Dagur - 30.12.1992, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 30. desember 1992 - DAGUR - 7
SVIPMYNDIR LÍÐANDI ÁRS
Gleðitár í
SjaUanum
Jón Kjell Seljeseth kom sá og sig-
raði í keppninni um Landslagið
1992 í Sjallanum á Akureyri, en
keppnin fór fram 20. nóvember.
Lag hans heitir Ég ntan hverja
stund, í flutningi Guðrúnar Gunn-
arsdóttur og Pálma Gunnarssonar.
Hér er sigurtríóið í sigurvímu að
keppninni lokinni. Lag Akureyr-
inganna Jóns Andra Sigurðarsonar
og Trausta Heiðars Haraldssonar
var valið athyglisverðasta lag
keppninnar.
Gjaldþrota Uppi
Uppinn hf. á Akureyri var úrskurðaður gjaldþrota í desember. Sýslu-
mannsembættið hafði áður innsiglað Uppann, 1929 og Bíóbarinn vegna
vandoldins virðisaukaskatts og staðgreiðslu. Hlutafélagið 1929 keypti
reksturinn og í Ijósi þess var innsiglið rofið. Auk þess að skulda virðis-
aukakaskatt og staðgreiðslu skuldaði Uppinn laun og launatengd gjöld.
Hlaupársböm
Fjórtán Akureyringar héldu upp á
afmæli sitt á hlaupársdaginn, 29.
febrúar. Meðal þeirra voru Hilmar
Gíslason, bæjarverkstjóri, sent
hélt upp á 14 ára afmælið (56 ára),
Rúnar Sverrisson, sem hélt upp á
1 árs afmælið (4 ára) og Stefán
Stefánsson, bæjarverkfræðingur,
sem hélt upp á 15 ára afmælið (60
ára).
Stefanía
varðað
Hörpu
Málefni Hótels Stefaníu voru tölu-
vert til umræðu fyrri hluta ársins.
Ferðamálasjóður og Byggðastofn-
un keyptu hótelið á nauðungar-
uppboði síðla árs 1991, en þrátt
fyrir það fengust fyrrverandi eig-
endur hótelsins ekki til að fara út
úr því. Bæjarfógetaembættið kvað
13. febrúar upp þann úrskurð að
hótelstýran skyldi borin út. Til
þess kom ekki og var hótelið síðar
selt nýjum rekstraraðilum, nokkr-
um einstaklingum í Reykjavík og
Bautanum á Akureyri og því gefið
nafnið Hótel Harpa. Hótelstjóri er
einn eigenda, Guðmundur Áma-
son.
Kolbijálað veður
Aftakaveður gekk yfir landið 24. febrúar. Á Akureyri mældist mest unt
80 hnúta vindur. Engin stærri tjón urðu á Akureyri, en ýmsir lausir hlutir
fuku til og á nokkrum húsunt losnuðu þakplötur. Svo mikið var hvass-
viðrið að sendibifreið Brauðgerðar KEA, sem stóð við Kjörmarkaðinn
við Hrísalund, fauk á hliðina.
Sighvatur
og Jesú
Kristur
„Enginn neitar einum milljarði, en
þið borgið ekki upp í fimmtán
milljarða gat með einum milljarði.
Það var bara Jesú Kristur sent gat
satt sitt fólk með tveimur brauðum
og fimm fiskum.“ (Sighvatur
Björgvinsson, heilbrigðisráðherra,
um niðurskurðinn í velferðarker-
finu á fundi á Siglufirði 5. febr-
úar.)
Fegurst norðlenskra fljóða
Pálína Sigrún Halldórsdóttir var kjörin fegurst norðlenskra fljóða í Sjall-
anum á Akureyri 28. febrúar, en tólf stúlkur tóku þátt í keppninni. Pálína
Sigrún var einnig valin Ijósmyndafyrirsæta ársins. Hér er Fjóla Pálma-
dóttir, Fegurðardrottning Norðurlands 1991, að krýna Pálínu Sigrúnu
Fegurðardrottningu Norðurlands 1992.
Til leigu er 3. hæð í þessu glæsilega húsi,
lyfta er í húsinu.
Upplýsingar gefur Friðrik í Pedromyndum.
Sendum viðskiptavinum okkar
bestu nýársóskir
og þökkum viðskiptin á árinu
sem er að líða.
BJÖRN JÓSEF ARNVIÐARSON HDL.
ARNAR SIGFÚSSON HDL.
ÉÍGNAKJÖR
FASTEIGNASALA
TÍSKUVÖRUVERSLUNIN
AMOR
Trésmíðaverkstæði
Sveins Heiðars hf.
cPedi6mjndtr’