Dagur - 01.12.1992, Page 10
10 - DAGUR - Þriðjudagur 1. desember 1992
ENSKA KNATTSPYRNAN__________________________________Þorleifur Ananíasson
Norwich eykur forystuna
- Liverpool að komast á flug - ekkert gengur hjá Nottingham For.
Alan Shearer skoraði sigurmark Blackburn gegn Q.P.R.
Það hefði engan orað fyrir þvi \
í haust þegar keppni hófst í \
ensku knattspyrnunni að í lok
nóvember yrði Norwich með
öruggt forskot í Úrvalsdeild-
inni og nýliðar Blackburn í
öðru sæti. Það sannast nú enn
einu sinni að knattspyrnan er
óútreiknanleg, ekki síst í Eng-
landi, en það er raunar ein
aðal ástæðan fyrir vinsældum
hennar. En þá koma leikir
laugardagsins.
■ Ovæntustu úrslit dagsins urðu
í leik Aston Villa á heimavelli
gegn Norwich. Villa liðinu hefur
gengið mjög vel að undanförnu
en framkvæmdastjóri þeirra Roi
Atkinson hefur þó látið hafa eftii
sér að allt tal um meistaratitil nú
sé út í hött. Norwich hefur komið
gífurlega á óvart, en í Iiðinu eru
engar stjörnur, en leikmenn liðs-
ins leika hver fyrir annan og gef-
ast aldrei upp. Eftir aðeins hálf-
tíma leik hafði Norwich komist í
2:0 með mörkum David Phillips
og Darren Beckford og komu
bæði mörkin eftir varnarmistök
hjá Villa, mark Beckford kom
eftir að Nigel Spink í marki Villa
hafði misst frá sér hornspyrnu. Á
síðustu mín. fyrri hálfleiks náði
Ray Houghton að minnka muninn
með marki fyrir Villa og á fyrstu
mín. síðari hálfleiks jafnaði
Garry Parker nteð skoti í stöng
og inn. En vörn Villa sem sakn-
aði greinilega Shaun Teaie sem
var meiddur var óörugg í leikn-
um og aðeins mín. síðar skoraði
Daryl Sutch sigurmark Norwich.
■ Við sáum lið Manchester Utd.
vinna góðan sigur á útivelli er lið-
ið sigraði Arsenal með eina
marki leiksins og var sá sigur
fyllilega sanngjarn. Eric Cantona
sem Man. Utd. keypti frá Leeds
Utd. í vikunni horfði á leikinn úr
stúkunni og hefur örugglega velt
fyrir sér hvernig hann kæmist í lið
Man. Utd. og það verður ekki
auðvelt eins og liðið leikur nú.
Mark Hughes skoraði sigurmark
Man. Utd. á 27. mín. eftir að
Ryan Giggs hafði átt skot í stöng,
en Lee Sharpe náði boltanum og
kom honum fyrir markið þar sem
Hughes kom honum inn. Arsenal
Úrslit
Úrvalsdeildin
Arscnal-Manchester Utd. 0:1
Aston Villa-Norwich 2:3
Blackburn-Q.P.R. 1:0
Ipswich-Evcrton 1:0
Livcrpool-Crystal Palace 5:0
Manchcstcr City-Tottcnham 0:1
Nottingham For.-Southampton 1:2
Oldham-Middlcsbrough 4:1
Sheffield Utd.-Coventry 1:1
Wimbledon-Sheffield Wed. 1:1
Chelsea-Leeds Utd. 1:0
1. deild
Barnslcy-Charlton 1:0
Brentford-Oxford 1:0
Bristol City-Notts County 1:0
Derby-I'ranmere 1:2
Leicester-Bristol Rovers 0:1
Newcastle-Cambridge 4:1
Portsmouth-Millwall 1:0
Southcnd-Sunderland 0:1
West Ham-Birmingham 3:1
Wolves-Grimsby 2:1
Luton-Watford 2:0
Peterborough-Swindon 3:3
Úrslit í vikunni:
Úrvalsdeildin
Q.P.R.-Liverpool 0:1
liðið náði aldrei að ógna gestun-
um og sóknarleikur liðsins var
fremur slappur. Það er hins vegar
greinilegt að Manchester liðið
ætlar sér stóra hluti og hefur svo
sannarlega mannskapinn til þess.
