Dagur - 02.12.1992, Page 12
Starfsmannafélag Akureyrarbæjar:
Kjarasamningum sagt
upp í gærkvöld
Trúnaðarmannaráð Starfs-
mannafélags Akureyrarbæjar
fól stjórn félagsins fyrir
skömmu að segja upp gildandi
kjarasamningum með lög-
boðnum fyrirvara.
Á fundi stjórnar STAK í gær-
kvöldi var svo ákveðið að verða1
við þessu og verður viðsemjend-
um STAK, Akureyrarbæ og
ríkisvaldinu, send tilkynning um
það. Kjarasamningar renna út 1.
mars nk. og þykir ljóst að flest
eða öll stéttarfélög hyggjast hafa
samninga lausa þegar kemur að
því að setjast við samningaborðið
að nýju. GG
Stereóútsendingar Sjónvarpsins:
Hvenær fá Norðlendingar
að heyra hinn víða óm?
- tæknileg vandkvæði við upphaf
tilraunaútsendinga
Sjónvarpið hefur hafið tilrauna-
útsendingar í víðóma, sem er
nýyrði yfir stereó. Eigendur
sjónvarpstækja eða mynd-
bandstækja sem eru með Nicam
stereó geta fangað þessar
stereóútsendingar og notið
þess að heyra hinn víða óm
sem fjölrása hljómflutningur
færir þeim, en aðeins ef þeir
eru búsettir á höfuðborgar-
svæðinu eða Reykjanesi.
Pær upplýsingar fengust hjá
tæknideild Sjónvarpsins að vegna
Hlutafjárútboð KEA:
Bréfin fengu
góðar viðtökur
„Það hefur verið reytingssala
og geysilega mikið spurt,“
sagði Jón Hallur Pétursson hjá
Kaupþingi Norðurlands um
viðtökur hlutabréfa í Kaupfé-
lagi Eyfirðinga en útboð á
þeim hófst í gær.
Jón Hallur sagði að eftirspurn
hefði verið bæði á Norðurlandi
sem á höfuðborgarsvæðinu. Þau
viðbrögð sem komu við bréfun-
um í gær voru fyrst og fremst frá
almenningi, en Jón Hallur sagði
að stærri fjárfestar sýni bréfunum
einnig mikinn áhuga. „Ég hef því
trú á því að við seljum þessi bréf
innan þriggja mánaða,“ sagði Jón
Hallur. JÓH
tæknilegra vandkvæða væru
stereóútsendingar seinna á ferð-
inni en ráðgert hafði verið og
sömuleiðis væru útsendingar ekki
eins víðtækar og menn höfðu
stefnt að.
í framtíðinni eiga Norðlend-
ingar og aðrir landsbyggðarmenn
að fá að njóta stereóútsendinga
en að sögn tæknimanns hjá Sjón-
varpinu er ekki búið að tímasetja
endurvarp frá öðrum aðalsend-
um. Nú er stereóútsendingum
endurvarpað frá Vatnsenda auk
þess sem lítill sendir er á þaki
sjónvarpshússins.
„Það komu upp dálitlir erfið-
leikar í sambandi við flutning út
um landið. Örbylgjukerfið okkar
er fullnýtt með eina myndrás og
fimm hljóðrásir, en við höfum
skoðað nýja tækni sem sendir
stereómerkið inni í myndmerk-
inu og með þeirri tækni ætlum við
að flytja það á Vaðlaheiði, Gagn-
heiði og aðra aðalsenda út um
landið,“ sagði tæknimaður hjá
Sjónvarpinu.
Hann sagði að upphaflega
hefði verið ráðgert að hafa þenn-
an háttinn á, að senda stereó-
merkið í myndmerkinu og koma
því þá strax á aðalsendana um
landið, en af ýmsum tæknilegum
ástæðum reyndist það ekki unnt.
Að þessu er unnið núna. Síðan
þarf að setja upp sérstaka senda á
aðalsendunum sem tengjast ör-
bylgjukerfinu, s.s. á Vaðlaheiði,
áður en landsbyggðarmenn geta
notið útsendinga í stereó. SS
Jólaljósin tendruð á laugardag
í gær var Randers-jólatrénu
komið fyrir á Ráðhústorgi á
Akureyri, en ljós á trénu verða
tendruð nk. laugardag kl. 16.
Við það tækifæri flytja ávörp
Halldór Jónsson, bæjarstjóri,
Hreinn Pálsson, formaður
Norræna félagsins og Sigurður
Jóhannesson, konsúll Dana. Þá
mun Marianne Jensen, garð-
yrkjustjóri í Randers, afhenda
23 fjölskyldum á Akureyri
jólatré frá vinum í Randers.
Flytjendur tónlistar verða Kór
Akureyrarkirkju, Barnakór
Akureyrarkirkju, Kór Verk-
menntaskólans og Lúðrasveit
Akureyrar. Þá má ekki gleyma
því að jólasveinar koma í heim-
sókn. óþh
Ekkert verkfall hjá sjúkraliðum á FSA og Kristnesi:
Flestir sjúkraJiðar á Norðurlandi
í bæjarstarfsmaiuiafélögum
- nokkrir í SFR og Sjúkraliðafélaginu
Kjaradeila Sjúkraliðafélags
íslands og viðsemjenda þeirra
hefur verið hjá ríkissáttasemj-
ara að undanförnu og stóð
sáttafundur á mánudag fram
undir þriðjudagsmorgun án
árangurs. Sjúkraliðar hafa til-
kynnt að þeir hyggist leggja
niður störf um ótiltekinn tíma
frá og með gærdeginum, 1.
desember. Það hefur hins veg-
ar engin áhrif á Akureyri þar
sem sjúkraliðar hér eru flestir í
STAK.
