Dagur - 25.02.1993, Blaðsíða 7

Dagur - 25.02.1993, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 25. febrúar 1993 - DAGUR - 7 Náungakærleikann má finna víða Ört vaxandi atvinnuleysi á ís- Iandi hefur orðið tilefni margra blaðagreina að undanförnu. Laugardaginn 20. febrúar birtist grein í Degi eftir Sigríði Þor- grímsdóttur, blaðamann, er bar yfirskriftina „Hvar er náunga- kærleikurinn?" f greinarkorni þessu opinberar blaðamaðurinn fákunnáttu sína um þá aðstoð sem kirkjan og stéttarfélögin veita þeim sem eru í atvinnuleit. Gagnrýni er ágæt sé hún sanngjörn, en allt tal um að það geti ekki verið uppbyggjandi a.m.k. til lengdar, að grafa haus- inn í sandinn og láta sem nei- kvæðar hliðar mannlífsins séu ekki til, á ekki við þegar rætt er um starf kirkjunnar, verkalýðs- félaganna og þess fólks sem er í atvinnuleit. Ég vil upplýsa blaðamanninn og lesendur Dags um að á Akur- eyri er unnið mikið starf til hjálp- ar þeim sem eru í atvinnuleit. Starfshópur skipaður sjö fulltrú- um frá kirkju, verkalýðsfélögum, heilsugæslustöð og frá þeim sem eru í atvinnuleit er að störfum og starfið er markvisst í þágu þeirra atvinnulausu. Hvern miðvikudag er opið hús í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju þar sem boðið er upp á fræðsluerindi af ýmsu tagi er taka til vandamála þeirra sem eru í atvinnuleit og lausna á vandamálunum. í upphafi starfs nefndarinnar var komið á fót tveimur kjarna- námskeiðum, þar sem fjallað var um rétt atvinnulausra og stöðu, um sjálfsuppbyggingu og sam- neyti fólks á vinnustöðum. Aðsókn var mikil og því þótti sjálfsagt að halda áfram á sömu braut. Nú var leitað til þeirra sem hafa með fullorðinsfræðslu að igera við Verkmenntaskólann á ! :Akureyri og þeir skipulögðu ikennslu fyrir þá sem eru í atvinnuleit. Kennslan er jafnt bókleg sem verkleg. Yfir eitt hundrað skráningar bárust á námskeiðin og kennsla er hafin á fullu, þakkir sé þeim er málum ráða í Verkmenntaskólanum á Akureyri. Atvinnuleysi er mikið böl og atvinnuleysisvofan hrjáir margan manninn á Akureyri, sem víðar á íslandi. Fólk það sem er í atvinnuleit er flest hörkuduglegt og á annað hlutskipti skilið en að vera iðjulaust. Sárast þykir mér að horfa upp á ungt fólk, vel menntað, sem er tilbúið að koma út í atvinnulífið en er hafnað. Margar spurningar vakna í þessu sambandi, en ekki sú sem Sigríð- ur blaðamaður veltir upp. Náungakærleikann má finna víða og baráttuþrek þeirra sem eru í atvinnuleit er víðast óbilað. Iif og fjör á öskudagiim Öskudagurinn fór fram með hefðbundnum hætti á Akureyri í gær. Börn risu eldsnemma úr rekkju, klæddu sig í búninga og héldu af stað í fyrirtæki og versl- anir og sungu þaulæfð lög fyrir starfsmenn. Að launum hlutu þau sælgæti og annað gott svo sem venja er. Kötturinn var sleg- inn úr tunnunni á Ráðhústorgi og einhverjir kræktu skrautlegum pokum á vegfarendur, en söngur- inn og sælgætissöfnunin var þó höfuðmálið. í dag má búast við að börnin rísi seint og illa úr rekkju og séu skapstygg sum hver í kjölfar þess að blóðsykurinn hefur fallið mjög eftir sætindaát gærdagsins. SS/Myndir: Robyn Samtök búvélasafnara: Stofnfundur á Hótel Norðurlandi Stofnfundur samtaka búvélasafn- ara verður haldinn á Hótel Norðurlandi í dag, fimmtudaginn 25. febrúar, og hefst hann kl. 21. Menn eru hvattir til að koma og fræðast eða til að miðla af sínum fróðleik og taka þátt í mótun þessara nýju samtaka. Allir eru velkomnir, en kaffi verður til sölu á fundinum. Nánar var greint frá þessum fyrirhugaða fundi í blaðinu í gær en þá gleymdist að geta um fund- arstað, en sem fyrr segir verður fundurinn haldinn á Hótel Norðurlandi kl. 21 í kvöld. Kymiing á ITC á Norðurlandi Um næstu helgi, dagana 26. til 28. febrúar, gefst þeim sem búa á norðaustur hluta landsins tæki- færi til að kynnast ITC sam- tökunum. ITC-samtökin verða með kynningu á samtökunum í ^barnaskólanum Þórshöfn kl. 14 á morgun, föstudag, á Hótel Húsa- vík á laugardag kl. 14 og í Safn- aðarheimili Glerárkirkju á Akur- eyri nk. sunnudag kl. 14. Á fund- lunum verður fjölbreytt fræðsla um starfsemi samtakanna auk þess sem fræðsla verður um fram- komu í ræðustól o.fl. Þessir fund- ir ITC-samtakanna eru öllum opnir og ókeypis aðgangur. (Fréttatilkynning) SJALLINN Föstudags- og laugardagskvöld Stjórnin Kjallarinn Föstudags- og laugardagskvöld Tregasveitin smÍNN

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.