■ Blackburn nýtti sér tapið hjá
Arsenal og skaust uppí annað
sætið með 1:0 heimasigri á
Q.P.R. Mikill baráttuleikur þar
sem ekkert var gefið eftir. Alan
Shearer skoraði sigurmark
Blackburn á 16. mín. eftir auka-
spyrnu að marki Q.P.R. og fór
boltinn af mjöðminni á honum í
netið. Shearer varð síðan að yfir-
gefa völlinn meiddur fljótt eftir
hlé, enda fékk hann slæma með-
ferð hjá Darren Peacock mið-
verði Q.P.R. í leiknum. Roy
Wegerle fékk síðan gullið tæki-
færi til þess að bæta við öðru
marki Blackburn undir lokin, en
mistókst gegn sínum gömlu
félögum. Blackburn liðið lék
mjög vel í leiknum og verður
örugglega með í baráttunni um
meistaratitilinn í vor.
■ Liverpool liðið átti stórleik
gegn Crystal Palace og drifið
áfram af John Barnes vann liðið
stórsigur. Hinir ungu leikmenn
liðsins eru að verða mjög sterkir
og má búast við miklu af liðinu í
Eftir mjög góðan leik Eng-
landsmeistara Leeds Utd. gegn
Arsenal þar sem vonir voru
vaktar um bjartari tíð, fannst
aðdáendum félagsins salan á
Eric Cantona fyrir £ 1.2 millj-
ónir sem högg í andlitið. Hann
var í miklu uppáhaldi hjá
stuðningsmönnum liðsins og
að hann skyldi seldur til erki-
féndanna Man. Utd. tók stein-
inn úr. Howard Wilkinson
vonaði því að sigur næðist á
útivelli gegn Chelsea á sunnu-
dag til þess að lækka óánægju-
öldurnar.
Ekki varð Wilkinson að ósk
sinni þar sem Chelsea náði að
knýja fram sigur í heldur lélegum
leik og var sigurmarkið skorað er
um 3 mín. voru til leiksloka.
Leikurinn var því sem salt í
sárin hjá aðdáendum Leeds Utd.
og hætt er við því að Wilkinson
hafi tapað einhverjum af þeim
náinni framtíð. Steve McMana-
man skallaði inn fyrsta markið
eftir sendingu Barnes og Mike
Marsh bætti öðru markinu við
eftir góðan samleik með skoti af
um 20 metra færi. McManaman
bætti þriðja markinu við eftir
mistök Nigel Martyn í markinu
hjá Palace fyrir hlé. Palace hóf
síðari hálfleikinn vel og Eddie
McGoldrick misnotaði tvö góð
færi fyrir liðið, en síðan tók
Liverpool völdin að nýju og bætti
við tveim mörkum. Ronnie
Rosenthal afgreiddi sendingu
March í netið af suttu færi og
Don Hutchinson átti síðan loka-
orðið með lágskoti í bláhornið.
Liðin mætast aftur á sama stað á
þriðjudag í Deildabikarnum og
vafamál að leikmenn Palace
hlakki til þess leiks
■ Það gengur hvorki né rekur
hjá Nottingham For. sem tapar
hverjum leiknum á fætur öðrum
þrátt fyrir að vera betra liðið í
mörgum leikjunum. Liðið er áfram
í neðsta sætinu eftir tap á heima-
velli gegn Southampton 1:2 í leik
sem liðið átti að vinna. Matthew
Le Tissier náði forystu fyrir Sout-
hampton í leiknum, en Nigel
Clough náði að jafna fyrir Forest
2 mín. fyrir hlé. Forest liðið lék
miklu vinsældum sem hann nýtur
á Elland Road.
