Dagur - 02.12.1992, Blaðsíða 11

Dagur - 02.12.1992, Blaðsíða 11
Miðvikudagur 2. desember 1992 - DAGUR - 11 Íþróttir Halldór Arinbjarnarson Körfuknattleikur, úrvalsdeild: íslandsmeistararnir höfðu betur íslandsmeistarar Keflavíkur héldu sigurgöngu sinni áfram á mánudagskvöldið þegar þeir komu í heimsókn í Síkið á Sauðárkróki. Eftir jafnan fyrri hálfleik, sigu gestirnir framúr í þeim síðari og sigruðu örugg- lega með 114 stigum gegn 97. Mikill hraði einkenndi leikinn og gríðarleg barátta. Allan fyrri hálfleik var leikurinn mjög jafn og spennandi og bæði lið voru greinilega staðráðin í að sigra. Keflvíkingar virtust hálf hissa á mótspyrnunni, en bæði lið reyndu hvað þau gátu til að stjórna hraðanum. Keflvíkingar spiluðu sterka vörn en Tindstóll Sigurður Einars- sonvalinn frjálsíþrótta- maður ársins Frjálsíþróttasamband íslands hefur valið Sigurð Einarsson spjótkastara frjálsíþróttamann ársins 1992. Sigurður hefur verið einn af bestu spjótkösturum heims að undanförnu. Hann náði 6. sæti á HM í Tokyo og 5. sæti á Ólym- píuleikunum í Barcelona og sýni: það vel styrk hans á alþjóðavett- vangi. Hann hefur einnig náð 3. sæti í úrslitum stigamóta Al- þjóðafrjálsíþróttasambandsins. Besti árangur Sigurðar í spjótkasti er 84,94 m og í ár skip- ar hann 13. sæti heimslistans með 83,32 m kast. Sigurður er vel að þessari útnefningu kominn og ef að líkum lætur á þessi glæsilegi íþróttamaður enn eftir að bæta sig á komandi árum og verður gaman að fylgjast með honum í þeirri baráttu. Valur Ingimundarson þjálfari Tindastóls náði ekki að stýra sínum mönnum til sigurs gegn ÍBK. tók Jón Kr. úr umferð og setti það Keflvíkinga nokkuð út af laginu. Um miðjan síðari hálfleik náðu Keflvíkingar tveggja stiga forystu sem þeir héldu til loka hálfleiksins, en staðan í leikhléi var 51:53. Bæði lið komu ákveðin til leiks í síðari hálfleik, en gestirnir þó sýnu ákveðnari. Smám saman seig á ógæfuhliðina hjá heima- mönnum og komust Keflvíkingar í 70:59 þegar 13 mínútur voru til leiksloka. Tindastóll náði aðeins að klóra í bakkann og minnkaði muninn í 64:70, en lengra komst liðið ekki. Keflvíkingar settu allt á fulla ferð og sýndu allar sínar bestu hliðar. Heimamenn náðu ekki að halda í við þá og töpuðu leiknum með 17 stiga mun, 97:114. Leikurinn var í heild hraður og skemmtilegur. Tindastólsmenn sýndu að þeir geta leikið mjög góðan körfuknattleik en aðeins skorti á úthaldið. Keflvíkingar eru enn ósigraðir og vandséð hvaða lið stenst þeim snúning. Chris Moore var bestur í liði Tindstóls. Hann skoraði mikið og lék góða vörn gegn Jonatan Bow, sem aðeins skoraði 14 stig í leikn- um, þar af 12 í fyrri hálfleik. Einnig var Valur Ingimundarson sterkur og Páll ómissandi sem leikstjórnandi. Hjá Keflavík átti Nökkvi Már Jónsson góðan leik en einnig voru Jón Kr., Guðjón Skúlason og Kristinn Friðriksson góðir. BGS Gangur leiksins: 4:4, 15:14, 28:28, 39:46, 48:50, 61:70, 70:81, 84:95, 91:108, og 97:114. Stig Tindastóls: Chris Moore 29, Valur