Dagur - 01.12.1992, Síða 1
75. árgangur
229. tölublað,
Akureyri, þriðjudagur 1. desember 1992
HERRADEILD
Gránufélagsgötu 4
Akureyri • Sími 23599
Hálendið:
Jeppakarlar veður-
tepptir á suimudag
Lögreglu á Húsavík var ekki
kunnugt um nein óhöpp eða
teljandi vandræði á fólki eftir
helgina, þrátt fyrir hvassviðri á
sunnudag og fljúgandi hálku.
Miklir fólksflutningar voru á
vegum Björns Sigurðssonar,
sérleyfishafa um helgina,
vegna íþróttamóta og lúðra-
sveitarmóts hjá börnum. Allt
gekk vel, en seinfarnara var
vegna hálkunnar.
Premur hópum jeppamanna úr
sýslunni, sem fóru á hálendið um
helgina, seinkaði vegna veðurs-
ins. Menn úr átta bílum héldu
kyrru fyrir í Laugafelli á sunnu-
dag vegna veðursins. Voru þeir
að tínast til byggða í gærdag,
Ökuraenn í vandræðum
á vegum á sunnudag:
ÁfaJlalaust
þrátt fyrir
flugháJku
Lögreglan á Akureyri sendi
á sunnudag út viðvörun
vegna mikillar hálku á
Svalbarðsströnd og Víkur-
skarði. Mjög hvasst var í
Eyjafirði um miðjan dag á
sunnudag og áttu ökumenn í
erflðleikum úti á vegum.
Ekki er þó vitað um nein
meiriháttar óhöpp.
Gunnar Randversson, varð-
stjóri hjá Akureyrarlögregl-
unni, sagði að síðla sunnudags
hafi verið tilkynnt um að
járnplötur væru aö fjúka af
húsi í Glerárhverfi og þar
tókst að koma í veg fyrir tjón.
í smábátahöfninni í Hofsbót
fóru lausir hlutir af stað í aust-
anrokinu en að öðru leyti var
rólegt í bænum meðan versta
veðrið gekk yfir.
Samkvæmt upplýsingum frá
vegaeftiriiti Vegagerðar ríkis-
ins á Akureyri var ástand á
vegum á austanverðu Norðurr
landi orðið þokkalegt í gær.
Töluverð hálka var þó enn á
Víkurskarði og á Oxnadals-
heiði en á láglendi hafði svell
að miklu leyti tekið af vegum.
JÓH
hálfum til heilum sólarhring
seinna en til stóð. Mývetningar
lentu í basli og þurftu að skilja
eftir bíl í Herðubreiðalindum.
Ekkert ferðaveður var á hálend-
inu á sunnudag, að sögn Ingvars
Sveinbjörnsson hjá Bílaþjón-
ustunni á Húsavík. Hann var
með hóp fimm bíla sem fóru á
Hveravelli, Ingólfsskála og
Laugafell um helgina. Ingvar
sagði að ekkert hefði amað að
mönnum með nægan og góðan
útbúnað. Hann sagði mjög lítinn
snjó vera á hálendinu og að mikil
hálka, glærasvell, væri á vegum
í byggð. IM
Mikil aðsókn hefur verið að sýningum Leikfélags Akureyrar á Línu langsokk. En það eiga ekki öll börn heiman-
gengt, m.a. þau sem þurfa að dvelja á sjúkrahúsi. Til að bæta þeim það upp birtust löggurnar, Hængur og Klængur,
í óvænta heimsókn á FSA sl. sunnudag. Andri Freyr Magnússon, 8 ára Akureyringur, hlustar af athygli á Hæng.
Mynd: Robyn
Kaupfélag Eyfirðinga fyrst samvinnufélaga með opið hlutaprútboð sem hefst í dag:
Stefnt að greiðslu 15 prósenta
arðs til eigenda hlutabréfanna
- „erum að bjóða bréf í einu stærsta og sterkasta fyrirtæki landsins.“
„Að mínu mati eru þetta sterk
bréf. Þarna erum við að bjóða
út hlutafé í fyrirtæki sem er í
hópi þeirra stærstu á landinu
og í hópi þeirra sterkustu. Ef
horft er á þá þætti þá eru ekki
mörg sambærileg bréf í boði á
landinu,“ segir Magnús Gauti
Gautason, kaupfélagstjóri
Kaupfélags Eyfirðinga, en í
dag hefst fyrsta hlutafjárútboð
félagsins. í boði eru 50 milljón-
ir króna að nafnverði á geng-
inu 2,25 eða 112,5 milljónir að
söluverði. (Jtboðið mun
standa næstu þrjá mánuði en
stefnt er að því að eigendum
þessara bréfa verði greiddur
15% arður af þeim. Þá munu
þessi bréf veita skattaafslátt og
lúta öðrum þeim reglum sem
gilda um hlutabréf.
Samkvæmt upplýsingum frá
Kaupfélagi Eyfirðinga er tilgang-
ur með útboðinu þríþættur. f
fyrsta lagi að styrkja eiginfjár-
stöðu félagsins, í öðru lagi að afla
félaginu þannig áhættufjár til
fjárfestinga í atvinnurekstri og í
Kona á Akureyri kærir upp-
sögn til Jafiiréttisráðs
- verður tekið fyrir nk. föstudag
Jafnréttisráði hefur borist
kæra frá konu á Akureyri
vegna þess að henni var sagt
upp starfl og vísað til stjórn-
skipulagsbreytinga á vinnu-
stað. Konan telur að með upp-
Tilboð í þrotabú Kjarabótar á Húsavík:
Ámi og Hannes hæstir
Ámi G. Gunnarsson og Hannes
Höskuldsson, aðaleigendur
Skipaafgreiðslu Húsavíkur hf.,
eru hæstbjóðendur í eignir
þrotahús Kjarabótar hf. í gær
sagðist Árni vera bjartsýnn á
að gengið yrði endanlega frá
kaupsamningi síðdegis í gær
eða í dag.
