Dagur - 02.12.1992, Blaðsíða 4

Dagur - 02.12.1992, Blaðsíða 4
4 - DAGUR - Miðvikudagur 2. desember 1992 ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF. SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 96-24222 ÁSKRIFT KR. 1200ÁMÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ KR. 110 GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMNETRA 765 KR. RITSTJÓRI: BRAGIV. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON BLAÐAMENN: GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON (íþróttir), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 96-41585), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓLI G. JÓHANNSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, SIGRÍÐUR ÞORGRÍMSDÓTTIR (Sauðárkróki vs. 95-35960, fax 95-36130), STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON LJÓSMYNDARI: ROBYN ANNE REDMAN PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF. SÍMFAX: 96-27639 Komið að EES Nú líður að því að Alþingi taki ákvörðun um samning- inn um Evrópska efnahagssvæðið. Ríkisstjórnarflokk- arnir leggja mikla áherslu á að samningurinn verði samþykktur umyrðalaust og hafa alfarið hafnað að leggja hann í dóm þjóðarinnar til samþykkis eða synj- unar. Ráðherrar og einstakir stjórnarþingmenn hafa borið því við að ekki séu fordæmi fyrir að efna til þjóð- aratkvæðagreiðslu um einstök mál er fyrir Alþingi eru lögð. Slíkt sé í raun brot á hefðum um stjórn íslenska ríkisins. Margt mælir á hinn bóginn með því að þjóðin sem heild fengi tækifæri til að taka ákvörðun um þennan samning. Með honum er ísland að ganga til nánara samstarfs við erlendar þjóðir en áður hefur orðið frá því sambandsslitin við Danmörku voru samþykkt. Með samningnum er verið að festa í íslensk lög mörg atriði samræmdra reglugerða Evrópubandalagsins. Einnig er verið að veita erlendum dómstól vald til að fella endanlega dóma í tilteknum málaflokkum er varða samskipti okkar við aðildarríki hins fyrirhugaða efnahagssvæðis. Lögspekinga greinir á um hvort öll ákvæði samningsins standist stjórnarskrá lýðveldisins - sérstaklega II. grein hennar þar sem kveðið er á um að Alþingi og forseti íslands fari með löggjafarvaldið, forseti og önnur stjórnvöld fari með framkvæmdavald- ið og dómendur fari með dómsvaldið. Talsmenn ríkisstjórnarinnar, með utanríkisráðherra í broddi fylkingar, hafa látið í veðri vaka að EES-samn- ingurinn muni skipta sköpum fyrir atvinnu- og efna- hagslíf í landinu í framtíðinni. Á málflutningi þeirra hefur mátt skilja að í honum finnist nánast eina von þjóðarinnar um bættan efnahag. Staðreyndin er hins- vegar sú að samningurinn einn og sér felur enga alls- herjar lausn í sér fyrir íslenskt efnahagslíf og spurn- ingar vakna um hvort atvinnulífið sé nægilega vel búið undir þá samkeppni er af honum leiðir. Islendingum er mikill vandi á höndum hvað samn- inginn um Evrópska efnahagssvæðið varðar. Þeir geta ekki lokað sig af í viðskiptalegu tilliti - hvorki frá Evr- ópu eða öðrum hlutum heims. Þeim er nauðsynlegt að koma afurðum sínum - einkum sjávarafurðum á mark- aði meginlandsins. Öðlist Norðmenn tollfríðindi fyrir sjávarafurðir á Evrópumörkuðum en íslendingar ekki getur það haft erfiðleika og alvarlegar afleiðingar í för með sér. Spurningin er því um hvað menn vilja láta af hendi. Á hvern hátt menn meta kosti og galla þessa