Ingimundarson 28, Páll Kolbeinsson 12, Haraldur Leifsson 10, ingi Þ. Rúnarsson 9, Pétur V. Sigurðsson 5, Björgvin Reyn- isson 2 og Hinrik Gunnarsson 2. Stig ÍBK: Nökkvi M. Jónsson 26, Guð- jón Skúlason 24, Jón Kr. Gíslason 23, Jonatan Bow 14, Hjörtur Harðarson 5, Albert Óskarsson 4 og Falur Harðarson 1. Dómarar: Jón Bender og Einar Þ. Skarp- héðinsson. Handknattleikur, 5. flokkur: Ágætis árangur KA og Þórs Það var mikið um að vera hjá leikmönnum í 5. flokki um helgina, því keppt var í íslandsmótinu og var það ÍR sem um mótið sá að þessu sinni. Völsungur, KA og Þór sendu öll lið til keppni. Mótafyrirkomulagið hefur orð- ið fyrir nokkurri gagnrýni. Keppni lauk ekki fyrr en seint á sunnudagskvöld og þá átti eftir að keyra norður. KA átti góðu gengi að fagna. A-iðið vann Val 13:11, Völsung 16:7, Hauka 11:6, Aftureldingu 19:13, KR 9:6 FH 14:10 og töpuðu úrslitaleiknum naumlega fyrir heimamönnum í ÍR með 11 mörkum gegn 9. B-lið KA vann Þór 13:9, FH 11:10, Fjölni 17:6, Völsung 14:3 og gerðu jafntefli við Gróttu 12:12.1 keppni um 3. sætið tapaði KA fyrir Gróttu 9:12. KA fékk 2 viðurkenningar. Jóhann Her- mannsson var valinn besti sókn- armaðurinn í flokki A-liða og Helgi Stefánsson besti varnar- maðurinn í flokki B-liða. A-lið Þórs vann UBK 17:12, HK 18:14 Fram 13:11 og gerðu jafntefli við KR 12:12. í milliriðli tapaði liðið fyrir Val 10:15 og hafnaði í 5.-8. sæti. B-liðið vann Fjölni 12:10, FH 13:7 og Hauka 12:10, en tapaði fyrir KA 8:14. í undanriðli tapaði liðið fyrir Stórsigur gegn Yngri flokkar Tindastóls í körfubolta halda velgengni sinni áfram. Á dögunum unnu strákarnir í unglingaflokki Valsmenn með 71 stigi gegn 54, en leikurinn var í íslandsmóti unglingaflokks. Fyrri hálfleikur var jafn óg spennandi en í þeim seinni tóku Tindastóls- menn málin í sínar hendur og sigruðu með vfirburðum. Besti maður vallarins var Ingi Þór Rúnarsson en hann var •einnig stigahæstur með 27 :tig. Pétur Vopni Sigurðsson skoraði næst flest stig Stólanna, eða 20. Báðir Gróttu 9:12 og hafnaði í 5.-8. sæti. A-og B-lið Völsungs kom- ust ekki áfram í milliriðla, nema B-liðið sem tapaði þar fyrir KA 3:14. Stólanna UBK leika þessir strákar með meist- araflokki. Strákarnir í 10. flokki Tinda- stóls eru komnir í 8 liða úrslit í bikarkepninni í sínum aldurs- flokki, en í 10. flokki leika 15 ára unglingar. Stólarnir léku gegn UBK í 16 liða úrslitum og höfðu algera yfirburði í leiknum, sigr- uðu með 82 stigum gegn 18, hvorki meira né minna. Eins og sést á stigaskori hafði Tindastóll algera yfirburði frá upphafi leiks. Stigahæstir í liði Tindastóls voru Arnar Kárason með 26 stig, Jón Brynjars með 22 og Óli Barðdal með 16. Körfuknattleikur yngri flokka: Völsungurínn Björgvin Sigurðsson er hér að skora eitt af 5 mörkum sínum gegn Þórsurum. Þórsarar voru nálægt sigrí en allt hrundi á síðustu mnútun- um og Völsungar unnu öruggan sigur. Handknattleikur, 4. flokkur: Tvöfaldur sigur KA Um helgina var keppt í Norðurlandsriðli 