Sjúkraliðar við Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri eru flestir
í Starfsmannafélagi Akureyrar-
bæjar og í könnun sem gerð var
meðal þeirra við verkaskiptingu
ríkis og sveitarfélaga um rekstur
sjúkrahúsa og heilsugæslustöðva
kom í ljós að allflestir þeirra
töldu hag sínum betur borgið í
STAK vegna þess að þá ættu þeir
betri aðgang og gætu vænst betri
þjónustu frá stéttarfélagi sem
staðsett er í þeirra heimabyggð.
Sjúkraliðar hjá Kristnesspítala
eru flestir í Starfsmannafélagi
ríkisstofnana eða Sjúkraliðafé-
lagi íslands en á öllu landinu eru
aðeins 15 sjúkraliðar í Sjúkra-
liðafélaginu, en flestir aðrir í
starfsmannafélagi viðkomandi
bæjarfélags, eins og t.d. á Húsa-
vík.
Sjúkraliðum hefur verið boðið
upp á þær kjarabætur sem fólust í
svokallaðri þjóðarsátt, þ.e. 1,7%
hækkun grunnlauna frá 1. maí og
orlofsuppbót að upphæð kr.
8.000. Þessu hefur Sjúkraliðafé-
lag íslands hafnað vegna þess að
stjórn þess telur að það fái ekki
haldið kjörum þeirra félaga sem
eru í bæjarstarfsmannafélögum
eins og t.d. STAK.
Að sögn Jakobínu Bjömsdótt-
ur, formanns STAK, er þetta á
misskilningi byggt vegna þess að
þeir sjúkraliðar sem eru í STAK
eru alls ekki að ganga í Sjúkra-
liðafélagið og því er alls ekki ver-
ið að semja fyrir þá í þessari
Sex norðlenskir lifeyrissjóðir sameinast í ársbyrjun 1993:
Iifeyrissjóður Norðurlands stofnaður
I gær var haldinn stofnfundur
Lífeyrissjóðs Norðurlands á
Hótel Blönduósi en stofnaðilar
VEÐRIÐ
Búist er við stormi á norður-
djúpi. Allhvasst eða hvasst
verður á norðvesturmiðum en
víða hægari til landsins er líða
tekur á daginn, éljagangur.
Norðaustan kaldi verður á
Norðausturlandi og miðum
fram eftir degi en síðan snýst í
norðan stinningskalda og élja-
gang er líða tekur á daginn.
eru 6 norðlenskir lífeyrissjóðir
Nokkrir lífeyrissjóðir á
Norðurlandi vestra töldu sig
ekki hafa hag af þátttöku og
tóku því ekki þátt í stofnfund-
inum.
Þeir eru Lífeyrissjóðurinn
Björg á Húsavík, Lífeyrissjóður-
inn Sameining á Akureyri, Líf-
eyrissjóður Iðju á Akureyri, Líf-
eyrissjóður stéttarfélaganna í
Skagafirði, Lífeyrissjóður
verkamanna á Hvammstanga auk
þess sem Verkalýðsfélag Austur-
Húnavetninga gengur úr Lífeyr-
issjóði Norðurlands vestra á
Hvammstanga í þennan nýja og
öfluga lífeyrissjóð. Valdimar
Guðmannsson formaður Verka-
lýðsfélags Austur-Húnavetninga
segist búast við því að þróunin
verði sú að lífeyrissjóðirnir í
landinu haldi áfram að stækka og
eflast og þá um leið að fækka. Því
sé eðlilegast að þeir lífeyrissjóðir
sem enn standi utan þessa nýja
sjóðs gangi í hann til að vera bet-
ur í stakk búnir til að sinna þörf-
um sinna umbjóðenda auk þess
sem lífeyrissjóðsfélagar hafi
miklu sterkari baktryggingu eftir
en áður.
Lífeyrissjóður Norðurlands
tekur formlega til starfa 1. janúar
nk. og munu þeir sjóðir sem
stóðu að stofnuninni innheimta
iðgjöldin en árið verður not-.
að til að skipuleggja starf nýja
sjóðsins. Frá 1. janúar 1994 hætt-
ir starfsemi eldri sjóðanna og 1.
janúar 1995 á að'vera lokið öllu
mati á eignum og gera upp öll
innheimtumál og þá verða sjóð-
irnir formlega lagðir niður.
Stjórnarformaður verður Kári
Arnór Kárason á Húsavík, for-
maður Alþýðusambands Norður-
lands, en aðrir stjórnarmenn
Björn Snæbjörnsson Ákureyri og
Ólöf Hartmannsdóttir Sauðár-
króki sem fulltrúar stéttarfélag-
anna en fulltrúar vinnuveitenda
verða Árni Guðmundsson á
Sauðárkróki, Hólmsteinn Hólm-
steinsson á Akureyri og Tryggvi
Finnsson á Húsavík. GG
vinnudeilu. Því er ekkert verkfall
yfirvofandi hjá þeim sjúkraliðum
sem starfa hjá FSA, sem og á
öðrum norðlenskum sjúkrahús-
um. GG
1