Dagur - 27.11.1992, Blaðsíða 6

Dagur - 27.11.1992, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Föstudagur 27. nóvember 1992 Hvað er að gerast Skrokkabandið og Hún andar í Dynheimum í kvöld, föstudag, kl. 22 munu hljómsveitirnar Skrokkabandið og Hún andar, sem báðar eru frá Akur- eyri, halda tónleika í Dynheimum á Akureyri. Ekkert aldurstakmark er, en hleypt verður inn meðan húsrúm leyfir. Stórmarkaður á Svalbarðseyri Á morgun, laugardag, kl. 13 til 18 stendur Kvenfélag Svalbarðseyrar fyrir sölu á ýmsum vörum og auk þess kaffi og rjómavöfflum í gömlu kaupfélagsbúðinni á Svalbarðseyri. í boði verða t.d. leirmunir, prjóna- vörur, brauð og kökur, pennar, spil, bolir, jólakort, hljómplötur, laufa- brauðsjárn og margt fleira. Ljósmynda- sýning í Safnaðar- heimilinu Ljósmyndasýningu Áhugaljós- myndaklúbbs Akureyrar í Safnaðar- heimili Akureyrarkirkju lýkur um helgina. Á morgun verður sýningin opin frá kl. 14 til 21 og á sunnudag, síðasta sýningardag, verður opið frá kl. 15 til 21. Á sýningunni eru marg- ar athyglisverðar myndir og eru sýn- endur um 30, en skráðir félagar í klúbbnum eru á bilinu 40 til 50. Jónas messar yfir Léttis- mönnum í kvöld Hestamannafélagið Léttir á Akur- eyri stendur fyrir fræðslufundi í Skeifunni í kvöld, föstudagskvöld, kl. 20.30. Gestur fundarins verður Jónas Kristjánsson, ritstjóri og „hestaspekúlant". Jónas kynnir gagnabankann sinn, þar sem hann hefur upplýsingar um rúmlega 20 þúsund hross. Zontakonur selja laufabrauð Zontaklúbburinn Þórunn hyrna ætlar að selja laufabrauð í verslun- armiðstöðinni Sunnuhlíð í dag og á morgun. Einnig verður iaufabrauðs- sala í göngugötunni í dag, föstudag, kl. 16 til 18 og á morgun kl. 11 til 13. Allur ágóði rennur til líknarmála. Hausthrað- skákmót bama og unglinga Skákfélag Akureyrar stendur fyrir hausthraðskákmóti barna og ungl- inga á morgun, laugardag, kl. 13.30 í húsakynnum félagsins við Þing- vallastræti. Leikfélag Raufarhafnar sýnir Hart í bak Leikfélag Raufarhafnar frumsýnir Hart í bak eftir Jökul Jakobsson í félagsheimilinu Hnitbjörgum á Rauf- arhöfn í kvöld, föstudaginn 27. nóvember, kl. 20.30. Leikstjóri er C. Margrét Óskarsdóttir og hannaði hún einnig leikmynd og búninga. Aðalhlutverk er í höndum Jónasar Friðriks Guðnasonar, Sigurveigar Bjömsdóttur og Hrólfs Björnsson- ar. Aðrar ákveðnar sýningar eru á morgun, sunnudag og þriðjudaginn 1. desember. Miðapantanir em í síma 51151 kl. 13 til 16 og í síma 51220 eftir kl. 17. Kökubasar, hlutavelta og kaffisala í Freyvangi Kvenfélagið Aldan-Voröld í Eyja- fjarðarsveit verður með kökubasar, hlutaveltu og kaffisölu í Freyvangi nk. sunnudag, 29. nóvember, kl. 15. Samstarfshópurinn Hagar hendur verður einnig með sölu á munum sínum. Mannakorn á Hótel KEA Hótel KEA í samvinnu við Skot- veiðifélag Eyjafjarðar heldur árlegt villibráðarkvöld annað kvöld, laug- ardagskvöld. Borðhald hefst kl. 20, en húsið verður opnað kl. 18.30. Veislustjóri verður Sunna Borg, en um dinnertónlist sér Ingimar Eydal. Hljómsveitin Mannakorn ásamt Pálma Gunnarssyni sér um fjörið. Húsið verður opnað fyrir aðra en matargesti kl. 23. Lygakvendið í Borgarbíói Um helgina kl. 21 verða sýndar í Borgarbíói á Akureyri myndirnar Lygakvendið (Steve Martin og Goldie Hawn) og Hvítir geta ekki troðið. Klukkan 23 verða sýndar myndirnar Lostæti og Ofursveitin. Á barnasýningum á sunnudag kl. 15 verða sýndar myndirnar Prinsessan og durtarnir og Öskubuska. Fundur um stöðu kvenna iniian EES Kvennalistinn á Norðurlandi eystra stendur fyrir fræðslufundi í Laxdals- húsi á Ákureyri á sunnudag, 29. nóvember, kl. 15.30. Rannveig