Árni og Hannes, ásamt fjöl-
skyldum sínum, hyggjast kaupa
verslunarhúsnæðið að Garðars-
braut 62, ásamt áhöldum, tækj-
um og lager og eru með verslun-
arrekstur í huga.
Matvörumarkaðnum Kjarabót
hf. var lokað um síðustu mánaða-
mót og fyrirtækið úrskurðað
gjaldþrota. IM
sögninni hafí verið brotin 6.
grein Jafnréttislaga.
Birna Hreiðarsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Jafnréttisráðs,
staðfesti að þessi kæra hafi borist
og sagði að hún yrði tekin fyrir á
fundi Kærunefndar Jafnréttisráðs
nk. föstudag. Hún sagði að á
þeim fundi yrði málið fyrst og
fremst kynnt, en ekki væri að
vænta niðurstöðu Kærunefndar
að svo stöddu.
Birna sagði að um 20 álíka mál
hafi borist Kærunefnd Jafnréttis-
ráðs það sem af er þessu ári.
Eins og áður segir vísar konan
til 6. greinar Jafnréttislaga, 3. og
4. lið. Þar kemur fram að
atvinnurekendum sé óheimilt að
mismuna starfsfólki eftir kynferði
og gildi það m.a. um stöðuhækk-
un og stöðubreytingar og upp-
sögn úr starfi. óþh
þriðja lagi að byggja upp markað
fyrir hlutabréf félagsins og gefa
því þannig möguleika á að afla
sér aukins fjármagns í formi
hlutfjár í framtíðinni.
Til að gera hlutabréfin að eftir-
sóttum fjárfestingarkosti hefur
stjórn félagins mótað hluthafa-
stefnu og er stefnt að því að hlut-
höfum verði greiddur 15% arður
af bréfunum og að nýttar verði
heimildir á hverjum tíma til
útgáfu jöfnunarhlutabréfa. Þá
mun félagið sækja um skráningu
hlutabréfanna á Verðbréfaþingi
íslands til að stuðla þannig að
virkum markaðsviðskiptum með
hlutabréfin.
Magnús Gauti sagði í gær að
líklegt sé að eigendur bréfa úr
þessu fyrsta útboði fái 15% arð af
bréfunum vegna þess hve lítið
útboðið er miðað við efnahag
félagsins.
„Þetta skiptir okkur miklu
máli. Fyrsta útboðið hefur enga
afgerandi þýðingu fyrir fjárhags-
lega stöðu félagsins heldur opnar
fyrst og fremst farveg fyrir fjár-
magn inn í fyrirtækið og býr til
markað fyrir hlutabréf í KEA. í
framtíðinni getum við leitað eftir
áhættufé og styrkt okkar stöðu til
jafns við hlutafélögin. Þetta er
því mikilvægt skref til lengri tíma
litið,“ sagði Magnús Gauti.
Hann segir rennt blint í sjóinn
varðandi sókn einstaklinga í þessi
bréf. Könnun leiddi á hinn bóg-
inn í ljós mikinn áhuga stærri
fjárfesta á markaðnum. „En
vissulega geri ég mér vonir um að
einstaklingar kaupi þessi bréf í
verulegum mæli, sérstaklega fólk
hér á Eyjafjarðarsvæðinu sem
þekkir best til okkar.“
Velta KEA var á síðasta ári
um 8,8 milljarðar króna og nam |
eigið fé í árslok 2,8 milljörðum
króna. Hagnaður var þá 54 millj-
ónir króna en áætlað er nú að
hagnaðurinn verði í ár um 60
milljónir.
Útboð KEA er hið fyrsta sem
er opið eftir að samvinnufélögum
varð heimilt að bjóða hlutabréf á
markaði. Útboðið er í höndum
Kaupþings hf. en auk þess munu
Kaupþing Norðurlands hf., Verð-
bréfamarkaður íslandsbanka og
Verðbréfaviðskipti Samvinnu-
bankans sjá um sölu bréfanna.
JÓH
Akureyri:
Smáþjófnaðir
færast í vöxt
Gunnar Randversson, varð-
stjóri hjá lögreglunni á Akur-
eyri, segir að smáþjófnaðir í
bænum hafi færst nokkuð í
vöxt að undanförnu. Fyrst og
fremst eru það unglingar sem
að verki eru.
í fyrrakvöld var farið inn í hús
í bænum og þaðan stolið vínfleyg
og kartoni af amerísku tyggi-
gúmmíi. Þetta innbrot var í gær
óupplýst.
„Það hefur borið á því að ungl-
ingar hafi verið á ferðinni og stol-
ið úr yfirhöfnum víða í bænum.
Þetta hefur verið nokkuð algengt
og þá á þeim stöðum þar sem fólk
kemur saman, s.s. í íþróttahús-
um og á opinberum stöðum.
Rannsóknarlögreglunni hefur
tekist að upplýsa mikið af þessum
málum og oft er það þannig að
sömu aðilarnir eru á ferð í mörg-
um málum,“ sagði Gunnar Rand-
versson.
Hann sagði ástæðu til að benda
fólki á að skilja aldrei við yfir-
hafnir með verðmæti í eða verð-
mæta muni þar sem fingralangir
eigi þess kost að láta greipar
sópa. JOH