Dagur - 04.11.1992, Page 16
Kaupfélag Þingeyinga:
Jógúrtverksiniðja
Baulu keypt
- samningur liggur fyrir stjórnarfundi í dag
Undirskrift kaupsamnings
Mjólkursamlags Kaupfélags
Þingeyinga á jógúrtverksmiðju
Baulu er staðreynd. Samning-
urinn hefur þó ekki fengið
endanlega afgreiðslu allra sem
um málið þurfa að fjalla.
Fundur verður haldinn í dag í
stjórn Kaupfélags Þingeyinga þar
sem samningurinn liggur fyrir til
samþykktar. Einnig eiga veðhaf-
ar Baulu eftir að samþykkja eig-
endaskiptin fyrir sitt ieyti.
Vorið 1990 var jógúrtverk-
smiðjan flutt að sunnan og hefur
verið starfrækt í húsnæði MSKÞ
sem annast hefur framleiðsluna.
Baula er hlutafélag og er fram-
kvæmdastjóri og einn eigenda
hennar Þórður Ásgeirsson.
Það hefur dregið mjög úr starf-
semi Baulu undanfarna mánuði
og framleiðsla legið niðri síðustu
vikurnar. Ekki er ljóst hvenær
starfseminni verður komið í gang
á ný, en það tengist að hluta
skipulagsvinnu sem stendur yfir í
mjólkursamlaginu.
„Kaupin á Baulu breyta ekki
ýkja miklu á stundinni. Hvað þau
hafa að segja fyrir starfsemi KÞ
kemur fyrst og fremst út í því
hvernig við reynum að skipu-
leggja þá starfsemi. Ég segi ekk-
ert um verðið,“ sagði Hreiðar
Karlsson, kaupfélagsstjóri, í
samtali við Dag. IM
Akureyri:
Innbrotsþjófar
áferð
Rannsóknarlögreglan á Akur-
eyri hefur tvö innbrot til
meðferðar. í öðru tilfellinu er
innbrot í Glerárskóla, en hinu í
vinnuskúr við Malbikunarstöð-
ina ofan Akureyrar við Súlu-
veg.
Innbrotið í Glerárskóla var til-
kynnt síðla dags á mánudag.
Álitið er að þjófurinn hafi farið
inn um helgina. Rúmlega tuttugu
þúsunda er saknað úr sameigin-
legum sjóði nemenda. Skemmdir
eru óverulegar.
í gærmorgun var síðan tilkynnt
innbrot í vinnuskúr ofan Akur-
eyrar. Rúða var brotin og þannig
komist inn. Talsmaður lögregl-
unnar segir að saknað sé sjúkra-
kassa, spennubreytis, talstöðvar
og nokkurra kaffipakka. ój
Bygging 7. áfanga VMA:
A. Finnsson hf. með
lægsta tilboðið
- 96,6% af kostnaðaráætlun
A. Finnsson hf. átti lægsta til-
boð í byggingu 7. áfanga Verk-
menntaskólans á Akureyri, en
tilboðin voru opnuð fyrir helgi.
Kostnaðaráætlun hljóðaði upp
á kr. 40.635.526,00.
Sex verktakar buðu í fram-
kvæmdir og voru aðeins tveir
þeirra undir kostnaðaráætlun. A.
Finnson hf. bauð 39.275.954,-
(96.6%), S.J.S verktakar kr.
40.344.113,- (99,3%). Þá komu
S.S. Byggir kr. 41.051.858.-
(101%), Þorgils Jóhannsson kr.
41.351.455,- (101,7%), Fjölnir
hf. kr. 45.286.706,- (111,5%) og
Vörhf. kr. 46.744.231,- (115%).
