Dagur - 04.11.1992, Side 6

Dagur - 04.11.1992, Side 6
6 - DAGUR - Miðvikudagur 4. nóvember 1992 5% staðgreiðsluafsláttur Stærðir 3-6 • Verð kr. 4.990,- Stærðir 8-14 • Verð kr. 6.990,- Stærðir S-XL • Verð kr. 7.990,- „Líkaminn er dýrmætasta eign hvers manns. Hann á ekki að láta í hendurnar á einhverjum fúskara,“ segir m.a. í grein stjórnar íþróttakennarafélags íslands. Makalaus meírihluti Gamalt þrætumál hefur nú gert vart við sig að nýju innan bæjar- stjórnar, þrætumál sem vakti þjóðarathygli á sl. ári og varð til þess að þrír af fjórum bæjarfull- trúum meirihlutans voru settir út úr bæjarstjórn um tíma. Enn á ný skal gerð atlaga að Bjama Gríms- syni bæjarstjóra og störfum hans. í ljós hefur komið að meirihlut- inn er enn við sama heygarðs- hornið og reynir nú með öllum ráðum að koma honum frá. Á síðasta bæjarstjórnarfundi óskaði minnihlutinn eftir því að vera upplýstur um málið og farið var fram á skýr svör frá meirihlutan- um um þau boð sem Bjama hefðu verið gerð og varðaði starfslok hans sem bæjarstjóra. Það hefur verið fátt um svör sem oft áður. Mér hafði dottið í hug að hér í Múla yrði greint frá þessu máli á greinargóðan hátt en af því varð nú ekki. Því þykir mér rétt að fara hér nokkrum orðum um þetta mál. Upprifjun í júní á sl. ári lagi meirihlutinn fram áætlun um starfslok bæjar- stjórans. Sú áætlun var samþykkt á fundi aðal- og varamanna meiri- hlutans og greiddu því atkvæði sitt allir fundarmenn að undan- skilinni Guðrúnu Jónsdóttur. Áætlun þessi fól m.a. það í sér að bæjarstjórinn yrði nánast sviptur öllum völdum sem framkvæmda- stjóri bæjarins og settur yrði við hlið hans eftirlitsmaður frá meiri- hlutanum. Ef bæjarstjóri sætti sig ekki við þetta ætti hann að segja upp störfum! Bæjarstjórinn sætti sig auðvitað ekki við slíka kosti en sagði ekki upp! Þegar þar var komið sögu hafði Óskar Þór Sigurbjörnsson séð sig um hönd og Iýst yfir stuðningi við Bjarna. Það fór því svo að þegar þrír fulltrúar meirihlutans lögðu fram tillögu um uppsögn bæjar- stjórans á bæjarstjórnarfundi var hún felld og meirihlutinn þannig klofinn og óstarfhæfur. Var nú alvarlega vegið að Bjarna og hann borinn þungum sökum m.a. um það að hafa eytt fé í risnu og ferðakostnað langt umfram það sem eðlilegt gat talist og voru skoðunarmenn bæjarins hafðir fyrir því. Þeir báru það hins veg- ar báðir af sér og í framhaldi af því var farið ýtarlega yfir alla reikninga vegna ferða- og risnu- kostnaðar og fannst þar ekkert athugavert. Bæjarráð samþykkti síðan ein- róma ávítur á núverandi formann bæjarráðs fyrir ósannsögli og bæjarstjórn tók síðar undir þá bókun. Ekkert þessu líkt hefur áður gerst í sögu Ólafsfjarðar- kaupstaðar. Þremenningarnir voru síðan sendir í kælingu og inn í bæjar- stjórn komu varamenn þeirra. Tveir af varamönnunum höfðu reyndar áður staðið að áður- nefndri samþykkt um brottrekst- ur Bjama, þau Anna María Elías- dóttir og Gunnlaugur Jón frændi minn. Þeim hafði nú snúist hugur og lýstu bæði yfir fullum stuðn- ingi við Bjarna Gímsson. Var nú ekki annað að sjá en að meirihluti þeirra sem skipuðu lista sjálfstæðismanna væru nú á bandi bæjarstjórans og allir létu að stjórn. En annað átti eftir að koma í ljós. Ný samþykkt Á fyrsta fundi ársins komu útlag- arnir aftur inn í bæjarstjórn og var nú kynnt ný áætlun um frið og spekt. Áætlunin fól það helst í sér að mönnum var hrókerað til í embættum innan meirihlutans og ákveðið að starfa saman að nýju með Bjarna sem bæjarstjóra. Mér fannst Bjarni þá sýna mikinn vilja til samstarfs þegar tillit er tekið til þess sem áður hafði gengið á. Leitað var til minni- SKIÐAGALLAR A ALLA FJOLSKYLDUNA hlutans með bætt samstarf og ná- ið og því lofað af hálfu meirihlut- ans að ný vinnubrögð yrðu tekin upp við stjórn bæjarins. Reyndar var hér aðeins um að ræða sýni- legan hluta samkomulags sem gert hafði verið, eða ytri ramma þess, eins og forseti bæjarstjórn- ar orðaði það. Bæjarbúum var ekki sagt betur frá því sem samið hafði verið um. En nú er það að koma í ljós. Ný atlaga Strax á vordögum var það orðið ljóst að gamla samkomulagið sem gert var í fyrra átti að taka gildi. Formaður bæjarráðs hafði nú tekið að sér hlutverk yfirsetu- manns á störf bæjarstjóra og var nú komin inn á