Dagur - 27.11.1992, Síða 2

Dagur - 27.11.1992, Síða 2
2 - DAGUR - Föstudagur 27. nóvember 1992 Fréttir Blönduós: „Þetta er ekkert smámál“ - tugmilljóna tjón vegna rafmagnsleysisins að sögn bæjarstjóra Tjón og kostnaður á Blönduósi vegna rafmagnsleysisins nú á dögunum skiptir tugmilljónum króna að sögn Ófeigs Gests- sonar bæjarstjóra. Hann telur nauðsynlegt að skoða málið og finna leið til bjargar, t.d. með því að flýta lagningu jarð- strengs frá Laxárvatnsvirkjun. Ófeigur kvaðst ekki hafa hand- bærar tölur um hvað rafmagns- leysið hafi kostað stofnanir og fyrirtæki á Blönduósi, en ljóst að þar sé um tugi milljóna króna að ræða. Særún hf. hafi t.d. orðið að henda rækju, starfsemi Kaupfé- lagsins hafi lamast að hluta, skól- inn lokast, bankar og önnur þjónustufyrirtæki og skrifstofur hafi orðið óvirk, þar sem slík starfsemi væri meira og minna tölvuvædd. Ófeigur sagði jafn- framt að útvarpssendingar hefðu rofnað eða verið lélegar og sums staðar hefði síminn dottið út einnig. T.d. sé ákveðin tegund af síma hjá Hitaveitunni sem detti út í rafmagnsleysi. Kalda vatnið fór af bænum um tíma, enda eng- in vararafstöð hjá Vatnsveitunni. Ófeigur nefndi sem eitt dæmi af mörgum um kostnað sem raf- magnsleysið hefði í för með sér Hagkaup hf. á Akureyri: Sótt hefiir verið um stækkun lóðarinnar við Furuvelli 17 - ef samþykkt verður þarf að færa hluta Hjalteyrargötu til austurs Þyrping hf. hefur fyrir hönd Hagkaups hf. sótt um breyt- ingar á skipulagi vegna lóðar- innar nr. 17 við Furuvelli, þar sem verslun Hagkaups er til húsa. Óskað er eftir að lóðin verði stækkuð um 635 fer- metra til norðausturs og bfla- stæðum verði fjölgað. Þá er óskað eftir að innakstur verði heimilaður á suðurhluta lóðar- innar frá Hjalteyrargötu. Einnig er óskað eftir 200 fermetra stækkum lóðarinnar við lóða- mörk Grenivalla 26 vegna akst- ursleiðar fyrir flutningabfla. í erindi Þyrpingar hf., sem er eignaraðili fasteignarinnar við Furuvelli 17, er óskað eftir að viðkomandi lóð verði stækkuð til norðaustur þannig að lóðamörk færist allt að sjö metra út í núver- andi götustæði Hjalteyrargötu. Með öðrum orðum að gatan verði færð til austurs sem fyrir- hugaðri stækkun lóðarinnar nemur. Skipulagsnefnd Akureyrar hef- ur tekið jákvætt í erindi Þyrping- ar hf. um stækkun lóðarinnar til norðausturs en ekki afgreitt umsögn um aðra liði þess. Á fundi bygginganefndar 18. nóvember síðastliðinn var sam- þykkt að vísa sama lið umsóknar- innar til umsagnar hafnarstjórnar en frestað að taka ákvarðanir um aðra liði vegna ófullnægjandi gagna. Jón Pálmi Guðmundsson hjá Hagkaupi sagði í samtali við Dag að í hugmyndum um stækkun lóðarrýmis væri meðal annars verið að huga að flutningi lager- húsnæðis, sem fyrirtækið hafi á leigu annarsstaðar í bænum auk fjölgunar bílastæða. Þá sé einnig gert ráð fyrir því að komið verði upp kaffiteríu í tengslum við verslunina. Að öðru leyti væru hugmyndir um nýtingu á því rými sem skapast myndi við stækkun lóðarinnar ekki að fullu mótaðar og yrðu tæpast fyrr en ljóst væri hvernig bæjaryfirvöld tækju á málinu. Ef breytingar á lóðinni fengjust samþykktar væri hug- myndin að hefja