Dagur


Dagur - 25.02.1993, Qupperneq 1

Dagur - 25.02.1993, Qupperneq 1
Venjulegir og demantsskornir trúlofunarhringar Afgreiddir samdægurs GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI Tilboð í póstflutninga í Svarfaðardal og á Árskógsströnd opnuð í gær: Gífurlegur munur á hæsta og lægsta tilboði Gríðarlegur munur var á lægsta og hæsta tilboði í póst- flutninga í Svarfaðardal og á Árskógsströnd, en tilboð í þá voru opnuð á Dalvík í gær. Ellefu tilboð bárust og var það lægsta 2,726 milljónir, 74% af Verkalýðsfélagið Vaka á Siglufirði: Umræóugrundvelli að vaktavinnufyrir- komulagi skotíð til félagsfimdar Utgerðar- og fiskverkunarfyr- irtækið Þormóður rammi á Siglufirði óskaði í gær eftir því að gengið yrði frá samningi um vaktavinnufyrirkomulag í rækjuverksmiðju félagsins. Stjórn Vöku skaut þessu máli til félagsfundar síðdegis í gær en til þess fundar var allt físk- vinnslufólk innan vébanda Vöku boðað og mættu þar um 130 manns. Hjá Þormóði ramma vinna um 16 manns við rækjuvinnslu og sú tala tvöfaldast þegar farið verður að vinna á vöktum en það verður varla fyrr en um miðjan marsmánuð þegar ísfisktogarinn Stálvík kemur úr fyrstu veiðiferð- inni á rækju en togarinn fór á þorskveiðar síðdegis í gær. Fundurinn samþykkti að fela stjórninni að ganga til samninga um vaktavinnufyrirkomulagið en nokkurrar óánægju gætti hjá mörgum með þann ramma að samningi sem lagður var fram sem umræðugrundvöllur og hvöttu stjórnina til að ná fram betri samningum en uppkastið gæfi tilefni til. GG 3,666 milljóna króna kostnað- aráætlun Pósts og síma, en það hæsta var 9,683 milljónir króna, 264% af kostnaðaráætl- un. Gert er ráð fyrir að sá sem samið verður við hefji póst- dreifíngu á þessu svæði 1. maí nk. og miðaðist útboðið við tvö ár frá þeirn degi. Jón Þórarinsson, Hæringsstöð- um Svarfaðardal, átti lægsta til- boðið, 2,726 milljónir króna. Halldór Gunnlaugsson, Þor- steinsstöðum Svarfaðardal, var með næstlægsta tilboðið, 3,643 milljónir króna. Aðrir tilboðs- gjafar voru: Víkingur Árnason, Dalvík, 3,698 milljónir, Ingvi Baldvinsson, Bakka Svarfaðar- dal, 4,776 milljónir, Ríkarður Björnsson, Dalvík, 5 milljónir Ævar og Bóas sf., Dalvík, 5,166 milljónir, Kvistur sf., Dalvík, 5,209 milljónir, Jón Ægir Jóhannsson, Dalvík, 6491 millj- ónir, Eiríkur Ágústsson, Dalvík, 7,6 milljónir, Gunnlaug- ur Þ. Halldórsson, Brattavöllum Árskógsströnd, 7,6 milljónir og Skarphéðinn Pétursson, Hrísum við Dalvík, 9,683 milljónir. Að sögn Ársæls Magnússonar, umdæmisstjóra Pósts og síma, verður næstu daga farið yfir til- boðin og í framhaldi af því tekin ákvörðun um við hvern verður samið. Um er að ræða bætta þjónustu við íbúa á þessu svæði. Til þessa hefur pósti verið dreift þrisvar í viku í Svarfaðardal, en frá og með 1. maí nk. verður honum dreift fimm sinnum í viku, alla virka daga. Gert er ráð fyrir að pósti verði dreift frá Dalvík um kl. 13 á mánudögum og föstudög- um, en um kl. 15 á þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudög- um. Ársæll Magnússon sagði að í framtíðinni kæmi vel til álita að nýta þessar daglegu ferðir einnig til vöruflutninga. óþh Öskudagur á Akureyri. Á innfelldu myndinni má sjá að hugkvæmni hefur gætt við gerð öskudagsbúninganna. Myndir: Robyn Fiskverkun Sæunnar Axels hf. í Ólafsfirði: Útflutningurinn beinist m.a. til Brasilíu og ÁstraJíu Skreið hcfur verið afskipað vikulega að undanförnu hjá Sæunni hf. í Ólafsfírði og sl. föstudag fóru 2 tonn til Frakklands. Vegna mikils verðfalls á skreið á Ítalíumark- aði hefur fyrirtækið Ieitað víða eftir viðskiptum með fram- leiðsluna, og hefur skreiðin m.a. farið til Brasilíu og Ástralíu auk Frakklands. Heildarútflutningur á skreið til Ástralíu var á síðasta ári 15 tonn og verðmæti þess um 11,1 milljón krónur. Rafmagn til heímilisnota er ódýrast á Akureyri - munurinn á verði frá RA og Rarik rúm 20% miðað við 3.500 kWst. ársnotkun Rafmagn til heimilisnota