Dagur - 01.12.1992, Qupperneq 8
8 - DAGUR - Þriðjudagur 1. desember 1992
ÍÞRÓTTIR
Þýska knattspyrnan
Urslit:
Wattenscheid-Leverkusen 1:3
Dresden-Schalke 1:0
Bremen-Saarbrúcken 2:0
Frankfurt-Uerdingen 1:0
Kauserslautern-HSV 2:2
Mönchengladbach-Stuttgart 1:1
Köln-Bochum 1:0
Dortmund-Núrnberg 4:2
Bayern Múnchen-Karlsruhe 3:3
Staðan:
Bayern Múnchen 15 9-5-1 33:18 24
Frankfurt 15 7-7-1 27:16 21
Bremen 15 8-5-2 26:18 21
Karlsruhe 15 8-3-4 34:27 19
Leverkusen 15 6-6-3 30:16 18
Dortmund 15 8-2-5 28:2118
Stuttgart 15 6-5-4 22:21 17
Kaiserslautcrn 15 7-2-6 26:17 16
Dresden 15 5-5-5 19:21 15
Núrnberg 15 6-3-6 15:18 15
HSV 15 3-7-5 19:20 13
Saarbrúcken 15 4-5-6 21:25 13
Schalke 15 4-5-6 16:22 13
Köln 15 5-1-9 18:26 11
Wattenscheid 15 3-4-8 22:33 10
Mönchengladbach 15 2-6-7 19:31 10
Uerdingen 15 3-4-8 15:30 10
Bochum 15 1-5-9 16:27 7
Handbolti 1. deild
Úrslit í 12. umferð:
ÍBV-Haukar 25:26
KA-Valur 24:24
FH-ÍR 33:23
Stjarnan-Selfoss 21:21
Víkingur-HK 24:16
Fram-Þór frestað, verður 2. des.
IR-IBV, 11. umferð frestað,
verður 4. des.
ÍBV-Valur færður frá 16. des. til 1. des.
vegna leikja heimsliðsins
Staðan:
FH 12 8-2-2 318:283 18
Valur 12 6-5-1 273:247 17
Stjarnan 12 7-3-2 297:289 17
Selfoss 12 6-3-3 312:293 15
Víkingur 12 7-0-5 278:267 14
Haukar 12 6-1-5 313:293 13
ÍR 11 4-2-5 262:264 10
Þór 11 4-2-5 270:283 10
KA 12 4-2-6 266:279 10
HK 12 3-1-8 278:305 7
ÍBV 112-2-7 245:274 6
Fram 11 1-1-9 255:290 3
Körfuknattleikur
úrvalsdeild
Úrslit:
Breiðabtik-Haukar 79:86
Grindavík-Valur 79:83
Snæfell-Skallagrímur 92:86
Staðan:
A-riðill:
ÍBK 11 11 0 1192: 961 22
Haukar 11 9 2 980: 882 18
Njarðvík 11 5 6 977: 996 10
Tindastóll 11 4 7 951:1049 8
UBK 11 1 10 923:1042 2
B-riðill
Valur 12 8 4 990:976 16
Snæfell 11 6 5 972:978 12
Grindavík 12 5 7 995:991 10
Skallagrímur 114 7 959:985 8
KR 113 8 881:961 6
Körfuknattleikur
1. deild, kvenna
Úrslit:
KR-Tindastóll 55:41
Njarðvík-Tindastóll 32:64
Grindavík-ÍS 48:46
Staðan:
Keflavík 7 7-0 588:386 14
KR 8 5-3 501:420 10
Grindavík 8 5-3 522:538 10
ÍR 7 4-3 441-380 8
Tindastóll 9 4-5 495:553 8
ÍS 7 2-5 321-354 4
Njarðvík 8 0-8 304:545 0
Ejjólfur skoraði mark
- jafntefli í toppslagnum í Miinchen
Christof Daum, þjálfari VFB
Stuttgart, gaf Eyjólfi Sverris-
syni aftur tækifæri á að leika
með frá byrjun, þegar Stutt-
gart sótti Borussia Mönchen-
gladbach heim í 15. umferð
Þýsku úrvalsdeildarinnar í
knattspyrnu sl. laugardag.