framkvæmdir síðar í vetur. ÞI Mývatnssveit: Jón Árni kaupir Léttsteypuna - hluti hússins notaður sem verkstæði Jón Árni Sigfússon, Víkur- nesi í Mývatnssveit, hefur keypt hús og vélar Léttsteyp- unnar hf. Iðnlánasjóður leysti eignirnar til sín á uppboði í sumar fyrir 600 þúsund krón- ur. „Það er bara mitt mál,“ sagði Jón Árni, aðspurður um hvaða verð hann hefði goldið fyrir húsið og vélarnar. Jón Arni er með hópferða- þjónustu og á fimm hópferða- bíla. Hluta húsnæðisins hyggst hann nota sem verkstæði fyrir bíla sína. Hann hefur rekið til þessa lítið verkstæði, byggt ’62 'og fyrirtækið hefur aukið umsvif síðan. Jón Árni hyggst einnig halda áfram rekstri Léttsteypunnar. í samtali við Dag sagðist hann ekki mjög bjartsýnn á rekstur- inn þar sem hús og vélar væru í mjög slæmu ásigkomulagi. Upphaflega var brennistein- svinnsla í húsnæðinu en síðan hefur verið byggt við það. Hús- rými er mikið en húsin illa farin og lítið verðmæti í þeim, að sögn hins nýja eiganda. IM að það þyrfti að kalla til sérfræð- ing til að yfirfara og endurstilla kælibúnað Mjólkurstöðvarinnar. „Það er ljóst að hér er að endurtaka sig með tiltölulega stuttu millibili veruleg rekstrar- truflun á samfélaginu og maður hlýtur að velta vöngum yfir því hvort ekki þurfi að skoða þetta nánar,“ sagði Ófeigur og telur að reynslan sýni að nauðsynlegt sé að grípa til aðgerða. Ekki sé hægt að ætlast til að rekstraraðilar í bænum baktryggi sig með því að reisa eigin vararafstöðvar. „Það er spurning hvort komin er upp sú staða að menn þurfi sjálfir að leggja þessu lið með því að veita Rafmagnsveitum ríkisins styrk til að tryggja þennan orkuflutning, því ekki er hagkvæmt fyrir byggðarlagið að þurfa að bak- tryggja sig með eigin varaafli," sagði Ófeigur og átti við að ef Rarik telji of dýrt að leggja jarð- streng sé vel athugandi hvort heimaaðilar komi inn í dæmið með fjármagn. Að sögn Ófeigs stendur til að leggja jarðstreng frá Laxárvatns- virkjun til Blönduóss árið 1994 og telur hann þörf á að flýta því verki, ef það sé atriði sem tryggi öryggi. Hann telur engu að treysta í veðurfarinu, það hafi sýnt sig undanfarin tvö ár. „Þetta eru ekki bara útgjöld Rarik við viðgerðir, þetta eru útgjöld alls samfélagsins," sagði Ófeigur að lokum. sþ Nægur snjor í lllíöar- Qalli til skíðagöngu - tímatökuturn settur á hús skíðagöngumanna Norðvestan Skíðastaða í Hlíðar- fjalli ofan Akureyrar er veglegt hús, sem Skíðaráð Akureyrar hefur reist í áföngum til afnota fyrir skíðagöngumenn. Húsið teiknaði Jónas Sigurbjörnsson skíðakappi, en hann lést fyrir nokkrum árum langt um aldur fram. Byggingaframkvæmdir hófust árið 1990 og árið eftir var húsið stækkað. Nýverið var sett- ur tímatökuturn á húsið þannig að aðstaða öll er orðin hin ákjós- anlegasta til að halda keppnir í skíðagöngu í Hlíðarfjalli. „Nægur snjór er í Hlíðarfjalli til að iðka skíðagöngu. Við erum búnir að leggja út 1500 metra langa göngubraut. Skíðafólkið hefur góða aðstöðu til að narta í nestið í gönguskálanum og þar er fullkomin snyrtiaðstaða,“ segir ívar Sigmundsson, forstöðumað- ur Skíðastaða. Hermann Sigtryggsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi