Dagur - 18.12.1992, Side 3
Föstudagur 18. desember 1992 - DAGUR - 3
Kópasker:
íbúum fjölgar
um 4 prósent
- ekkert atvinnuleysi
Á miIU áranna 1991 og 1992
hefur íbúafjöldi Öxarfjarðar-
hrepps aukist um 4%, úr 365 í
380. Þessari þróun ræður að
mestu mjög gott atvinnuástand
í hreppnum. Rækjuverksmiðj-
an Gefla hóf starfsemi í haust
eftir gagngerðar endurbætur
og breytingar og tU fiskeldis-
stöðvarinnar Silfurstjörnunnar
hefur einnig komið fólk úr öðr-
um byggðarlögum.
Vegna rysjóttar tíðar er
vinnslu lokið í rækjuverksmiðj-
unni fyrir jól og hefst ekki að
nýju fyrr en eftir að bátarnir hafa
farið á sjó í janúarbyrjun. 15.
desember sl. var flutt í aðra af
þeim tveimur íbúðum sem hrepp-
urinn hefur látið innrétta á efri
hæð Útskála. Á neðri hæðinni
verður ein íbúð sem verður vænt- j
anlega tilbúin í marsbyrjun en á
þeirri hæð verður auk þess Hann-
yrðafélagið Heimöx og sjúkra-
þjálfari sem þegar er á staðnum.
Vegna ótíðarinnar hafa íbúarnir
ekki komist af svæðinu til jóla-
innkaupa, en á Kópaskeri eru
aðeins tvær verslanir, dagvöru-
verslun og bókabúð og því þarf
að kaupa allar aðrar vörutegundir
í nágrannasveitarfélögunum, og
er mjög algengt að farið sé í
verslunarleiðangur til Húsavíkur
eða Akureyrar. GG
Fréttir
Svavar Gests verður á Akureyri í dag og áritar bók sína, HUGSAÐ UPPHÁTT,
í Bókval kl. 14.00-16.00 og Bókabúðinni Eddu ld. 16.00-18.00.
Útgerðarfélag Akureyringa hf.:
Lögð verður aukiii áhersla á
framleiðslu í neytendaumbúðir
Á næstunni verður Iögð aukin
áhersla á framleiðslu í neyt-
endaumbúðir hjá Útgerðar-
félagi Akureyringa hf. Þetta
kemur fram í pýjasta tölublaði
ÚA-frétta.
Á undanförnum árum hefur
ÚA framleitt karfaflök í 6-7 kílóa
öskjur fyrir Þýskalands- og Frakk-
landsmarkað. í október sl. var
hafin framleiðsla lausfrystra
karfaflaka, sem pakkað er í 1
kílóa öskjur, fyrir fyrirtækið
Packfish í Þýskalandi undir vöru-
merkinu „Neptun-Spitzen“.
„Fyrsta prufusendingin fór frá
ÚÁ í lok október og nú þegar er
ljóst að viðbrögð hafa farið fram
úr væntingum. Pað er því ljóst að
framleiðsla þessarar vöru aukist á
næstunni,“ segir í fréttabréfinu.
Af Frakklandsmarkaði er hins
vegar það að segja að undanfarið
ár hefur verið þróuð ný pakkning
með roð- og beinlausum flökum,
pökkuð í sex vafninga sem sam-
tals vega 2 kíló. Til að aðlagast
markaðnum og skapa vörunni
sérstöðu var henni gefið nafnið
„Les Complices“ sem þýðir
„samsekur“. Hugmyndin er sú að
neytandinn sé í vitorði með fram-
leiðandanum. Um árangur af
þessari markaðssetningu í
Frakklandi segir í fréttabréfi
ÚA: „Nú þegar ár er liðið frá því
framleiðslan hófst er ljóst að hún
hefur náð góðri fótfestu á franska
markaðnum. Salan hefur tvöfald-
ast á stuttum tíma og miklar
væntingar eru um framhaldið þar
sem um er að ræða markaðssetn-
ingu á öllum helstu fisktegundum
sem skip félagsins afla. Þessi vara
fer að mestu leyti til matreiðslu á
veitingahúsum, en einnig fer
nokkur hluti hennar í svokallaða
heimsendingarþjónustu." óþh
Hugsao
upphatt
- æviminningar Svavars Gests,
skráðar af honum sjálfum.
Bólumarkaðurinn
opinn föstudag frá kl. 15-20.
HAGAR HENDUR
laugardag frá kl. 11-16og sunnudag frá kl. 13-16.
Alla dagana fjölbreytt vöruúrval.
Fallegar jólaskreytingar, góðar jólagjafir,
sælgæti, brauð o.fl.
Athygli er vakin á því að ekki er um sömu
söluaðila að ræða þessa daga.
BÓLUMARKAÐURINN
Eiðsvallagötu 6 (sunnan Eiðsvallar).
Hvernig bregðast menn við þegar
þeir sitja fyrir framan lækni og fá
þann úrskurð að þeir séu haldnir ill-
kynja sjúkdómi? Sjálfsagt misjafn-
lega en ætli margir líti þá ekki í sjón-
hendingu yfir ævi sína og jafnvel
HUGSI UPPHÁTT. Svavar Gests er
löngu landskunnur maður. Um ára-
bil var hann einn vinsælasti
skemmtikraftur landsins og hljóm-
sveit hans naut fáheyrðra vinsælda.
Einnig var hann og er mjög vinsæll
útvarpsmaður. í bókinni HUGSAÐ
UPPHÁTT tekur Svavar æviminn-
ingar sínar. Hann segir frá ótrúlega
erfiðum bernskuárum, hljómplötu-
útgáfu sinni, rekur tónlistarferil sinn
og segir einstaklega skemmtilega og
opinskátt frá mönnum, sem hann
hefur kynnst, og eftirminnilegum at-
vikum.
i
Góð bók frá Fróða
IRODI
BÓKA & BLAÐAÚTGÁFA