Dagur - 13.01.1993, Blaðsíða 8

Dagur - 13.01.1993, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - Miðvikudagur 13. janúar 1993 Tværbækurum Pésa rófulausa Verslunin Notað innbú, sími 23250. Full búð af góðum vörum t.d.: Leðursófasett frá 40.000,- Plussófasett frá 15.000,- Borðstofusett frá 8.000,- Hornsófar frá 25.000,- Sófaborð frá 3.000,- Hillusamstæður frá 15.000,- Rörahillur frá 6.000,- Sjónvarpsskápar frá 5.000,- Svefnsófar f. 2 frá 10.000,- Skrifborð frá 3.000,- Rúm frá 5.000,- Ryksugur frá 3.000,- (sskápar frá 10.000,- Eldavélar frá 8.000,- Viftur frá 3.000,- Faxtæki frá 45.000,- Peningakassar frá 12.000,- Sjónvörp frá 15.000,- Video frá 6.000,- og margt, margt fleira. Okkur vantar nú þegar ýmislegt ( umboðssölu. Sækjum - Sendum. Notað innbú, sími 23250. Vlnna - Leiga. Gólfsögun, veggsögun, malbiks- sögun, kjarnaborun, múrhamrar, höggborvélar, loftpressur, vatns- sugur, vatnsdælur, ryksugur, loft- sugur, háþrýstidælur, haugsuga, stíflulosanir, rafstöðvar, mini-grafa, dráttarvél 4x4, pallaleiga, jarðvegs- þjöppur, steypuhrærivélar, hefti- byssur, pússikubbar, flísaskerar, keðjusagir o.fl. Ný símanúmer: 96-11172, 96-11162, 985-23762, 984-55062, símboði. Hreingerningar, teppahreinsun, þvottur á rimlagardínum, leysum upp gamalt bón og bónum. Tökum að okkur hreingerningar, teppahreinsun og bón í heimahús- um og fyrirtækjum. Þvoum rimlagardínur, tökum niður og setjum upp. Fjölhreinsun, Fjölnisgötu 6c, Inga Guðmundsdóttir, heimasímar 25296 og 985-39710.. Tökum að okkur daglegar ræst- ingar fyrir fyrirtæki og stofnanir. Ennfremur allar hreingerningar, teppahreinsun og gluggaþvott. Ný og fullkomin tæki. Securitas, ræstingadeild, símar 26261 og 25603. Gengið Gengisskráning nr. 6 12. janúar 1993 Kaup Sala Dollari 63,99000 64,13000 Sterllngsp. 99,68700 99,90500 Kanadadollar 50,14300 50,25300 Dönskkr. 10,17610 10,19840 Norskkr. 9,18410 9,20420 Sænsk kr. 8,63380 8,65270 Finnskt mark 11,80630 11,83210 Fransk. franki 11,58400 11,60930 Belg. franki 1,91010 1,91430 Svissn. franki 43,03300 43,12710 Hollen. gyllini 34,98540 35,06190 Þýskt mark 39,32160 39,40760 ítðlsk llra 0,04362 0,04372 Austurr. sch. 5,58890 5,60110 Port. escudo 0,43900 0,44000 Spá. peseti 0,55380 0,55500 Japansktyen 0,51190 0,51302 írskt pund 103,71200 103,93900 SDR 88,05540 88,24800 ECU.evr.m. 77,39910 77,56840 íbúð til leigu! 3ja herbergja íbúð til leigu við Skarðshlíð. Uppl. í síma 91-666198, Karl. Herbergi, eldhús og snyrting til ieigu í Munkaþverárstræti. Sér inngangur. Leigist á kr. 13.000 á mánuði. Laust nú þegar. Uppl. í síma 23542. Til leigu 3ja herb., 90 m!, íbúð á Brekkunni, laus 1. febrúar. íbúðin er vel staðsett, stutt í skóla og þjónustu. Uppl. gefur Baldur í síma 24222. Til leigu herbergi með húsgögn- um. Aðgangur að eldhúsi, baði og sjón- varpi. Uppl. í síma 24251 eftir kl. 18.00. Herbergi til leigu á Brekkunni. Aðgangur að eldhúsi og baði, sér inngangur. Uppl. í síma 96-22835. Til leigu húsnæði það sem Sjúkrasamlag Akureyrar hafði í Gránufélagsgötu 4, (J.M.J. húsið). Tilvalið fyrir skrifstofur eða verslun. Einnig er til leigu skrifstofuher- bergi á II. hæð. Upplýsingar