Dagur - 18.12.1992, Síða 7
Föstudagur 18. desember 1992 - DAGUR - 7
k
hefst það kl. 13.30. Á sunnudag
kl. 14 verður 7-mínútna mót fyrir
þá sem vilja hvíla sig á jólaundir-
búningnum.
Síðasti Bólu-
markaður ársins
Um helgina verður Bólumarkaður
að Eiðsvallagötu 6 á Akureyri
opinn í síðasta skipti á þessu ári. I
dag kl. 15 til 20 verður Samstarfs-
hópurinn Hagar hendur úr Eyja-
fjarðarsveit á markaðnum. Á
morgun, laugardag, verður mark-
aðurinn opinn kl. 11 til 16 og kl.
13 til 16 á sunnudag.
í kvöld verður
rokkað í Listagili
í kvöld kl. 20.30 verður rokkað í
húsnæði Gilfélagsins á Akureyri,
að sunnanverðu í Listagilinu. Þar
mæta til leiks sveitimar Skrokka-
bandið og Briminnstunga og
rokka gesti upp úr skónum. Leik-
dagskrá átti einnig að vera á boð-
stólum í Listagilinu í kvöld en hún
fellur niður.
Aðventukvöld í
Grenivíkurkirkju
Eins og öllum er kunnugt hefur
tíðarfarið hér nyrðra sett strik í
reikning ferðalanga. Svo er einnig
með þá íbúa Grenivíkur, sem hafa
ætlað sér að gera jólainnkaupin á
Akureyri. Það er því líklegt að
Grenvíkingar, sem og aðrir úr
dreifbýlinu umhverfis Akureyri,
stormi í kaupstað á morgun, laug-
ardag, ef veður og færð halda þá
ekki venjubundnu háttemi. Það
þykir því rétt að gefa Grenvíking-
um ótakmarkaðan tíma í verslu-
narleiðangurinn og færa fyrirhug-
að aðventukvöld laugardagsins til
21. desember kl. 20.30. Prestsfrú-
in í Laufási, Ingibjörg Siglaugs-
dóttir, mun flytja jólahugleiðingu.
Kvöldstund við kertaljós verður
hins vegar í Laufáskirkju sunnu-
dagskvöldið 20. desember kl. 21
eins og áformað var.
Kóngakerti.
Opna vinnustofan og Gallery AllraHanda:
Bjóða úrval listaverka
Vinnustofur og gallery verða
opin eftir hádegi í Grófargili á
Akureyri á morgun laugardag.
Þar verða á boðstólum m.a.
steypt kóngakerti, fléttaðar
körfur, málaðar silkislæður og
málverk.
Um nokkurt skeið hefur mynd-
listarfólk unnið ötullega að list
sinni í Grófargili. í „Opnu vinnu-
stofunni“ eru haldin námskeið í
silkimálun, körfugerð og kerta-
steypu. Einnig eru leigðir út vef-
stólar, þar sem hægt er að vefa
það sem uppsett er í stólunum. -
Eftir áramót er ætlunin að bæta
við vefnámskeiði og saumanám-
skeiði.
Gallery allrahanda er á svæð-
inu og annast sölu á fjölbreyttu
úrvali listaverka. „Opna vinnu-
stofan“ er opin dag hvern til jóla
frá kl. 13,00 til 18,00 að undan-
skildum sunnudeginum.
Y ------- 7%
Framsóknarfélag
Húsavíkur tilkynnir:
Skrifstofa félagsins í Garöari verður opin laugardag-
inn 19. desember kl. 11-12 árdegis. Jólagott í bolla.
Skrifstofan verður lokuð annan jóladag, laugardag-
inn 26. des.
Opið laugardaginn 2. janúar kl. 11-12 árdegis, og
síðan á laugardögum samkvæmt venju.
Gleðileg jól!
Stjórnin.
Björn Sigurbsson Húsavík, sími: 96-42200
Húsavík - Akureyri - Húsavík
Daglegar
ferðir til jóla
Sunnudaga:
Frá Húsavík kl. 17.00 - frá Akureyri kl. 19.00.
Alla aðra daga:
Frá Húsavík kl. 08.00 - frá Akureyri kl. 15.30.
skapar atvinnu með
kaupum á íslenskri
framleiðslu. Ef hver
einstaklingur á
aldrinum 16-70 ára
eykur kaup sín á
innlendri framleiðslu
um kr 1.000,- á
mánuði í eitt ár,
skapast 204 ný störf.
unga fólkið eruð
framtíð þessa lands.
Þið verðið að taka þátt
í að tryggja fulla
atvinnu í framtíðinni.
Með kaupum á
íslenskri framleiðslu
stuðlið þið að bjartari
framtíð ykkur sjálfum
til handa.
verðum að vera
bjartsýn og hafa trú á
okkur sjálfum og eigin
framleiðsluvörum.
Á vaxandi erfiðleika-
tímum í heiminum er
okkur meiri nauðsyn
en nokkru sinni fyrr að
standa þétt saman um
það sem íslenskt er.
FRAMHÐIN
-fblíiíl
©
KAFFIBRENNSLA
AKUREYRAR HF.