Dagur


Dagur - 13.01.1993, Qupperneq 4

Dagur - 13.01.1993, Qupperneq 4
4 - DAGUR - Miðvikudagur 13. janúar 1993 ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF. SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 96-24222 ÁSKRIFT KR. 1200ÁMÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ KR. 110 GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMNETRA 765 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON BLAÐAMENN: GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON (íþróttir), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 96-41585), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓLIG. JÓHANNSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, SIGRÍÐUR ÞORGRÍMSDÓTTIR (Sauðárkróki vs. 95-35960, fax 95-36130), STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRÐUR INGIMARSSON LJÓSMYNDARI: ROBYN ANNE REDMAN PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF. SÍMFAX: 96-27639 15-20% hækkun vaxta látín óátalin Sumt er heilagra en annað í þessu samfélagi, samanber söguna um Jón og séra Jón. í lok nýliðins árs var tilkynnt að bankarnir hygðust hækka nafnvexti um 1,5 til 2 prósentustig um áramótin. Viðskiptaráðherra gerði enga athugasemd við þessa gífurlegu vaxtahækk- un en sagðist reyndar telja hana „fullmikla'1. Forsætisráðherra gerði enga athugasemd, ekki fjármálaráðherra og þaðan af síður aðrir ráðherrar ríkisstjórnarinnar. Þar með var það afgreitt mál, vextirnir hækkuðu. Vakin skal athygli á því að hér var ekki um að ræða einhverja örlitla leiðréttingu á vaxta- stiginu. Nefna má sem dæmi að víxilvextir í Landsbanka íslands hækkuðu úr 11,5% í 13,5%. Það er 17,4% hækkun. Kjörvextir á óverðtryggðum skuldabréfum í sama banka hækkuðu úr 10% í 11,5%. Það er 15% hækkun. Þá hækkuðu kjörvextir í Búnaðarbanka úr 10,5% í 12,5%. Það er hækkun um 19,1%. Vaxtahækkunin sem kom til framkvæmda um áramótin var sem sagt á bilinu 15-20% og munar um minna! Á sama tíma og stjórnarherrarnir sáu enga ástæðu til að átelja ósvífna vaxtahækkun bankanna og fá talsmenn þeirra til að rök- styðja ósköpin, sá fjármálaráðuneytið ástæðu til að véfengja verðhækkun bænda á nauta-, svína-, kjúklingakjöti og eggjum vegna skertra endurgreiðslna á virðisaukaskatti. Skrifstofustjóri fjármálaráðuneytisins lét hafa eftir sér í fjölmiðlum að 7% meðaltalshækkun væri eðlileg en ekki 10-14% hækkun eins og bændur hefðu boðað. Það er athyglis- og umhugsunarvert að bera saman viðbrögð stjórnvalda við þessum tveimur hækkunum. Órökstudd vaxtahækkun bankanna, sem byggir á framtíðarspám um verðlagsþróunina, var látin óátalin. Rökstudd verðhækkun á ofangreindum landbúnaðar- afurðum, tilkomin vegna skertra endur- greiðslna á virðisaukaskatti til bænda, var hins vegar véfengd af talsmönnum fjármála- ráðuneytisins. Þó ætti vart nokkur að vera í vafa um hvor hækkunin veldur meira tjóni í efnahagslífinu. Hin mismunandi viðbrögð segja sína sögu um það hverjir eru í náðinni hjá stjórnvöldum og hverjir ekki. Fjármagnseigendur mega fara sínu fram án afskipta hins opinbera - aðrir ekki. BB. Atvinnumálin á Akureyri: Er þróunarmiðstöð hluti af lausn atvinnuvandans? Það