Dagur - 18.12.1992, Blaðsíða 5
Föstudagur 18. desember 1992 - DAGUR - 5
Fréttir
Of mikið misræim í flokkun dilkakj öts
og verðmunur á milli flokka of mikill
- segir Guðmundur Heiðmann, sauðprbóndi í Árhvammi í Öxnadal
- lækkun á sláturverði til bænda skilar sér ekki til neytenda
Bændur eru margir hverjir
mjög óánægðir með flokkun á
dilkakjöti í sláturhúsum og
telja vera allt of mikið mis-
ræmi í flokkuninni og einnig
að verðmunur á milli flokka sé
of mikill. Einn þessara manna
er Guðmundur Heiðmann,
bóndi í Árhvammi í Öxnadal.
„Til hvers er verið að flokka
dilkakjöt í alla þessa flokka,
þegar aðeins er hægt að kaupa
einn flokk í verslunum? Vara
sem ekki er sett í sölu, selst
náttúrlega ekki,“ segir Guð-
mundur.
Hann segir það ekki vitað fyrir
víst hvort einhverjir neytendur
vilji kaupa aðra flokka en DIA
en á meðan þeim ekki standi til
boða að kaupa aðra flokka, komi
það ekki í ljós. „Okkur bændum
er sagt að neytendur vilji ekki
það kjöt sem fer í lakari flokkana
en hvað hafa menn fyrir sér í því,
ég bara spyr?“
Guðmundur segir að þróunin
sé sú að lömbin komi mun léttari
til slátrunar og hvernig eigi annað
að vera, þegar borgað er meira
fyrir hvert kíló á 9 kg skrokki en
20 kg skrokki. „Það er ekki bara
fita á svo stórum skrokkum held-
ur er þetta líka vænleiki. Pað sem
vantar, er að selja fleiri flokka á
sama verði í verslunum og þá er
hægt að sjá hvað selst best. Auð-
i vitað keppast allir við að ná sem
mestum afurðum en það tekst
ímisjafnlega. Menn eyða jafn
mikilli vinnu í hvert lamb, hvort
sem það er 10 kg eða 25 kg. Féð
nærist að mestu á útiteknu fóðri
og það er nóg til af beitarlandi í
dag enda hefur fé fækkað mikið.“
Guðmundur segir það einnig
mikið ranglæti að verðfella heilan
skrokk út af mari, sem er kannski
á síðunni eða hryggnum og kem-
ur t.d. aldrei fram á lærunum,
sem seljast því á fullu verði. „Það
er sama hversu lítið marið er,
skrokkurinn fellur niður í DIIDX
og munurinn t.d. á þeim flokki
og DIA er um 26 kr. pr. kg óg
það eru rúmar 500 kr. á 20 kg
skrokki. Sláturhúsin selja ekki
mikið í heilum skrokkum til neyt-
enda og því kemur það ekki fram
þó einhverjir skrokkar séu marð-
ir t.d. á síðunni.“
Hann segir einnig að kjöt falli í
flokki vegna fláningsskemmda og
þó svo að sláturhúsin eigi að taka
verðfallið á sig, sé nú þannig í
reynd að bændur borgi þá verð-
fellingu. „Kjöt sem skemmist í
fláningu á ekki að verðfella og
selja beint til neytenda, heldur á
það að fara í vinnslu í sláturhús-
unum.“
Eins og áður er sagt er Guð-
mundur einnig óánægður með
verðmuninn á milli flokka, hann
bendir í því sambandi á að verð-
munurinn á DIA sem er 2. verð-
flokkur og DIB sem er 4. verð-
flokkur sé rétt um 35 kr. pr. kg
og verðmunurinn á milli DIA og
DIC sem er 6. verðflokkur sé rétt
um 59 kr. pr. kg.
Guðmundur segir að í haust
hafi verð á slátri lækkað til bænda
um 60 kr. sem sé ekkert annað en
kaupskerðing fyrir þá. „Hins veg-
ar lækkaði slátrið í sláturhúsun-
um ekki til neytenda og það á ég
erfitt með skilja. Það er tilgangs-
laust fyrir bændur að lækka sitt
verð ef það svo ekki skilar sér
alla leið til neytenda," segir Guð-
mundur. -KK
Á þessari mynd má sjá dilka í fjórum mismunandi verðflokkum. L.t.h. er
skrokkur í flokki DIA, og fyrir hann er greitt 217,63 kr. pr. kg, þá kemur
skrokkur í flokki DII og fyrir hann er greitt kr. 191,53 kr. pr. kg, þá
skrokkur í flokki DIB og fyrir hann er greitt 182,82 kr. pr. kg og loks skrokk-
ur í flokki DIC og fyrir hann er greitt 158,87 kr. pr. kg.
FRÁ SUNDLAUG
AKUREYRAR
Sundlaug Akureyrar verður opin í kringum jól og áramót
17. til 23. desember eins og venjulega, virka daga frá
7.00 til 20.00, laugardaga frá 8.00 til 16.00 og sunnu-
daga frá 8.00 til 12.00.
Opið aðfangadag frá 8.00 til 12.00. Lokað jóladag.
Opið annan jóladag og þriðja í jólum frá 9.00 til
15.00.
27. desember verður opið frá 9.00 til 15.00 og frá 28.
des. til 30. des. verður opið eins og venjulega frá
7.00 til 20.00.
Opið á gamlársdag frá 8.00 til 12.00, lokað nýárs-
dag, annan og þriðja janúar verður opið frá 9.00 til
15.00.
Vekjum sérstaka athygli á að innilaugin verður opin
alla dagana fyrir almenning og þó sérstaklega for-
eldra með yngri börn.
Alla virka daga milli kl. 13.00 og 16.00 verður útilaug-
inn eingöngu opin fyrir börn og unglinga sem mega
hafa með sér leiktæki, einhver áhöld verða á staðn-
um t.d. blöðkur, boltar, dýnur og fl.
Heilsuna verður hver að laga,
hérna er opið flesta daga,
allt verður fyrir ykkur gert.
Eftirjólin til áramóta
eruð þið velkomin til að njóta
alls sem þið teljið einhvers vert.
Verið
velkomin
Starfsfólk
sundlaugarinnar.
GEYMIÐ
AUGLÝSINGUNA
skyr með ijóma
ijómapönnukökur
kaffi með ijóma
ijómasósur
ávextir með rjóma
ijómatertur
vöfflur með ijóma
ijómaís
kakó með ijóma
ijómakökur
bláber með ijóma
ijóma....
uhmm!
ijóminn
gerir
gæða-
muninn
- líka á jólunum
Mjólkursamlag KEA