Dagur - 13.01.1993, Síða 7

Dagur - 13.01.1993, Síða 7
Miðvikudagur 13. janúar 1993 - DAGUR - 7 Á vetrarkvöldum og ótíð eins og nú er sitja menn heima og hnýta flugur, sem reyna á þegar fossbúinn knái vitjar æskustöðvanna. farið var að athuga skemmdir, fundust - bak við eitt sætið - 40 frosnir fiskar, sem höfðu átt að bjarga heiðri veiðimannanna ef illa veiddist. Þeir finna upp á ýmsu í Ameríku. Enginn þolhlaupari Eitt sinn setti veiðimaður nokkur í stóran lax við klettana efst á Breiðunni, fyrir neðan Æðar- fossa í Laxá í Aðaldal. Laxinum varð hverft við þegar hann fann átak stangarinnar og þaut af stað niður ána með miklum hraða. Veiðimaðurinn var með langa línu og bjóst við að laxinn mundi aldrei fara svo langt, að hún nægði ekki. Hann stóð því kyrr í sömu sporum og horfði á eftir ferlíkinu þar sem það buslaði niður ána. En allt í einu varð honum litið á hjólið og sá þá að síðustu vafningarnir voru að renna út af því. Eftir fáeinar sek- úndur sleit laxinn og veiðimaður- inn stóð eftir með tómt hjól. Nú bar að veiðifélaga hans, sem hafði verið uppi í Bjarg- streng og hann sagði: „Af hverju hljópstu ekki á eftir laxinum, maður?“ „Á að gera það?“ svaraði veiði- maðurinn. „Pað hef ég aldrei heyrt; enda hefði það nú lítið gagnað, því ég er enginn þol- hlaupari"! Umhverfisráðuneytið: Gefiir út skýrslu um umhverfisráðsteftiuna í Ríó Umhverfisráðuneytið hefur tekið saman skýrslu um heims- ráðstefnu Sameinuðu þjóð- anna um umhverfi og þróun, sem haldin var í Ríó de Janeiró dagana 3.-14. júní 1992. I skýrslunni er gerð grein fyrir undirbúningi ráðstefnunnar, bæði erlendis og hér á landi. Þar er stuttlega sagt frá ráðstefnunni sjálfri og gerð grein fyrir helstu niðurstöðum hennar. Hinn sýnilegi árangur heims- ráðstefnunnar felst einkum í tveimur samningum, sem undir- ritaðir voru af yfir 150 ríkjum, um loftslagsbreytingar og um fjölbreytileika lífs á jörðinni, svo og þremur yfirlýsingum: Ríóyfir- lýsingunni, framkvæmdaáætlun- inni Dagskrá 21 og yfirlýsingu um verndun skóga. Samningarnir tveir eru lagalega skuldbindandi fyrir þær þjóðir sem undirrituðu þá og fullgilda, en yfirlýsingarnar þrjár eru hins vegar ekki lagalega skuldbindandi, en fela engu að síður í sér pólitískar og siðferði- legar skuldbindingar fyrir allar þátttökuþjóðirnar. Til þess að fylgja eftir sam- þykktum ráðstefnunnar hafa Sameinuðu þjóðirnar ákveðið að skipa fjölþjóðanefnd um sjálf- bæra þróun, til þess að fylgjast með framkvæmd Dagskrár 21. Verður væntanlega kosið í nefnd- ina í febrúar næstkomandi. Hér á landi er þegar farið að vinna að því að koma samþykkt- um ráðstefnunnar í framkvæmd. Meðal annars hefur verið stofnuð nefnd um stefnumótun í umhverf- ismálum og tveir starfshópar sett- ir á laggirnar. Skal annar þeirra endurskoða framlög íslendinga til þróunaraðstoðar og hinn leggja drög að stefnumótun um notkun stjórntækja til að tak- marka útblástur gróðurhúsaloft- tegunda og fylgjast með þeirri vinnu sem fram fer á alþjóðavett- vangi á því sviði. Þá er hafin vinna á vegum umhverfisráðu- neytisins