Dagur - 02.12.1992, Blaðsíða 1
75. árgangur
Akureyri, miðvikudagur 2. desember 1992
230. tölublað
Vel klæddur
í fötum frá
enrabudin
HAFNARSTRÆTI92 602 AKUREYRI SÍMI96-26708 ■ BOX 397
BERNHARDT
Thc Tailor -I .ook
, Bæjarstjórn Dalvíkur:
Akveðið að lækka útsvar
næsta árs um hálft prósent
Bæjarstjórn Dalvíkur sam-
þykkti á fundi sínum í gær að
lækka útsvar fyrir næsta ár um
hálft prósent, úr 7,5 prósenti í
7 prósent. Kristján Þór
Júlíusson, bæjarstjóri, segir að
með þessari lækkun vilji Dal-
víkurbær koma til móts við
íbúa bæjarins á tímum þreng-
inga og aukinna álaga á
almenning af hálfu ríkisvalds-
ins.
Tillaga um þessa lækkun var
borin upp í bæjarráði og náðist
Húsavík:
Vargfiigls-
eyðingin greidd
Bæjarstjórn Húsavíkur sam-
þykkti aukafjárveitingu til
Heilbrigðiseftirlits Norður-
lands eystra á fundi sínum í
gær. Fjárveitingin er kr.
209,633.- og ætluð til greiðslu
á reikningi fyrir vargfuglseyð-
ingu sem Meindýravarnir
framkvæmdu í feb. - mars sl.
Bæjarstjóri upplýsti að reikn-
ingurinn væri fyrir eyðingu á
82 hröfnum og 162 mávum,
eða samtals 244 fuglum á kr.
859,15 stk. Mun það nema
rúmlega rjúpnaverði í ár.
Reikningur þessi hefur velkst
milli nefnda og ráða mánuðum
saman, og saga hans hefur áður
verið rakin í frétt í Degi. Önnur
sveitarfélög í sýslunni höfðu
greitt jafnháa upphæð vegna
umræddrar vargfuglseyðingar en
bæjarráð á Húsavík neitaði að
greiða reikninginn, þar sem iitið
var á að samkvæmt samningum
ætti Heilbrigðiseftirlitið að
standa straum af eyðingu
vargfugls.
Það var Sveinbjörn Lund (B)
sem bar fram tillögu um auka-
fjárveitinguna. Hann sagði ekki
sanngjarnt að einstaklingurinn
sem vann verkið fengi ekki greitt
fyrir vinnu sína, þar sem um mis-
skilning hefði greinilega verið að
ræða milli manna um greiðslu-
fyrirkomulag er um eyðinguna
var beðið. Átta bæjarfulltrúar
gerðu grein fyrir atkvæði sínu, en
tveir sátu hjá við atkvæða-
greiðsluna, Jón Ásberg (A) og
Hörður (G). IM
Eyjaijörður:
Tvær bflveltur
Tvær bifreiðar fóru út af í gær,
önnur við Akureyri en hin
norðan Dalvíkur, og má rekja
bæði óhöppin til hálku.
Við bæinn Karlsá skammt
norðan Dalvíkur valt bifreið á
svellbunka. Hún var á leið til
Ólafsfjarðar og er talin ónýt
Þrennt var í bílnum og slapp
óskaddað og telur lögreglan að
þar hafi bílbelti sannað ágæti sitt.
Bifreið valt út af við bæinn
Steinkot í Kræklingahlíð um
hádegisbilið í gær og er nokkuð
skemmd. Ökumaður var einn í
bílnum og slapp með skrekkinn.
GG
full samstaða um hana þar. Hún'
var síðan staðfest á fundi bæjar-'
stjórnar í gær.
„Við teljum að sé full ástæða
til að lækka útsvarsprósentuna.
