Dagur - 18.12.1992, Qupperneq 8
8 - DAGUR - Föstudagur 18. desember 1992
Utivistarfólk!
Höfum fjölbreytt úrval af
vönduðum, þykkum og þunnum
útlvistarklœðum fyrir alla
aldurhópa.
Einnig allt fyrir vélsleðaeigendur.
Opið virka daga frá kl. 10-18,
laugardaga frá kl. 10-16.
Polarisumboðid
Undirhlíð 2 - Sími 22840 - 603 Akureyrí.
Halldór Jóhannsson, stjórnarmaður í Sjónvali hf., Sveinn Ólafsson, verkfræðingur hjá VST, sem séð hefur um
hönnun verksmiðjunnar og Stefán Jóhannsson, framkvæmdastjóri verskmiðjunnar, fyrir framan verksmiðjuhúsið í
Kína.
Tilraunaframleiðsla á lakkrís hafin í Kína:
hð er ágætt að hafa eitthvað til
að hugsa um hinum megin á hnettinum
- ekki síst á meðan ástandið hér á landi er eins og það er, segir
Halldór Jóhannsson, landslagsarkitekt á Akureyri, sem er hluthafi
í lakkrísverksmiðju í Kína ásamt þremur öðrum Akureyringum
I vikunni hófst tilraunafram-
leiðsla á lakkrís í verksmiðju í
Kína. Það þætti í sjálfu sér
ekki í frásögur færandi hér á
Akureyri, ef ekki væri nema
u
^ n 20. desember nk. býður íslandsbanki öllum ungum
viðskiptavmum sinum a „litlu jolin" með Oskari og Emmu.
Skemmtunin hefst kl. 14.00 og er haldin í Sjallanum.
Miðar verða afhentir í útibúum bankans
í Skipagötu og Hrísalundi
og gilda þeir einnig sem
happdrættismiðar.
Dagskrá:
Jólasaga,
Óskar og Emma,
Jólasveinar,
dregið í
happdrættinu,
dansað í krinqum
jólatré.
Munið
að sækj
miðana
vegna þess að hluthafar í þess-
ari verksmiðju eru athafna-
menn á Akureyri. Hlutafélagið
Sjónval hf. á Akureyri á helm-
ingshlut í verksmiðjunni á móti,
kínverska ríkinu og er stofn-
hlutafé um 75 milljónir
íslenskra króna. Akureyring-
arnir sem hlut eiga að máli eru
Halldór Jóhannsson, lands-
lagsarkitekt, Ragnar Sverris-
son, kaupmaður í JMJ, Pétur
Bjarnason, kaupsýslumaður
og Rögnvaldur Sigurðsson,
kaupsýslumaður. Þá er Stefán
Jóhannsson, viðskiptafræðing-
ur, bróðir Halldórs, einnig
hluthafi í Sjónvali hf. og hann
er jafnframt framkvæmdastjóri
lakkrísverksmiðjunnar í Kína.
Verksmiðjan hönnuð
hér á landi
Töluverður aðdragandi er að
stofnun fyrirtækisins í Kína en
Akureyringarnir komu inn í
fyrirtækið fyrr á þessu ári. Nú er
hins vegar ekkert því til fyrir-
stöðu að framleiðsla geti hafist af
fullum krafti í byrjun næsta árs.
Fyrirtækið ber heitið Scandinavian
- Guangzhou Candy Co ltd. og er
er staðsett í Guangzhou í Suður
Kína. Verksmiðjan sem er í 3000
ferm. húsnæði, var hönnuð hér á
landi og uppfyllir staðla í mat-
væla- og sælgætisframleiðslu á
Vesturlöndum. Dagur hafði sam-
band við Halldór Jóhannsson,
landslagsarkitekt og spurði hann
fyrst af hverju Akureyringar eru
að standa í fyrirtækjarekstri í
Kína.
Laun í Kína 2-3 þúsund
á mánuði
„Það eru að sjálfsögðu margar
ástæður fyrir því. í Kína er mjög
ódýrt vinnuafl og hráefnið til
framleiðslunnar er ódýrt. Laun
verkafólks í Kína eru um 2-3 þús-
und krónur á mánuði á móti 50-
60 þúsund krónum hér á landi.
Kostnaður við að koma verk-
smiðjunni upp er einnig lægri
þarna en víðast annars staðar.
Kínverjar eru að byggja upp
atvinnulíf í landinu, m.a. með
því að laða að erlenda fjárfesta
og tækniþekkingu og þeir eru til-
búnir að leggja fram fjármagn,
aðstöðu og fleira á móti. Það er
því auðveldara að komast af stað
með rekstur í Kína, fyrir þá sem
komast inn í landið á annað
borð. - Og það er bæði skemmti-
legt og spennandi að taka þátt í
þeirri uppbyggingu."
Halldór segir að Kínverjarnir
Höfum í úrvali:
Undirkjóla, undirpils,
náttkjóla, kvennáttföt,
barnanáttföt og morgunsloppa
Allt frá íris fatagerð ■ Mjög hagstætt verð
Veljum íslenskt til jólagjafa