við að þýða alþjóða- samningana tvo sem undirritaðir voru og undirbúa fullgildingu þeirra hér á landi. Dymar opnast - frá einhverfu til doktorsnafnbótar Út er komin bókin Dyrnar opnast - frá einhverfu til dokt- orsnafnbótar eftir Dr. Temple Grandin. Þetta er fyrsta bókin þar sem einhverfu er lýst frá sjónarhorni einhverfrar mann- eskju. Fáir hafa verið til frásagnar um þá sérstæðu fötlun sem einhverfa er, enda er eitt af einkennum hennar erfiðleikar í tjáskiptum. Ýmsar kenningar hafa verið á kreiki um orsakir einhverfunn- ar, margar byggðar á vanþekk- ingu og sveipaðar dulúð. Á undanförnum árum hafa miklar framfarir átt sér stað í skilningi á einhverfu og er hin bandaríska Temple Grandin ein þeirra sem hafa lagt drýgstan skerf á þær vogarskálar. Hún var greind einhverf sem barn en tókst að yfirvinna helstu samskipta- tálma þessarar fötlunar og er nú doktor í dýrasálfræði og mikils metin á því sviði. Henni hefur tekist að koma til skila reynslu sinni af einhverfu, bæði í formi fyrirlestra og í bók sinni Dyrnar opnast - frá einhverfu til doktors- nafnbótar sem Umsjónarfélag einhverfra hefur nú gefið út. Þetta er fyrsta bókin þar sem þessari reynslu er lýst. Bókin hef- | ur vakið mikla athygli víða um lönd og er talin lykilbók að skiln- ingi manna á þessari fötlun. Fyrir þá íslendinga sem tengj- ast einhverfu á einn eða annan hátt markar þessi bók einnig tímamót fyrir þá sök að þetta er fyrsta bókin sem kemur út á íslensku og fjallar um þessa fötlun. Eins og titillinn ber með sér lýsir bókin leið Temple Grandin frá einangrun einhverfunnar til doktorsnafnbótar. Skringileg uppátæki, furðuleg framkoma, misskilningur og rangtúlkanir, þrá eftir ást, innri barátta í flókn- um og yfirþyrmandi heimi. Bókin lýsir því er undarleg áhugamál og þráhyggja breytast í þrautseigju er knýr fram sigur... Ragnheiður Oladóttir þýddi og Hvíta húsið auglýsingastofa styrkti útgáfu bókarinnar og gaf m.a. vinnu við hönnun bókar- kápu. Dreifingu annast Örn og Örlygur. Bókin er 160 bls. og kostar 1.980,- kr. Umsjónarfélag einhverfra gef- ur bókina út og tileinkar þessa íslensku útgáfu öllum þeim íslendingum sem hafa trú á manneskjunni og möguleikum hennar. Arnarneshreppsbúar Viimingshafar í Jólaleik Greifans Fyrir skömmu var í beinni útsendingu á Hljóðbylgjunni, dregið í Jólaleik Greifans á Akureyri, sem var haldinn í tengslum við Jólahlaðborð Greif- ans. Boðið var upp á jólahlað- borð frá 11.-24. desember og voru undirtektir mjög góðar en alls komu um 600 manns til að njóta kræsinga úr borðinu. Þetta var í fyrsta skipti sem Greifinn bauð upp á sérstakt jólahlaðborð en vegna þess hversu undirtektir voru góðar, verður framhald þar á. Alls voru veitt 10 verðlaun í Jólaleiknum en í fyrsta vinning var 10.000 kr. matarúttekt á Greifanum. 1 2.-4. vinning var 5.000 kr. matarúttekt á Greifanum og í 5.