Gary Speed fékk ágætt færi í
upphafi leiksins eftir að Lee
Chapman hafði skallað til hans
boltann, en Kevin Hitchcock í
marki Chelsea varði vel. Hitch-
cock varði síðan hörkuskalla frá
Chapman undir lok fyrri hálf-
leiks. Leikmenn Leeds Utd.
beittu óspart rangstöðutaktík í
leiknum og fyrir vikið varð hann
aldrei skemmtilegur. Robert
Fleck hinn eldfljóti miðherji
Chelsea komst tvívegis í gegnum
vörn Leeds Utd., en John Lukic
markvörður náði að bjarga í bæði
skiptin auk þess sem hann varði
vel hörkuskot frá Fleck í fyrri
hálfleiknum.
Stðari hálfleikurinn var nær
allur í eigu Leeds Utd. sem hélt
uppi nokkurri pressu, en leik-
menn liðsins náðu aldrei að
skapa sér nægilega góð færi.
Gary McAllister náði þó skoti af
mjög vel í síðari hálfleik, en gegn
gangi leiksins skoraði Micky
Adams sigurmark Southampton
og til að kóróna ólán Forest varði
Tim Flowers markvörður Sout-
hampton vítaspyrnu frá Stuart
Pearce fyrirliða Forest á síðustu
mín. leiksins.
■ Tottenham liðið er nú komið
vel í gang eftir slaka byrjun og
vinnur nú hvern leikinn af
öðrum. Á laugardag vann liðið
nokkuð óvæntan sigur á útivelli
gegn Man. City með eina marki
leiksins á 77. mín. Kevin Watson
átti þá skot að marki City sem
hafnaði í bakverðinum Terry
Phelan, breytti um stefnu og
Tony Coton markvörður Man.
City átti ekki möguleika á að
verja. Leikmenn City voru
óheppnir, en hið unga lið Totten-
ham á heiður skilinn fyrir mikla
baráttu og leikgleði.
■ Oldham vann öruggan sigur
gegn Middlesbrough eftir að hafa
orðið undir er Willie Falconer
skoraði fyrir Middlesbrough.
Gunnar Halle, Neil Pointon og
Graeme Sharp höfðu þó komið
Oldham í 3:1 fyrir hlé. Bæði lið
hefðu getað bætt við mörkum f
síðari hálfleik, en eina markið
gerði Neil Adams fyrir Oldham
John Barnes er koniinn aftur og um
leið er Liverpoolliðið komið í gang.
stuttu færi sem Hitchcock í marki
Chelsea varði vel og Rodney
Wallace skapaði oft hættu í víta-
teig Chelsea með hraða sínum og
leikni.
Það virtist ekkert geta komið í
veg fyrir markalaust jafntefli er
aðeins 3 mín. voru til leiksloka
og Chelsea hafði varla ógnað
marki Leeds Utd. í síðari hálf-
leik. Þá komst liðið í sókn, bolt-
inn barst inní teiginn hjá Leeds
Utd. þar sem Jon Newsome
varnarmaður Leeds Utd. og
Dennis Wise börðust um boltann
sem féll fyrir fætur Andy Town-
send sem þrumaði honum í netið,
óverjandi fyrir John Lukic.
Mikið fjör var síðustu mín.
leiksins og hefðu bæði lið getað
bætt við mörkum, en þau hefðu
betur tekið við sér fyrr. Town-
send sagði eftir leikinn að heppnin
hefði verið með liði sínu og jafn-
teflið hefði verið réttlátari úrslit.
Þ.L.A.
með glæsilegu skoti og tryggði
liði sínu 4:1 sigur.
■ Everton tapar nú hverjum
leiknum á fætur öðrum og ekkert
annað en fall bíður liðsins ef ekki
verður breyting til batnaðar fljót-
lega. Gavin Johnson skoraði
sigurmarkið fyrir nýliða Ipswich í
síðari hálfleiknum gegn Everton.
