Dagur - 13.01.1993, Blaðsíða 11
Miðvikudagur 13. janúar 1993 - DAGUR - 11
IÞRÓTTIR
Halldór Arinbjarnarson
íslandsmótið í handknattleik, 1. deild:
Kemst KA í 6. sætið?
I kvöld verða handknattleiks-
menn í eidlínunni þegar Ieikið
verður í 1. deildinni. Akureyr-
arliðin Þór og KA eiga erfíða
leiki fyrir höndum, leiki sem
þurfa að vinnast, því annars
verður róðurinn í úrslita-
keppnina þungur. KA-menn
geta komist í 6. sæti deildar-
innar með sigri og að því gefnu
að Fram vinni Víking. Þess ber
þó að geta að Víkingar eiga 1
leik inni. Þórsarar leika á úti-
velli gegn Haukum og eiga
harma að hefna frá fyrri leik
liðanna þegar Haukar tóku þá
í bakaríið.
KA-menn fá ÍR í heimsókn í
KA-húsið. Það er leikur sem KA
verður að vinna, því þá verður
baráttan um sæti í úrslitakeppn-
inni mun léttari. En lítum á
hvað þjálfarar KA og ÍR segja
um leik kvöldsins, sem hefst kl.
20.30.
Alfreð Gíslason, KA.
Alfreð bjóst við erfiðum leik í
kvöld. „IR-ingar hafa komið á
óvart í vetur og eru erfiðir við að
eiga. Styrkur þeirra felst í jafnri
liðsheild og þeir hafa ekki neinn
afgerandi leikmann sem hægt er
að taka úr umferð. Við þurfum
að fá stigin og ætlum okkur svo
sannarlega að ná í þau.“ Alfreð
hefur átt hvern stórleikinn af öðr-
um að undanförnu og er í góðu
formi.
Brynjar Kvaran, ÍR.
Þjálfari ÍR, Brynjar Kvaran, er
A íþróttamaður Norðurlands 1992:
Ovenju góð þátttaka
- kjörinu lýst á laugardaginn
Um næstu helgi verður lýst
kjöri íþróttamanns Norður-
lands 1992. Dagur stendur sem
kunnugt er fyrir kjörinu í sam-
vinnu við lesendur sína. Mjög
góð þátttaka var að þessu sinni
af hálfu lesenda. AIIs fengu 57
íþróttamenn atkvæði og nú er
unnið hörðum höndum að því
að telja stigin.
Þetta er í 8. sinn sem Dagur
stendur að þessu kjöri í samvinnu
við lesendur. Síðast var knatt-
spyrnumaðurinn Eyjólfur Sverr-
isson fyrir valinu og hlaut vegleg-
an farandbikar að launum, en
einnig fá 5 efstu einstaklingarnir
bikara til eignar. íþróttamaður
Norðurlans 1992 mun síðan að
útnefningu lokinni draga úr inn-
sendum atkvæðaseðlum og þá
kemur í ljós hver hreppir hin
glæsilegu verðlaun frá verslun-
inni Radíónaust Geislagötu 14.
Billiardmót í Gilinu:
Sterkustu spilarar
landsins væntanlegir
Allir sterkustu billardspilarar
landsins mæta í Gilið á Akur-
eyri um næstu helgi, en þar fer
fram stigamót sem er liður í
íslandsmótinu. Þegar hafa
nokkur mót verið haldin í
Reykjavík en nú liggur leiðin
norður.
Mótið hefst föstudaginn 15.
janúar og stendur fram á sunnu-
dag. Skráning er hafin og lýkur
henni á fimmtudaginn. Allir
kjuðafærir menn eru hvattir til að
skrá sig.
Hörð barátta er um efstu sætin
því tveir stigahæstu spilararnir
tryggja sér rétt til þátttöku á
Evrópumóti sem haldið verður í
Finnlandi. Það má því búast við
skemmtilegum tilþrifum í Gilinu
um helgina.
Mótið er haldið með stuðningi
frá Greifanum og Kjarnafæði og
hefst sem fyrr segir í Gilinu næst-
komandi föstudag. SS
Akureyringum að góðu kunnur.
Hann þjálfaði KA fyrir nokkrum
árum, síðast 1988 og þekkir því
vel til handboltans hjá félaginu.