-10. vinning jólagospakki frá Ölgerðinni. Vinningshafar urðu þessir: Leiðréttmg 1 umsögn undirritaðs um Óska- steininn, barnaleikrit, sem leikhópur undir stjórn Arnar Inga Gíslasonar sýnir í leikskól- um Akureyrar, er að því fundið, að Örn Ingi var sjálfur í stóru hlutverki undir lok verksins. Örn Ingi hafði hlaupið í skarð- ið fyrir leikara, sem ekki gat tek- ið þátt í sýningunni sakir þess að hann var staddur erlendis. Undir- rituðum var ekki kunnugt um þetta, þegar umfjöllunin var rituð, og eru þeir, sem í hlut eiga, beðnir velvirðingar. Haukur Ágústsson. 1. Helga Jóhannsdóttir. 2. -4. Sigrún Marinósdóttir, Þórður Kárason, Leó Magnús- son. 5.-10. Dúfa Kristjánsdóttir, Jó- hann Guðmundsson, Silja Mist Sigurkarlsdóttir, Þorbjörg Braga- dóttir, Rannveig Alfreðsdóttir, Anna María Hafsteinsdóttir. Fréttatilkynning Félagsmiðstöðin Tónabær: Músíktilraunir ’93 í mars og aprfi Félagsmiðstöðin Tónabær mun í mars og aprfl nk. standa fyrir Músíktilraunum 1993. Þá gefst ungum tónlistarmönnum tækifæri til að koma á framfæri frumsömdu efni og ef vel tekst til, að vinna með efni sitt í hljóðveri. Músíktilraunir eru opnar öll- um upprennandi hljómsveitum alls staðar að af landinu og munu aðstandendur þeirra reyna að útvega afslátt af flugfari fyrir keppendur utan af landi. Tilraunakvöldin verða þrjú eins og undanfarin ár. Það fyrsta verður 18. mars, annað 25. mars og það jtriðja og síðasta þann 1. apríl. Urslitakvöldið verður svo föstudaginn 2. apríl. Margvísleg verðlaun eru í boði fyrir sigur- sveitirnar en þau veglegustu eru hljóðverstímar frá nokkrum bestu hljóðverum landsins. Þær hljómsveitir sem hyggja á þátttöku í Músíktilraunum 1993 geta skráð sig í félagsmiðstöðinni Tónabæ í síma 91-35935 og 91- 36717 frá 15. janúar til 5. mars alla virka daga milli kl. 10 og 22. (Fréttatilkynning) Matarkrókur: Leiðrétting Þau leiðu mistök urðu í Matar- króknum sl. laugardag að upplýs- ingar vantaði í tartalettuuppskrift Jakobínu Áskelsdóttur svo hún varð hvorki fugl né fiskur. Hér verður uppskriftin birt að nýju og með öllum nauðsynlegum upp- lýsingum. Tartalettur 200 g hangikjöt Vi dós aspargus 1 paprika 3 harðsoðin egg (fremur smátt skorin) 100 g mayonnaise 100 g rifinn ostur Þetta er allt hrært saman og sett í tartalettur. Síðan bakað í ofni við 190 gráður í 10-15 mínút- ur. Þorrablót verður haldið í Hlíðarbæ laugardaginn 23. janúar kl. 21.00. Brottfluttir hreppsbúar velkomnir. Miðapantanir í símum 25477 Krissa, 26507 Inga, 21962 Atli, í síðasta lagi miðvikudaginn 20. janúar. Félag harmonikuunnenda við Eyjafjörð Dansleikur laugardaginn 16. janúar í Lóni við Hrísalund frá kl. 22.00-03.00. Mætiö vel og stundvíslega. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Stjórnin. Húsnæði Ríkissjóður leitar eftir leigu eða kaupum á íbúð- arhúsnæði í BORGARNESI og á SAUÐÁRKRÓKI. Um er að ræða einbýlishús, par- og/eða raðhús, u.þ.b. 160-200 m' að stærð að meðtalinni bíl- geymslu. Tilboð, ergreini staðsetningu, stærð, byggingarár og -efni, fasteigna- og brunabótamat, verðhugmynd og áætlaðan afhendingartíma, sendist eignadeild fjár- málaráðuneytisins, Arnarhvoli, 150 Reykjavík, fyrir 26. janúar 1993. Fjármálaráðuneytið, 11. janúar 1993.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.