Dagur - 02.12.1992, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 2. desember 1992 - DAGUR - 7
Nýjar og endurútgefnar bækur hjá Skjaldborg:
Allmargir Norðlendingar
í jólabókaflóðinu
Norðlendingar koma nokkuð
við sögu í útgáfu Skjaldborg-
ar fyrir þessi jói og skal hér
getið þeirra titla sem tengjast
norðlenskum rótum forlags-
ins, auk annarra markverðra
titla. Eins og fram kemur í
viðtalinu við Björn Eiríksson
gefur Skjaldborg út 80 titla og
er af ýmsu að taka, bæði fyrir
börn og fullorðna.
Lítum þá á nokkra titla. Betri
helmingurinn kemur út fjórða
árið í röð og að þessu sinni
segja fimm konur frá. Þrjár
þeirra eru af norðlenskum
ættum.
Dætur regnbogans er tíunda
bók Birgittu Halldórsdóttur á
Syðri-Löngumýri. Að sögn
útgefanda hefur Birgitta vaxið
mjög og hann telur þetta bestu
bók hennar.
Eyrnatog og steinbítstak heit-
ir ævisaga Guðbrands Hlíðars,
dýralæknis. Flakkað um S lönd
og Flóra íslands og N-Evrópu
eru vandaðar og áhugaverðar
bækur.
Hestar og menn er árbók
hestamanna 1992 á sama hátt og
íslensk knattspyrno hefur verið
árbók knattspyrnumanna allt
frá 1981. Hestamenn fá líka
bókina í fararbroddi sem Hjalti
Jón Sveinsson skráði. í bókinni
eru viðtöl við hestamenn um
land allt.
Kóng viljum við hafa er
athyglisverð bók sem vert er að
gefa frekari gaum og Lífsins
dómínó er litrík ævisaga Skúla
Halldórssonar tónskáids.
Örnóifur Ámason skráði magn-
aða sögu, opinskáa og skemmti-
lcga þar sem sagt er frá ýmsum
uppákomum á hispurslausan
hátt.
Þráinn Bertelsson kemur
með skáidsögu eftir nokkuð
langt hlé og nefnist hún Sigla
himinfley. Síðasta bókin um
Pelle sigursæla kemur nú út og
einnig má fá allar fjórar í gjafa-
öskju.
Skriðuföll og snjóflóð I-III er
stórvirki sem Jóhannes Sig-
valdason hefur tekið saman.
Rannsóknir og heimildasöfnun
Ólafs Jónssonar liggja til grund-
vallar en öllum nýrri heimildum
hefur verið bætt við. Þetta er
afskaplega fróðlegt rit og
skemmtilegt, 1300-1400 blað-
síður og eru bækurnar saman í
öskju.
Þeir létu ekki deigan síga er
titill bókar Braga Sigurjónsson-
ar, sem sjálfur lætur ekki deigan
sfga. í bókinni eru þættir um
fimm síldarútvegsmenn á
Norðurlandi. Þórunn Maggý -
miðilsstörf og vitnisburðir er
fróðleg bók fyrir þá sem aðhyll-
ast dulrænum efnum. Þórunn
Maggý segir frá eigin reynslu og
einnig eru í bókinni vitnisburðir
frá fjölmörgum sem hún hefur
hjálpað.
Af barnabókum má nefna
Bók barnanna um dýrin og aðra
um fjölskyldur dýranna. Þetta
eru afar vandaðar, litprentaðar
bækur. Rebbi Qallarefur er
vönduð, íslensk bók og frá
Norðurlandi kemur bókin
Ponni og fuglarnir með texta
Atla Vigfússonar og myndum
Hólmfríðar Bjartmarsdóttur.
Ólafsfirðingurinn Helgi Jóns-
son hefur getið sér gott orð fyrir
unglingabækur sínar. Hann er
kominn með nýja bók. Hún
heitir Myrkur í maí og er spenn-
andi og skemmtilega skrifuð
eins og hinar fyrri. Smyglara-
hellirinn er einnig íslensk bók
og Sumarást og Sunnudagsbarn
eru nýjar léttlestrarbækur.
Stríðnisstelpa er ný bók eftir
Heiðdísi Norðfjörð og Tveir
krakkar og kisa er eftir Jón
Dan. Þá má að lokum geta um
verðlaunað verk Ævintýri H.C.
Andersen í mjög vandaðri og
litskreyttri útgáfu. SS
Vönduðu þýsku
innihurðirnar
nýkomnar aftur
FaUegar hurðir ag
auðveidar í uppsetningu
Ath! Óbreytt ver<f
LÓNSBflKKfl - 601 flKUREYRI
-ct 96-30321, 96-30326, 96-30323
__________FflX 96-27813
Sjálfstæðisfélag Akureyrar
Framhalds-
aðalfundur
verður haldinn fimmtudaginn 3. desember í
Kaupangi við Mýrarveg kl. 20.30.
Fundarefni:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Smækkuð mynd af jólakorti íslands-
dcildar Amnesty International, sem
að sjálfsögðu er í lit.
JólakortAmnesty
Intemational
Islandsdeild mannréttinda-
samtakanna Amnesty Inter-
national hefur nýverið hafið
sölu á jólakorti ársins 1992. Að
þessu sinni er á kortinu mynd
eftir Sigurlaugu Jónasdóttur
(f. 1913) sem listamaðurinn
nefnir „Snjókarlar“ og er hún
frá árinu 1974.
Hin alþjóðlegu samtök hafa nú
starfað í 31 ár. Þeim voru m.a.
veitt friðarverðlaun Nóbels árið
1977. íslandsdeildin hefur starfað
frá árinu 1974 og byggir vaxandi
starfsemi sína eingöngu á félags-
gjöldum, frjálsum framlögum
einstaklinga og samtaka, ásamt
sölu jólakorta.
Hægt er að fá kortin með eða
án jólakveðju. Einnig eru fáanleg
merkispjöld fyrir jólapakka.
Kortin eru seld af félagsmönn-
um um land allt og fást á skrif-
stofu íslandsdeildar Amnesty
International, Hafnarstræti 15 í
Reykjavík. Einnig er tekið á
móti pöntunum, í síma skrif-
stofunnar alla virka daga milli kl.
10-18, í símbréfi eða á símsvara.
Kortin eru seld 10 saman í
pakka og kosta jólakortin 800 kr.
en merkispjöldin 150 kr.
Sími samtakanna er 91-16940
og faxnúmer 91-616940.
Fréttatilkynning
Krakkar!
Eins og þið vitið þá koma jólasveinarnir í heimsókn til KEA á
hverju ári. Þeir skemmta í verslunum KEA, syngja, spila og
segja sögur.
En jólasveinar vilja líka senda ykkur jólakort hvar svo sem þið
búið á félagssvæði KEA. Ef þú skrifar nafn, heimili og aldur
hér að neðan, klippir út miðann og stingur honum í umslag og
merkir það svona:
Fulltrúi jólasveinanna, KEA aðalskrifstofa, 600 Akureyri
þá færð þú jólakort frá jólasveininum.
Þú verður að setja bréfið í póst ekki síðar en 9. desember.
Fyrir hönd
jólasveinanna