gefur Jón M. Jónsson, símar 24453 og 27630. Ökukennsla Matthíasar. Ökukennsla í fullum gangi. Ath. Rýrnandi ökuréttindi í sjónmáli, vegna lagabreytinga. Lærið því sem fyrst. Greiðslukjör. Veiti einnig starthjálp kr. 600. Símar 21205 og 985-20465. Til sölu: Toyota Tercel 4x4 árg. ’83. Einnig óskast tilboð í Pontiac 6000 ,LE árg. ’83. Þarfnast lítils háttar lag- færingar. Uppl. í síma 23092 eftir kl. 19.00. Til sölu Toyota Hi-Lux árg. ’82 diesel, með mæli. Plasthús, opið á milli, tvær mið- stöðvar, veltibúr, góður að innan. 36“ dekk á 14“ felgum, 571 drifhlut- fall, læstur að framan og aftan, allt nýtt í hásingu, vökvastýri. Verð kr. 750 þús. staðgr. Skipti á ódýrari bíl koma til greina. Á sama stað er til sölu Mazda árg. ’82 station. Ekin 151 þús. km. Mjög góður bíll, sumar- og vetrardekk á felgum. Verð 180 þús. staðgr. Uppl. í síma 41744 og eftir kl. 23.00 í síma 985-21194. Lítið notuð eldhúsinnrétting til sölu. Jón M. Jónsson, simar 24453 - 27630. Snjómokstur á heimkeyrslum og bílastæðum. Uppl. í síma 985-21536 og 26380. Tek að mér snjómokstur. Verð og gæði við allra hæfi. Uppl. í síma 25536. Björn Einarsson. BORGARBÍÓ Salur A METAÐSOKNABMYNOiN SVSTRAGERV! Salur A Miðvikudagur Kl. 9.00 Sister Act Grínmynd ársins! Óskarsverðlaunaleikarinn Whoopy Goldberg í aðalhlutverki Mynd sem stoppar stutt en þú mátt ekki missa af Kl. 11.00 Sister Act Fimmtudagur Kl. 9.00 Sister Act Kl. 11.00 Sister Act Salur B Miðvikudagur Kl. 9.00 Háskaleikir Kl. 11.00 Sódóma Reykjavfk Fimmtudagur Kl. 9.00 Háskaleikir Kl. 11.00 Sódóma Reykjavík BORGARBÍÓ © 23500 Leikféla£ Akurevrar Útlendingurinn gamanleikur eftir Larry Shue Sýningar Fö. 15. janúar kl. 20.30. Lau. 16. janúar kl. 20.30 Miðasala er i Samkomuhúslnu, Hafnarstræti 57, alla virka daga nema mánudaga kl. 14 til 18 og sýningardaga fram að sýningu. Símsvari fyrir miðapantanir allan sólarhringinn. Greiðslukortaþjónusta. Sími í miðasölu: (96)24073. Aðalfundur íþróttadeildar Léttis verður haldinn í Skeifunni sunnu- daginn 31. janúar kl. 20.00. Stjórnin. Frá Sálarannsóknafélagi Akureyrar. Þórhallur Guðmundsson miðill og enski miðillinn Mallory Stedall starfa hjá félaginu dagana 18.-23. jan. Tímapantanir á einkafundi verða miðvikudaginn 13. jan. frá kl. 16-18 f símum 12147 og 27677. Stjórnin. Stígamót, samtök kvenna gegn kyn- ferðislegu ofbeldi. Símatími til kl. 19.00 í síma 91-626868. I.O.O.F. 2 = 1741158Vi = □ RÚN 59931137 - FRL. ATKV. Safnahúsið Hvoll, Dalvík. Opið á sunnudögum frá kl. 14-17. Náttúrugripasafnið, Hafnarstræti 81, sími 22983. Sýningarsalurinn verður opnaður 10. janúar. Iðunn hefur gefið út tvær bæk- ur um köttinn Pésa rófulausa eftir Gösta Knutsson. Þær heita Pési rófulausi eignast vin og Pési rófulausi og snjókarl- inn. Sigrún Arnadóttir þýddi sögurnar. „Þetta eru bráðskemmtilegar sögur um köttinn Pésa sem varð fyrir því óhappi þegar hann var lítill kettlingur að rotta beit af honum rófuna. Hinir kettirnir í bænum stríða honum óspart og Pési rófulausi lendir í ótal ævin- týrum, en hann er fjörugur og kátur því að hann veit að sá hlær best sem síðast hlær,“ segir í frétt útgefanda. Hlymrek - Jóhanns