Eyjólfur þakkaði fyrir sig með
því að skora eina mark Stutt-
gart í leiknum, á 92. mín. Þá
höfðu heimamenn þegar skor-
að eitt mark og þar var Pflip-
sen að verki, á 47. mín.
Eyjólfur stóð sig mjög vel og í
fyrri hálfleiknum skoraði hann
stórglæsilegt mark með hörku-
skoti efst í markhornið af 20
metra færi, sem dæmt var af,
vegna þess að Gaudinio hafði
brotið af sér þar sem boltinn var
víðs fjarri. Leikurinn endaði því
með jafntefli og verða það að
teljast nokkuð sanngjörn úrslit.
Stuttgart tapaði þarna dýrmætu
stigi í baráttunni um að komast í
Evrópukeppni félagsliða, en til
þess að ná því takmarki þarf liðið
að verða í einu af fimm efstu sæt-
unum. Það er athyglisvert að
Stuttgart hefur enn ekki unnið
leik á útivelli í vetur og líkurnar á
því að liðið nái að verja meistara-
titilinn eru hverfandi. Eyjólfur
stóð sig eins og áður sagði, ljóm-
andi vel og vonandi heldur hann
sæti sínu í liðinu áfram. Af sex
síðustu mörkunum sem Suttgart
hefur skoraði í deildinni, hefur
Eyjólfur gert fjögur og lagt upp
eitt og hann er nú næst marka-
hæsti leikmaður liðsins.
■ Skemmtilegasti leikur
umferðarinnar var toppslagur
Bayern Munchen og Karlsruhe í
Munchen. Leikurinn var einstak-
lega vel leikinn, sérstaklega af
hálfu Bayern, en leikmenn Karls-
ruhe sýndu gífurlegan karakter
og náðu að jafna leikinn eftir að
hafa lent undir í tvígang, fyrst
2:0, og síðan 3:2. Fyrri hálf-
leikurinn var sérstaklega
skemmtilegur og þá fóru leik-
menn Bayern, með Lothar Matt-
háus, sem óðum er að komast í
sitt gamla form, fremstan í
flokki, á kostum. Fyrsta mark
leiksins var einkar glæsilegt. Fal-
leg sókn Bayern endaði með því
að Matthaus gaf fallega sendingu
fyrir markið og Brasilíumaðurinn
Mazhino hamraði knöttinn við-
stöðulaust í netið. Á 20. mín.
skoraði Ziege annað mark
Bayern. Hann átti gott skot fyrir
utan vítateiginn, sem hafnaði í
stönginni og fór þaðan í höfuð
Kahn, markvarðar Karlruhe, og
þaðan í netið. Rússinn Schmarow
minnkaði muninn fyrir Karls-
ruhe, með marki á 22. mín. og á
40. mín. hugðist einn leikmanna
Karlsruhe gefa boltann fyrir
markið, en skaut í Kreuzer, varn-
armann Bayern, og af honum
hrökk boltinn í netið. Um miðjan
síðari hálfleikinn komst Bayern
síðan aftur yfir. Mattháus lék
glæsilega í gegnum vörn Kairls-
ruhe og skoraði síðan með góðu
skoti frá markteig. Á 84. mín.
jafnaði síðan Schutterle leikinn
með skoti af löngu færþ sem
Aumann markvörður Baýern
missti undir sig, og leikurinn end-
aði því með jafntefli, 3:3.
■ Leikur Borussia Dortmund og
Nurnberg, sem fram fór í
Dortmund, var einnig mjög
fjörugur. Eckstein náði foryst-
unni fyrir gestina á 14. mín. og
skömmu síðar var einn leikmanna
Dortmund rekinn af velli. Leik-
menn Dortmund gáfust þó ekki
upp og strax í upphafi síðari hálf-
leiks jafnaði Lusch leikinn.
Kramny kom síðan Nurnberg aft-
ur yfir á 63. mín. Á 74. mín. var
brotið á Chapuisat, rétt utan víta-
teigs, en öllum á óvart dæmdi
dómarinn vítaspyrnu, sem Zork
fyrirliði Dortmund skoraði af
öryggi úr. Leikmenn Nurnberg
virtust hafa sætt sig við jafntefli,
þegar Reinhardt skoraði drauma-
mark fyrir Dortmund af 20 metra
færi efst í markhornið á 89. mín.
og mínútu síðar skoraði síðan
Chapuisat fjórða mark Dort-
mund og þar við sat.