4. flokks á Húsavík, en í þeim riðli eru KA, Þór, Völsungur og Hug- inn frá Seyðisfirði. KA-fólk átti góðan dag og sigraði bæði í karla- og kvennaflokki. Mótið fór í alla staði vel fram og sýndu öll lið framfarir frá síð- asta fjölliðamóti. Hjá stelpunum var Ingibjörg H. Ólafsdóttir, KA, markahæst með 15 mörk og Alda Rún Sveinsdóttir, Völsungi, og Anna Blöndal, KA, skoruðu 9 hvor. Markahæst Þórsstelpna var Ása Maren Gunnarsdóttir með 3 mörk. Halidór Sigfússon, KA, skoraði 15 mörk hjá strákunum og var markahæstur. Völsung- arnir Guðlaugur Arnarsson og Arngrímur Arnarson skoruðu 12 hvor. Jóhannes Jónsson Þór skoraði 11. Úrslit leikja urðu eftirfarandi: Karlaflokkur: KA-Völsungur 30:15 Þór-Huginn 19: 8 Þór-KA 10:25 Huginn-Völsungur 11:29 Völsungur-Þór 20:12 KA-Huginn 28: 7 Kvennaflokkur: KA-Völsungur 8: 4 Þór-Huginn 3: 5 Þór-KA 2:11 Huginn-Völsungur 6:11 Völsungur-Þór 12: 4 KA-Huginn 15: 4 ® « /X% 5 49. -tyrirþlg ogþiru fjðlskyldu! leikvikð Logi lagði Línu Langsokk Logi Már Einarsson virðist vera vel að sér i getraunum og hefur lagt alla andstæðinga sína til þessa. Siðast var það Lína Langsokkur sem mátti lúta I lægra haldi fyrir Loga. Hann mætir nú til leiks i 4. skipti og er þar með sá fyrsti sem það tekst 1 vetur. Logi setti einnig annað met því hann náði 10 réttum, sem eru fleiri en nokkur annar getur státað af til þessa. Logi skorar að þessu sinni á gamlan þjátfara sinn, Einar Pálma Árnason. „Nú verð ég að velja einhvern sem eitthvað getur. Við Einar þekkjumst frá því I gamla daga, en hann þjálfaði mig 14. eða 5. flokki I fótbolta. Þar var ég þekktur fyrir frábæran metnað, dugnað og samviskusemi, eins og Einar getur eflaust vitnað um," sagði Logi. Einar tók áskorun Loga að sjátfsögðu, en sagðist þó varla geta staðfest sögu Loga um eigin frammistöðu á knattspyrnuvellinum. Einar er aðdáandi hins fornfræga liðs Derby og sagðist mjög sakna þeirra á seðlinum. „Ég fæ þó örugglega fleiri tækifæri þvi ekki hef ég áhyggjur af keppninni við Loga," sagði Einar. Ekki voru Akureyringar eins getspakir i sfðustu viku og þeirri næstu á undan. Hér á landi komu fram 2 raðir með 13 réttum og fyrir hvora röð fengu menn tæplega 1,2 milljónir. Hver gæti ekki notað það fyrir jólin? Um næstu helgi gefst þó annað tækifæri og vilji fólk ekki láta það fram hjá sér fara ætti það að drífa sig út á næsta sölustað getrauna. Þar mætti t.d. prófa tölvuval. 'g1 1 'e 2 1 Lu CL c 'E 1. Coventry-lpswich 1 1 2. Crystal Palace-Sheffield Utd. 12 1X 3. Leeds-Nottingham Forest 1 1 4. Middlesbro-Blackburn 1X 1X 5. Norwich-Wimbledon 1 1 6. QPR-Oldham 12 1 7. Sheffield Wed.-Aston Villa 12 1X 8. Southampton-Arsenal 12 X2 9 Tottenham-Chelsea 1X 1X 10. Cambridge-Wolves 1 2 11. Grimsby-Leicester 1 1 12. Notts County-Newcastle 1 12 13. Sunderland-Barnsley 1 1 Upplýsingar um rétta röð og vinningsupphæðir: Lukkulínan 99-1000 • Textavarpið síða 455 Símsvari 91-814590 • Grænt númer 99-6888

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.