„Það er alltaf gaman að koma
norður og leikurinn leggst vel í
mig. Eg býst við erfiðum leik,
það er alveg ljóst. KA-menn eru
ekki auðsigraðir á heimavelli,"
sagði Brynjar. Hann kvaðst að
öðru leyti vera nokkuð sáttur við
gengi sinna manna í vetur. „Það
er þó alltaf hægt að gera betur og
við eigum langt í land með að
vera öruggir í úrslitakeppnina,"
sagði Brynjar.
í harðri keppni 1. deildar má aldrei gefa tommu eftir ef sigur á að vinnast.
Mynd: Robyn
Skíðaganga er sannkölluð almenningsíþrótt:
Margt á dagskrá í vetur
Það er kunnara en frá þurfí að
segja að áhugi fyrir skíðagöngu
hefur vaxið hröðum skrefum
undanfarin ár. Skíðaganga hef-
ur líka ýmsa kosti. Fyrst og
fremst er þetta ódýr leið til
heilsubótar sem hentar því
sem næst öllum. Bæði er hægt
að stunda hana sem keppnis-
íþrótt og sem létt trimm sér til
upplyftingar.
Ymislegt er á döfinni á Akur-
eyri í vetur fvrir áhugafólk um
skíðagöngu og skíðatrimm. Þrjú
trimmmót ætluð almenningi eru á
dagskrá auk námskeiða
Námskeið í kvöld
í kvöld kl. 20.00 verður haldið
námskeið í íþróttahöllinni. Þar
verður farið í notkun skíða-
áburðar, meðferð skíða og val á
útbúnaði. Athygli er vakin á því
að námskeiðið verður aðeins
haldið í þetta eina sinn og er ætl-
að jafnt byrjendum sem lengra
komnum. Síðar er ætlunin að
auglýsa stutt námskeið í skíða-
göngu, bæði fyrir börn og full-
orðna.
Kjarnamótið
Kjarnamótið í skíðagöngu verð-
ur haldið nk. laugardag. hefst
það kl. 14 með tímatöku allra
aldursflokka, barna og fullorð-
inna. Kl. 14 verður brautin opn-
uð fyrir þá sem vilja trimma án
tímatöku. Verðlaun verða veitt
fyrir 3 efstu sæti í hverjum flokki
í tímatökunni og öllum þátttak-
Körfuknattleikur, úrvalsdeild:
Stólarnir lagðir í Ljónagryflunm
Eins og rakið hefur verið þá
lenntu Tindastólsmenn í tals-
verðum hrakningum á leið
sinni til Njarðvíkur, þar sem
þeir áttu að leika við heima-
menn í úrvalsdeildinni í körfu-
knattleik. Á þriðjudagskvöldið
gat leikurinn loks farið fram.
Njarðvíkingar höfðu nokkra
yfírburði, sérstaklega í fyrri
hálfleik og lokatölur urðu
93:74 fyrir Njarðvík.
Fyrri hálfleikur spilaðist mjög
hratt og lögðu þá Njarðvíkingar
grunninn að sigri sínum með
hröðu og fjölbreyttu spili. Stól-
arnir voru aftur á móti staðir og
sérlega hugmyndasnauðir í leik
sínum, reyndu bókstaflega alltaf
að spila upp á Raymond Foster.
Nokkrar staðreyndir vöktu hvað
mesta athygli í fyrri hálfleik.
Raymond skoraði 14 fyrstu stig
Stólanna og gerði alls 22 af 31
stigi þeirra í hálfleiknum. Valur
Ingimundarson, sem einmitt er
treysta þeir um of á Foster?
alinn upp í ljónagryfjunni
Njarðvík, lék allan leikinn en
náði þó ekki að skora eitt einasta
stig í fyrri hálfleik. Staðan í leik-
hléi var 55:38.
Síðari hálfleikurinn fór út í vit-
Páll Kolbeinsson hcfur verið drjúg-
ur fyrir Stólana í vetur.
leysu hjá báðum liðum og athygli
vakti hversu grófur leikurinn
varð. Sérstaklega með tilliti til
þess að 30 stig skyldu liðin á
tímabili í fyrri hálfleik. Rondey
og Teitur Örlygsson voru sem
fyrr driffjaðrir Njarðvíkurliðsins,
en Jóhannes Kristbjörnsson
sýndi einnig góð tilþrif. Nýi
leikmaður Stólanna, Raymomd
Foster, stóð uppúr í þeirra liði og
Valur vann vel allan leikinn. Páll
Kolbeinsson skilar alltaf sínu í
vörninni.