■ Frankfurt náði að minnka
forskot Bayern Múnchen niður í
tvö stig, með því að vinna Bayern
Uerdingen á heimavelli 1:0.
Schmitt skoraði eina mark leiks-
ins á 17. mín.
■ Köln vann gífurlega mikilvæg-
an sigur á Bochum, 1:0, í botn-
baráttunni og eftir þessa umferð
er liðið í fyrsta sinn í vetur ekki í
fallsæti, þ.e.a.s. í einu af þremur
neðstu sætunum. Greiner skoraði
mark Kölnar á 26. mín. Staða
Bochum á botninum er orðin
mjög alvarleg. Liðið hefur aðeins
hlotið sjö stig, þremur stigum
minna en liðin í sætunum þar fyr-
ir ofan.
■ Allt virtist stefna í öruggan
sigur Kaiserslautern, þegar liðið
fékk Hamborgara í heimsókn.
Marin og Witeczek skoruðu tvö
mörk fyrir heimamenn í fyrri
hálfleik og síðan var einn
leikmaður gestanna rekinn af
leikvelli. En leikmenn Hamburg-
er gáfust ekki upp og Spörl og
Thomas von Hessen náðu að
jafna metin. Undir lok leiksins áttu
Hamborgarar síðan skot í stöng og
þegar upp var staðið voru það
leikmenn Kaiserslautern sem
gátu þakkað fyrir annað stigið.
■ Á föstudagskvöldið fengu
leikmenn Wattenscheid, Lever-
kusen í heimsókn. Souleymann
Sane frá Senegal skoraði eina
mark heimamanna í leiknum^ en
leikmönnum Leverkusen tókst
'að skora þrjú. Þar vorú þeir
|Fischer, Hapal og Wöms: að
verki.
■ Á sama tíma vann Dresden,
Scahlke á heimavelli, 1:0.
Maucksch skoraði mark Dresden
á 37. mín.
■ í Bremen mættust Werder og
Saarbrúcken. Með liði : Saar-
brúcken leikur Stefan Becken-
bauer, sonur Franz keisara.Beck-
enbauer. Hann þykir nokkuð
góður leikmaður, þó svo að hann
nái ekki að feta í fótspor föður
síns, sem var einn allra besti
knattspyrnumaður Þýskalands
fyrr og síðar. í leiknum gegn
Werder var hann mjög áberandi.
Fyrst braut hann á Rufer innan
vítateigs sem leiddi til þess að
Werder náði forystu með marki
Rufer, sem tók vítaspymuna
sjálfur, og síðan fékk hann að líta
rauða spjaldið fyrir að nöldra í
dómaranum undir lok leiksins.
Skömmu áður höfðu leikmenn
Werder bætt öðru marki við og
þar var að verki varamaðurinn
Kohn.
Eyjólfur Sverrisson þakkaði fyrir tækifærið hjá Stuttgart, lék vel og skoraði.
Handknattleikslið íslands valið:
Leikið við Dani, Portúgali
og Hoilendinga í Danmörku
Landsliðsnefnd HSI tilkynnti í
gær það landslið sem leikur á
4ja liða móti í Danmörku dag-
ana 4.-6. desember nk. Mót-
herjarnir verða landslið Dan-
merkur, Portúgals og
Hollands. Af þeim ástæðum
verður hlé á deildarkeppninni
hér til fimmtudagsins 10. des-
ember nk. en þá tekur Þór á
móti Víkingi í íþróttahöllinni
en KA leikur á Selfossi gegn
heimamönnum.
Landslið íslands verður skipað
eftirtöldum leikmönnum:
Markverðir:
Bergsveinn Bergsveinsson FH
Guðmundur Hrafnkelsson Val
Aðrir leikmenn:
Gunnar Beinteinsson FH
Sigurjón Bjarnason Selfossi
Hálfdán Þórðarson FH
Gústaf Bjarnason Selfossi
Valdimar Grímsson Val, fyrirliði
Sigurður Sveinsson FH
Einar Gunnar Sigurðsson Selfossi
Dagur Sigurðsson Val
Guðjón Árnason FH
Gunnar Gunnarsson Víkingi
Sigurður Sveinsson Selfossi
Magnús Sigurðsson Stjörnunni
Liðið heldur til Danmerkur
nk. fimmtudagsmorgun. GG