Dagur - 04.02.1993, Page 12

Dagur - 04.02.1993, Page 12
Húsavík: Eyþing ályktar um sameiningarmálið“ 99 Á morgun er boðaður á Húsa- vík fundur stjórnar Eyþings, samtaka sveitarfélaga í Norður- landskjördæmi eystra, með héraðsráðum í kjördæminu og fulltrúm þess í fulltrúaráði Sambands íslenskra sveitar- félaga. Þar verða lögð fram drög að ályktun, sem stjórn Eyþings hefur mótað, um afstöðu samtakanna til skýrslu nefndar um sameiningu sveit- arfélaga, sem kynnt var seint á síðasta ári. Einar Njálsson, bæjarstjóri á Húsavík formaður Eyþings, vildi í gær ekki upplýsa hvað fælist í nefndum drögum að ályktun. Hann sagðist hins vegar vænta þess að menn kæmu sér saman um endanlega ályktun á fundin- um á morgun. Einar sagðist telja að afstaða manna til sameiningar sveitar- félaga væri mjög mismunandi. „Almennt held ég að forsvars- menn minni sveitarfélaga hafi takmarkaðri áhuga fyrir samein- ingu en stærri sveitarfélögin. Hins vegar er ég persónulega þeirrar skoðunar að það beri að skoða þetta mál mjög jákvætt og af opnum huga. Ég held að það sé miklu skynsamlegra fyrir okk- ur að taka þannig á málinu að við getum haft eitthvað um þróunina að segja,“ sagði Einar. „Ég hef verið þeirrar skoðunar að Húsavík ætti ekki hafa for- göngu um að sameinast öðrum sveitarfélögum. Hins vegar tel ég að ef önnur og minni sveitarfélög hér í kring leituðu eftir því við Húsavík að ganga til sameining- ar, þá myndi ég vilja skoða slíkt á jákvæðan hátt. En ég tel fjarri því að það sé hlutverk Húsavíkur að hefja slíkar umleitanir að fyrra bragði," sagði Einar. Einar sagðist telja að samein- ing sveitarfélaga hlyti að fara saman við endurskoðun á verka- skiptingu ríkis og sveitarfélaga og tilflutning verkefna til sveitar- félaga. „Það kæmi mér ekki á óvart þótt yrðu verulegar breyt- ingar á verkaskiptingunni fyrir aldamót. En ég tel líka að slíkar breytingar ættu ekki að gerast á skemmri tíma,“ sagði Einar Njálsson. óþh Óveðurskafli í árslok síðasta árs kostaði sitt fyrir Akureyrarbæ: Átta rmlljómr í snjó- mokstur á sex vikum - snjómoksturskostnaður fór 4 milljónum fram úr áætlun á árinu Frá Dalvíkurhöfn. Rækjuvinnsla Söltunarfélags Dalvíkur í baksýn. Söltunarfélag Dalvíkur segir upp gildandi vaktavinnufyrirkomulagi: Starfsfólki fækkar um þriðjung í byijun marsmánaðar Söltunarfélag Dalvíkur hf. hef- ur sagt upp vaktavinnufyrir- komulagi því sem gilt hefur í rækjuverksmiðju fyrirtækisins með tilskildum fjögurra vikna fyrirvara og tekur það því gildi í fyrstu viku marsmánaðar. Samtals starfa um 60 manns við rækjuvinnsluna á tveimur vöktum og mun þessi breyting hafa það í för með sér að starfs- fólki mun fækka um 20 manns en hluti af starfsliðinu er í hálfu starfi eða hlutastarfi. Aðalorsök þess að gripið er til þessara ráð- stafana er sú að togari Samherja hf., Margrét EA-710, varð fyrir brotsjó aðfararnótt 24. janúar sl. í Eyjafjarðarál og hefur verið ákveðið að setja nýtt stýrishús á skipið og tekur verkið um 5 vikur. Margrét EA gegnir lykil- hlutverki í hráefnisöflun rækju- verksmiðjunnar á þessum árs- tíma og því mjög bagalegt að missa hana út. Vegna mikillar ótíðar hefur afli þeirra rækjubáta sem landað hafa hjá Söltunar- félaginu verið mjög rýr en sæmileg veiði þá daga sem gefið hefur. Náttfari HF-185 landaði 16,8 tonnum af rækju sl. föstudag á Dalvík, en auk þess hefur Stefán Rögnvaldsson ÉA-345 verið á rækjuveiðum og landaði 4,5 tonnum sl. föstudag. GG Akoplast og sorppokaútboðið: „Ef við höldum þessu verki bætast við þrjú ný störf ‘ - segir Eyþór Jósepsson hjá Akoplasti Síðustu sex vikur ársins 1992 voru kostnaðarsamar hvað varðar snjómokstur