Ríkisvaldið hefur lagt miklar
álögur á fólk og því álítum við
það skyldu okkar að létta byrðina
á okkar umbjóðendur. Við met-
um stöðuna þannig að við getum
það,“ sagði Kristján Þór. Hann
sagði að miðað við óbreyttar
rekstrarforsendur þýddi þessi
ákvörðun skertar tekjur bæjar-
sjóðs upp á um 6milljón króna.
En hvað þýðir þetta fyrir Dal-
víkurbæ á næsta ári? Kristján Þór
segir að tvennt komi til greina,
annaðhvort samdrátt í rekstri
bæjarins eða draga saman seglin í
framkvæmdum. „Ég á frekar von
á því að við drögum saman í
rekstrinum. Einnig kemur til
greina að mæta þessu með lán-
töku. Þetta kemur til endur-
skoðunar að ári þegar liggur ljóst
fyrir hvað kemur í staðinn fyrir
aðstöðugjöldin,“ sagði Kristján
Þór.
Jón Gunnarsson, formaður
bæjarráðs, sagði að staða bæjar-
sjóðs væri góð og bæjarráð hafi
metið það svo að full ástæða væri
til að lækka álögur á bæjarbúa,
jafnvel þótt Dalvíkurbær hafi
verið langt undir landsmeðaltali
með skatta af fasteignum íbúa og
fyrirtækja.
Undirbúningur fjárhagsáætl-
unar Dalvíkurbæjar fyrir næsta
ár er í fullum gangi og er stefnt
að því að fyrri umræða verði síð-
ar í þessum mánuði. óþh/GG
Magnús Gauti Gautason, kaupfélagsstjóri KEA, og Jakob Bjarnason, fyrir hönd eignarhaldsfélagsins Hamla,
undirrituöu kaupsamninginn í gærmorgun. Mynd: Robyn
KEA kaupír Kafflbrennsluna
og Eftiaverksmiðjuna Sjöfu
í gærmorgun undirrituðu
Magnús Gauti Gautason,
kaupfélagsstjóri Kaupfélags
Eyfirðinga og Jakob Bjarna-
son, fyrir hönd eignarhaldsfé-
lagsins Hamla, samning um
kaup KEA á 49,9% hlut fyrr-
um Sambandsins í Kaffi-
brennslu Akureyrar og 50%
hlut í Efnaverksmiðjunni
Sjöfn. Samningurinn var
undirritaður með fyrirvara um
samþykki bankaráðs Lands-
banka íslands, en að óbreyttu
tckur Kaupfélag Eyfirðinga
við rekstrinum um miðjan des-
ember.
Magnús Gauti Gautason vildi
ekki gefa upp kaupverð hluta-
bréfanna á þessu stigi.
Um síðustu áramót var bók-
fært verð á helmingshlut KEA í
Efnaverksmiðjunni Sjöfn rúmar
172 milljónir króna, en bókfært
verð á 49,9% hlut í Kaffibrennslu
Akureyrar 88 milljónir króna.
„Þessi kaup eru að okkar mati
réttlætanleg út frá fjárhagslegu
sjónarmiði. Við álítum að þessi
fjárfesting muni skila arði í fram-
tíðinni. Þá viljum við að þessi
fyrirtæki verði áfram á Akureyri
og vaxi og dafni hér,“ sagði
Magnús Gauti.
Hann sagði að á þessu stigi
væru ekki uppi neinar áætlanir
um verulegar breytingar á rekstri
þessara fyrirtækja.
Nú starfa um 10 manns hjá
Kaffibrennslunni og um 60
manns hjá Sjöfn. óþh
Þokkaleg loðnuveiði austan Kolbeinseyjar:
Afskipanir á loðnumjöii í lágmarki vegna
lágs verðs og lítfllar eftirspumar
Allgóð loðna fannst austur af
Koibeinsey sl. föstudag og á
sunnudag var megnið af loðnu-
flotanum kominn þangað af
miðunum norðaustur af Langa-
nesi. í fyrrinótt fékkst þar
, nokkur afli en veiðin hefur geng-
ið nokkuð rysjótt undanfarnar
nætur vegna kaldaskíts eða
brælu og enn er spáð brælu úti
fyrir Norðurlandi. Á mánudag
lönduðu tveir bátar í Krossa-
nesi, Guðmundur Ólafur ÓF
600 tonnum og Súlan EA 500
tonnum og á þriðjudag kom
Sigurður VE með 400 tonn.