S. Hannessonar Út er komin hjá Máli og menn- ingu Ijóðabókin Hlymrek eftir Jóhann S. Hannesson. Jóhann S. Hannesson (1919- 1983) er trúlega þekktastur fyrir störf sín sem kennari. Eftir hann komu út nokkrar ljóðabækur og var hann frumkvöðull hér á landi í limrugerð. Þessi bók geymir limrurnar úr bókinni Hlymrek á sextugu sem verið hefur ófáanleg um árabil, og áður óbirtar limrur sem skáld- ið lét eftir sig. Kristján Karlsson bjó til prentunar. Bókin er 47 blaðsíður og kost- ar 1690 kr. Samtök fiskvinnslustöðva: Mótmæla vaxtahækkunum Samtök fiskvinnslustöðva mót- mæla harðlega þeim vaxtahækk- unum sem eru að koma til fram- kvæmda frá 1. janúar á þessu ári. Þessar vaxtahækkanir ganga þvert á gefin loforð bankastofn- ana og stjórnvalda við gerð síð- ustu kjarasamninga um aðgerðir þeirra til lækkunar raunvaxta hér á landi. Þessar vaxtahækkanir munu leiða til aukins vaxtamunar inn- lána og útlána hjá bankastofnun- um. Greinilegt er að útboð á spariskírteinum ríkissjóðs og ríkisvíxlum frá síðasta hausti hafa misheppnast og leitt til vaxta- hækkunar í stað vaxtalækkunar sem þeim var ætlað. Verði ekkert að gert nú þegar munu vaxtahækkanir banka- stofnana án efa kynda undir verðbólgu hér á landi og leiða til hækkunar dráttarvaxta frá 1. febrúar nk. Hækkun innlendra vaxta um hvert prósent mun leiða til 350 milljón króna heildarhækkunar á fjármagnskostnaði hjá íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum á heilu ári. Samtök fiskvinnslustöðva skora á bankastofnanir að endur- skoða þessar vaxtaákvarðanir nú þegar. Við þær kröppu aðstæður sem fólk og fyrirtæki býr við um þessar mundir er þörf á flestu öðru en hækkun vaxta í þessu þjóðfélagi. Suðrænir saltfiskréttir - matreiðslubókin sem beðið hefiir verið eftir Hún er loksins komin, fyrsta íslenska matreiðslubókin sem inniheldur uppskriftir að veislu- réttum búnum til úr íslenskum saltfiski að hætti Spánverja. Þeg- ar Grikkir, ítalir, Portúgalir og Spánverjar elda veislumat nota þeir saltfisk, eða „bacalao“, eins og hann nefnist hjá þeim. í Iönd- um suður Evrópu er saltfiskur með dýrasta mat sem hægt er að fá og nánast eingöngu hafður til hátíðarbrigða. Það er viður- kennd staðreynd í þessum lönd- um að slatfiskurinn frá SÍF er hágæðavara, sem hægt er að treysta. Suðrænir saltfiskréttir er gefin út af Sölusambandi íslenskra salt- fiskframleiðenda í samvinnu við Almenna bókafélagið. Bókin inniheldur um 60 forrétti, aðal- rétti og eftirrétti, sem sýndir eru með myndum, og stutt sögulegt yfirlit yfir saltfiskiðnaðinn á ís- landi. Þýðandi bókarinnar er Sig- ríður Steinunn Stephensen og margháttaða aðstoð veittu Rúnar og Úlfar. Almenna bókafélagið hefur lagt mikið kapp á að búa bókina sem best úr garði og gera hana sem aðgengilegasta fyrir íslenska sælkera og verður hún til sölu í öllum bókabúðum. Öryggis- og eldvarnakerfi: Kynningiii feUur niður Áður auglýst kynning á öryggis- og eldvarnakerfum á Hótel KEA á Akureyri í dag, miðvikudag, á vegum Raflagnaverkstæðis Tóm- asar og Vara, fellur niður um óákveðin tíma vegna veðurs og ófærðar. Nánar auglýst síðar.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.