ój
meirihluta bæjarstjórnar Blönduóss sprunginn:
Bjami Arthúrsson, framkvæmdastjóri Kristnesspítala, sýnir Kristnesnefndinni í gær skipan mála á staðnum. Frá
vinstri: Pétur Þór Jónasson, Davíð A. Gunnarsson, Halldór Jónsson, Guðjón Magnússon, Bjarni Arthúrsson og
Ólafur Hjálmarsson. Mynd: jóh
Kristnesnefndin norðan heiða í gær:
Niðurstaðan mun iiggja
fyrir síðar í mánuðinum
- rekstrarkostnaður Kristnesspítala lækkaði um 10,7% fyrstu
níu mánuði ársins miðað við sama tíma í fyrra
Nefnd um framtíð Kristnes-
spítala kom saman norðan
heiða í gær. Hún heimsótti
Kristnesspítala og átti fund
með stjórnendum spítalans en
einnig átti nefndin fundi með
framkvæmdastjóra Fjórðungs-
sjúkrahússins á Akureyri, for-
manni læknaráðs og yfirlækni
heilsugæslustöðvarinnar á
Akureyri. Ákveðið hefur verið
að nefndin komi saman að
nýju í Reykjavík 18. nóvember
næstkomandi og búast má við
tillögum frá nefndinni fljótlega
eftir það.
Guðjóni Magnússyni, for-
manni Kristnesnefndarinnar,
voru í gær afhentar undirskriftir
starfsmanna Fjórðungssjúkra-
hússins á Akureyri vegna Krist-
nesmálsins og í gær bættust tvær
nýjar ályktanir í hópinn um
Kristnesmálið, þ.e. frá Læknafé-
lagi Akureyrar og Norðurlands-
deild eystri innan Hjúkrunarfé-
lags íslands.
Á fundi á Kristnesspítala í gær
lögðu stjórnendur spítalans fram
ýmis gögn um rekstur og starf-
semi stofnunarinnar. Meðal upp-
lýsinga um rekstrarkostnað spí-
talans kemur fram að Iaunagjöld
spítalans á fyrstu níu mánuði árs-
ins námu 74,8 milljónum króna
en 78,8 milljónum á sambærilegu
verðlagi fyrstu níu mánuði síð-
asta árs. Þetta er 5,03% lækkun
milli ára. Samanburður annarra
rekstrargjalda fyrir sömu mánuði
sýnir 26,5% lækkun milli ára á
sama tíma og sértekjur stofnun-
arinnar hafa hækkað um 4,3%.
Lækkun reksturskostnaðar í
heild er 10,7% milli ára.
Legudagar voru þessa mánuði
10.381 árið 1991 en 10.062 fyrstu
níu mánuðina í ár.
í gögnunum er einnig að finna
samanburð á meðalkostnaði á
legudag. Hann var 9.920 kr. á
dag fyrstu níu mánuði sl. árs,
miðað við verðlag í september
1992. í ár var þessi kostnaður
9.138 krónur og hafði lækkað um
7,9%. Launagjöld á legudag
höfðu lækkað um rúm 2% milli
ára og önnur reiknuð gjöld pr.
legudag lækkuðu um rúm 27%
milli ára.
Eins og fram hefur komið mun
skapast verra ástand í öldrunar-
þjónustunni á svæðinu en í
Reykjavík ef Kristnesspítala yrði
lokað. Þá kemur fram í gögnum
sem yfirlæknir endurhæfinga-
deildar lagði fram í gær að þar
hefur eftirspurn vaxið jafnt og
þétt og samsvarar eftirspurnin
fyrstu sex mánuði ársins 138
beiðnum á ári. JÓH
Oddviti D-listans segir
Greifmn á Akureyri:
Bflabíó með öllu tflheyrandi
- frumsýning á Togarabryggjunni
Eigendur veitingahússins
Greifans á Akureyri hafa fest
kaup á tækjabúnaði til kvik-
myndasýninga utanhúss og
ætla nú að bjóða upp á bflabíó
að amerískri fyrirmynd.
Bæjaryfírvöld, þ.m.t. heil-
brigðisnefnd, hafa gefíð tilskil-
in leyfi fyrir bflabíói og veit-
ingasölu á Togarabryggjunni
næstkomandi þriðjudag.