Ákureyrarbæjar, tók meðfylgj- andi myndir. Önnur er tekin þeg- ar unnið var við uppsetningu tímatökuturnsins, en hin að verki loknu. ój ALÞYÐUSAMBANDSÞING Afgreiðsla ASÍ þings í dag á kjaramálaályktun: „Verkalýðshreyfíngin hlýtur að bregðast við af fifílri hörku“ Þingi Alþýðusambands íslands lýkur á Ákureyri í dag með umræðu um kjara-, atvinnu- og efnahagsmál. Þar má búast við snörpum umræðum um svar verkalýðshreyfíngarinnar við nýjum aðgerðum ríkis- stjórnarinnar. „Verkalýðs- hreyfíngin hlýtur að bregðast við þessu af fullri hörku,“ segir í drögum að kjaramálaályktun. Drög að ályktun um kjara- og efnahagsmál voru lögð fyrir þing- fulltrúa síðdegis í gær en búast má fastlega við að lagðar verði fram viðbótar- og breytingartil- lögur við ályktunardrögin, miðað við fjörugar umræður á þriðju- dag. í drögunum er m.a. lýst furðu á að ríkisstjómin hafi hafn- að samkomulagi um tekjujöfnun- araðgerðir en þær hefðu varið kaupmátt launafólks „og um leið treyst undirstöður atvinnulífsins með allt öðrum og tryggari hætti en þær aðgerðir sem hún hefur nú ákveðið,“ eins og segir í álykt- unardrögunum. Þá er í drögunum skorað á aðildarfélög að undirbúa upp- sögn gildandi kjarasamninga með tilvísun í gengisfellingarákvæði samningsins og lagt er til að þing- ið feli miðstjórn að gangast fyrir fundahöldum til að búa hreyfing- una undir átök til að sækja rétt sinn og kjör. „í næstu kjarasamningum verður launafólk að sækja leið- réttingu vegna þeirra kjaraskerð- inga sem leiða af aðgerðum ríkis- stjórnarinnar, auk þess að bæta verður kjör hinna lægst launuðu sérstaklega," segir í drögunum. JÓH Evrópumál á ASI þingi: Alþmgismeim endurskoði afstöðu sína varðandi þjóðaratkvæði Evrópumál voru til síðari umfjöllunar á Alþýðusam- bandsþingi á Akureyri í gær og var samþykkt ályktun þar sem alþingismenn eru hvattir til að endurskoða afstöðu sína um þjóðaratkvæðagreiðslu vegna EES. Ályktun um afgreiðslu EES- samninga er svohljóðandi: „37. þing ASÍ átelur þá afstöðu Alþingis að hafna kröfum fjöl- margra félagasamtaka og ein- staklinga að viðhafa þjóðar- atkvæðagreiðslu um aðild íslands að Evrópska efnahagssvæðinu og hvetur alþingismenn til að endur- skoða afstöðu sína. Þingið bendir á að ýmis atriði samningsins eru með þeim hætti að vafi leikur á að þau séu í samræmi við stjórn- arskrá og minnir alþingismenn á þá ábyrgð sem þeir hafa gagnvart stjórnarskrá íslenska lýðveldis- ins.“ Þá samþykkti ASÍ-þing einnig ályktun þar sem hvatt er til að innan ASÍ, hjá landssamböndum og stéttarfélögum verði unnið ötullega að því að mæta þeim breytingum sem framundan séu á íslenskum vinnumarkaði, ekki síst ef ísland gerist aðili að Evrópska efnahagssvæðinu. „Þingið leggur áherslu á að stjórnvöldum sé veitt öflugt aðhald. Ýmsar lagasetningar og aðgerðir sem skipta iaunafólk miklu máli fylgja aðild að EES ef af henni verður. Verkalýðshreyf- ingunni ber skylda til að fylgja eftir að ekki sé gengið á réttindi launafólks. Þá kalla aukin sam- skipti við aðrar þjóðir á öflugt upplýsingastarf í verkalýðshreyf- ingunni," segir í ályktuninni. JÓH

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.