samstarfs. ísland hefur mikla sérstöðu hvað önnur ríki Evrópu varðar. Sú sérstaða felst einkum í smæð þjóðarinnar og afar einhæfri framleiðslu hennar. Við höfum fátt að selja úr landi annað en sjávarafurðir og á næstu árum er ljóst að lítil breyting verður á þeirri staðreynd. Af þeim sökum hefði ísland þurft að ná fram mun fleiri sérákvæðum í samningi við Evrópska efnahagssvæð- ið. Nú er einnig ljóst að flest eða öll ríki EFTA utan ísland munu sækja um aðild að Evrópubandalaginu, haldist það á annað borð saman til lengdar. Verði framtíðar- þróun Evrópu með þeim hætti verða íslendingar að undirbúa sig til að ná tvíhliða samningi um viðskipti við ríki EB. Þeir eiga ekkert erindi inn í samruna og reglugerðafrumskóg þess miðstýringarvalds sem nú býr um sig í Brussel. ÞI Ný löggjöf um málefni fatlaðra: Sveitarstjómir sinni málefmun þeirra með skipulögðum hætti - spurning um möguleika sveitarfélaga - tekjuskipting á milli ríkis og þeirra skiptir miklu máli, segir Jóhann Pétur Sveinsson, formaður Sjálfsbjargar Jóhann Pétur Sveinsson. í nýjum lögum um málefni fatlaðra er að finna ýmis nýmæli er varða möguleika þeirra til að njóta opinberrar þjónustu. í því sambandi má nefna að sveitarfélögum er ætl- að eftir föngum að gefa fötluðu fólki kost á liðveislu, það er að segja persónulegum stuðningi og aðstoð er einkum miðar að því að rjúfa félagslega einangr- un þess. Þá er gert ráð fyrir, samkvæmt lögum þessum, að veita skuli fötluðum aðstoð til að sinna störfum á almennum vinnumarkaði þegar þess gerist þörf. Einnig er kveðið á um að á hverju starfssvæði skuli fötluðum standa til boða vernduð vinna. Þá má einnig nefna ferlimál fatlaðra en þar telst til nýjunga að sveitarfé- lögum er gert að gefa þeim kost á ferðaþjónustu til að stunda atvinnu, nám og njóta tómstunda. Jóhann Pétur Sveinsson, for- maður Sjálfsbjargar, sagði að ákvæði hinna nýju laga væru allr- ar athygli verð og bættu aðstöðu fatlaðra á margan hátt komist þau í framkvæmd. Vandinn sé hinsvegar sá að til að ákvæði lag- anna verði að veruleika þurfi fjárveitingar að koma til og séu fatlaðir því háðir, bæði fjárlaga- gerð hins opinbera og einnig því hversu miklum fjármunum sveit- arstjórnir kjósa að verja til að standa straum af kostnaði vegna málefna fatiaðra. Fatlaðir eigi kost á liðveislu á heimilum sínum í lögum um málefni fatlaðra er tekið fram að í sérstökum tilvik- um skuli veita fötluðum einstakl- ingum frekari liðveislu er feli í sér margháttaða aðstoð við ýms- ar athafnir hins daglega lífs, enda sé hún nauðsynleg til að koma i veg fyrir dvöl viðkomandi á stofnunum. Með liðveislu er átt við að fatlaðir einstaklingar eigi kost á aðstoð við þær daglegu athafnir á heimilum sínum er þeir sjálfir geta ekki ynnt af hendi sakir fötlunar sínar. Fatlaðir fái aðstoð við að leita starfa á almennum vinnumarkaði Megin atriði hinna nýju laga hvað atvinnunmál fatlaðra varðar er að veita skuli fötluðum aðstoð til að sinna störfum á almennum vinnumarkaði þegar þess gerist þörf og verði það gert með sér- stakri liðveislu á vinnustað auk fræðslu og leiðbeininga til annars starfsfólks. Þá er einnig kveðið á um að á hverju starfssvæði skuli starfrækja atvinnuleit, sem hafi það að markmiði að afla fötluð- um atvinnu við sitt hæfi og einnig að veita starfsráðgjöf í tengslum við atvinnuleitina. Þá skuli fötluðum einnig