Sig- urðardóttir, hagfræðingur BSRB, flytur erindi um stöðu kvenna innan EES. Fundurinn er öllum opinn og verða kaffiveitingar. Málverkasýning í Saftiahúsinu Pórhallur Filipusson, myndlistar- maður, opnar málverkasýningu í Safnahúsi Skagfirðinga á morgun, laugardaginn 28. nóvember, kl. 14. Sýnd verða olíumálverk, vatnslita- myndir og olíukrítarmyndir. Um er að ræða landslagsmyndir, abstrakt og fantasíur. Þórhallur stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1940-1950. Hann hefur haldið fjölda sýninga. Sýningin í Safnahús- inu verður opin daglega frá kl. 15 til 18 til sunnudagsins 6. desember nk. Félagsvist og dansleikur í Lóni Félag harmonikuunnenda stendur fyrir félagsvist og dansleik í Lóni við Hrísalund á morgun, laugardaginn 28. nóvember, kl. 21. Húsið verður lokað til kl. 23, en þá hefst dansleik- ur sem stendur til kl. 03. Tónleikar Kirkjukórs Sauðárkróks Kirkjukór Sauðárkróks er 50 ára um þessar mundir. Af því tilefni heldur hann tónleika í Sauðárkrókskirkju annað kvöld, laugardagskvöld, kl. 20.30. Á efnisskránni eru fyrst og fremst lög eftir skagfirska höfunda. Stjórnandi kórsins er Rögnvaldur Valbergsson en einsöngvarar á tón- leikunum eru Jóhann Már Jóhanns- son og Ingveldur Hjaltested. Köku- og laufabrauðs- basar Slysavarnafélagið stendur fyrir köku- og laufabrauðsbasar að Laxa- götu 5 á Akureyri á morgun, laugar- daginn 28. nóvember, kl. 14. Miðnætursam- koma í Hvíta- sunnukirkjunni Annað kvöld, laugardagskvöld, kl. 23.30 verður miðnætursamkoma í Hvítasunnukirkjunni við Skarðshlíð. Ungt fólk í söfnuðinum mun sjá um söng, hljóðfæraleik og persónulega vitnisburði. Unga fólk- ið vill hvetja aðra unglinga til að koma og kynnast því sem sérstakar samkomur fyrir unglinga eru á þeim kvöldum. Allir eru hjartanlega vel- komnir. Lína kveður hjá LA Um helgina verða þrjár síðustu sýn- ingar á Línu langsokk hjá Leikfélagi Akureyrar. Á morgun verður þetta vinsæla leikrit sýnt kl. 14 og tvær síðustu sýningarnar verða á sunnu- dag, kl. 14 og 17.30. Þórunn Maggý áritar í Bókabúð Jónasar Pórunn Maggý Guðmundsdóttir, miðill, áritar nýja bók sína, Pórunn Maggý - miðilsstörf og vitnisburðir, í Bókabúð Jónasar á Akureyri í dag, föstudag, kl. 16-18. Spilavistar- ball í Sólgarði Ungmennafélögin í Eyjafjarðarsveit standa fyrir spilavistarballi í Sól- garði í Eyjafjarðarsveit annað kvöld, laugardagskvöldið 28. nóvember. Dansleikurinn hefst kl. 23 og leikur hljómsveitin Namm fyr- ir dansi. Á undan dansinum, nánar tiltekið kl. 20.30, hefst félagsvist, en þetta er þriðja og síðasta spilakvöld- ið. Áður var spilað í Freyvangi og Laugarborg. Vegleg verðlaun eru í boði og nægir að nefna að sigurveg- arinn hlýtur ferðavinning að verð- mæti 100 þúsund krónur. Bílasala Bílaskipti nru. rajero st arg. 8». Ekinn 51.000. Verð 1.200.000 stgr. vw jetta uL sjaitsK. arg. vu. Ekinn 25.000. Verð 970.000 stgr. Lada Samara árg. 87. Ekinn 61.000. Einn eigandi. Verð 120.000 stgr. Lada Sport árg. 89. Ekinn 35.000. Verð 350.000 stgr. Míkið úrval af bílum í sýningarsal 09 á nílASAllNN Möldur hf. BÍLASALA við Hvannavelli Símar 241 19 og 24170 MMC Space Wagon 4x4 árg. 87. Ekinn 95.000. Verð 750.000 stgr. MMC Pajero long árg. 92. Ekinnl 8.000. Verð 2.900.000 stgr. MMC Galant GLSI Super Saloon árg. 90. Daihatsu Feroza ELII árg. 89. Ekinn 62.000. Verð 1.250.000 stgr. Ekinn 50.000. Verð 920.000 stgr. CH Monza 1800 SLE árg. 87. Ek. 75.000. Verð kr. 320.000 stgr. MMC Lancer 1500 GLX árg. 89. Ek. 49.000. Verð kr. 700.000 stgr. SuzukiFox 410 árg. 88. Ekinn 39.000. Verð 550.000 stgr.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.