er ódýrast á Akureyri, samkvæmt útreikningum Sambands íslenskra rafveitna. Gjald fyrir taxta Al, sem er taxti fyrir heimili, iðnað, verslanir, skrif- stofur og skóla svo eitthvað sé nefnt, er kr. 6,75 á kWst. og er það sama og í Reykjavík en hins vegar er svokallað fasta- gjald lægra á Akureyri, eða kr. 2.920 á ári en kr. 2.926 í Reykjavík. Sé gert ráð fyrir að ársnotkun á meðal íbúð sé 3.500 kWst., kost- ar sú notkun kaupandann kr. 26.545 á ári á Akureyri en kr. 26.551 í Reykjavík. Munurinn felst eingöngu í hærra fastagjaldi í Reykjavík. Á Húsavík er verð á heimilis- taxta, svokölluðum A2, kr. 7,96 á kWst. en þar er fastagjaldið á ári kr. 2.383. Miðað við 3.500 kWst. ársnotkun er rafmagns- reikningurinn á Húsavík kr. 30.243. Á Sauðárkróki er verð á heimilistaxta, svokölluðum Bl, kr. 8,86 á kWst. en þar er ekkert fastagjald. Miðað við 3.500 kWst. ársnotkun á Sauðárkróki hljóðar rafmagnsreikningurinn því upp á kr. 31.010. Aðrir þéttbýlisstaðir á Norðurlandi kaupa rafmagn af Rarik og kostar hver kWst. á svokölluðum A1 taxta, kr. 8,28 og fastagjaldið á ári kr. 4.395. Það kostar því notanda með 3.500 kWst. ársnoktun kr. 33.375 að kaupa rafmagn af Rarik. Það er því um 20% ódýrara að kaupa rafmagnið af Rafveitu Akureyrar en Rarik, sé miðað við 3.500 kWst. ársnotkun og taxta Al. Sé notkunin minni, er verðmunur- inn enn meiri. Sjá nánar töflu á bls 2. -KK Sæunn Axelsdóttir segist hafa fengið ágætis verð fyrir skreiðina með því að leita eftir markaði fyrir hana t.d. í Frakklandi, Bandaríkjunum og Ástralíu en verðhrunið á Ítalíu segir hún stafa af offramboði frá Norð- mönnum og eins hafi þeir verið að bjóða verðið niður hver fyrir öðrum og þá sé erfitt og jafnvel vonlaust fyrir íslendinga að vera með hærra verð á sama markaði. í haust átti fyrirtækið um 48 tonn af góðri skreið sem táknar að hengt hafi verið upp í hjalla um 260 tonn af fiski en skreiðin er um 18% af þyngd fisksins þegar hann er hengdur ferskur upp í hjalla. í dag á fyrirtækið enn óseld um 20 tonn af skreið. Reiknað er með að byrja að hengja upp í hjalla um miðjan marsmánuð ef veðurfar leyfir, en aðallega eru það frosthörkur sem standa í vegi fyrir því. Lítið var hengt upp af skreið á Norðurl- andi á sl. ári vegna verðhrunsins á Ítalíumarkaðnum, en þó mun Bliki hf. á Dalvík hafa verkað nokkuð af skreið sem öll fór á Bandaríkj amarkað. Sæunn segir að með vissu ára millibili fari verðið á þessari framleiðslu niður en komi upp aftur þannig að það ætti ekki að koma neinum á óvart sem fylgst hafi með þróuninni í verðlagn- ingunni á skreið á undanförnum árum. Á síðasta ári voru flutt út 421 tonn af skreið til 13 landa og fór mest til Nígeríu, eða 267 tonn að verðmæti 48,2 milljónir króna. Næst koma Bandaríkin með 47 tonn að verðmæti 27,9 milljónir, Ítalía með 36 tonn að verðmæti 24,5 milljónir, Bretland með 16 tonn að verðmæti 7,6 milljónir og til Ástralíu fóru 15 tonn að verð- mæti 11,1 milljón króna sem jafnframt er hæsta meðalverð þeirra fimm landa sem mestur útflutningur var til, eða 740 kr./ kg. Næst komu svo Ítalía með 680 kr./kg og Bandaríkin með 594 kr./kg. Hæsta verðið fékkst hins vegar fyrir skreið sem flutt var til Brasilíu, eða 1051 kr./kg en þangað fór aðeins eitt tonn svo það eru varla marktækar tölur. Það sama má segja um Frakkland, en þangað fóru 1,2 tonn og meðalverð 945 kr./kg. GG Vísitala byggingar- kostnaðar: Hækkar um 2% milli mánaða Hagstofan hefur reiknað vísi- tölu byggingarkostnaðar eftir verðlagi um miðjan febrúar 1993. Reyndist hún vera 190,2 stig og hækkar um 0,2% frá janúar sl. Þessi vísitala gildir fyrir mars 1993. Samsvarandi vísitala miðuð við eldri grunn er 608 stig. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitalan hækkað um 1,7%. Síð- ustu þrjá mánuði hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 0,5% og samsvarar það um 2,1% hækkun á ári.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.