■ Vinnie Jones tryggði liði sínu
Wimbledon jafntefli á heimavelli
gegn Sheffield Wed. er hann
jafnaði úr vítaspyrnu undir lokin.
Chris Bart-Williams hafði náð
forystunni fyrir Sheff. Wed. í
fyrri hálfleiknum.
É Carl Bradshaw leikmaður
Sheffield Utd. var rekinn útaf í
leik liðsins gegn Coventry. Mick
Quinn náði forystu fyrir Coventry
í upphafi leiks með þriðja marki
sínu í tveim leikjum eftir að hann
var fenginn að láni frá Newcastle.
Andy Pearce með sjálfsmarki
jafnaði síðan fyrir Sheff. Utd. í
síðari hálfleik og þar við sat.
1. deild
■ I 1. deildinni er Newcastle
sem fyrr langefst og David Kelly
skoraði þrennu fyrir liðið gegn
Cambridge.
■ West Ham sigraði Birming-
ham 3:1 eftir að hafa lent marki
undir, Clive Allen skoraði tvö og
Trevor Morley eitt fyrir liðið.
■ Paul Kitson kom Derby yfir
gegn Tranmere, en John Aldridge
svaraði með tveim mörkum fyrir
Tranmere.
■ Derek Mountfield og Steve
Bull tryggðu Úlfunum sigurinn
gegn Grimsby. Þ.L.A.
Staðan
Úrvalsdeildin
Norwich 17 11- 3- 3 32:30 36
Blackbum 17 8- 7- 2 27:1131
Arsenal 17 9- 2- 6 22:1729
Aston Villa 17 7- 7- 3 26:18 28
Chelsea 17 8- 4- 5 24:18 28
Man. Utd. 17 7- 6- 4 18:12 27
QPR 17 7- 5- 5 22:17 26
Man. City 17 7- 4- 6 24:17 25
Liverpool 17 7- 4- 6 30:24 25
Ipswich 17 5-10- 2 22:19 25
Coventry 17 6- 6- 5 21:22 24
Tottenham 17 5- 7- 5 17:22 22
Lecds 17 5- 6- 6 28:28 21
Middlesbrough 17 5- 6- 6 26:28 21
Sheff. Wed. 17 4- 8- 5 18:21 20
Southampton 17 4- 7- 6 15:19 19
Oldham 17 4- 6- 7 27:30 18
Sheff. Utd. 17 4- 6- 7 17:24 18
Everton 17 4- 4- 9 13:21 16
Wimblcdon 17 3- 6- 8 19:26 15
Crystal Palace 17 1- 9- 7 20:27 12
Nottingham Forest 17 2- 5-1013:2711
1. deild
Newcastle 18 15-1- 2/38:14 46
Tranmere 18 104- 4 32:20 34
West Ham 18 10-3- 5 33:17 33
Swindon 19 9-6- 4 36:28 33
Wolves 19 8-8- 3 32:19 32
Millwall 18 8-6- 4 28:16 30
Portsmouth 18 8-5- 5 29:23 29
Grimsby 18 84- 6 28:2128
Leicester 19 84- 7 22:23 28
Peterborough 18 7-5- 5 28:24 26
Charlton 19 7-5- 7 22:19 26
Bamsley 18 7-3- 8 22:17 24
Derby 19 7-3- 8 28:24 24
Bristol City 18 7-3- 8 27:38 24
Oxford Unitcd 18 5-8- 5 28:23 23
Watford 19 6-5- 8 26:31 23
Brentford 18 6-4- 8 26:23 22
Sunderland 18 6-3- 9 22:33 21
Birmingham 17 54- 814:2719
Cambridge United 19 4-6- 9 20:37 18
Luton 18 3-7- 8 26:33 16
Notts County 19 3-6-10 21:3915
Southend 18 3-5-10 17:28 14
Bristol Rovers 19 3-4-12 24:4713
Heppnin var með Chelsea
í leiknum gegn Leeds Utd.