hjá Akur- eyrarbæ. Á þessu tímabili fóru yfír 8 milljónir króna í snjó- mokstur enda fjöldinn ailur af tækjum í vinnu, stóran hluta sólarhringsins. Að sögn Guðmundar Guð- O VEÐRIÐ Lægð er fyrir norðaustan land og vaxandi háþrýstisvæði yfir Grænlandi. Norðlendingar mega því vænta stífrar norðanáttar í dag og er spáð éljagangi og norðaustan kalda þegar líður á daginn. laugssonar, yfirverkfræðings hjá Akureyrarbæ, fór kostnaður við snjómokstur í bænum á síðasta ári rúmum 4 milljónum fram úr áætlun. Þessar síðustu vikur árs- ins gerðu útslagið. Við endur- skoðun fjárhagsáætlunar hafði þessi liður fjárhagsáætlunar Akureyrarbæjar verið lækkaður úr 11,8 milljónum króna í 7,8 milljónir. Uppgjör ársins sýnir hins vegar að snjómoksturskostn- aður hafi verið 12,3 milljónir á árinu eða meiri en upphaflega fjárhagsáætlun ársins gerði ráð fyrir. Snjómokstur var mikill hjá bænum fyrsta mánuð þessa árs en Guðmundur sagði ekki liggja fyr- ir uppgjör fyrir mánuðinn. JOH Árbakur EA og Svalbakur EA komu sl. þriðjudag til löndun- ar hjá Útgerðarfélagi Akureyr- inga hf. Nægilegt hráefni er nú til vinnslu í frystihúsinu og því fara í vikunni fjórir gámar af óunnum físki á markað í Frakklandi. Að sögn Gunnars Aspar, fram- leiðslustjóra Útgerðarfélags „Það er ekki rétt sem formaður bæjarráðs hefur látið í skína að tilboð okkar hafí verið 20% hærra en lægsta innlenda tilboð- ið. Akoplast bauð 4.991.828 kr. en Plastos-umboðið 4.326.300 kr. sem er 13,4% lægra og þarna erum við bara að tala um beinharðar tölur,“ sagði Eyþór Jósepsson einn eigenda Akureyringa hf., var afli Árbaks 70 tonn sem afli Svalbaks. „í þessari viku erum við með vel umfram það sem við getum unnið og í næstu viku verður hráefnið nægilegt. Af þeim sök- um höfum við þurft að afþakka hráefni frá Ólafsfirði og Hrísey. Fjórir gámar fara nú á markað í Frakklandi og uppistaðan er grá- Akoplasts í samtali við Dag. Eins og við höfum greint frá urðu miklar umræður um plast- pokamálið í bæjarstjórn og mál- inu loks vísað aftur til bæjarráðs, sem áður hafði mælt með því að taka lægsta innlenda tilboðinu, frá Plastos-umboðinu. Akoplast hefur framleitt sorppoka fyrir Akureyrarbæ og hafa þeir líkað lúða. í næstu viku verður lítið framboð af grálúðu á mörkuðum í Frakklandi og því er lag að selja umframafla. SI. laugardag var unnið frá kl. 6.00 til 12.00 og vinna hefst hér kl. 7.00 alla þessa viku. Útflutningur gámanna til Frakklands hefur því engin áhrif á vinnsluna hér í húsinu, starfs- fólkið hefur næga vinnu,“ sagði Gunnar Aspar. ój vel og var um það rætt á fundi bæjarstjórnar að engin ástæða hefði verið til þess að bjóða þetta út heldur hefði verið hægt að ganga beint til viðræðna við Akoplast. Eyþór segir að ef Akoplast missir sorppokaframleiðsluna fyrir bæinn þá þýði það 40 tonna samdrátt í plastkaupum sem leiði til óhagstæðari innkaupa. „Við höfum gert bæjarfulltrú- um grein fyrir því að ef við höld- um þessu verki þá bætast við þrjú ný störf hjá Ákoplasti og það strax. Þarna er um nýsköpun að ræða, við ætlum að gera plast sem hefur ekki verið gert hér áður og við eigum orðið allar vél- ar sem við smíðuðum í samvinnu við DNG. Kaupendurnir eru klárir en ef við missum 40 tonn út úr pakkanum þá verður þetta mjög erfitt og útlit fyrir að við þurfum að segja upp starfsmanni í stað þess að skapa ný störf,“ sagði Eyþór, sem vildi að menn tækju líka tillit til atvinnusjónar- miða og heildarhagsmuna bæjar- félagsins við samanburð á tilboð- unum. SS Útgerðarfélag Akureyringa hf.: Fjórir gámar á Frakklandsmarkað - næg vinna í frystihúsinu

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.