Helga II RE, Jón Finnsson
GK, Guðmundur VE, Huginn
VE, Gullberg VE, Víkurberg
GK, ísleifur VE lönduðu í gær
nokkrum slöttum, alls um 3000
tonnum, á Siglufirði, en á mánu-
dag lönduðu þar Faxi RE og
Svanur RE um 500 tonnum. Örn
KE og Sjávarborg GK lönduðu
um 600 tonnum á Raufarhöfn í
gær og Albert GK landaði 150
tonnum á sunnudag, og var það
fyrsta löndunin á Raufarhöfn í
vikutíma.
Á Þórshöfn lönduðu Björg
Jónsdóttir ÞH 550 tonnum og
Kap VE 130 tonnum á mánudag,
en ekki er búist við frekari
Uppinn hf. á Akureyri:
Gjaldþrotabeiöni lögð fram
Inga Þöll Þórgnýsdóttir, lög-
fræðingur Lífeyrissjóðsins
Sameiningar, gerði í gær kröfu
um gjaldþrotaskipti Uppans
hf. á Akureyri, fyrrum
rekstraraðila veitingastaðarins
Uppans, skemmtistaðarins
1929 og Bíóbarsins. Gjald-
þrotabeiðnina lagði hún fram
fyrir hönd Lífeyrissjóðsins
Sameiningar.
Inga Þöll sagði að óskað hafi
verið eftir gjaldþroti vegna van-
goldinna lífeyrisiðgjalda starfs-
manna Uppans hf.
„Það lá einfaldlega fyrir árang-
urslaust fjárnám af hálfu sýslu-
mannsembættisins og á grund-
velli þess gerðum við kröfu um
gjaldþrotaskipti,“ sagði Inga
Þöll.
Eins og fram hefur komið inn-
siglaði sýslumannsembættið á
Akureyri Uppann, 1929 og
Bíóbarinn í síðustu viku vegna
vangoldins virðisaukaskatts og
staðgreiðslu. Innsiglið var rofið í
ljósi þess að Lárus Zophoníasson
hafði keypt allt innbú Uppans hf.
Síðar var skráður nýr rekstrar-
aðili Uppans og 1929, 1929 hf.
Síðdegis í gær hafði gjald-
þrotakrafan ekki verið tekin fyrir
hjá Héraðsdómi Norðurlands
eystra. óþh
löndunum þar meðan loðnan
heldur sig við Kolbeinsey nema
veiði verði það mikil að bátarnir
þurfi að leita lengra til með
landanir.
Verð á loðnumjöli hefur verið
mjög lágt undanfarin misseri og
hafa verið fremur litlar afskipanir
á mjöli frá loðnuverksmiðjunum,
þar sem reynt er í lengstu lög að
fresta afskipunum í þeirri von að
ástandið á heimsmarkaðinum fari
batnandi, en eftirspurn hefur ver-
ið fremur dræm að undanförnu.
Um 1100 tonnum hefur verið
afskipað frá Krossanesverksmiðj-
unni, en nánast allt mjöl sem
framleitt hefur verið á Siglufirði í
haust er farið. Verð á loðnulýsi
hefur farið heldur lækkandi að
undanförnu, en það er selt í doll-
urum og verð á loðnumjöli hefur
einnig verið heldur fallandi en
það er aðallega selt í pundum.
Sérframleitt mjöl frá Síldar-
verksmiðjunum á Seyðisfirði, alls
um 600 tonn, hefur verið flutt frá
Seyðisfirði til geymslu á Siglufirði
en þar eru mjög stórar mjöl-
skemmur. Þetta mjöl, sem sér-
staklega er framleitt fyrir
fiskeldi, fer síðan til Noregs. GG