Dagur - 30.12.1992, Side 31
Enska knattspyrnan
Þorleifur Ananíasson
Miðvikudagur 30. desember 1992 - DAGUR - 31
Manchester Utd.
styrkir stöðu sína
- tveir reknir útaf hjá Everton - Norwich misnotaði víti
Bakvörðurinn Dennis Irwin skoraði fímmta mark Man. Utd. gegn Coventry
og nú er farið að spá Man. Utd. meistaratitli.
Á mánudag var frídagur í
Englandi og því upplagt að
hafa umferð í knattspyrnunni.
Vegna plássleysis verður aðeins
stiklað á stóru að þessu sinni,
en hér koma helstu atriði Ieikj-
anna á mánudag, en leikur
Sheffield Utd. gegn Oldham
var leikinn á þriðjudeginum.
■ Topplið Norwich er hætt að
skora mörk og er liðið mætti
Leeds Utd. á Elland Road mis-
tókst liðinu að skora í fjórða
leiknum í röð. Markalaust jafn-
tefli varð í leiknum, en Mark
Bowen brenndi af vítaspyrnu fyr-
ir Norwich á 10. mín. leiksins.
Þrátt fyrir þessi úrslit heldur liðið
þriggja stiga forskoti í efsta sæt-
inu.
■ Lið Man. Utd. er í miklu stuði
þessa dagana og tók Coventry
heldur betur til bæna og sigraði
5:0. Ryan Giggs og Mark Hughes
skoruðu fyrir liðið í fyrri hálfleik
og yfirburðir liðsins héldu áfram í
þeim síðari. Eric Cantona bætti
þriðja markinu við úr vítaspyrnu
á 65. mín., Lee Sharpe sem hafði
misnotað tvö dauðafæri í leikn-
um bætti fjórða markinu við eftir
undirbúning Cantona á 78. mín.
Lokaorðið átti síðan bakvörður-
inn Dennis Irwin er 8 mín. voru
Staðan
Úrvalsdeiid
Norwich 22 12- 5- 5 34:34 41
Man. Utd. 2210- 8- 4 30:17 38
Aston Villa 22 10- 8- 4 32:24 38
Blackburn 22 10- 7- 5 35:19 37
Ipswich 22 8-12- 2 31:23 36
Chelsea 22 9- 8- 5 28:21 35
QPR 21 9- 5- 7 30:25 32
Covenhy 22 8- 8- 6 33:32 32
Arsenal 22 9- 4- 9 13:22 31
Man. Cily 22 8- 6- 8 30:24 30
Liverpool 21 8- 5- 8 35:33 29
Tottcnhara 22 7- 8- 7 22:27 29
Crvstal Palace 22 6- 9- 7 29:28 27
Middlcsbrough 22 6- 9- 7 32:34 27
Shcff. Wcd. 22 6- 9- 7 26:30 27
Leeds 22 6- 7- 9 33:37 25
Southampton 22 5- 9- 8 22:26 24
Everton 22 7- 5-11 22:30 23
Oldhain 20 5- 6- 9 33:39 21
Sheff. Utd. 21 5- 6-10 18:29 21
Wlmbledon 22 4- 8-10 26:33 20
Nottingham Forest 21 3- 6-12 2(1:3215
1. deild
Neweastle 23 17- 1- 4 45:21 53
Tranmcre 22 12- 5- 5 42:26 41
West Ham 2311- 6- 6 40:25 39
Millwall 13 10- 9- 4 35:20 39
Portsinouth 23 10- 7- 6 38:28 37
Leicester 23 10- 5- 8 29:29 36
Wolvcs 24 8-10- 6 35:27 34
Swindon 21 9- 6- 640:3633
Brentford 23 9- 6- 8 35:27 33
Derby 23 10- 3-10 40:3.3 33
Charlton 24 8- 9- 7 27:23 32
Grimsby 23 9- 4-10 34:32 31
Petcrborough 21 8- 7- 5 31:26 30
Watford 24 7- 9- 8 33:37 30
Barnslcv 23 9- 3-11 29:27 30
Oxford Unitcd 22 6-11- 5 34:27 29
Sundcrland 22 8- 4-10 27:37 28
Bristol City 23 7- 6-10 28:44 27
Bristol Rovers 24 6- 4-14 32:53 22
Luton 22 4- 9- 9 30:38 21
Southend 23 5- 6-12 24:33 21
Rirmingham 20 5- 5-10 18:35 20
Notts Countv 23 4- 8-11 23:42 20
Cambridge United 23 4- 8-1123:4220
til leiksloka. Óvæntir yfirburðir
því ekki er langt síðan Coventry
burstaði Liverpool 5:0.
■ Blackburn var í öðru sæti fyrir
umferðina, en tapaði gegn Ipswich
2:1 Roy Wegerle virtist þó hafa
tryggt Blackburn sigurinn með
marki 17 mín. fyrir leikslok, en
tvö mörk á síðustu 10 mín. leiks-
ins frá þeim Bontzo Guentchev
og Chris Kiwomya tryggðu Ips-
wich sigurinn í leiknum.
