Dagur - 27.11.1992, Síða 5
Föstudagur 27. nóvember 1992 - DAGUR - 5
Sigtryggur Valgeir Jónsson:
Örlagasagan
Þetta er ekki skáldsaga, því mið-
ur. Þetta er hluti af samskiptum
mínum, Sigtryggs Valgeirs Jóns-
sonar, við bæjarfulltrúann Björn
Val Gíslason, oddvita vinstri
manna hér í Ólafsfirði.
Orð bæjarfulltrúans Björns
Vals Gíslasonar, oddvita vinstri
manna, á bæjarstjórnarfundi
þriðjudaginn 7. nóv. þess efnis að
enginn tapaði á viðskiptum við
Björn V. Gíslason hf. og menn
ættu að hafa kjark og dug til að
gera almenningi hlutina ljósa og
ekki misnota aðstöðu sína, hljóm-
uðu einkennilega í mínum eyr-
um. Einnig mátti skilja ummæli
hans þannig að hann hefði yfir-
tekið það mikið af skuldum að af-
gangurinn ætti að vera minn. Ég
hef aðra sögu að segja. Þar sem
nafn mitt er „innvíglað" í þetta
fyrirtæki vil ég koma á framfæri
því sem ég vil kalla sannleikann í
þessu gjaldþrotamáli Björns V.
Gíslasonar hf.
Kröfurnar
Fyrirtækið Björn V. Gíslason hf.
var gert upp og lauk kröfulýsinga-
fresti í desember 1991. Lýstar
kröfur í þrotabúið hljóðuðu upp
á 27.939.503 kr. Frá þessari tölu
dragast 2 milljónir sem fluttust
með bát fyrirtækisins. Hljóða því
kröfurnar upp á 25.939.503 kr.
Síðan er liðið tæpt ár. Ekki lýstu
allir kröfu í búið og ólýstar kröf-
ur voru 10.423.000. kr. í ólýstum
kröfum töpuðust fjárhæðir vegna
launa. Alls gerir þessi pakki
36.214.000 krónur. Það má áætla
að með öllum kostnaði og fyrir-
höfn til dagsins í dag sé þessi tala
farin að nálgast 38 milljönir.
Hlutafé fyrirtækisins var 10
milljónir króna, þannig að eftir
standa hátt í 28 milljónir króna.
Því spyr ég: Á hverjum lenda
þessar skuldir?
Hvað með Sparisjóð Ólafs-
fjarðar, sem er með lýstar kröfur
upp á 9,7 milljónir króna? (Árs-
gömul tala.)
Hvað með Kaupfélag Eyfirð-
inga, sem er með lýstar kröfur
upp á 1.293.221 kr.? (Ársgömul
tala.)
Hvað með innheimtumann rík-
issjóðs, sem er með lýstar kröfur
upp á 726.882 kr.? (Ársgömul
tala.)
Hvað með Hraunhamar í Hafn-
arfirði, sem er með lýstar kröfur
upp á 376.088 kr.? (Ársgömul
tala.)
Hvað með Finnboga og Flosa í
Bolungarvík og víxilinn þar, sem
hljóðar upp á 700.000 kr.?
Hvað með Glitni hf., Sigga í
Grímsey, Bókhaldsskrifstofuna,
Kristbjörgu hf., Raftækjavinnu-
stofuna, Múlatind, Ólafsfjarðar-
bæ og fleiri og fleiri?
Tapa þeir ekki?
Staðreyndin er sú sem ég hef
staðið frammi fyrir, að einbýlis-
hús mitt var selt á uppboði og hef
ég þar af leiðandi tapað öllum
mínum eignum. En þar voru eign-
ir upp á 11,2 milljónir kr. Þetta
finnst bæjarfulltrúanum ef til vill
léttvægt? En ég er ekki á sömu
skoðun. Ekki síst í ljósi þess sem
tíminn hefur upplýst mig um að á
þessum tíma fóru fram bæjar-
stjórnarkosningar og alþingis-
kosningar og virðist mér sem
hagsmunamál fyrirtækisins og
skuldbindingar þeirra einstakl-
inga sem voru í ábyrgðum væru
látin í léttu rúmi liggja. Og er ég
ekki grunlaus um að Björn Valur
hafi greitt sér laun hjá óstarfhæfu
fyrirtæki alveg fram til þess dags,
og jafnvel lengur, þegar hann sat
hið háa Alþingi Islendinga sem
varaþingmaður Alþýðubandalags-
ins.