er kunnara en frá þurfi að segja að atvinnumálin á Akureyri eru í hnút - rembihnút væri e.t.v. réttara orð. Hundruð vinnufærra karla og kvenna hafa verið skráð atvinnulaus og sér ekki fyrir end- ann á þeirri þróun. Fátt heyrist frá opinberum aðilum um hvað þeir hafa í hyggju að gera í at- vinnumálum framtíðarinnar. Eina sem kemur t.d. frá núverandi rík- isstjóm er boðskapur um frekara aðhald og spamað - og auknar álögur á almenning og þá ekki síst á þá sem sannarlega eiga varla fyrir salti í grautinn. Þegar leitað er leiða til að auka atvinnu staðnæmast menn oft við „ráð“ á borð við nýbyggingar á vegum sveitarfélaga eða þrif á opinberum byggingum svo dæmi séu tekin. Nýbyggingamar verða brátt að stofnunum sem fátítt er að skapi verðmæti en auka fremur á útgjöld og bæta við skuldabagga sveitarfélaga. Marklaust spjall um stóriðju Sjaldnar er rætt um úrlausnir í at- vinnulífinu sem geta leitt til auk- innar atvinnu þegar fram líða stundir. Á Akureyri er framtak Ú.A. og hugsanleg eignaraðild fé- lagsins í þýsku útgerðarfyrirtæki það eina sem vakið hefur athygli nú nýverið - fyrir utan vatnsút- flutning KEA og tilraunir KEA með pökkun á fiski í neytenda- pakkningar. Þá má ekki gleyma Slippstöðinni/Odda en þar á bæ hafa menn ýmsar ráðagerðir á prjónunum - svo tæpt sé á nokkr- um jákvæðum atriðum. Helsta ráð núverandi ríkis- stjómar er marklaust spjall um stóriðju og útlenskar hjálparhend- ur en sá draumur er hægt og bít- andi að breytast í martröð. Aukin atvinna verður fyrst og fremst til fyrir atbeina heimamanna. Aðstoð við hugvitsmenn Víða um land sitja menn á rök- stólum og kanna í þaula hvert sé helst að stefna - og er þá komið að aðalatriði þessa greinarstúfs. Á Akranesi rituðu tveir menn bréf til bæjarráðs og inntu það eftir hvort ekki væri gmndvöllur fyrir nýrri hugsun í atvinnuumræðunni og áttu þar við „þróunarmiðstöð" sem þeir nefndu svo. Með öðrum orðum datt þeim í hug að reyna að virkja hugvit heimamanna. Lík- lega trúðu þeir ekki á sendingar að utan og vissu sem er að hollur er heimafenginn baggi. Áskeil Þórisson. í bréfinu segir: „Stofnuð verði á Akranesi þróunarmiðstöð sem bjóði fram aðstoð við þá sem hafa hugmyndir til nýsköpunar í at- vinnumálum. Aðstoðin fælist að- allega í að leggja til húsnæði sem samanstæði af þróunaraðstöðu, verkstæði og tölvuaðstöðu og að- stöðu til fyrstu skrefa í fram- „Víða erlendis eru stofnanir með líku sniði og þeir félagar gera að umtalsefni. Nefna má Danmörku í því sambandi en þró- unarmiðstöðvar af þessu tagi gegna um- talsverðu hlutverki í atvinnulífi Danmerk- ur,“ segir Áskell Þóris- son í greininni. leiðslu." Þeir félagar leggja til að bæjarfélagið útvegi húsnæði, bún- að og að skipuð verði stjóm og ráðinn forstöðumaður. Æskilegt er, segja þeir í bréfinu, að for- stöðumaðurinn og stjómarmenn hafi þekkingu á tæknimálum svo sem í málmiðnaði, rafiðnaði og fleiri greinum. Á þetta atriði leggja þeir mikla áherslu. Auglýst eftir hugmyndum Lagt var til að forstöðumaðurinn auglýsti eftir hugmyndum og ynni síðan úr þeim með viðkomandi aðilum. „Þegar forvinnu er lokið leggur forstöðumaðurinn hug- myndimar fyrir stjóm sem tekur endanlega ákvörðun um hvort og þá hvemig verkefnið skuli tekið inn í þróunarmiðstöðina. Bíða mætti með innréttingu á húsnæði þar til niðurstaða úr þessu liggur fyrir og ljóst er hvort áhugi er fyr- ir hendi og nothæfar hugmyndir koma fram.