■ Nottingham For. er enn í
vandræðum og án Þorvaldar
Örlygssonar tapaði liðið gegn
Tottenham 2:1. Guðni Bergsson
kom inná sem varamaður hjá
Tottenham undir lokin. Það var
Gary Mabbutt sem tryggði Tott-
enham sigurinn með marki 4
mín. fyrir leikslok. Áður höfðu
þeir Nick Barmby fyrir Totten-
ham og Scott Gemmill skorað
fyrir Nottingham For. sem er í
neðsta sætinu.
■ Liverpool gerði aðeins jafn-
tefli á heimavelli gegn Man. City
þar sem City náði raunar forystu
með marki Niall Quinn. Ian
Rush sem átt hefur heldur erfitt
uppdráttar að undanförnu jafn-
aði fyrir Liverpool og tryggði þar
með liði sínu stig.
■ Everton lenti í kröppum
dansi í leik sínum gegn Q.P.R,
og tapaði að lokum 4:2. Mark-
vörður Everton Neville Southall
og miðherji liðsins Paul Rideout
voru báðir reknir útaf í lok fyrri
hálfleiks. Útherjinn Andy Sinton
skoraði þrjú af mörkum Q.P.R. í
leiknum.
■ Simon Osborn tryggði Crystal
Palace enn einn sigurinn með
eina marki leiksins gegn Middles-
brough á útivelli. Palace er nú á
mikilli ferð upp stigatöfluna og
brúnin á Braga bakara léttist
óðum.
■ Sheffield Wed. vann góðan
sigur á útivelli gegn Southampton
2:1 og skoruðu þeir John Sheridan
og David Hirst mörkin fyrir
Sheff. Wed.
■ Lundúnaliðin Wimbledon og
Chelsea gerðu markalaust jafn-
tefli í leik sínum og Chelsea liðið
virðist nú hafa lagst í jafnteflin.
■ Aston Villa lék stórvel gegn
Arsenal og hefði átt að sigra mun
stærra en 1:0. Dean Saunders
skoraði sigurmark Villa úr víta-
spyrnu á síðustu mín. fyrri hálf-
leiks eftir að David O’Leary
hafði brotið á Dwight Yorke sem
átti stórleik hjá Villa. David
Seaman átti mjög góðan leik í
markinu hjá Ársenal og varði
tvívegis frá Saunders og einu
sinni frá Yorke eftir að þeir
höfðu sloppið einir í gegn. í lokin
munaði þó minnstu að Ian
Wright næði að jafna fyrir
Arsenal, en Nigel Spink mark-
vörður Villa varði mjög vel gott
skot hans. Þ.L.A.
Úrslit
Úrvalsdeild
Aston Villa-Arsenal 1:0
Ipswich-Blackbum 2:1
Leeds Utd.-Norwich 0:0
Liverpool-Manchester City 1:1
Manchester Utd.-Coventry 5:0
Middlesbrough-Crystal Palace 0:1
Q.P.R.-Everton 4:2
Southampton-Shcflleld Wed. 1:2
Tottenham-Nottingham For. 2:1
Wimbledon-Chelsea 0:0
Shelfíeld Utd.-Oldham þridjudag
1. deild
Barnsley-Tranmere 3:1
Bristol Rovers-Southend 0:2
Derby-Portsmouth 2:4
MiUwall-Leicester 2:0
Notts County-Brcntford 1:1
Oxford-Newcastle 4:2
Peterborough-Charlton 1:1
Sunderland-Grimsby 2:0
Watford-Cambridge 2:2
West Ham-Luton 2:2
Wolves-Bristol City 0:0
Swindon-Birmingham þriðjudag
Léttisfélagar
jólatrésskemmtun
verður í Skeifunni sunnudaginn 3. janúar, kl.
14.00.
Eldfjörugir jólasveinar koma í heimsókn.
Allir velkomnir. Fjölmennið.
Kvennadeild Léttis.
| >
P Eg sendi Bamastúkunni Von nr. 75 mínar bestu |
jf nýárskveðjur i
| með þökk jyrir samstarfið á árinu |
Kf>m e>r ari Uria
I
Ólafía Halldórsdóttir
&
iirara«rarararainini»rai»i»raini«rak
s
g
s
g
g
g
Óskum viðskíptavinum okkar
svo og landsmönnum öllum
gleðilegs árs
þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða
Saumum gluggatjöld
vönduð og góð þjónusta
B
s
8
S
3
9
s
s
B
s
s
9
GLUGGATJALDAÞJONUSTAN g
GLERÁRGÖTU 26 • AKUREYRI • SÍMI 96-26685
. . -I
g
g
g
g
g
9
8
' /T
g Krabbameinsfélag Akureyrar s
g og nágrennis \
g óskar félagsmönnum sínum og velunnurum
g
g
9
9
gleðilegs árs
og þakkar ómetanlegan stuðning
á árinu sem er að iíða
s
9
3
iisai»iQ»isaisaiB»iaBB»RaiE»«sin9ia3iisaiQaisaHsir
• — ~ — i~ <- r r i ■ ■ * m~ • m • ■
Innilegar þakkir sendi ég öllum þeim
sem glöddu mig með heillaóskum,
blómum, gjöfum og heimsóknum
á 90 ára afmæli mínu.
Guð blessi ykkur og gefi ykkur
gæfuríkt nýtt ár
ÁGÚST JÓNSSON OG
MARGRÉT MAGNÚSDÓTTIR.