Dagur - 18.12.1992, Síða 16
Jólahlaðborð Bautans
er framreitt alla daga í hádeginu
og á kvöldin fram að jólumf einnig í
Smiðju á Þorláksmessu frá kl. 17.30
Léttreukta lambakjötið
YVA
1\ L j/JL G ullve r ó / n u n a li a f i í I N T F RFA I R I 9 9 2
Norðlenska léttreykta lambakjötið
er Ijúffengur hátíðamatur á hagstæðu verði.
Urvals hráefni og nákvæm reyking
i reykhúsi KEA tryggir þér lambakjötið
eins og það á vera.
KEA - léttreykta lambakjötið.
N n 11 ú r ti n f u r d ú r E i/ / n f i r d i n u in .
Formaður bæjarráðs Akureyrar:
Styður söluhugmynd Halldórs
Sigurður J. Sigurðsson, for-
maður bæjarráðs Akureyrar,
tekur undir með Halldóri
Jónssyni, bæjarstjóra, að beri
að skoða að bærinn selji
eitthvað af hiutabréfum Akur-
eyrarbæjar í Utgerðarfélagi
Akureyringa hf. Sigurður seg-
ist ekki telja það markmið að
bærinn eigi meirihluta í fyrír-
tækinu.
urðsson, formaður bæjarráðs.
í samtali við Dag sagði Sigurð-
ur að eftir áramót yrði skoðað
með sölu á hluta af hlutabréfum
Akureyrarbæjar í Útgerðarfélag-
inu, én ekkert væri ákveðið í
þeim efnum. Sigurður sagði
aðspurður að hann teldi það ekki
markmið að bærinn eigi meiri-
hluta í ÚA. „Ég hef haft það
sjónarmið uppi um þetta mál að
menn verði að hafa rök fyrir því
hvernig þessir fjármunir verði
betur ávaxtaðir, því þeir ávaxta
sig ágætlega þarna,“ sagði
Sigurður. óþh
Akureyri:
Búið að upplýsa fimm iimbrot
Rannsóknarlögreglan á
Akureyri hefur upplýst fimm
innbrot á Akureyri í nóvem-
ber og desember. Nítján ára
piltur kom við sögu í öllum
innbrotunum en fjórtán ára
piltur var með honum í einu
þeirra. Þeir eru báðir frá
Akureyri.
I Um er að ræða innbrot í
Glerárskóla, Lundarskóla og
leikskólann Flúðir í nóvember
og í Hvftasunnukirkjuna og
verkstæði að Draupnisgötu 7 í
desember. óþh
Eignarhlutur Akureyrarbæjar
í Útgerðarfélaginu er nú 58,4%
og samkvæmt upplýsingum
Kaupþings Norðurlands hf. má
ætla að miðað við núgildandi
gengi bréfa í Útgerðarfélaginu sé
raunverð hlutabréfa bæjarins um
1,1 milljarður króna.
í ræðu Halldórs Jónssonar,
bæjarstjóra, við framlagningu
fjárhagsáætlunar Akureyrarbæj-
ar 24. nóvember sl. kom fram sú
skoðun hans að kanna möguleika
á sölu á hluta af eign bæjarins
í ÚA og þeir fjármunir sem
þannig fengjust yrðu notaðir til
að styrkja stöðu bæjarins „til
framfara og nýrra átaka í
atvinnumálum". Halldór ítrekaði
þetta við síðari umræðu um fjár-
hagsáætlun sl. þriðjudag og undir
þá skoðun tók Sigurður J. Sig-
Almannavarna-
nefnd Húsavíkur:
Lagður verði jarð-
strengur á fjallið
./æjarráð Húsavíkur telur rétt
að athugað verði hvort ekki er
til vannýtt skólahúsnæði í
landinu, sem nýta mætti til
rekstrar norrænna skólabúða
og ráðstefnuseturs. Þetta kom
fram á fundi bæjarráðs nýlega.
Norræna skólasetrið sendi
Húsavíkurbæ erindi þar sem
kynnt var hugmynd um rekstur
norrænna skólabúða og ráðstefnu-
seturs á Hvalfjarðarströnd.
Húsavíkurbæ var jafnframt boð-
in stofnaðild að hlutafélagi um
skólasetrið. Áform eru um að
byggja nýtt hús fyrir þessa starf-
semi.
Bæjarráð taldi ekki mögulegt
að verða við þessu erindi og telur
rétt að fyrst sé athugað hvort í
landinu sé ekki til staðar vannýtt
skólahúsnæði, sem nýtanlegt væri
fyrir þessa starfsemi. IM
-
Vxsa. a
'V
dagar
til jóla