Beðist velvirðingar
Þessi grein er ekki síður rituð og
birt til að biðja stofnanir, félög
og einstaklinga velvirðingar á
þessari stöðu; og segja frá því að
ég sjálfur er orðinn slippur og
snauður og miklu meira en það.
Þess vegna er ekki meira til mín
að sækja og því verða aðrir áð
tapa.
En samt segir bæjarfulltrúinn
að enginn tapi, því að hann sé
búinn að yfirtaka svo mikið af
skuldunum.
Mér finnst sjálfum að hann
hefði ekki þurft að koma þeim
boðskap á framfæri við fjölmiðla
þjóðarinnar og hefði verið nær að
biðjast auðmjúklega afsökunar á
framkomu sinni gagnvart mér og
mörgum öðrum.
Frjálslega farið með tölur
Einnig get ég bent á það að mér
finnst það skjóta skökku við að
Bjöm Valur bað um greiðslustöðv-
un á þessu fyrirtæki þar sem hann
tekur skýrt fram í beiðni til
fógeta 29. janúar 1991:
„Félagið á fyrir skuldum sem á
því hvíla, þ.e. eignir eru meiri en
skuldir. Hins vegar er rekstrarfé
ekki til, lánstraust takmarkað og
lausir aurar ekki til fyrir skuldum
en eins og áður segir eignir þó
nokkrar. Astæður fjárhagsvand-
ans eru m.a. þær að ekki hefur
tekist að selja afurðir fyrirtækis-
ins. Ætlunin er að selja af eigum
fyrirtækisins þannig að andvirði
þeirra nægi til að greiða upp
skuldir fyrirtækisins.“
Þarna setti hann fram bráða-
birgðayfirlit yfir skuldir og eignir
fyrirtækisins, og takið nú vel eftir
dagsetningunni: 29. janúar 1991.
Lýstar kröfur komu svo fram í
búið við gjaldþrotið þann 9. des-
ember 1991 (aðeins ellefu mán-
uðum síðar) og þá upp á tæpar 26
milljónir króna; og voru það bara
lýstar kröfur. Og ekki ein einasta
króna fékkst greidd af því.
Ég hef um lengri tíma haldið
því fram og sagt að Björn Valur
Gíslason fari mjög svo frjálslega
með tölur og allan málflutning.
Staðreyndirnar
Fyrirtækið Björn og Valgeir var
stofnsett af okkur báðum og gekk
ég út úr félaginu um áramótin
1988-89 og þess vegna kom til
stofnunar fyrirtækisins Björns
Vals Gíslasonar hf. Með stofnun
fyrirtækisins lánaði ég, kona og
dóttir nöfn okkar til stofnunar
félagsins til 1. mars 1990, en þá
áttu hlutafjárlög að breytast og
nægðu nöfn þeirra hjóna, Björns
og Þuríðar, til að skrá félagið. Þá
þótti Birni gott að fá að nota nafn
mitt til stofnunar félagsins af því
að það liti mjög illa út að ég færi
út á þessum tíma, þar sem hann
var að sækja um lán og annað
slíkt til rekstrarins. Og skyldi
hann sjá um nafnabreytinguna og
því gæti ég verið áhyggjulaus.
En annað kom á daginn.
Það var svo daginn eftir bæjar-
stjórnarkosningarnar 26. maí
1990 að Björn Valur hringdi og
sagðist vera að selja bátinn.
Sagði ég honum að mér kæmi
það ekkert við, annað en að hann
skyldi leysa veðin af húsi mínu.
Sagði hann þá mig vera eiganda
fyrirtækisins, alveg eins og hann
sjálfur; og giltu nú undirskriftir
okkar. Og við þetta stóð og þar
af leiðandi var ég orðinn útgerð-
armaður á ný, án minnar vitund-
ar.
Til umhugsunar
Traustvekjandi bæjarfulltrúi og
þingmannsefni fyrir Norðurland
eystra; eru menn ekki vandari að
virðingu sinni í þessari stöðu?
Þessi reynsla er dýrkeypt og
hvet ég fólk til að athuga nú vel
gang mála áður en það gengst í
ábyrgðir, svo það standi ekki á
götunni einn daginn, eins og fjöl-
skyldan mín. Þessi reynsla meiðir
sáran og maður gerir sér ekki
grein fyrir afleiðingunum. Um
lengri tíma hef ég mátt þola sitt
af hverju, og verður það ekki tí-
undað hér, en komist þó þetta
áleiðis með hjálp góðra manna.