bæjarskrifstof- urnar. Á fundum bæjarráðs kom það og glöggt fram að formaður- inn sætti færis að reyna að gera Bjarna sem erfiðast að sinna starfi sínu. Og nú nýlega viður- kenndi svo Óskar Þór að frá því í vor hefði verið reynt að ná sam- komulagi um að koma bæjarstjór- anum frá. Hvað hafði nú orðið um öll fyrirheitin um náið sam- starf meiri- og minnihluta bæjar- stjórnar. Þau voru öll fokin út í veður og vind ef það hefur þá einhvern tíma verið ætlun meiri- hlutans að bæta samstarfið. Við í minnihlutanum fréttum það af götunni að nú hefði meiri- hlutinn með Óskar í broddi fylk- ingar, gert bæjarstjóranum tilboð um að hætta. Hvað hafði nú gerst? Var forseti bæjarstjórnar kominn í hring. Hann sem áður hafði sprengt meirihlutann var nú kominn til liðs við þremenning- ana sem höfðu orðið undir í fyrra! Svo virðist vera og er nú orðinn með ólíkindum hringlanda- hátturinn og valdahrokinn innan meirihlutans. Björn Valur Gíslason. Nýtt tilboð Nú nýlega hafa þeir meirihluta- menn gert Bjarna fleiri en eitt til- boð um starfslok hans. Hvað felst í þeim tilboðum? Við í minni- hlutanum höfum leitað svara við því og teljum okkur vera í fullum rétti til þess. En eins og áður sagði hefur verið fátt um svör og meirihlutinn lætur eins og engum komi þetta við. Ég hef hins vegar fengið það staðfest frá aðilum innan Sjálfstæðisflokksins að eitt þessara tilboða hafi verið á þá leið að Bjarni hafi átt að hætta með nánast engum fyrirvara og fá greidda níu mánuði á fullum launum fyrir vikið! M.ö.o. meiri- hlutinn er tilbúinn til að greiða háar fjárhæðir (ca. 2,5-3,0 millj.) úr bæjarsjóði til þessa hugðarefn- is síns! Ég er þess fullviss að Ólafsfirð- ingum þyki þetta tíðindi ekki síst nú þegar þrengir að og fólk má hafa sig við til að hafa ofan í sig og á, að ég tali nú ekki um það sem greiða þarf í sameiginlegan bæjarsjóð. Sé þetta rétt þá kemur utcjaiuuuin pau avu saunaiitga við. Bjarni hafnaði að sjálfsögðu þessu fáránlega boði enda væri það vesæll maður sem gengist að slíku og jafnvel aumari en þeir sem bjóða slíkt. Ég tel það nauð- synlegt að bæjarbúum verði gerð að fullu grein fyrir þessu máli hið fyrsta því þegar svo er komið málum verður að grípa í taumana og reyna að koma vitinu fyrir menn. Að skammast sín Ég hef áður varað við því að tengja þetta mál eingöngu við persónu Bjarna Grímssonar og andstaða mín gegn meirihlutan- um byggist ekki á því. Við Bjarni höfum ekki alltaf verið sammála um alla hluti, langt því frá. Enda höfum við valið okkur sitt hvorn endann í pólitíkinni til að starfa við. Við höfum þrátt fyrir það náð að starfa saman og gera út um hlutina án mikilla átaka. Það er hins vegar málareksturinn all- ur af hálfu meirihlutans sem ein- kennst hefur af valdníðslu og hroka sem ég set mig upp á móti. Ég segi þetta hér vegna þess að á meðan þeir sem nú ráða ferð- inni í bæjarstjórn eru við völd þá getur hver sem er af embættis- og starfsmönnum bæjarins orðið fyr- ir árásum af því tagi sem Bjarni Grímsson og fjölskylda hans hafa orðið fyrir. Ég þekki það af eigin raun hvernig er að verða fyrir slíku og mun alla tíð taka mál- stað þeirra sem fyrir þvílíku offorsi verða. Framgangur meirihlutans í þessu máli hefur verið þeim og Ólafsfirðingum til minnkunar og ef sjálfstæðismenn í bæjarstjórn hefðu það í sér þá mættu þeir skammast sín fyrir framkomu sína. Björn Valur Gíslason. Höfundur er bæjarfulltrúi í Ólafsfirði fyr- ir vinstri menn og óháða. Fúskari eða fagmaður? Nú á tímum, þegar fólk eyðir mestum frítíma sínum fyrir fram- an sjónvarp, er ekki úr vegi að hugleiða hvaða möguleikar eru til líkamsræktar. Ýmislegt er í boði, þannig að fólk ætti að geta fundið hreyfingu sem hæfir hverj- um og einum, t.d. sund, golf, skokk, skíði og margt fleira. Sú almenningsíþrótt sem vinsælust hefur verið í gegnum árin er án efa sundíþróttin. Þeir sem hafa það að fastri venju að fara í sund segja að sundið virki á þá sem vítamín, þeir afkasti meiru við vinnu og heilsufarið sé almennt mikið betra. í dag er mjög vinsælt að stunda líkamsrækt hjá líkamsræktar- stöðvum. Þær bjóða flestar upp á fjölbreytta möguleika fyrir fólk á • • EYFJORÐ Hjalteyrargötu 4 • Sími 22275 u € 1 4

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.