Dagur - 27.11.1992, Side 3

Dagur - 27.11.1992, Side 3
Föstudagur 27. nóvember 1992 - DAGUR - 3 Fréttir Ráðstafanir ríkisstjóm- arinnar gagnast skannnt - segir Lárus Ægir Guðmundsson, framkvæmdastjóri Hólaness Ríkisstjórn Davíðs Oddsson- ar kynnti á mánudag víðtæk- an efnahagspakka, sem bygg- ist á fimm þáttum. Veigamik- ið atriði í þeim aðgerðum er að skapa íslensku atvinnulífi sambærileg skattakjör og helstu keppinautunum með afnámi aðstöðugjaldsins. Einar Njálsson bæjarstjóri, á Húsavík segir að þrátt fyrir að innheimtuhlutfall bæjar- sjóðs Húsavíkur nái ekki 80% muni bæjarsjóður ekki hagnast þegar ríkissjóður endurgreiði sveitarfélögunum á komandi ári. Á Norðurlandi eystra voru aðstöðugjöld samkvæmt álagn- ingarskrá 1992 kr. 484.283.130 en á Norðurlandi vestra kr. 202.277.490, en um tuttugu milljónir af þeirri upphæð komu í hlut Svínavatnshrepps vegna umsvifa Hagvirkis/Kletts við Blönduvirkjun og verður því ekki framhald á því. Einar Njálsson bæjarstjóri á Húsavík segir innheimtuhlutfall aðstöðugjalds á Húsavík vera á bilinu 75-80% en það sé hins vegar ekki eins víst að Húsavík- urbær hagnist á því að fá endur- greitt 80% af aðstöðugjaldi af stofni ársins 1992, en bæjarsjóð- ur ætti hins vegar ekki að bera skarðan hlut frá borði. Einar telur að svokallaður hátekju- skattur muni ekki skila umtals- verðum tekjum í bæjarsjóð, því það verði ekki ýkja margir sem verði ofan við þessi mörk. „Sveitarstjórnarmenn hafa verið algjörlega á móti því að lagður verði 14% skattur á hús- hitun, en það er hins vegar ekki hægt að vera bara á móti skatt- lagningu og þiggja framkvæmd- ir á móti. Auðvitað munum við fá öll aðföng af rekstri hitaveit- unnar til frádráttar þannig að ekki er víst að þetta þýði 14% hækkun á gjaldskránni þegar upp er staðið. Á Húsavík er nýbúið að breyta sölukerfinu úr hemlum í mæla og við fyrstu sýri virðist þessi aðgerð hafa áhrif á heildartekjur veitunnar, en áhrifin gætu orðið þau að við þyrftum ekki að hækka gjald- skrána. Það lágu fyrir ákveðin fyrirheit hér um að þessi sölu- kerfisbreyting væri ekki notuð til skattlagingar," segir Einar Njálsson bæjarstjóri á Húsavík. Fyrsti fundur bæjarráðs Húsavíkur um fjárhagsáætlun ársins 1993 verður 2. desember og er ekki gert ráð fyrir að þess- ar aðgerðir tefji þá vinnu. Fiskverkunarfyrirtækið Hóla- nes hf. á Skagaströnd bar rúmar 6 milljónir króna í aðstöðugjald samkvæmt álagningarskrá 1992 jog segir Lárus Ægir Guðmunds- son, framkvæmdastjóri, að nið- urfelling aðstöðugjaldsins hafi að sjálfsögðu einhver áhrif en fyrirtækið greiðir 1,3% af veltu í aðstöðugjald. Sé hins vegar miðað við umfang vandans sem við er að glíma í dag þá gagnist þessar ráðstafanir skammt eins og t.d. hjá rækjuverksmiðjun- um, sem glíma við vanda af stærðargráðunni 8-10% að mati Lárusar. „Það hefur verið að fjara undan mönnum í þessari at- vinnugrein og reyndar fleirum vegna falls pundsins og fleiri utanaðkomandi óhagstæðum skilyrðum og sú þróun heldur áfram ef engar aðrar aðgerðir koma upp á yfirborðið". GG Framsóknarmeim halda flokksþing um helgina í dag kl. 10 verður 22. flokks- þing Framsóknarflokksins undir kjörorðinu „framtíð á framtaki byggð“ sett að Hótel Sögu í Reykjavík. Þingið stendur fram á sunnudag og er gert ráð fyrir þingslitum um kl. 18. Fyrir hádegi í dag verða fluttar skýrslur ritara og gjaldkera og mál verða lögð fram. Eftir hádeg- ið flytur Steingrímur Hermanns- son, formaður Framsóknar- flokksins, yfirlitsræðu formanns og Ögmundur Jónasson, formað- ur BSRB, ávarpar þingið kl. 16.30. Á morgun verða almennar umræður og nefndastörf og á sunnudag verða mál afgreidd og stjórn Framsóknarflokksins kjörin. í tengslum við flokksþingið verða á morgun fyrirlestrar og sýning um nýsköpun í íslensku efnahagslífið í Háskólabíói frá kl. 14 til 16.30. Tíu fyrirlesarar halda erindi; Vilhjálmur Lúð- víksson ræðir um nýsköpun í brennidepli, Áslaug Haraldsdótt- ir ræðir um hugbúnað fyrir hreyfikerfi, Grímur Sæmundsson fjallar um heilsuferðaþjónustu og uppbyggingu við Bláa lónið, Orri Vigfússon ræðir um einkavæð- ingu og markaðssetningu á Flug- stöð Leifs Eiríkssonar, Elín An- tonsdóttir ræðir um atvinnusköp- un í höndum kvenna, Guðbrand- ur Sigurðsson flytur erindi sem hann nefnir „ný tegund stóriðju? - úr fiskvinnslu í matvælaiðnað“, Ólafur Bjömsson fjallar um ferða- þjónustu í sveitum, Ágústa Guðmundsdóttir ræðir um líf- tækni í þágu matvælaiðnaðar, Pétur Guðjónsson ræðir um hvað þurfi til í útflutningi á hátækni í íslenskum sjávarútvegi og Ólafur Halldórsson ræðir um fiskeldi - við tímamót í sjávarútvegi. óþh BÓKABÚÐ JÓNASAR Nýlbók Þómnii Maggý miðilsstörf og vitnisburðir Pórunn Maggý Guðmundsdóttir áritar glænýja bók sína í dag kl. 4-6 í verslun okkar BOKABUÐ .S JONASAR Jlil\4ls Hafnarstræti 108 Sími 96-22685 \ E R S L U I k R D S T 0 D Hafnarstræti 97 Sápubúbin Föstudaginn 27. 11. og laugardaginn 28. 11 kynnir Ingibjörg Dalberg snyrtifræðingur vörur frá Crabtree og Evelyn í versluninni Verið velkomin Komið og kynnist þessum frábæru ensku gæðavörum i io shop Strandgötu 6 Sími 11858-

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.