En einhvern tímann verða tíma-
mörk á öllu og get ég játað það,
hér og nú, að ég hef verið
óvinnufær um lengri tíma af þess-
um sökum. Og þar af leiðandi hef
ég ekki getað sinnt störfum
mínum, sem ég hef verið ráðinn
til, og hef þar af leiðandi brugðist
atvinnurekendunum sem ég starfa
hjá.
Ég vil nota tækifærið hér og
segja Ólafsfirðingum að ég
hyggst flytjast búferlum úr bæn-
um mínum og er mér það ekki
ljúft, því fegurri staður er ekki til.
Vil ég ennfremur þakka Ólafs-
firðingum fyrir mjög góð kynni
og velvilja sem ég hef alltaf notið
í heimabyggð minni. Flestir hafa
reynst mér vel.
Sigtryggur Valgeir Jónsson,
Hornbrekkuvegi 14,
Ólafsfirði.
Höfundur er fyrrverandi útgerðarmaður,
byggingameistari að mennt, og hefur
sinnt ýmsum öðrum störfum.
Fundur vélstjóra á Akureyri:
Mótmælt tilflutningi fíár til fyrirtækja
Félagsfundur í Vélstjórafélagi
íslands, sem haldinn var á
Akureyri þ. 18. nóvember
1992, samþykkti mótmæli gegn
öllum hugmyndum um að fjár-
munir séu fluttir frá launafólki
til velstæðra fyrirtækja og
fyrirtækja sem eru það illa
stödd efnahagslega að óraun-
hæft er að halda rekstri þeirra
gangandi.
„Einnig mótmælir fundurinn
framkomnum hugmyndum um
tvö skattþrep og bendir á að með
því væri fyrst og fremst verið að
sækja fjármuni til launþega en
ekki til þess hóps í þjóðfélaginu
sem getur stöðu sinnar vegna
skammtað sér skráð laun sjálfur
og greiðir þess vegna aðeins
skatta og skyldur af hluta launa
sinna. Til þessa hóps ber að ná
áður en raunhæft er að hækka
álögur á almennt launafólk," seg-
ir í samþykkt fundarins.
„Þá skorar fundurinn á stjórn-
völd að grípa til hliðstæðra ráð-
stafana og aðrar Norðurlanda-
þjóðir hafa gert til þess að kaup-
skip á vegum íslendinga séu
mönnuð íslendingum. Fundurinn
telur eðlilegt að stutt sé við inn-
lendan skipasmíðaiðnað með
jöfnunartollum svo skipasmíðar
og viðhald fari sem mest fram
hérlendis.“ JÓH
VETRARSKOÐUN
Chrysler - |eep • Peugeot • Skoda
Það er nauðsynlegt að láta yfirfara bílinn fyrir veturinn,
bæði til að tryggja notagildi hans í öllum veðrum og
koma í veg fyrir óþarfa eldsneytisnotkun.
Við bjóðum upp á fyrirbyggjandi vetrarskoðun
fyrir fast verð.
4 cyl. bifreið kr. 6.500,- 6 cyl bifreið kr. 7.400,-
8 cyl. bifreið kr. 8.300,-
Við framkvæmum eftirtalin atriði:
t Rafgeymasambönd ath.
t Viítureim athuguð.
t Rafgeymir og hleðsla mæld.
| Vél þjöppumæld.
| Skipt um platínur.
t Skipt um kerti.
| Frostþol mælt.
| Vél stillt með nákvæmri stillitölvu.
t Loftsía athuguð.
t Kúpling stillt.
t Öll Ijós yfirfarin.
I Aðalljós stillt.
| Hemlar reyndir.
t Rúðuþurrkur ath.
t Frostvari settur á rúðusprautu.
Innifaliðefni: Kerti, platínurogfrostvari á rúðusprautu
SHODB i peugeot
PANTIÐ
TÍMA í
SÍMA
22255.
Skálafell sf.
Draupnisgötu 4, sími 22255
|pÍ|i Handknattleikur
1. deild
KA-Valur
í kvöld kl. 20.30 í KA-hölIinni
Vérið hagsýn - Verslið í Nettó
Ódýr markaður
Allra hagur
Kreditkortaþjónusta
Opið mánudaga-föstudaga kl. 12-18.30.
Laugardaga kl. 10-16. Sunnudaga kl. 13-17.