“ Bréfritaramir, Hafsteinn Bald- ursson og Hjörtur Gunnarsson, segja einnig að forstöðumaðurinn eigi að aðstoða þá sem fengju inni - sem og þá sem til hans leita - þ.e. í að fá styrki og lán frá þeim aðilum sem sinna fjármögnun þró- unarverkefna, en einnig ætti hann að gera athugun á markaði fyrir hugmyndimar. En forstöðumaðurinn á að gera fleira að mati bréfritara. Hans verk væri að fylgjast með fram- vindu verkefna og þegar fyriffram áætlaður þróunartími væri liðinn ætti stjómin að taka ákvörðun um frekara áframhald. „Þar gæti verið um að ræða framlengingu á þró- unartíma eða aðstoð við fyrstu skref í framleiðslu og markaðs- setningu á fullunninni hugmynd“, segir í bréfinu. Nokkur dæmi um árangur Nokkur verkefni má taka sem dæmi um hvað getur sprottið af góðri hugmynd. Bréfritarar nefna t.d. Sérsteypuna, sem er sam- starfsverkefni íslenska Jámblendi- félagsins og Sementsverksmiðju ríkisins. Einnig nefna þeir flæði- línuframleiðslu Þorgeirs og Ellerts hf. sem unnin er í samvinnu við Ingólf Ámason, hönnuð og rekstr- artæknifræðing. Þá nefna þeir einnig aðstoð Jámblendifélagsins við þróun og smíði línuveiðikerf- is. Víða erlendis eru stofnanir með líku sniði og þeir félagar gera að umtalsefni. Nefna má Danmörku í því sambandi en þróunarmið- stöðvar af þessu tagi gegna um- talsverðu hlutverki í atvinnulífi Danmerkur. Eyfírsk þróunarmiðstöð? Bæjarráð Akraness tók hugmynd- inni vel. Búið er að koma á fót starfshópi sem hefur það hlutverk að fjalla um hugsanlega stofnun og rekstur þróunarmiðstöðvar. Reiknað er með að snemma á þessu ári verði tekin ákvörðun um j hvort bæjarfélagið eða stofnanir á j þess vegum muni leiða málið áfram og hrinda því í framkvæmd. Þróunarmiðstöð er ekki nein allsherjarlausn á atvinnuvanda Akureyrar eða Eyjafjarðar. Þvert á móti. Hins vegar gæti hún haft sitt að segja þegar við skríðum upp úr þeim efnahagslega öldudal sem við erum nú í og allt ætlar að drepa. Hvað sem öðru líður ber okkur að kanna alla möguleika á aukinni atvinnu. Akurnesingamir, sem ' báðir hafa umtalsverða reynslu í þróun- arverkefnum, eru að tala af reynslu en báðir hafa lagt sitt af mörkum til línuveiðikerfisins sem áður var nefnt. Ekki síst af þeirri ástæðu er rétt að leggja við hlustir. Þeir vilja fara niður í grasrótina og reyna að leita uppi hugmyndir - sem hugvitsmenn hafa og vilja koma á framfæri en það reynist mörgum þeirra erfitt, þar sem þeir eiga í erfiðleikum vegna skorts á tæknibúnaði, fjármagni og van- þekkingar á markaðsmálum. Ey- firsk þróunarmiðstöð, skipuð hæfu fólki með þekkingu og áhuga, gæti án efa haft töluvert að segja í atvinnumálum framtíðarinnar. Áskell Þórisson. Höfundur býr og starfar á Akureyri. „Fátt heyrist frá opinberum aðilum um hvað þeir hafa í hyggju að gera í atvinnumálum framtíðarinnar,“ segir Áskeil m.a. í greininni.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.