standa til boða vernduð vinna á almennum vinnumarkaði. Jóhann Pétur Sveinsson sagði að miklar vonir væru bundnar við atvinnumála- kafla þessara laga og leggja bæri áherslu á að fatlaðir eigi kost á störfum á almennum vinnumark- aði fremur en að komið sé á fót vernduðum vinnustöðum þótt það geti einnig verið nauðsyn- legt. Hann minnti á að fatlaðir geti unnið margvísleg störf og með tölvutækninni hafi opnast ýmsir möguleikar til atvinnu fyrir fólk sem sé hreyfihamlað að ein- hverju leyti. Urbætur í ferlimálum ákveðnar með lögum Jóhann Pétur sagði að ein mikl- vægustu ákvæði umræddra laga sé að finna í 34. og 35. grein þeirra. Þar segir að sveitarstjórn- ir skuli sinna ferlimálum fatl- aðra með skipulögðum hætti, meðal annars með gerð áætlana um endurbætur á aðgegni opin- berra bygginga auk þess sem kveðið er skýrt á um skyldur sveitarfélaga um ferðaþjónustu fyrir fatlaða. Jóhann Pétur sagði að fyrir utan Reykjavíkursvæðið og Ákureyri sé ferðaþjónusta fyr- ir fatlaða mjög takmörkuð. Með þessum lögum megi búast við að einhver bót verði ráðin á. Samræming þjónustunnar nauðsynleg Jóhann Pétur sagði að eins og málum sé nú háttað annist þrír aðilar þjónustu fatlaðra. í fyrsta lagi sé heimahjúkrunin á vegum heilsugæslustöðva. Sveitarfélögin annist heimilisþjónustu og lið- veislu og svæðaskrifstofurnar ýmsa aðra þjónustu. Hann kvaðst telja óheppilegt að svo margir aðilar kæmu að málefnum fatlaðra - betur myndi takast að skipuleggja þjónustu við þá ef hún væri á færri höndum. Að lok- um kvaðst Jóhann Pétur Sveins- son telja að sveitarstjórnarmenn væru allir af vilja gerðir til að taka myndarlega á málefnum fatlaðra. Spurningin sé hins vegar hvaða möguleika þeir hafi til fjár- veitinga vegna umræddra þjón- ustuliða. Miklu máli skipti fyrir fatlaða hver tekjuskipting á milli ríkis og sveitarfélaga verði í framtíðinni og hvort sveitarfélög- in verið í stakk búin til að standa undir þeim verkefnum sem þeim sé ætlað að sinna með lögum. ÞI Stjórn Ferðamálaráðs: Krefst þess að þjónusta við erlenda ferða- menn verði undanþegin virðisaukaskatti Stjórn Ferðamálaráðs íslands lýsir yfir áhyggjum vegna áhrifa efnahagsaðgerða ríkisstjórnar- innar á stöðu ferðaþjónustunn- ar í landinu. í ályktun frá stjórninni segir m.a.: „Þrátt fyrir að margra ára bar- áttumál um lækkun tryggingar- gjalds í ferðaþjónustu til sam- ræmis við aðrar gjaldeyrisskap- andi atvinnugreinar sé nú í höfn, er ljóst að með 14% virðisauka- skatti á gistingu og fólksflutninga er hinum jákvæðu áhrifum trygg- ingargjaldsins og niðurfellingar aðstöðugjalds eytt. Stjórn Ferðamálaráðs bendir á að ferðaþjónustan býr enn við I ferðamanna verði undanþegin lakari skilyrði en aðrar útflutn- virðisaukaskatti, þannig að gætt ingsgreinar og gerir þá kröfu að verði samræmis milli allra gjald- ferðaþjónusta vegna erlendra | eyrisskapandi atvinnugreina." Athygli sóknarpresta á Norðurlandi er vakin á því að venju samkvæmt mun Dagur birta upplýsingar um kirkjustarf á Norðurlandi um jól og áramót í Jólablaði Dags, sem kemur út föstudaginn 18. desember nk. Sóknarprestar á Norðurlandi eða formenn sóknarnefnda eru beðnir að koma upplýsingum um messuhald í sókn sinni á framfæri við Dag við fyrstu hentugleika og eigi síðar en 10. desember nk. Síminn hjá okkur er 96-24222.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.