Kvikmyndinni Grease með
John Travolta og Olivia Newton-
John verður varpað á húsvegg
O VEÐRIÐ
Éljagangur verður um allt
Norðurland fram eftir degi. Þá
snýst vindur til suðvestan áttar
og léttir til. Jafnframt hlýnar og
hitastig verður undir frost-
marki.
Samskipa á Togarabryggjunni á
stórt tjald sem þar verður sett
upp. Hljóðinu verður síðan kom-
ið til skila gegnum FM-sendi
þannig að áhorfendur geta notið
tónlistarinnar í bílaútvarpstækj-
unum. Áhorfendur leggja bílum
sxnum í snyrtilega röð, horfa á
myndina, kela jafnvel dálítið og
njóta veitinga eins og í ekta bíla-
bíói. Körfuknattleiksdeild Þórs
mun sjá um veitingasöluna.
Að sögn Hlyns Jónssonar, sem
er einn af eigendum Greifans, er
stefnan sett á fleiri sýningar, jafn-
vel reglulega, enda búið að fjár-
festa í sýningartækjum og sjálf-
sagt að nota þau sem mest.
Hlynur sagði að aðstaðan á
Togarbryggjunni væri ágæt og
ekkert því til fyrirstöðu að lofa
fínasta bílabíói. Ef veðrið setur
strik í reikninginn sagði Hlynur
að sýningu yrði einfaldlega
frestað. SS
Höfum ekki sMð meirihlutanum
- segir Pétur Arnar Pétursson, forseti bæjarstjórnar og oddviti H-listans
Óskar Húnfjörð, formaður
bæjarráðs Blönduóss og
oddviti Sjálfstæðisflokks í
meirihlutasamstarfí við H-
lista Framsóknarflokks og
Alþýðuflokks, segir að eftir
að H-listinn og minnihlutinn,
K-Iisti Alþýðubandalags og
óháðra, samþykktu á bæjar-
stjórnarfundi í gær að bærinn
keypti B-deiIdarskírteini í
Kaupfélagi Húnvetninga fyrir
12 milljónir króna gæti hann
ekki litið öðruvísi á en að
meirihluti D-lista og H-lista
væri úr sögunni.
Pétur Arnar Pétursson, for-
seti bæjarstjórnar og oddviti H-
listans, segist alls ekki líta svo á
að meirihlutinn sé sprunginn.
„Við höfum ekki slitið neinum
meirihluta. Ég get alveg eins lit-
ið þannig á að D-listinn hafi slit-
ið meirihlutanum þegar hann
felldi tillögu ökkar 13. október
með stuðningi K-listans. Þetta
mál var ekki flutt sem meiri-
hlutamál og því lít ég ekki svo á
að meirihlutanum hafi verið
slitið. í þessu máli var aldrei af
okkar hálfu farið fram á annað
en hjásetu D-listans,“ sagði
Pétur.
Óskar Húnfjörð segir að
sjálfstæðismenn vilji styrkja
rekstur kaupfélagsins, en ekki
sé forsvaranlegt að Blönduós-
bær „geti gengið í lið með einu
fyrirtæki gegn öðru í bæjarfé-
laginu.“ „í ljósi þess að önnur
sveitarfélög hér í kringum okk-
ur vilja leggja málinu lið, þá
vildum við ganga það langt að
veita félaginu 10 milljóna króna
víkjandi lán vegna gjalda til
bæjarins, sem yrði ekki greitt
fyrr en óráðstafað eigið fé kaup-
félagsins yrði orðið jákvætt.
Með þessu töldum við okkur
koma til móts við þarfir fyrir-
tækisins án þess að skekkja
samkeppnisstöðu fyrirtækja í
bænum. En ég vil leggja áherslu
á að þessi ákvörðun var ekki
tekin á faglegum grunni. Sveit-
arsjóður hefur enga vissu fyrir
því að þessar 12 nxilljónir, sem
bæjarstjórn samþykkti að verja
til að kaupa B-deildarskírteini,
dugi til að rekstur kaupfélagsins
gangi," sagði Óskar. óþh