátti skilja orð
Davíðs Oddssonar á þann veg að
áfram yrði fylgt gjaldþrotastefn-
unni - til að hreinsa til í atvinnu-
lífinu og skapa einhverjum nýj-
um öflum starfsvettvang!
Forsvarsmenn atvinnulífsins
eru ekki sammála aðgerðarleysis-
og gjaldþrotaleiðinni. Þeir telja
að hún muni leiða til ófarnaðar
þegar til lengri tíma er litið.
Ástæðan sé sú, segja þeir, að það
taki langan tíma að koma „óarð-
bærum“ fyrirtækjum í gjaldþrot
og sú hætta vofi yfir að þau taki
sterk og gróin fyrirtæki með sér í
fallinu.
Skelfileg afleiðing
Það er staðreynd að umrædd
„stefna“ skapar ekki aukið svig-
rúm fyrir þau fyrirtæki sem eftir
lifa. Ný fyrirtæki eru reist á rúst-
um fyrirtækjanna sem fara í
gjaldþrot, enda gera heimamenn
állt sem þeir geta til að halda
atvinnulífi í byggðarlögunum
gangandi.
Formenn Sjálfstæðis- og
Alþýðuflokks gleyma því einnig
að það eru fleiri en bankar og
sjóðir sem tapa á gjaldþrotunum.
Fjöldi einstaklinga, smærri verk-
taka og þjónustuaðila munu
verða fyrir barðinu á þeim. Á
þessari stundu er illt að sjá hvað
gerist verði aðgerðarleysisstefn-
unni fylgt - þó er víst að
afleiðingin verður skelfileg.
Nú reyna aðilar vinnumarkað-
arins, sem og stjórnarandstaðan
á Alþingi, að koma vitinu fyrir
rikisstjórnina. Vonandi ber það
þann árangur að atvinnulífið
styrkist. Best væri þó að ríkis-
stjórnin færi frá sem fyrst.
Guðmundur Bjarnason.
Höfundur er þingmaður Framsóknar-
flokksins I Norðurlandskjördæmi eystra.
Lesendahornið
Bekkir og ruslakassar
væntanlegir á Ráðhústorgið
Akureyringur hringdi og vildi fá
upplýsingar um Ráðhústorgið.
Ákureyringurinn sagði hvern
einasta bæjarbúa sem hann hefði
heyrt í vera óánægðan með nýja
Ráðhústorgið sem væri ansi ber-
angurslegt að sínu mati. „Eiga
virkileg ekki að vera nein blóm
þarna og engir bekkir til sitja á en
gamla fólkið getur ekki tyllt sér á
tröppurnar því til þess eru þær
allt of lágar. Vonandi sjá bæjar-
yfirvöld að það er ekki for-
svaranlegt annað en þarna séu
bekkir."
Guðmundur Guðlaugsson yfír-
verkfræðingur segir að unnið sé
að smíði bekkja sem koma eigi á
Ráðhústorgið.
Smíði bekkjanna var boðin út
og er járnsmíðin unnin hjá Vél-
smiðju Akureyrar. Nokkrar
Hermann hringdi:
„Mig langar að koma á framfæri
ábendingu til rjúpnaveiðimanna.
Þeir fara náttúrlega vítt og breitt
um og því miður vill það brenna
við að þeir hendi skothylkjum út
um allt. Þau liggja á víð og dreif
og eru mikið lýti á umhverfinu,
enda eyðast svona skothylki ekki
vangaveltur eru um það hvaða
trjátegund sé heppilegust á bekk-
ina þannig að notendur fái ekki
af þeim flísar. Hugmyndir eru
einnig um að þarna verði blóma-
ker með sem fjölbreytilegustum
tegundum. Þær aspir sem gróður-
settar voru þarna í fyrrahaust
döfnuðu illa og þurfti að endur-
Starfsstúlka á FSA hringdi...
og vildi gera athugasemd við
svo glatt. Mér finnst sjálfsagt að
biðja rjúpnaveiðimenn um að
tína skothylkin upp eftir sig og
taka þau með sér. Þessi sóða-
skapur hefur verið vaxandi og
tímabært að snúa vörn í sókn.
Það getur ekki verið mikið mál
fyrir rjúpnaveiðimenn að fara
eftir þessari ábendingu.“
nýja þær flestallar. Dauða þeirra
má bæði rekja til ástands þeirra
þegar þær voru settar niður og
eins umgengni gangandi vegfar-
enda um þær, en vonandi er að
þær fái að festa rætur og vaxa í
friði. Ruslakassar verða síðan
settir upp á torginu í samhengi
við bekkina.
reykingar á neðsta gangi sjúkra-
hússins. Hún sagði reykingar
leyfðar í einu herbergi sem er
gluggalaust og að mikil lykt bær-
ist frá þessu herbergi út á
ganginn. „Mér finnst að fyrst fólk
fær að reykja þama inni þá eigi það
að minnsta kosti að vera í lokuðu
herbergi þar sem hægt er að hafa
opinn glugga en ekki á almenn-
um gangi. Ég hef heyrt fólk sem
kemur hingað inn tala um lyktina
hér, jafnvel reykingamenn.
Svona hefur þetta verið í nokkur
ár og þessu andar maður að sér
án þess að vilja. Við höfum
nákvæmlega sama rétt og þeir
sem ekki reykja."
Rjúpnaveiðimenn:
Tínið skothylkin upp
FSA:
Mikil reykingalykt
á neðsta gangi
- reykingar leyfðar í gluggalausu herbergi