Elías Georgsson, Njarðvík
Gangur lciksins: 4:0, 10:8, 23:10, 34:17,
40:20, 54:24, 55:31, 61:41, 71:51, 82:59,
83:70 og 93:74.
Stig UMFN: Rondey Robinson 23, Teit-
ur Örlygsson 20, Jóhannes Kristbjörns-
|son 16, Gunnar örlygsson 11, Rúnar
Árnason 8, Ástþór Ingason 4, Atli Árna-
son 3, Isak Tómasson 3, Jón Ámason 3
og Brynjar Sigurðsson 2.
Stig UMFT: Raymond Foster 35, Valur
Ingimundarson 14, Pétur V. Sigurðsson
9, Karl Jónsson 8, Ingvar Ormarsson 4 og
Páll Kolbeinssonn 4.
endum Kjarnamótsins verður
boðin hressing að göngu lokinni
og fá sérstakan viðurkenningar-
borða að launum.
Skídastaðatrimmið
Skíðastaðatrimmið er liður í
íslandsgöngunni sem nú fer fram
í 2. sinn, þann 6. mars nk. Gang-
an hefst við Strýtu og lýkur við
hús göngumanna við Skíðastaði.
Boðið verður upp á 2 vegalengd-
ir, 12 km og 20 km. Þetta er létt
gönguleið sem allir ráða við og er
mjög skemmtileg.
Páskatrimmið
Á páskadag verður svokallað
Pákatrimm haldið. Gangan hefst
við Strýtu og lýkur við Göngu-
húsið. Boðið verður upp á 12 km
og 4 km, hvortveggja afar léttar
leiðir. Þátttakendum er boðið að
fara með lyftum upp að Strýtu
bæði í Skíðastaða- og Páska-
trimmið.
1 2.
-fýrírþig ogþina fjölskyldu! leikvíkd
Samherjar verða
nú andstæðingar
Það fór svo að lokum að Logi Már Einarsson varð að játa sig
sigraðan. Alls tók hann 9 sinnum þátt ( getraunaleik Dags, 7
sinnum bar hann sigur úr býtum, 1 sinni varð jafntefli og nú síð-
ast laut hann ( lægra haldi fyrir áhöfn frystitogarans Baldvins
Þorsteinssonar EA 10. Óvenju margir leikir enduðu að þessu sinni
með útisigri og það varð Loga að falli, þar sem getrauna-
tækni hans byggðist á að tippa grimmt á heimaleiki.
Áhöfn Baldvins skoraði á félaga sina á Akureyrinni EA 110,
eða „Þórsarana á Akureyrinni," eins og þeir orðuðu það. Nafn-
bótin er til komin vegna stuðningsyfirlýsingar frá áhafnarmeð-
limum Akureyrarinnar til Þórsara, skömmu fyrir leik þeirra við
KA á dögunum. Sú yfirlýsing fór víst ekkert alltof vel ( KA-menn-
ina um borð. Bæði Baldvin og Akureyrin eru ( eigu Samherja á
Akureyri og því má segja að samherjar verði nú andstæðingar.
I síðustu viku voru 5 sem náðu 13 réttum. Enginn þeirra var
hér á landi, þ.e. hjá Golfklúbbi Akureyrar. Það komu hins vegar
fram 8 raðir hérlendis með 12 réttum og 81 með 11. Á þessum
seðli er mikið af athyglisverðum leikjum og spennan á toppnum
er nú (algleymingi ( úrvalsdeildinni ensku.
Baldvin EA Akureyrin ‘S. VI C £l
1. Everton-Leeds 1X 1
2. Man. City-Arsenal 12 X
3. Norwich-Coventry 1 1
4. Nottingham Forest-Chelsea 1X 1X
5. Oldham-Blackburn X2 2
6. Sheff. Utd.-lpswich 1X 2
7. Southampton-Crystal Palace 1 1X
8. Tottenham-Sheff. Wed. 1 1X
9 Wimbledon-Liverpool 1X 2
10. Barnsley-Bristol City 12 1X
11. Bristol Rovers-Sunderland 2 X2
12. Cambridge-Grimsby 1 1
13.Southend-Derby 2 X2
Upplýsingar um rétta röð og vinningsupphæðir:
Lukkulínan 99-1000 • Textavarpið síða 455
Símsvari 91-814590 • Grænt númer 99-6888